Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2010, Page 17
Í leynilegum hirslum seðlabanka
Bandaríkjanna, Federal Reserve,
liggur samtals rúmlega milljarð-
ur eins dals-mynta. Það er erfitt að
ímynda sér umfang milljarðs mynta,
en ef þær lægju í röð á hlið, myndu
þær teygja sig frá Reykjavík til Lund-
úna. Sá galli er á gjöf Njarðar að
bandarískur almenningur kærir sig
ekki um að nota myntina og held-
ur meira upp á eins dals-seðlana. Á
meðan staflast myntirnar upp í hirsl-
um seðlabankans sem ætlar þó ekki
að hætta framleiðslu þeirra. Stefn-
an er að slá milljarð mynta í viðbót.
Staflarnir eru orðnir svo stórir að
hirslurnar eru að fyllast.
Löngu gleymdir forsetar
Árið 2005 var samþykkt á Banda-
ríkjaþingi að slá myntir til heiðurs
föllnum forsetum Bandaríkjanna.
Lögin öðluðust gildi árið 2007 og var
strax hafist handa við að slá milljónir
mynta með myndum af ýmsum for-
setum fortíðarinnar – og þar á meðal
þeim sem almenningur í Bandaríkj-
unum hefur gleymt, til dæmis Fran-
klin Pierce, sem var við völd frá 1853
til 1857 og James Buchanan, sem ríkti
frá 1857 til 1861, sem sagnfræðing-
ar segja að hafi með vanhæfni sinni
komið Þrælastríðinu af stað. Flestar
eins dals-myntirnar eru þó helgað-
ar frægari forsetum, til dæmis Abra-
ham Lincoln sem prýðir 340 milljón-
ir mynta og Johns Adams, sem prýðir
um 200 milljónir mynta.
Mótstaða almennings
Eins og BBC greinir frá, hafa Banda-
ríkjamenn aldrei kunnað vel við
eins dals-myntir. Árið 2002 kom út
skýrsla á vegum bandaríska þings-
ins þar sem reifuð var „mótstaða al-
mennings við notkun myntarinnar“
en þá hafði 67 milljón dölum ver-
ið eytt í kynningarátak sem átti að
hvetja Bandaríkjamenn til að nota
eins dals-myntir, síðast þegar reynt
var að koma þeim í notkun.
Nú, sem fyrr, hefur bandarísk-
ur almenningur sett sig upp á móti
myntinni. Síðan forsetamyntirnar
nýju fóru í umferð hefur 30 milljón-
um dala, sem samsvara um þremur
og hálfum milljarði íslenskra króna,
verið ausið í kynningarherferð en
samt hefur Bandaríkjastjórn ekkert
miðað áfram.
Vandræðaleg augnablik
„Við höfum reynt allar hugmynd-
ir sem okkur hefur komið til hug-
ar, með litlum sem engum árangri,“
sagði Edmund Moy, myntsláttustjóri
Bandaríkjanna, fyrir framan þing-
nefnd fyrir nokkrum vikum. „Banda-
ríkjamenn eru vanafastir. Þeir eru
mjög vanir því að nota seðilinn. Þeir
hafa aldrei vanist því að nota mynt-
ir í venjulegum smásöluviðskiptum.“
Myntsláttuyfirvöld segja að vand-
ræðaleg augnablik hindri oft á tíðum
notkun myntarinnar.
Viðskiptavinur hræðist að starfs-
maðurinn á búðarkassanum vilji
ekki taka við myntinni og starfs-
menn búða hræðist að gefa til baka
með myntinni, þar sem viðskiptavin-
ir vilji kannski ekki taka við henni.
Því skapist ekki hefð fyrir því að nota
myntina.
Stjórnvöld segjast einnig hafa
orðið vör við vítahring; búðir vilji
ekki kaupa myntina í kassa sína þar
sem neytendur noti þær ekki, á með-
an neytendur noti ekki myntina þar
sem búðir notist ekki við þær.
