Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Side 25
MIKILVÆGUR SIGUR ÞÓRSARA Þór frá Akur-
eyri lagði Leikni í toppslag í 1. deildinni síðdegis á laugardag, 1-0,
með marki Sveins Elíasar Jónssonar. Sigurinn kom Þórsurum upp
fyrir Leikni í annað sæti deildarinnar á markatölu. Þórsarar urðu
hreinlega að vinna leikinn til að missa ekki Leiknismenn sex stigum
fram úr sér en með sigri fyrir norðan hefði Leiknir jafnað Víkinga
að stigum sem eru nú efstir í deildinni með 28 stig. Þór og Leiknir
hafa 25 stig, ÍR 23 stig í fjórða sæti og Fjölnir 21 stig í fimmta sæti. Á
botninum eru Njarðvík og Fjarðabyggð, bæði með ellefu stig.
GUÐJÓN HORFÐI Á NIÐURLÆGINGU KA Grótta
komst upp úr fallsæti í 1. deild karla á laugardaginn með stórsigri á KA,
4-1. KA-menn ætluðu sér stóra hluti fyrir tímabilið en eru þess í stað í
bullandi fallbaráttu. Dean Martin, þjálfari KA, er valtur í sessi samkvæmt
heimildum DV og gæti eftirmaður hans hafa verið að horfa á rassskellinn
sem liðið fékk á Seltjarnarnesi. Serbinn Zoran Miljcovic sem lék með
Skagamönnum og ÍBV á sínum tíma og þjálfaði síðast Selfoss var á meðal
áhorfenda en hann vantar starf á Íslandi. Þá var Guðjón Þórðarson einnig
í stúkunni en hann gerði KA að Íslandsmeisturum árið 1989.
MOLAR
STYMPINGAR Í PORTÚGAL
n Nýliðar WBA í ensku úrvalsdeild-
inni þurftu að hætta í miðjum æfing-
arleik sínum gegn portúgalska liðinu
Portimonense
þegar slagsmál
brutust út á vell-
inum. Allt sauð
upp úr eftir að
framherja WBA,
Ashley Barnes,
og framherja
portúgalska liðs-
ins lenti saman
utan vallar. Elti Barnes Portúgalann
upp að varamannaskýli eftir að sá
síðarnefndi hafði hrint Barnes úti á
vellinum. Engin högg flugu en nóg
var tekist á. Stjóri WBA, Gus Poyet,
var fyrstur manna á staðinn til að
leysa deilurnar.
MURRAY MÆTIR TIL L.A.
n Breski tenniskappinn Andy
Murray hefur staðfest að hann mæti
til leiks á Farmers Classic-mót-
ið í Los Angel-
es í næstu viku.
Murray tók sér
nokkurra vikna
frí eftir vonbrigð-
in á Wimbledon
þar sem honum
tókst ekki að
komast í úrslit.
Hann hefur ekki
leikið til úrslita á stórmóti síðan árið
2008 en miklar vonir eru bundnar
við hann heima fyrir. Önnur stór-
stjarna mun marka endurkomu sína
eftir meiðsli í borg englanna í næstu
viku, Serbinn Novak Djokovic mun
þar munda spaðann í fyrsta skipti í
þó nokkurn tíma.
FERTUGUR Í FULLU FJÖRI
n Hollenski markvörður Manchester
United, Edwin van der Sar, er ekk-
ert að flýta sér að leggja hanskana á
hilluna þó hann
verði fertugur í
október. Risinn
geðþekki hefur
notið lífsins í
Manchester síð-
ustu fimm árin
og sankað að sér
titlum eftir að
ferillinn virtist
hafa tekið mikla dýfu. „Ég er að spila
í úrvalsdeildinni og Meistaradeild-
inni. Ég hef tækifæri til að vinna titla
á hverju ári og keppa gegn bestu
leikmönnum heims. Þetta er eitt-
hvað sem er of gaman til að sleppa.
Ég nýt þess að leggja hart að mér
þrátt fyrir aldurinn og það er þess
virði þegar maður byrjar alla leiki,
bæði á laugardögum og þriðjudög-
um,“ segir van der Sar.
