Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Blaðsíða 29
mánudagur 4. október 2010 sviðsljós 29 Britney Spears hefur enn ekki endurheimt sjálf-ræði sitt og þar af leiðandi fjárræði síðan hún var svift því árið 2008. Britney sat í síð-ustu viku fund ásamt föður sínum, James Spears, og dómara en ákveðið var að James yrði enn um sinn umsjónarmaður hennar. Faðir söngkonunnar var skipaður umsjónar- maður hennar eftir að Britney hafði tvívegis ver- ið lögð inn á spítala sökum geðrænna vandamála. Hún fékk þá taugaáfall en hefur síðan þá náð mikl- um bata. Þrátt fyrir það sá dómarinn ekki ástæðu til þess að veita henni sjálfræði sitt aftur en Britn- ey er 28 ára gömul. Faðir Britney hefur yfirumsjón með fjármál- um hennar auk þess sem hann getur haft áhrif á heimsóknir gesta, ráðið öryggisverði og gæslufólk og fengið fullan aðgang að öllum sjúkraskýrslum. Pabbi ræður yfir Britney spears: Enn ósjálfráða nýjasta auglýsingaherferð Dolce & Gabana með söngkonunni Madonnu hefur vakið mikla at-hygli. Söngkonan, sem er 52 ára, lítur út fyrir að vera rúmlega 20 árum yngri. Nú hafa uppruna- legu myndirnar úr tökunni ratað til fjölmiðla og þar má sjá hversu ótrúlega mikið er búið að vinna þær eftir á. Þrátt fyrir að vera 52 ára gömul lítur Madonna vel út en þær myndir sem birtast í auglýsingunni geta ekki talist neitt annað en blekking. Enn eitt skiptið sem aug- lýsinga- og tískuiðnaðurinn er staðinn að verki í því að fegra raunveruleikann og ýta undir óraunhæfar staðal- ímyndir. Britney Spears Fær ekki sjálfræði sitt strax. Líður betur Britney varð fyrir mörgum áföllum árið 2008. Plat madonna Allt önnur manneskja Eftir að búið er að vinna myndirnar. Stílisti stjarnanna, Rachel Zoe, er ólétt af sínu fyrsta barni með eig-inmanni sínum, Rodger Berman og er víst komin um þrjá mán- uði á leið. Rachel sem er hvað frægust fyrir að hafa verið stílisti Nicole Richie og Lindsey Lohan á sínum tíma er sögð hafa átt stóran þátt miklu þyngdartapi þeirra á tímabili en sjálf þykir hún minna á manneskju með lystarstol. Rachel hafði aldrei sagt neinum að hana langaði í barn, að sögn náins vinar hennar en núna játar hún að þau hjónin hafi í lang- an tíma verið að reyna eignast barn, en fyrst núna hafi hún efni á að taka sér frí frá vinnunni og fara í barneignarleyfi. loksins efni á fæðingarorlofi: Rachel Zoe Stílisti stjarnanna. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.