Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 10. desember 2010 FRÉTTIR 11 „Vonandi geta þeir komið með tölv- una mína sem fyrst,“ segir ungur piltur á Akureyri sem er einn þeirra sem sætir rannsókn lögreglu vegna meints ólöglegs niðurhals. Húsleitir voru gerðar á níu stöðum í síðustu viku vegna rannsóknar lögreglunn- ar, en það eru samtök myndrétthafa, SMÁÍS, sem fóru fram á rannsókn- ina. Faðir drengsins segir að mál- ið hafi komið foreldrunum í opna skjöldu. Vegna ungs aldurs er piltur- inn ekki nafngreindur. Stórnotandi „Mér náttúrulega brá eins og við mátti búast,“ segir pilturinn. „Ég var tekinn niður á lögreglustöð og var í gæsluvarðhaldi þangað til ég fór í yfirheyrslu.“ Spurður um nánari upplýsingar um málið segir hann einfaldlega: „Ég get ekkert sagt um það. Nó komment.“ Pilturinn segist ekki hafa dreift efni, einungis sótt það, og bendir á að umdeilt sé hvort ólöglegt sé að hala niður höfundar- réttarvörðu efni. Óumdeilt er þó að ólöglegt er að deila höfundarréttar- vörðu efni. Pilturinn viðurkennir að hafa verið stórnotandi á netinu og hal- að niður töluverðu efni. Hann segir magn efnisins ekki mælt í terabæt- um heldur gígabætum. Terabæti jafngildir eitt þúsund gígabætum, en gígabæti jafngildir eitt þúsund megabætum. Grandalausir foreldrar Faðir piltsins segir málið hafa komið sér og konu sinni algjörlega í opna skjöldu. „Þeir bara fóru hérna inn. Þeir tóku bara tölvu og skoðuðu hana, svo kemur bara í ljós hvað kemur út úr þessu,“ segir hann. „Mjög illa, við erum í sjokki eftir þetta,“ segir hann aðspurður hvern- ig honum og konu hans vegna máls- ins. Hann segir að hann og móðir piltsins hafi ekki verið meðvituð um hvað væri í gangi á heimilinu. Hann segist ekki hafa orðið var við óvenju- lega háa reikninga fyrir netnotkun. „Við borgum bara fast gjald.“ Langur aðdragandi Í tilkynningu frá lögreglunni vegna málsins kemur fram að málið hafi ver- ið til rannsóknar um nokkurt skeið. Þar segir einnig að upphaf málsins megi rekja til stefnu sem SMÁÍS lagði fram sem snéri að bæði niðurhali og dreifingu á höfundarréttarvörðu efni. Alls sæta tíu einstaklingar, á aldrin- um fimmtán til tuttugu ára, rannsókn í málinu en húsleitirnar voru gerð- ar á sjö stöðum á Akureyri og tveim- ur stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn ríkislögreglustjóra auk lögreglunnar á Akureyri aðstoðuðu við framkvæmd húsleitanna en mál- ið er alfarið í höndum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ungur piltur sem sætir rannsókn lög- reglu vegna meints ólöglegs niðurhals segir sér hafa verið brugðið þegar húsleit var gerð heima hjá honum. Faðir piltsins segist ekki hafa haft nokkurn grun um að ólöglegt athæfi ætti sér stað á heimilinu. „ERUM Í SJOKKI EFTIR ÞETTA“ Þeir bara fóru hérna inn. Þeir tóku bara tölvu og skoðuðu hana. AÐALSTEINN KJARTANSSON blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is Húsleit Húsleit var gerð á níu stöðum vegna málsins. Málið á sér langan aðdraganda. Ólöglegt Pilturinn segist ekki hafa deilt efni, einungis halað því niður. Eingöngu vaxtakostnaður fellur á íslenska ríkið vegna Icesave: Eignir Landsbankans sagðar duga Eingöngu vaxtakostnaður mun falla á ríkissjóð vegna Icesave- samkomulagsins en Icesave-nefnd Íslands telur að kostnaður sem falli á ríkið verði innan við fimmtíu milljarðar króna, eða þrjú prósent af landsframleiðslu. Uppsafnað- ir vextir koma til greiðslu á næsta ári en þeir nema um 26 milljörð- um króna, þar af sex milljarðar úr ríkissjóði. Greiðslum vegna Icesave verð- ur að fullu lokið árið 2016 að mati samninganefndarinnar. Nefndin hafði samið um nýtt Icesave-sam- komulag síðan snemma á þessu ári og lauk samningsgerð í London á miðvikudag. Helsti vandi nefndar- innar var að komast að samkomu- lagi um endurgreiðslur á skaðabót- um þegar enginn veit hversu háar fjárhæðir er um að ræða, að sögn Lee Buchheit, formanns íslensku Icesave-nefndarinnar. Hann seg- ir að gert sé ráð fyrir því að eignir Landsbankans myndu duga til að greiða Icesave- skuldina að mestu, ef ekki öllu leyti. Enginn getur þó tryggt að svo verði sagði Buchheit. Að mati Bjarna Benediktsson- ar, formanns Sjálfstæðisflokksins, er nýi samningurinn tvö hundruð milljörðum króna hagstæðari en sá fyrri og þurfa þeir sem reyndu að keyra fyrri samninginn í gegn að svara fyrir gjörðir sínar. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkis- sjónvarpsins. Þór Saari, þingmað- ur Hreyfingarinnar, sagði að bank- arnir ættu að gefa almenningi frí frá þeim byrðum sem eftir standa af Icesave-samningnum. Það yrði gert með því að það sem eftir standi út af borðinu eigi bankarnir að geta tekið á sig án þess að finna sérstaklega fyrir því. Samkomulagið kveður á um að Íslendingar greiði Hollend- ingum þrjú prósent vexti og Bret- um 3,3 prósenta vexti vegna auk- ins kostnaðar. Það eru umtalsvert lægri vextir en samninganefnd Svavars Gestssonar og samninga- nefnd Breta og Hollendinga kom- ust að niðurstöðu um á síðasta ári en í því samkomulagi var kveðið á um að Íslendingar greiddu 5,5 pró- senta vexti af láninu. birgir@dv.is Blaðamannafundur Samninganefnd um Icesave hélt blaðamannafund á fimmtudaginn í Iðnó.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.