Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Blaðsíða 15
Veitingastaðir fá á baukinn Neyt- endastofa hefur sektað veitingastaðina Fiskmarkaðinn og Pott- inn og Pönnuna um 50 þúsund krónur hvorn. Ástæðan er sú að staðirnir fóru ekki að tilmælum Neytendastofu um verðmerking- ar. „Í síðustu viku greindi Neytendastofa frá því að stofnunin hafi sektað Ruby Tuesday fyrir að hafa ekki matseðil með verði við inngöngudyr eins og verðmerkingareglur gera ráð fyrir. Neyt- endastofa hefur nú einnig sektað Fiskmarkaðinn og Pottinn og Pönnuna fyrir sama brot,“ segir á heimasíðunni neytendastofa.is. Vatnstjón eða Vatntjón Neytendastofa hefur úrskurðað að lénið vatnstjon.is sé ekki nægilega sérkenn- andi til að hægt sé að veita fyrirtæki einkarétt á notkun orðsins. Forsaga málsins er sú að VT Þjónustan/Vatnstjón ehf. kvartaði til Neytendastofu yfir skráningu og notkun Ægilegt ehf. á léninu vatnstjon.is. VT Þjónustan/Vatnstjón á skráð lénið vatntjon.is og taldi viðskiptahgasmunum og samningsstöðu fyrirtækisins ógn- að ef Ægilegt ehf. fengi að nota vatnstjon.is, með s-i. Eins og áður segir ákvað Neytendastofa að Ægilegt mæti nota vatnstjon.is. mánudagur 4. október 2010 neytendur 15 Ódýrara að fljúga en taka rútu Flugfargjald til Akureyrar, miðað við ódýrasta kost, er 37 prósent ódýrara en fargjald með rútu. Þess utan tekur sex sinnum lengri tíma að fjlúga en að taka rútu. TímafrekT og dýrT Það tekur sex tíma að taka rútu til Akureyrar. Það kostar meira en að fljúga eða aka á einkabíl. mynd phoTos.com n Athygli vekur að stærstu fyrirtækin sem halda uppi áætlunarferðum á Íslandi eru í eigu stærstu viðskiptablokka landsins. Sterna ehf., langstærsti aðilinn á markaði, er í eigu Guðmundar Halldórs, Iðunnar og Steinunnar Jónsbarna. Þau eru börn Jóns Helga Guðmundssonar, forstjóra Norv- íkur, móðurfélags Byko og sitja í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja samsteypunnar. Sterna flutti í fyrra um 9.800 farþega frá Reykjavík til Akureyrar. Kynnisferðir var um tíma í eigu FL Group en er nú í eigu olíufélagsins N1. Benedikt Einarsson, sonur aðaleiganda N1, Einars Sveinssonar, situr í stjórn félagsins en þess má geta að hann er einnig stjórnarformaður Tékklands bifreiðaskoðunar, stjórnarmaður í Engey Invest, Umtak ehf., sem er fasteignafélag á vegum N1 og fjölmörgum öðrum félögum sem á einn eða annan hátt tengjast N1. N1 hefur á undanförnum árum haslað sér völl á flestum mörkuðum sem tengjast þjónustu við bíla á einn eða annan hátt. Félagið er auð- vitað eitt stærsta olíufélag landins, rekur smurþjónustu og starfrækir Bílanaust, einn stærsta aðila á markaði með varahluti. Þá stendur N1 með óbeinum hætti að rekstri Tékklands bifreiðaskoðunar og auk þess að eiga 100 prósenta hlut í Kynnisferðum sem annast fólksflutninga og ferjar meðal annars stóran hluta þeirra ferðamanna sem koma til landsins í gegn um Leifsstöð, til Reykjavíkur. Í fyrra fóru 279 þúsund manns með rútu frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur. þessir eiga rútufélögin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.