Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2010, Blaðsíða 11
Draga á úr útgjöldum fæðingaror- lofssjóðs á næsta ári um einn millj- arð króna. Áformað er að draga úr útgjöldum sjóðsins með aðgerð- um sem fela í sér styttingu orlofs- réttar, lækkun á hámarksgreiðslum eða lækkun á hlutfalli útgreiðslu af reiknuðum bótum. Velferðarvaktin hefur varað við því að niðurskurður bitni á börnum og Lára Björnsdóttir formaður vel- ferðarvaktarinnar segir mikið liggja við að gætt sé sérstaklega að stöðu efnaminni foreldra. Bjarni Pálsson, verkfræðingur og faðir, segir lang- skólamenntaðar barnafjölskyldur koma illa út úr kreppunni og áform ríkisstjórnar um frekari niðurskurð geri þeim mikinn óleik. Frekur niðurskurður Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir því að gjöld sjóðsins á næsta ári verði 8.688 milljónir króna. og lækki frá gildandi fjárlögum um 932 milljónir. Breytingin milli ára skýrist af tveimur megintilefn- um. Annars vegar er áformað að draga úr útgjöldum sjóðsins um 1.000 milljónir með sértækum að- haldsaðgerðum sem geta falið í sér styttingu orlofsréttar, lækkun há- marksgreiðslna eða lækkun á hlut- falli útgreiðslu af reiknuðum bót- um. Við umfjöllum frumvarps um breytingar á lagaákvæðum í þessu skyni sem lagt verður fram á haust- þinginu koma til skoðunar leiðir til þess að ná þessu markmiði um lækkun á útgjöldum sjóðsins. Hins vegar er lagt til að framlag til við- fangsefnisins Foreldrar utan vinnu- markaðar hækki um 75 milljón- ir. Þar er byggt á mati á útgjöldum ársins 2010. Þá er gerð 8 milljóna hagræðingarkrafa vegna umsýslu- kostnaðar Vinnumálastofnunar með sjóðnum. Aðrar breytingar eru verðlags- og launahækkanir sam- tals 0.9 milljónir. Feður fresta orlofi Þegar Alþingi tók skerðingu fæð- ingarorlofsins til meðferðar um síðustu áramót lýstu þingmenn og foreldrar áhyggjum af því að foreldrar myndu stytta fæðingar- orlof með börnum sínum af fjár- hagslegum ástæðum. Þá var sagt slæmt fyrir jafnfrétti til lengri tíma ef feður styttu fæðingarorlofstíma sinn hlutfallslega meira en mæð- ur. Skerðingin tók gildi 1. janúar 2010. Hámarksgreiðsla var lækkuð úr 350.000 niður í 300.000 og þeir sem hafa haft laun umfram 200.000 á mánuði fá 75 prósent af laun- um í fæðingarorlofi í stað 80 pró- senta. Þeir sem eru með laun undir 200.000 fá áfram 80 prósent. Breyt- ingin frá 1.janúar 2010 hefur þegar haft áhrif á stöðu foreldra. Fyrstu sex mánuði ársins hefur feðrum í fæðingarorlofi fækkað um 114 að meðaltali á mánuði, eða um átta prósent. Óhætt er að álykta að frek- ari skerðing hafi meiri áhrif. Velferðarvaktin varar við Um síðustu áramót varaði velferð- arvaktin sérstaklega við áformum stjórnvalda um að fresta greiðslu foreldra- og fæðingarorlofs þar sem að með því væri gengið á rétt barna. Sérstaklega er varað við afleiðingum þessa fyrir börn einstæðra mæðra. Lára Björnsdóttir formaður velferð- arvaktarinnar segir mikið liggja við að nú sé gætt að stöðu einstæðra foreldra í þessu sambandi. „Við höf- um áður bent á mikilvægi þess að gæta að þörfum barna og ungmenna í aðgerðum vegna efnahagskrepp- unnar. Lægri barnabætur og greiðsl- ur til foreldra í fæðingarorlofi koma beint niður á börnum. Það stendur enn sem áður að fæðingarorlof hér á landi er með því stysta sem gerist hjá Norðurlandaþjóðum, þrátt fyrir miklar réttarbætur í þágu barna með nýrri löggjöf um foreldra- og fæðing- arorlof sem samþykkt var á Alþingi árið 2000.