TIL HVERS AÐ FARA?
n Annar gamlingi í liði Manchester
United, Paul Scholes, segist hæst-
ánægður hjá liðinu og ætlar ekki að
klára ferilinn á öðrum stað en mörg
lið hafa boðið honum gull og græna
skóga fyrir að taka síðustu árin hjá
þeim. „Ég bý í Manchester, reynd-
ar Oldham, og ég er í stærsta félagi
Evrópu, stærsta félagi heims meira
að segja. Til hvers ætti ég að fara eitt-
hvert? Ég þarf ekkert að fara,“ segir
Scholes og bætir við að hann hafi
aldrei einu sinni íhugað að yfirgefa
Manchester United fyrir eitthvað lið
utan Englands.
MÁNUDAGUR 26. júlí 2010 SPORT 25
Það verða Valur og Stjarnan sem
leika til úrslita í VISA-bikar kvenna
en liðin unnu undanúrslitaleiki sína
um helgina. Stjarnan fékk öllu auð-
veldara verkefni, leik gegn fyrstu
deildar liði ÍBV í Eyjum á meðan
Valur fékk liðið í öðru sæti Íslands-
mótsins, Þór/KA í heimsókn.
Vallargestir á Vodafone-vellin-
um þurftu að bíða í sjötíu mínút-
ur eftir fyrsta markinu en það skor-
aði markadrottningin Kristrín Ýr
Bjarnadóttir. Kristín bætti síðar við
tveimur mörkum á 82. og 89. mín-
útu til að gulltryggja farseðilinn á
Laugardalsvöllinn. Valskonur eru
ríkjandi bikarmeistarar og geta bætt
tólfta bikarmeistaratitli félagsins í
safnið vinni þær Stjörnuna sunnu-
daginn 15. ágúst þegar úrslitaleik-
urinn fer fram.
ÍBV veitti Stjörnunni harða mót-
spyrnu en sjálfsmark Eyjastúlkna og
annað mark frá Lindsay Schwartz
tryggðu Stjörnunni 2-1 sigur á Há-
steinsvelli. Stjarnan fer því í bikar-
úrslit í aðeins annað skiptið í sögu
félagsins. Síðast léku þær til úrslita
árið 1993 og töpuðu þá fyrir ÍA, 3-1.
Valur 3 - 0 Þór/KA
1-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir (70.)
2-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir (82.)
3-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir (89. víti)
ÍBV 1 - 2 Stjarnan
0-1 Kolbrún Stefánsdóttir (45. sm)
0-2 Lindsay Schwartz (56.)
1-2 Antonia Roberta Carelse (60.)
Valur og Stjarnan mætast í úrslitum VISA-bikarsins:
Ekkert óvænt hjá konunum
Hetjan Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði þrennu fyrir Valskonur. MYND TOMAS KOLODZIEJSKI
RAUÐUR, EN DÖKKUR
DAGUR Á HOCKENHEIM
manni úti á brautinni örskömmu
síðar um hvort honum hafi fundist
að hann ætti sigurinn skilið svaraði
Massa: „Það finnst mér.“
Veit ekki hvað gerðist
Fernando Alonso var nokkuð bratt-
ur eftir sigurinn enda hefur hann
sjaldan hugsað um nokkuð annað
en sjálfan sig. „Þetta var góð helgi
hjá okkur. Strax á föstudaginn fannst
okkur bíllinn vera vel samkeppnis-
hæfur og eftir því sem leið á varð bíl-
inn hraðskreiðari. Það hefur verið
unnið mikið í honum að undanförnu
og það er að skila sér núna held ég,“
sagði Alonso eftir keppnina.
En hvað um atvikið milli hans og
Massa? „Ég veit ekki alveg hvað gerð-
ist. Í beygju sex sá ég að Massa varð
örlítið hægari þannig ég reyndi að
taka fram úr. Það er ekki hægt að taka
fram úr á mörgum stöðum í braut-
inni þannig ég reyndi þar og það
heppnaðist,“ sagði Spánverjinn en
gaf annars afskaplega lítið upp um
atvik málsins.
„Stundum er ég fljótari en
Massa og stundum er hann fljót-
ari en ég. Aðalatriðið er bara að
við gerðum vel um helgina og eig-
um að geta gert það sama í Ung-
verjalandi eftir viku. Það besta er
að bíllinn er að bæta sig og það
var ekki veðrið eða neitt utanað-
komandi sem hjálpaði okkur þessa
helgina. Við vorum bara fljótastir,“
sagði Fernando Alonso.
Fýldur Massa var ekki ánægður eftir keppnina og það eðlilega.