Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Blaðsíða 26
26 fólkið 4. október 2010 mánudagur LúxusLíf í KieL Handknattleiksstjarnan Aron Pálm- arsson keyrir nú um á bíl af gerðinni Audi s5 sem er rúm 350 hestöfl og kostar í kringum 14 milljónir. Hann er nýfluttur í nýja íbúð og í vetur bíður hans stærra hlutverk hjá Kiel sem er eitt stærsta hand- knattleiksfélag í heimi. Aron Pálmarsson nýtur lífsins í Kiel um þess-ar mundir en samkvæmt heimildum DV var hann að festa kaup á 14 milljóna króna Audi bifreið auk þess sem hann er að flytja í nýja íbúð á tveimur hæðum. Aron er aðeins tvítugur en hann leikur með einu stærsta félagsliði heims í hand- bolta, Kiel. Það er fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, Alfreð Gíslason, sem stýrir liðinu. Bíllinn sem Aron var að kaupa er glænýr og af gerð- inni Audi S5 coupé. Ekki er um neina fjölskyldubifreið að ræða en bíllinn er með átta strokka og 4,2 lítra vél. Það er að skila einum 354 hestöflum. Íbúð Arons er ekki af verri endanum heldur. Hún er á tveimur hæðum og henni fylgir bílakjallari fyrir nýja eðalvagninn. Á neðri hæð íbúðarinnar er svo aðstaða fyrir gesti. Logi Geirsson skrifaði á Facebook-síðu Arons í vik- unni að „lítill fugl“ hefði hvíslað því að sér að Aron væri kominn á bíl af þessari gerð. „Er svona 4 mín á æfingu núna, var svona 8 mín á hinum,“ svarar Aron léttur en Logi hef- ur mikinn áhuga á bílum og mótorhjólum. Enda átti hann sitt lítið af hvoru þegar hann var sjálfur í atvinnumennsku í Þýskalandi. Þetta er annað ár Arons í atvinnumennsku en hann náði einstökum árangri með Kiel á því fyrsta. Þá varð hann Þýskalandsmeistari auk þess sem liðið vann Meistardeild Evr- ópu. Aron var í kjölfarið valinn besti ný- liði þýsku deildarinnar. Í ár verður Aron í stærra hlutverki hjá liðinu enda árinu eldri og reynslunni ríkari. Sjálfur vildi Aron ekki tjá sig um bifreið- ina né íbúðina þegar DV hafði samband en neitaði því ekki að hann hefði það gott í Kiel. asgeir@dv.is Aron Pálmarsson Gerir það gott úti í Þýskalandi. Audi S5 coupé Rúm 350 hestöfl og kostar í kringum 14 milljónir. Ekki slæmt Svona lítur þetta út undir húddinu hjá Aroni. Aron PálmArs: Rasshausar í símasKRánni Bíður eftir barni n Fréttahaukurinn Helgi Seljan og kona hans Katrín Bessadóttir hafa beðið í ofvæni eftir fæðingu annars barns síns og veltir Katr- ín fyrir sér á fésbókarsíðu sinni á föstudaginn síðastliðinn hvort barnið vanti nokkuð leiðarvísi því eitthvað hefur það látið bíða eftir sér. Katrín hefur unnið fyrir Vinstri græna á Akureyri undanfarið en þau skötuhjú eru víst flutt aftur til borgarinnar, sem mun eflaust spara Helga talsverðan tíma við að koma sér til og frá vinnu. n Líkt og greint var frá fyrir helgi mun Egill „Gillz“ Einarsson verða meðhöfundur Símaskrárinn- ar 2011. Hann hefur nú tilkynnt hvert hans fyrsta verk verður. „Er búinn að ákveða að setja orð- ið RASSHAUS fyrir aftan nöfn Liverpool manna í símaskránni,“ segir hann á Facebook-síðu sinni. Viðbrögðin stóðu ekki á sér og athugasemdum frá Liverpool- mönnum rigndi inn. Kvikmynda- framleiðandinn Kristófer Dignus hótaði að hætta við að framleiða sjónvarpsþáttaröð byggða á bók- inni Mannasiðir Gillz og Sölvi Tryggvason skoraði á Egil í bók- sölukeppni um jólin. Ásdís Rán er með upphafsstafi barnanna ritaða á handlegginn: Húðflúr í stAð kAttArdóts Eins og DV greindi frá fyrir helgi er fyrir- sætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunn- arsdóttir komin með stórt húðflúr á hand- legginn en það fékk hún sér í Sofiu áður en hún flutti til München þar sem hún býr nú. Hún greindi frá því um helgina á Facebook- síðu sinni hvernig húðflúr hún fékk sér. Ás- dís lét rita upphafstafi barna sinna innan á handlegginn, R, H og V sem standa fyrir Róbert, Hektor og Victoriu. „Svo er allskon- ar skraut í kringum stafina,“ skrifaði Ásdís á Facebook. Stefnan hjá Ásdísi var þó ekki að fá sér húðflúr. „Annars var ég bara á leið niður í bæ að ná í eitthvað dót fyrir köttinn minn en þegar þegar ég var kominn á staðinn var dýrabúðin horfin bara tatto-stofa opin þarna. Svo ég endaði í stólnum og er nú kominn með stórt tattoo,“ skrifaði hún. Eiginmaður Ásdísar, knattspyrnumaður- inn Garðar Gunnlaugsson, spilar með neðri deildar liðinu Unterhaching en hann hef- ur síðustu vikur verið að gera allt klárt fyr- ir komu fjölskyldunnar. Eru þau nú komin með íbúð og fjölskyldan því sameinuð á ný. Hjónin eyddu helginni á októberfest en hvergi er haldið jafnmikið upp á þá hátíð og í München enda er það upphafsstaður hennar. München er höfuðstaður Bæjara- lands en októberfest er ein fjölsóttasta há- tíð heimi. tomas@dv.is SKrýTin BúðArfErð Ásdís fór að kaupa dót fyrir köttinn en kom með heim húðflúr. mynD ArnolD BjörnSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.