Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 16
16 fréttir 10. desember 2010 föstudagur
Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins og fyrr-
verandi stjórnarformaður N1 og
BNT, keypti sér íbúð í furstadæm-
inu Dúbaí, sem er eitt af Samein-
uðu arabísku furstadæmunum,
árið 2006. Bjarni átti íbúðina með
að minnsta kosti tveimur öðrum
mönnum. Þetta segir Bjarni í sam-
tali við DV þegar hann er spurð-
ur út í tölvupóstsamskipti frá því
í október í fyrra, á milli hans og
tveggja annarra manna, sem DV
hefur undir höndum. Tölvupóst-
samskiptin áttu sér stað síðla árs í
fyrra og snúast um endurgreiðslu
á útlögðum kostnaði vegna sölu á
íbúðinni í Dúbaí að sögn Bjarna.
Íbúðin er að minnsta kosti önnur
íbúðin sem Bjarni er skráður fyr-
ir í útlöndum en hann aðra íbúð í
borginni Miami í Bandaríkjunum.
Aðspurður segir Bjarni: „Málið
er einfaldlega það að fyrir fjórum
árum keypti ég eina íbúð í Dúbaí.
Nú hefur hún verið seld... Þetta
eru löngu afstaðin viðskipti. Það
sem þú ert að spyrja mig um er
ómerkileg endurgreiðsla á útlögð-
um kostnaði... Þetta er lokafrá-
gangur á útlögðum kostnaði eftir
sölu eignarinnar... Þetta eru allt
fullkomlega eðlileg viðskipti og
allt framtalið í mínum skattfram-
tölum.“
Í eignastýringu í Sviss
Í tölvupóstsamskiptunum gefur
Bjarni upp reikning í svissneska
bankanum Julius Baer í Lausanne
sem leggja átti inn á fjármuni,
væntanlega vegna uppgjörsins á
sölu íbúðarinnar. Aðspurður segir
Bjarni að hann hafi verið í eigna-
stýringu hjá Julius Baer-bank-
anum í Sviss. „Ég hef verið með
eignastýringu í Sviss. Ég hef verið
í viðskiptum við Julius Baer-bank-
anum í Sviss. Þeir hafa séð um
eignastýringu fyrir mig.“
Bjarni segir að Íslendingur
sem áður sá um eignastýringu fyr-
ir Bjarna í íslenskum banka hafi
hafið störf hjá Julius Baer og þá
hafi Bjarni fært viðskipti sín yfir
til svissneska bankans. „Þetta er
einfaldlega þannig að íslenskur
bankastarfsmaður, sem áður sá
um eignastýringu fyrir mig, hóf
störf í þessum banka og ég færði
viðskipti mín yfir til hans,“ segir
Bjarni.
Aðspurður segir Bjarni að
svissneski bankinn hafi aldrei
séð um viðskipti fyrir hann í Dú-
baí. „Sú eignaumsýsla sem þeir sjá
um fyrir mig hefur ekkert með við-
skipti í Dúbaí að gera.“
Tóku við endurgreiðslu
Bjarni segir aðspurður að hann
hafi einu sinni notað bankareikn-
inginn í Sviss til að taka á móti
nokkur þúsund dollara endur-
greiðslu vegna útlagðs kostnaðar
í Dúbaí. „Ég hef einu sinni tekið
við nokkur þúsund dollara endur-
greiðslu sem að þeir tóku við fyr-
ir mína hönd og sem fóru í eigna-
stýringu hjá bankanum. Þetta er
allt saman á skattframtalinu mínu.
Það er ekkert óeðlilegt við þetta,“
segir Bjarni
Bjarni segir aðspurður að það
sé af og frá að hann eigi nokkur
hundruð milljónir króna inni á
reikningnum í Sviss. „Nei, það er
algerlega fráleit tala. Ég hef aldrei
átt slíka peninga... Ég er ekki stór-
eignamaður. Ég hef fyrst og fremst
ávaxtað mínar eignir á Íslandi.
