Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2010, Side 32
n Lögfræðingurinn og gleðipinn-
inn góðkunni og alræmdi, Gísli
Gíslason, hélt heljarinnar garðpar-
tí á heimili sínu á Laufásveginum á
föstudaginn. Gísli býr sem kunnugt
er í húsi Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar fjárfestis á Laufásvegi 69. Margt
fólk var í veislunni hjá Gísla og tóku
íbúar við Laufásveginn sem og aðr-
ir vegfarendur eftir því að ekki var
um neina fátæklinga að ræða. Á
gangstéttunum stóðu glæsikerrurn-
ar þétt hver við aðra og hefði mátt
halda að um væri að ræða
senu í heimildarmynd
um íslenska góðærið
en Gísli er ein af tákn-
myndum þess - ekur til
dæmis um með einka-
númerið 2007. Svo var
hins vegar ekki en ljóst
er að ennþá dunar
dans auðmannanna á
þessum hluta Laufás-
vegarins.
LEIGJANDI JÓNS
ÁSGEIRS MEÐ GILLI
„Ég hef alveg húmor fyrir þessu.
En ég er nú aldrei ókurteis,“ seg-
ir grínistinn Auðunn Blöndal
um kosningu útvarpsþáttarins
Harmageddon um óviðkunnan-
legasta og viðkunnanlegasta „ce-
leb“ Íslands á föstudaginn. Auð-
unn Blöndal hlaut afgerandi
kosningu sem óviðkunnanlegasta
„celebið,“ á meðan félagi hans
Steindi Jr., var kosinn viðkunnan-
legastur.
Hlustendur hringdu inn og
kusu og má nefna til dæmis þjóna
sem hringdu inn og sögðust hafa
afgreitt Auðun margoft, og væru
því vel dómbærir. Þættinum er
stjórnað af Mána Péturssyni og
Erpi Eyvindarsyni sem hleypur í
skarðið fyrir Frosta Logason.
Auðunn vill meina að útnefn-
ingin sé ekki alveg sanngjörn.
„Um daginn var ég með Erpi á
skemmtistað og einhver vinur
hans ældi og mér var kennt um
það,“ segir Auðunn.
Hringt var í félaga hans Sverri
Þór Sverrison sem sagði fegurð
Audda mögulega skemma fyr-
ir honum. „Ég er kringlóttur og
krúttlegur og þegar ég er dónaleg-
ur halda allir að ég sé að grínast.
Það er auðveldara að dæma hann
því hann er svo sætur,“ sagði
Sveppi og bætti við að Auðunn
hefði betur mátt bæta á sig nokkr-
um aukakílóum í stað þess að fara
að lyfta með Gillzenegger.
dori@dv.is
Óviðkunnanlegasta „celeb“ Íslands kosið í hlustendakönnun á X-inu á föstudaginn:
AUDDI LEIÐINLEGASTUR
n Nýr umboðsmaður skuldara,
Runólfur Ágústsson, þykir vís með
að sýna kollegum sínum í lögfræð-
ingastétt fulla hörku í baráttunni
um skuldaleiðréttingu væntanlegra
umbjóðenda sinna. Menn rifja upp
þá daga þegar Runólfur var ungur
fulltrúi sýslumannsins í Borgarnesi.
Þetta var á árunum 1990-1995 þegar
Íslendingar gengu í gegnum djúpa
kreppu og fjöldi fólks missti heimili
sín á uppboð. Runólfi blöskraði þær
háu þóknanir sem lögfræðingar tóku
sér fyrir að fara með þrotabú einstakl-
inga. Skrifaði hann um þetta í blöðin
og úthrópaði þar innheimtulögmenn
fyrir að „notfæra sér varnarleysi fé-
vana skuldara til að maka krókinn“.
Síðar varð það tilefni fréttaskrifa þeg-
ar hinn ungi sýslumanns-
fulltrúi tók upp á því að
beita lítt þekktu lagaá-
kvæði til að takmarka
þær þóknanir sem
féllu í hlut lögmanna
við uppboð og nauða-
samninga.
Ætli Jón Ásgeir hafi
mætt með Diet Coke!
