Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Blaðsíða 26
Hollywood-stjarnan Haley Joel Osment var á djamm-
inu í Reykjavík um helgina og þótti nokkuð raunalegur.
Hann var spurður um skilríki á Prikinu og sat einn að
sumbli á Kaffibarnum.Harpa Einarsdóttir, fatahönnuð-
ur og listakona, hefur fundið ást-
ina á ný með Gunnari Þór Nilsen
ljósmyndara. Harpa sem hefur
meðal annars hannað undir sínu
eigin merki, Starkiller, og fyrir
E-Label einbeitir sér að mestu
að grafískri hönnun og teikning-
um þessa dagana og hefur með-
al annar vakið athygli tímaritsins
Lifelounge. Tímaritið birti grein
um Hörpu á vefsíðu sinni þar
sem henni er lýst sem afar hæfi-
leikaríkum teiknara. Gunnar Þór,
að vonum hreykinn af unnustu
sinni, póstaði hlekk á viðtalið á
Facebook-síðu sína með athuga-
semdinni: „Kærastan mín! Stolt-
ur af þér Harpa mín.“ Það gerist
ekki krúttlegra en þetta.
Fyrirsætan þokkafulla Ornella
Thelmudóttir er á leið til Kaup-
mannahafnar þar sem hún ætl-
ar að leggja stund á leiklistarnám
næstu árin. Ornella hefur aðal-
lega prýtt síður glanstímaritsins
Séð og heyrt undanfarin ár en nú
hefur hún snúið sér að leiklist-
inni.
„Jú, það er rétt, ég er voðalega
spennt auðvitað. Þetta er einka-
skóli í Kaupmannahöfn og þetta
er þriggja ára nám,“ segir Orn-
ella. Hún segir að áhuginn fyrir
leiklistinni hafi kviknað hjá henni
þegar hún fór að starfa sem fyrir-
sæta. „Já, ég held að áhuginn hafi
komið svolítið með módelstörf-
unum,“ segir Ornella en hún hef-
ur bæði setið fyrir á ljósmyndum
og leikið í nokkrum sjónvarps-
auglýsingum. Aðspurð segist hún
bæði vera spennt fyrir leikhúslíf-
inu og sjónvarpsvinnu. „Já, ég vil
prófa hvort tveggja.“
Það er ekki ólíklegt að fyrir-
sætan knáa næli sér í einhver
hlutverk ytra ef vel gengur, en
skemmst er að minnast þess þeg-
ar íslenska fyrirsætan Berglind
Ólafsdóttir, eða Berglind Icey eins
og hún kýs að kalla sig, lék í Acc-
ording to Jim eftir að hafa unnið
fyrir sér sem fyrirsæta í nokkur ár
erlendis.
MÓDEL Í LEIKLIST
Á FÖSTU MEÐ
LJÓSMYNDARA
ORNELLA THELMUDÓTTIR FYRIRSÆTA:
Þingmaðurinn hressi Árni John-
sen fer hamförum í nýjustu aug-
lýsingu farsímaþjónustunnar
Ring en þar leikur hann sjálfan
sig í blússandi sveiflu á Þjóðhá-
tíð. Eins og kunnugt er syngur
Árni Johnsen ávallt brekkusöng
á Þjóðhátíð í Vestmannaeyj-
um með sinn einstaka gítar við
hönd. Í gítarnum hangir arnar-
kló sem þjónar einmitt hlut-
verki í stiklunni. Söguþráður-
inn er nokkurn veginn þannig
að Steindi stekkur skíthræddur
inn í tjald hjá ræfilslegum skáta
og segir að Árni sé ekki nógu
ánægður með stemninguna og
gangi berserksgang í dalnum.
Í auglýsingunni er tilvísun í
margar spennumyndir eins og
til dæmis hina goðsagnakenndu
Jurassic Park.
Í AUGLÝSINGU
MEÐ STEINDA
26 FÓLKIÐ 26. júlí 2010 MÁNUDAGUR
HALEY JOEL OSMENT:
ORNELLA Á leið í
leiklistarskóla.
SPURÐUR UM SKILRÍKI
Á PRIKINU
Hollywood-leikarinn Haley Joel
Osment er staddur á landinu, eins
og skemmtistaðagestir hafa ef-
laust orðnir varir við um helgina.
Leikarinn, sem sló fyrst í gegn
árið 1994, þegar hann lék son For-
rest Gump í samnefndri mynd,
sást bæði á Prikinu og B5 á föstu-
dag og á Kaffibarnum á laugardag-
inn. Hann ferðaðist með stórum
hópi Bandaríkjamanna, og sagð-
ist einungis vera í fríi á Íslandi, en
ekki hér vegna vinnu sinnar.
Haley Joel Osment er væntan-
lega þekktastur fyrir hlutverk sitt í
kvikmyndinni The 6th Sense, eftir
M.Night Shyamalan, sem kom út
árið 1999. Þar átti hann eina fræg-
ustu setningu myndarinnar: „I
see dead people.“
Síðan þá hefur hann leikið í bæði
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
og ber þar fyrst að nefna Artificial
Intelligence, Second Hand Lions
og Ally McBeal.
Haley virtist þó ekki alveg vera
fá nógu mikið út úr Íslandsför
sinni á laugardaginnn, en þá sat
hann einn að sumbli við borð á
Kaffibarnum og vildu þeir sem
sáu hann meina,
að sjónin hafi ver-
ið heldur dapurleg.
Athygli vekur þá einn-
ig að Haley var spurð-
ur um skilríki á Prikinu,
og var nokkuð brugðið fyr-
ir vikið, en hann er fæddur
árið 1988 og er heldur barns-
legur í sjón. Að sögn starfsfólks
á Prikinu, er hart tekið á skilríkj-
um og fer enginn inn á staðinn
án þess að framvísa einu
slíku.
dori@dv.is
Haley Joel Osment
Sat einn að sumbli á
Kaffibarnum.
Prikið Neitaði að hleypa leikaranum
inn, nema hann framvísaði skilríkjum.