“ Illa farið með barnafólk Bjarna Pálssyni, verkfræðingi og föð- ur, finnst áform stjórnvalda ómak- leg. „Barnafjölskyldur eru þjóð- félagshópur sem kemur illa út úr kreppunni,“ segir Bjarni. „Langskóla- gengið barnafólk á aldrinum 30–50 ára og nýkomið út á atvinnumarkað- inn með skuldir langt umfram eign- ir berst við háar afborganir það sem eftir er starfsævi sinnar. Allt vinnur á móti þessum hópi; veik króna og hækkaður virðisaukaskattur kemur hart niður á barnafjölskyldum sem þurfa að reiða sig á innfluttar blei- ur, barnamat, barnaföt og skólavör- ur. Hækkun á tekjusköttum bitnar harðast á hátekjulaunafólki. Afteng- ing fæðingarorlofsgreiðslna gerir skuldsettum menntuðum hjónum erfitt að eignast börn. Aukin tekju- tenging bóta, svo sem vaxtabóta og barnabóta, bitnar harðast á hálaun- uðu menntafólki sem vinnur  baki brotnu til að eiga fyrir ört hækkandi reikningum.“ MÁNUDAGUR 4. október 2010 FRÉTTIR 11 Fæðingarorlofssjóður verður skorinn niður um milljarð. Greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi hafa lækkað um 19 prósent frá 2009 og hafa verið skertar tvisvar sinnum síðan bankarnir hrundu. Fæðingarorlof hér á landi er enn með því stysta sem gerist hjá Norðurlandaþjóðunum. Lára Björnsdóttir formaður velferðar- vaktarinnar segir mikið liggja við að gætt sé að stöðu efnalítilla foreldra og þá sérstaklega einstæðra. SKERA NIÐUR UM MILLJARÐ KRISTJANA GUÐBRANDSDÓTTIR blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is Aftenging fæð-ingarorlofs- greiðslna gerir skuld- settum menntuðum hjónum erfitt að eign- ast börn. Bitnar á börnum Niður- skurður og skattahækkanir bitna á börnum ef marka má fjárlagafrumvarp. Reikningur 2009: 10.765,7 m. kr. Fjárlög 2010: 9.620,0 m. kr. Frumvarp 2011: 8.688,0 m. kr. Breyting frá fjárlögum: -9,7% Breyting frá reikningi 2009 : 19,3% FÆÐINGARORLOF SKERT n Mánaðarlegar greiðslur úr Fæðingar- orlofssjóði til foreldris í fullu starfi eru nú 80 prósent af meðallaunum að fjárhæð 200.000 og 75 prósent af þeim meðal- launum sem umfram eru fyrir tiltekin tímabil vegna barna sem fæðast á árinu 2010. Greiðslan er aldrei hærri en 300.000 krónur. n Mánaðarleg greiðsla í fæðingarorlofi til foreldris í hlutastarfi (25–49 prósent) er aldrei lægri en 82.184 krónur. n Mánaðarleg greiðsla í fæðingarorlofi til foreldris í 50–100 prósent starfi er aldrei lægri en 113.902 krónur. n Mánaðarlegur fæðingarstyrkur til foreldris utan vinnumarkaðar eða í minna en 25 prósent starfi er: 49.072 krónur. n Mánaðarlegur fæðingarstyrkur til foreldris í fullu námi (75–100 prósent nám) er: 113.902 krónur. ÞESSAR GREIÐSLUR MUNU LÆKKA!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.