Gríðarlegt magn
Bankar hafa ekki viljað safnað mynt-
unum í hirslur sínar. Það sé kostnað-
arsamt fyrir þá að flytja myntirnar í
stórum stíl á milli útibúa sinna. Þeir
hafa litið þannig á að myntirnar séu
gripir fyrir safnara, en ekki pening-
ar sem neytendur sjái hag sinn í að
nota. En hið kaldhæðnislega er að
myntsafnarar virðast ekkert áfjáðir í
myntirnar heldur.
Þrátt fyrir allt þetta heldur mynt-
sláttan áfram og hinir gríðarlöngu
staflar af myntum vaxa með hverj-
um deginum. Lögin frá 2005 skylda
myntsláttuyfirvöld til að gefa út fjór-
ar nýjar útgáfur af eins dals-myntinni
á ári, sem tileinkaðar eru fyrrverandi
forsetum. Myntsláttan á að halda
áfram til ársins 2016, og þá eiga tveir
milljarðar mynta að vera til.
Nokkrir stjórnmálamenn í
Bandaríkjunum hafa gagnrýnt þetta
og segja að auk kostnaðarins við
kynningarátakið, sé ákaflega kostn-
aðarsamt að geyma og flytja pening-
ana, sem fylli mikið pláss.
Sniðugt að nota mynt í stað
seðils
En eins og embættismenn hafa bent
á hefur stjórnvöldum landa á borð
við Ástralíu, Bretland, Kanada og
Japan tekist vel til við að koma nýjum
myntum í umferð, en aðeins með
því að taka jafngildandi seðla sam-
tímis úr umferð. Það mætti auðvitað
nefna Ísland í þessu samhengi líka,
en hundrað krónuseðlinum var árið
1995 skipt út fyrir hundrað krónu-
myntina. Það er hagkvæmt að nota
myntir í stað seðla. Myntir geta enst í
áratugi en seðlar tóra sjaldnast leng-
ur en örfá ár. Bandarísk stjórnvöld
telja sig geta sparað allt að 700 millj-
ónir dala, eða 80 milljarða króna, á
hverju ári með því að notast frekar
við eins dals-myntina.
Einn þingmaður á Bandaríkja-
þingi hefur lagt til að sett verði lög
um að taka eins dals-seðilinn úr um-
ferð. Þangað til slík lög öðlast gildi
virðist ekkert geta komið í veg fyr-
ir að nýju myntirnar, með andlitum
löngu látinna, og í sumum tilfellum
löngu gleymdra, Bandaríkjaforseta
haldi áfram að hrúgast upp í hirsl-
um yfirvalda líkt og í peningageymi
Jóakims Aðalandar í sögunum um
Andrés Önd.
miðvikudagur 11. ágúst 2010 erlent 17
Milljarðar Mynta
seM enginn notar
Bandaríkjamenn eru vanafastir.
Þeir eru mjög vanir því
að nota seðilinn. Þeir
hafa aldrei vanist því að
nota myntir í venjuleg-
um smásöluviðskiptum.
heLGi hrafn GuðMundSSon
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Gríðarlegt
magn mynta
SeðlabankiBandaríkjanna,Federal
Reserve,hefur1,1milljarðeins
dals-myntaíhirslumsínum.Efþær
værulagðarniðuríláréttaröð,
myndiröðinteygjasigumrúma
tvöþúsundkílómetra,eðarúm-
legafjarlægðinaámilliReykjavíkur
ogLundúna.
1,1 milljarður
eins dals-mynta
2.199 kílómetrar
nýslegnir skildingar EdmundMoy,myntsláttustjóriBandaríkjanna,læturskóla-
börnfánýslegnareinsdals-myntirárið2007þegarþærvorusettaríumferð.Ekkert
hefurgengiðsíðanviðaðkomaþeimínoktun.
fallnir forsetar Ánýju
myntunumerumyndir
afföllnumforsetum
Bandaríkjanna.
Í hirslum bandaríska seðlabankans liggur milljarður eins dals-mynta. Gríðarlega illa hefur gengið að sann-
færa bandarískan almenning um að nota þær í viðskiptum, en flestum þykir seðillinn, sem hefur sama verð-
gildi, miklu þægilegri. Miklum fjármunum hefur verið ausið í að kynna myntina nýju en henni var komið í
umferð árið 2007. Á þeim eru andlit löngu gleymdra forseta.