Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 4
4 fréttir 10. desember 2010 föstudagur
Opnunartími
virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík - 517-2040
LAGERSALA
www.xena.is
Gönguskór
St. 36-46
Verð áður 14.995
Verð nú 9.995
LEIÐRÉTTING
Í bókablaði DV 8. desember var
sagt að JPV væri útgefandi Gleði-
leiksins guðdómlega eftir Dante í
þýðingu Erlings E. Halldórssonar.
Hið rétta er Mál og menning.
Smálánafyrirtæki hvetur fólk til að taka lán í desember:
Þurfa ekki að greiða lán
Smálánafyrirtækið Hraðpeningar
hefur sent viðskiptavinum sínum
smáskilaboð þar sem þeim er boð-
ið að taka þátt í jólaleik nú í desem-
ber. Leikurinn gengur út á að nöfn
þeirra sem taka lán dagana 8. til 31.
desember eru sett í pott. Á gamlárs-
dag verða fjögur nöfn dregin úr pott-
inum og fá þeir lánin gefins.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, segir
þessa markaðssetningu Hraðpen-
inga ekki ólöglega og ekki ósvipaða
því sem önnur fyrirtæki hafa beitt.
„Við höfum gagnrýnt starfsemi þess-
ara smálánafyrirtækja vegna þeirra
háu vaxta sem þau taka fyrir lánin.
Í sjálfu sér geri ég enga athugasemd
við markaðssetninguna sem slíka en
ég vona að fólk fari ekki að flykkjast
til að taka lán á þessum okurkjörum í
þeirri von að verða dregið úr pottin-
um,“ segir hann.
Svo virðist sem fyrirtækin beini
spjótum sínum að ungu fólki og
þeim sem eru í peningavandræðum.
Miðað við þá okurvexti sem boðið er
upp á telur hann málið vera afskap-
lega slæmt. Nú liggur fyrir frumvarp
um starfsemi svokallaðra smálána-
fyrirtækja og segist Jóhannes vonast
til að það verði að lögum sem fyrst
því það mun setja veruleg bönd á
starfsemi þessara fyrirtækja.
Smálánafyrirtækin hafa verið
gagnrýnd fyrir gífurlega háa vexti á
lánum sínum. Þau bjóða upp á smá-
lán með allt að 25 prósenta vöxtum
sem greiðast þarf innan 15 daga. Það
sem einna helst hefur verið gagnrýnt
er að slík lán höfði til ungs fólks.
gunnhildur@dv.is
Okurlán Jóhannes segir jólaleik
Hraðpeninga ekki ólöglegan.
Mynd Stefán KarlSSOn
BreSK dagBlöð:
Ísland upp,
Írland niður
Stýrivaxtalækkun Seðlabankans á
miðvikudag gefur til að kynna að
mikil batamerki séu á íslenskum
efnahag eftir
stöðugan sam-
drátt landsfram-
leiðslu undan-
farin misseri. Á
sama tíma og Ís-
land rís er Írland
að sökkva eins og
fjármálaskýrandi
bresku blaðanna
Guardian og Ob-
server orðar það
í grein á vef Guardian.
Stýrivextir Seðlabankans voru
lækkaðir í 4,5 prósent í gær sam-
kvæmt ákvörðun peningastefnu-
nefndar bankans. Breski fjármála-
skýrandinn Philip Inman segir að á
sama tíma sé staða Írlands, sem á
dögunum fékk stórt lán, meðal ann-
ars frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum,
langt frá því að vera komin í jafn-
vægi. Hún eigi enn eftir að versna.
„Þetta stóra neyðarlán frá Evr-
ópusambandinu og Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum, sem Írland fékk í
síðustu viku og samþykkt var í gær,
ber þess merki að kreppan á Írlandi
muni endast í fjöldamörg ár,“ segir
Inman í greininni. Stjórnarandstað-
an berjist nú fyrir því að rifta þeim
neyðarsamningum sem gerðir voru
og munu verða komandi kynslóðum
þungur baggi.
Inman ber stöðu Íslands og Ír-
lands saman og vísar í þau vaxtakjör
sem annars vegar Írar samþykktu og
hins vegar vaxtakjörin sem Íslend-
ingar fái vegna Icesave. Rætt hefur
verið um að vextirnir vegna Icesave
séu í kringum 2,8 prósent en vextirn-
ir sem Írar hafa samþykkt að greiða
af lánum sínum séu allt að 7 pró-
sent. Hefur Brian Lenihan, fjármála-
ráðherra Írlands, sagt að samningur-
inn verði Írum hagstæður til lengri
tíma. Ástæðan sé sú að það sé hag-
kvæmara að vera innan evrusvæðis-
ins en utan þess.
Már
guðmundsson
Katrín Pétursdóttir í Lýsi, þáver-
andi stjórnarmaður í Glitni, hlut-
aðist til um lánveitingar frá bank-
anum til mágs síns árið 2008
meðan hún sat í stjórn bankans.
Þetta kemur fram í fundargerð
áhættunefndar bankans frá 13.
febrúar sem DV hefur undir hönd-
um. Áhættunefndin varð hins vegar
ekki við óskum Katrínar þrátt fyrir
að hún þrýsti á um lánveitingarnar
til mágsins. Katrín var hluthafi í FL
Group, stærsta hluthafa Glitnis, og
sat einnig í stjórn þess félags.
Líkt og DV greindi frá á mið-
vikudaginn bendir flest til að Katr-
ín, ásamt Gunnlaugi Sævari Gunn-
laugssyni, hafi eftir hrun sloppið
við að greiða um milljarð króna sem
þau voru í persónulegum ábyrgð-
um fyrir vegna lána frá Glitni til
eignarhaldsfélagsins Hnotskurnar.
