Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2010, Side 14
Margrét Sigfúsdóttir er flestum lands-
mönnum kunn. Hún leggur nem-
endum sínum í Hússtjórnarskólan-
um reglurnar og fyrir nokkrum árum
kenndi hún landanum að þrífa al-
mennilega allan skít úr skúmaskotum
í skemmtiþáttunum Allt í drasli. Mar-
grét liggur aldrei á meiningu sinni og
því er upplagt að ráðfæra sig við hana
nú þegar liggur mikið við að spara. Al-
gengt er að rafmagn og heitt vatn fyrir
100 fermetra íbúð kosti nú um 8.800
krónur á mánuði eða um 106.000 á
ári. Eftir hækkun verður mánaðar-
reikningurinn hins vegar um 11.200
krónur eða um 135.000 í orkuútgjöld á
ári. Með ráðum Margrétar höfum við
til hliðsjónar verðútreikninga Orku-
veitunnar á rafmagnsnotkun helstu
heimilistækja eftir hækkun.
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 190,6 kr. verð á lítra 192,6 kr.
Skeifunni verð á lítra 190,4 kr. verð á lítra 192,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 191,7 kr. verð á lítra 193,9 kr.
bensín
Kænunni verð á lítra 190,3 kr. verð á lítra 192,3 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 190,4 kr. verð á lítra 192,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 190,5 kr. verð á lítra 192,6 kr.
EKKi Frítt í Sund
í rEyKjAvíK
Frá og með deginum í dag er ekki
lengur frítt í sund fyrir börn í
Reykjavík. Verkefnið var tilrauna-
verkefni sem tók enda í lok ágúst-
mánaðar. Enn er þó í gildi sam-
þykkt tillaga borgarfulltrúa VG
þess efnis að þeir íbúar borgarinn-
ar sem eru atvinnulausir og þeir
sem þiggja fjárhagsaðstoð fái frítt á
sundstaði borgarinnar.
Reykjanesbær varð fyrst sveitarfé-
laga landsins til að hafa frítt í sund
fyrir börnin. Það var fyrir fjórum
árum að sveitarfélagið tók ákvörð-
un um slíkt með það að markmiði
að auka hreyfingu barna og fjölga
samverustundum fjölskyldunn-
ar. Börn í Reykjanesbæ fá enn frítt
í sund.
AlltoF dýr SAFi
n Lastið fær Kaffi París við Aust-
urstræti. Viðskiptavinur staðarins
hafði samband við DV og var veru-
lega óánægður með verðlagningu
á appelsínusafa sem var boðið upp
á í hádeginu um síðustu helgi. Verð
á litlu glasi af appel-
sínusafa var 390 kr. Við-
skiptavinurinn hefði
sæst á verðið ef ekki
hefði komið á daginn
að um var að ræða safa
úr eins lítra fernu sem fæst á
129 krónur í Bónus.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Frábær þjónuStA
n Lofið að þessu sinni fá Veiðihorn-
ið og Sportbúðin fyrir frábæra þjón-
ustu. Viðskiptavinur þeirra keypti
af þeim tvær flugulínur sem fóru að
skemmast heldur fljótt. Þeir skoð-
uðu línurnar og skiptu þeim út fyrir
tvær nýjar. Margir hefðu þrætt
fyrir gæðin og misst við-
skiptavin í leiðinni. Gott við-
mót og fagmenn sem vita sitt.
Starfsmenn búðarinn-
ar geta auk þess alltaf
gefið góð ráð sama
hvert ferðinni er heitið
í veiðina.