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
VEÐRIÐ Í DAG KL. 15 ...OG NÆSTU DAGA
SÓLARUPPRÁS
04:11
SÓLSETUR
22:54
Áskriftarsíminn er 512 70 80
FRÉTTASKOT 512 70 70
BARÐI Á RUKKURUM
REYKJAVÍK
19/18
23/15
24/20
25/21
19/14
22/17
21/19
23/19
30/21
19/18
23/15
24/20
25/21
19/14
22/17
20/16
23/19
30/22
23/16
21/12
24/18
26/22
20/18
25/15
24/20
23/19
30/22
22/15
27/20
22/19
27/20
20/17
23/16
23/17
23/19
30/22
0-3
15/12
0-3
11/8
8-10
11/9
5-8
13/10
8-10
14/11
3-5
13/11
5-8
13/10
0-3
16/13
0-3
11/9
5-8
11/9
10-15
12/9
8-10
14/11
5-8
13/11
10-12
12/10
0-3
14/11
0-3
11/9
3-5
15/13
3-5
13/10
0-3
18/15
0-3
18/14
5-8
13/10
0-3
11/9
0-3
11/9
0-3
13/10
3-5
12/9
0-3
14/12
0-3
15/12
3-5
14/12
3-5
14/12
0-3
14/11
0-3
13/10
0-3
15/13
0-3
18/15
0-3
16/14
3-5
17/14
8-10
12/10
0-3
14/11
5-8
12/10
0-3
15/12
3-5
18/15
0-3
16/14
3-5
17/15
3-5
15/12
3-5
14/11
3-5
10/8
0-3
9/8
3-5
10/7
0-3
11/9
3-5
10/8
3-5
13/11
3-5
14/11
3-5
12/10
0-3
10/8
3-5
14/11
0-3
16/14
3-5
13/11
Þri Mið Fim Fös
vindur í m/s
hiti á bilinu
Stykkishólmur
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Þri Mið Fim Fös
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
vindur í m/s
hiti á bilinu
Höfn
Reykjavík Egilsstaðir
Ísafjörður Vestmannaeyjar
Patreksfjörður Kirkjubæjarkl.
Akureyri Selfoss
Sauðárkrókur Þingvellir
Húsavík Keflavík
Mán Þri Mið Fim
hiti á bilinu
Kaupmannahöfn
hiti á bilinu
Osló
hiti á bilinu
Stokkhólmur
hiti á bilinu
Helsinki
hiti á bilinu
London
hiti á bilinu
París
hiti á bilinu
Berlín
hiti á bilinu
Tenerife
hiti á bilinu
Alicante
VEÐRIÐ ÚTI Í HEIMI Í DAG OG NÆSTU DAGA
15
14
13
19 20
14
14
13
1316
17 14
5
4
6
6
5
8
6
14
5
6
4
Hitakort Litirnir
í kortinu tákna
hitafar á landinu.
Sjá kvarða.
VERSLUNARMANNAHELGIN
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Það verður
rigning í höfuðborginni í dag. Vindur
verður ákveðinn af suðaustri, þetta
5-8 m/s. Hitinn verður á bilinu 13-16
stig.
LANDSBYGGÐIN Það verður víða rigning
á landinu í dag. Ef maður skiptir landinu til
helminga í suðurhluta og norðurhluta þá
verða rigning og skúrir á suðurhlutanum með
austlægum vindum, 5-8 m/s og hita á bilinu 12-17
stig. Á Norðurhlutanum verður hæg breytileg
átt. Bjart um tíma, annars yfirleitt hálfskýjað eða
skýjað. Hitinn verður á bilinu 13-21 stig, hlýjast til
landsins. En þá að næstu helgi!
VERSLUNARMANNAHELGIN Mestu líkurnar eru
þessar: Á föstudeginum verður fremur stíf aust-
anátt syðst á landinu með vætu sem mun halda
sig sunnan og suðvestan
til. Norðan- og austanlands
verður bjartviðri. Hitinn
13-18 stig, hlýjast til landsins
nyrðra. Laugardagurinn
verður að líkindum þurr
víðast hvar í hægri vestlægri
átt. Bjartast verður allra norðaustast og austast, annars
skýjað með köflum. Hitinn verður á bilinu 14-17 stig, hlýjast
til landsins.
Á sunnudag verður að líkindum hæg breytileg átt og
hætt við vætu í flestum landshlutum, síst reyndar allra
austast. Á mánudag verður áfram hæg breytileg átt og að
líkindum þurrt í veðri og milt. Við getum því sagt miðað við
gögnin núna að þessi verslunarmannahelgi verði almennt
hægviðrasöm, nema á föstudeginum syðst á landinu. Það
verður hlýtt í veðri, kannski aðeins svalara en verið hefur
upp á síðkastið. Menn þurfa að gera ráð fyrir einhverri vætu
og búa sig samkvæmt því. Nánari upplýsingar á DV.is.
<5 Mjög hægur vindur 5-10 Fremur hægur vindur. 10-20 Talsverður vindur 20-30 Mjög hvasst,
fólk þarf að gá að sér. >30 Stórviðri, fólk ætti ekki að vera á ferli að nauðsynjalausu.VEÐRIÐ MEÐ SIGGA STORMI siggistormur@dv.is
Auðunn Blöndal Þjónar
bæjarins báru honum
ekki góða söguna á X-inu
á föstudaginn.