Félagið fékk lán frá Glitni upp á um
fjóra milljarða króna til að kaupa
hlutabréf í FL Group árið 2007.
Bankinn hefði getað gengið á þau
Gunnlaug og Katrínu en gerði það
ekki þegar fyrir lá að hlutabréfin í
FL væru orðin verðlaus.
Afskipti Katrínar af lánveiting-
unum til mágs síns eru dæmi um
afskipti stjórnarmanns í íslensk-
um banka á árunum fyrir hrun sem
ekki geta talist mjög eðlileg. Ekki
hafa mörg slík dæmi litið dags-
ins ljós hingað til. Frásögnin í bók
Jónínu Benediktsdóttur um að hún
hafi fengið afskrifuð lán hjá Kaup-
þingi með hótunum í garð Hreiðars
Más Sigurðssonar, forstjóra bank-
ans, er þó sambærilegt dæmi.
Stakk upp á frekari
lánveitingum
Í fundargerð áhættunefndar bank-
ans kemur fram að mágur Katrínar,
Jón Sigurðarson, hafi verið með tvö
lán í erlendum myntum sem verið
hefðu í vanskilum síðan árið 2003.
Jón er kvæntur systur Katrínar,
Sigríði Svönu Pétursdóttur. Lánin
námu samtals 42 milljónum króna
þegar þarna var komið sögu og tók
Jón þau upphaflega til að kaupa
hlutabréf í fyrirtækinu Scandesa.
Hlutabréfin voru orðin verðlaus í
ársbyrjun 2008.
Í fundargerðinni kemur fram að
vegna vanskilanna hafi verið tekið
fjárnám í fasteign Jóns í Sörlaskjóli
og að fara ætti fram nauðungar-
uppboð á eigninni þann 20. febrú-
ar 2008. Ráðgerði áhættunefndin
að um 62 milljónir myndu fást fyr-
ir húsið og að bankinn fengi um 30
milljónir króna upp í kröfu sína þar
sem annar aðili ætti 32 milljóna
kröfu í söluandvirði hússins á fyrsta
veðrétti. Jón stóð því frammi fyrir
því að missa hús sitt á þessum tíma
vegna skulda.
Katrín sendi hins vegar erindi til
áhættunefndarinnar sem var ætl-
að að bjarga Jóni frá því að missa
hús sitt á nauðungaruppboði. Hug-
myndin var þá væntanlega sú að
Glitnir lánaði Jóni til að greiða nið-
ur önnur lán við bankann sjálfan.
Stakk upp á 49 milljóna lánum
Erindið frá Katrínu gekk út á að
stinga upp á að Glitnir myndi veita
Jóni tvö lán upp á samtals 49 millj-
ónir króna. Þannig hefði Jón vænt-
anlega getað greitt niður skuldir
sínar og haldið húsinu. Í fundar-
gerðinni kemur fram að Katrín hafi
gengið erinda Jóns hjá bankanum.
Orðrétt segir í fundargerðinni: „Jón
er mágur Katrínar Pétursdóttur
og hefur hún nýverið gengið mála
hans hjá bankanum og hefur lög-
fræðideild bankans annast inn-
heimtu málsins. Katrín hefur far-
ið þess á leit við bankann að Jóni
verði veitt 2 lán annað 39 m.kr. til
25 ára afborgunarlaust í 1 ár og
hitt 10 m.kr. afborgunarlaust í 1 ár.
Greiðslugeta Jóns er lítil sem engin,
en áhvílandi lán á fremri veðréttum
eru nokkurn veginn í skilum.“
Þrátt fyrir þessa beiðni Katrínar
hafnaði lánanefndin erindi hennar,
meðal annars á þeim forsendum að
Jón hefði verið í vanskilum í langan
tíma. Í fundargerðinni segir: „Lagt
er til að erindi Katrínar og Jóns
verði synjað og eignin seld nauð-
ungarsölu, hafi greiðsla ekki borist
fyrir uppboðsdag.“ Áhættunefndin
stóð því af sér afskipti Katrínar og
tók ákvörðun um lánveitingarnar
út frá staðreyndum málsins.
Fasteign Jóns var þó ekki seld
á nauðungaruppboði og er ennþá
skráð á hann í dag. Engin fleiri lán
hafa bæst við veðbandayfirlit húss-
ins frá því þetta var. Aftast í veðrétt-
arröðinni er fjárnám frá Glitni upp
á nærri 34 milljónir króna sem er á
áttunda veðrétti.
Greiðslugeta Jóns er lítil
sem engin.
KATRÍN BAÐ UM LÁN
HANDA MÁGI SÍNUM
Katrín Pétursdóttir, stjórnarmaður í Glitni, gekk erinda skuldugs mágs síns innan
bankans árið 2008. Mágurinn stóð frammi fyrir því að missa hús sitt á nauðungarupp-
boði vegna skulda við Glitni. Áhættunefnd Glitnis hafnaði tillögu Katrínar um að lána
máginum 49 milljónir króna og sagði greiðslugetu hans litla sem enga.
Stjórnarmenn í héraðsdómi Katrín sést hér í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra ásamt
öðrum fyrrverandi stjórnarmönnum í Glitni. Vilhjálmur Bjarnason stefndi þeim vegna
kaupa Glitnis á hlutabréfum af Bjarna Ármannssyni.
ingi f. vilhjálMSSOn
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
erindinu synjað Áhættunefnd Glitnis synjaði erindi frá Katrínu Pétursdóttur í febrúar
2008 þar sem hún bað Glitni um að lána mági sínum tæpar 50 milljónir króna. Mágur
hennar var þá kominn í greiðsluerfiðleika og stóð frammi fyrir því að missa hús sitt.