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: kristjana guðbrandsdóttir kristjana@dv.is 1. september 2010 miðvikudagur
hringT í erLend númer margir hrein-
lega kvíða því að hringja símtöl í erlend GSm-númer enda finnst
þeim erfitt að sjá fyrir hver kostnaðurinn verður. Góð regla að
hafa í huga er að þegar hringt er í erlend GSm-símanúmer skiptir
ekki máli hvar í heiminum viðkomandi er heldur frá hvaða landi
símanúmerið hans er. Ef einhver sem þið þekkið er t.d. með
GSm-símanúmer frá Danmörku en er staddur á Spáni greiðið þið
fyrir símtal til Danmerkur. móttakandi símtalsins greiðir svo fyrir
símtalsflutninginn frá Danmörku til Spánar. e
L
d
S
n
e
y
T
i
Lækkaðu orkureikninginn
Gjaldskrá Orkuveitunnar hækkar um allt að 40% þann 1. októ-
ber og því ekki vanþörf á að skoða hvernig við neytendur getum
aðlagað okkur dýrtíðinni. Við fengum Margréti sigfúsdóttur
skólastýru Hússtjórnarskólans til liðs við okkur og fundum
góðar leiðir til að lækka orkureikninginn.
Það gengur ekki að standa undir
sturtunni og láta sig
dreyma.
Hvernig má bæta orkusparnað heimilisins eftir verðhækkun Orkuveitunnar?
Verið ekki að glápa
inn í ísskápinn
Setjið upp hanskana
og notið burstann
Eftir hrun hlupu margir til og plöntuðu stórum frystikistum í eldhúsið. Það
borgar sig að eiga góð heimilistæki til kælingar eða frystingar á matvælum
því þessi tæki eru í gangi allan sólarhringinn, allt árið og eyða hvað mestu
rafmagni á heimilinu. Hagkvæmast er að eiga ný tæki sem eru orkunýtin.
Gamall frystiskápur eyðir 541 krónu á mánuði á meðan nýr eyðir 269 krón-
um á mánuði. Sparnaðurinn sem felst í góðum tækjakosti er því 245 krónur
á mánuði eða 2.940 krónur á ári.
„Ísskápar og frystikistur eyða nægri orku þó svo að við séum ekki að
auka bruðlið með því að vera alltaf að opna og loka ísskápnum. Það bæt-
ist ekkert í hann þótt við opnum hann í enn eitt skiptið. Náið einfaldlega í
það sem ykkur vantar í eitt skipti fyrir öll og gangið frá því öllu í einu aftur
í ísskápinn,“ segir Margrét og leggur áherslu á að verulega sé verið að bæta
á álag og orkunotkun tækjanna með því að vera sífellt að opna og loka. Að
auki má huga að því að fylla ekki ísskápinn heldur hafa hann hæfilega full-
an.
úTreikningur
gamall frystiskápur: 541 króna á mánuði.
nýr frystiskápur: 296 krónur á mánuði.
kæliskápur með frystihólfi: 440 krónur á mánuði.
Svo virðist sem þær hagsýnu
húsmæður sem fylla vaskinn
með heitu vatni og vaska upp á
gamla mátann hafi vinninginn
þegar kemur að hagkvæmustu
orkunýtingunni.
Munurinn á því að vera með
uppþvottavél sem sett er í einu
sinni á dag og því að vaska upp
tvisvar á dag er 417-35 krónur=
382 krónur á mánuði eða 4.582
krónur á ári. Margrét samsinn-
ir þessu. Henni finnst þó óþarfi
að fólk skammist sín fyrir góð
hjálpartæki eins og uppþvotta-
vél og bendir á að töluverðum
sparnaði megi ná með því að skola óhreinindi af áður en leirtauið er sett í vélina. Best sé
að skola leirtauið með volgu vatni, heitt vatn geri það að verkum að óhreinindi festist.
„Fólk má síðan láta af þeim ósið að vaska upp undir heitu, rennandi vatni og dýfa upp-
þvottaburstanum í sápuskálina. Svona á ekki að vaska upp. Fyrst á að skola af óhrein-
indin og síðan að þrífa leirtauið með burstanum í volgu sápuvatni. Að lokum að skola og
þá má jafnvel nota kalt vatn.“
úTreikningur
uppþvottur með heitu vatni, stöðugt rennsli tvisvar á dag: 299 krónur á mánuði.
uppþvottavél, sett í vél einu sinni á dag: 417 krónur á mánuði.
uppþvottur með heitu vatni, vaskur fylltur tvisvar á dag: 35 krónur á mánuði.
kristjana guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is