En ég treysti þessum íslenska
starfsmanni í þessum banka fyrir
ákveðnum hluta af eignum mín-
um. Það eru engin hlutabréf í því
sambandi,“ segir Bjarni.
Hann segist ekki vilja tjá sig um
hverjir viðskiptafélagar hans hafi
verið í íbúðakaupunum í Dúbaí.
Tölvupóstsamskipti Bjarna Benediktssonar í október í fyrra.
„Sent: Friday, October 23, 2009 10:21 AM
Subject: FS: Reikningsnúmer
Sælir, þetta voru 12.100 sem ég sendi til Dubai - skiptist á okkur 3.
B
________________________________________
Frá: Bjarni Benediktsson
Sent: 22. október 2009 16:12
Viðtakandi: 'agirb@simnet.is'
Efni: RE: Reikningsnúmer
Hvað ertu að bulla gamli ? Upp með hendur, niður með brækur, peningana
ellegar ég slæ þig í rot!
-----Original Message-----
From: agirb@simnet.is [mailto:agirb@simnet.is]
Sent: 22. október 2009 15:23
To: Bjarni Benediktsson
Subject: Re: Reikningsnúmer
takk fyir - það var nú óþarfi að senda mér stöðuna á reikningnum líka.....
en takk samt ;-)
----- Upprunalegt skeyti -----
Frá: "Bjarni Benediktsson" <bjarniben@althingi.is>
Til: "agirb@simnet.is" <agirb@simnet.is>
Sent: Fimmtudagur, 22. október, 2009 14:54:00 GMT +00:00 Monrovia
Efni: RE: Reikningsnúmer
Sæll, hér er reikningurinn minn.
Bestu kv.
Bjarni
Bank Julius Baer & Cie Ltd.
Rue du Grand-Chêne 7-9
CH-1003 Lausanne
Clearing 8515
Swift BAERCHZZ.
Beneficiary of account : Benediktsson Bjarni
2120.333.01 USD CURRENT ACCOUNT
IBAN CH59 0851 5026 0048 3200 1
-----Original Message-----
From: agirb@simnet.is [mailto:agirb@simnet.is]
Sent: 22. október 2009 10:04
To: baldvin; Bjarni Benediktsson
Subject: Reikningsnúmer
sælir,
nú eru peningarnir að fara af stað og mig vantar DETAIL-AÐAR
bankaupplýsingar frá ykkur hvert þeir eiga að koma fyrir hvern og einn.
Sendið þið mér þetta sem fyrst - þyrfti helst að fá þetta í dag.
kveðja ÆB=“
TölvupósTar bjarna ben
Ég er ekki stór-eignamaður.
Tölvupóstsamskipti á milli Bjarna Benediktssonar
og viðskiptafélaga hans sýna fram á að formaðurinn
keypti sér íbúð í Dúbaí árið 2006. Samskiptin sýna
einnig að Bjarni á bankareikning í Sviss. Bjarni
segir ekkert óeðlilegt við viðskiptin. Um hafi verið
að ræða samskipti vegna endurgreiðslu á útlögðum
kostnaði vegna sölu á íbúðinni í Dúbaí.
BJARNI KEYPTI
SÉR ÍBÚÐ
Í DÚBAÍ
Í eignastýringu í Sviss Bjarni er í eigna-
stýringu í svissneskum banka samkvæmt
tölvupóstsamskiptum á milli hans og tveggja
viðskiptafélaga hans í október í fyrra. Þar er
rætt um uppgjör vegna sölu íbúðar í Dúbaí.
Seldi íbúðina Bjarni segist hafa selt íbúðina
í Dúbaí sem hann keypti árið 2006, Tölvu-
póstsamskiptin snérust um uppgjör vegna
sölu íbúðarinnar. Myndin er tekin í Dúbaí.
IngI F. VIlhjálmSSon og
TrauSTI haFSTeInSSon
blaðamenn skrifa: ingi@dv.is og trausti@dv.is