Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Qupperneq 21
föstudagur 10. desember 2010 erlent 21 Kínversk yfirvöld munu hindra net- aðgang að alþjóðlegum fréttasíðum í dag, 10. desember. Þá hafa um 250 einstaklingar, sem taldir eru líklegir af kínverskum yfirvöldum til að vera með uppsteit, verið hnepptir í stofufang- elsi. Ástæðan er einföld. Í Ósló mun fara fram athöfn þar sem veitt verða friðarverðlaun Nóbels, en þau komu í hlut kínverska baráttumannsins Liu Xiaobo í ár. Liu, sem barist hefur fyr- ir tjáningarfrelsi og lýðræðisumbót- um í Kína, situr hins vegar í fangelsi í heimalandi sínu. Í fyrra var hann dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir niður- rifsstarfsemi gegn kínverska ríkinu. Talið er að athöfnin í dag verði engu að síður áhrifamikil, þar sem þetta er í fyrsta sinn síðan 1935 sem verðlauna- hafi verður ekki viðstaddur til að taka á móti verðlaunum. Þá hlaut verðlaun- in þýski blaðamaðurinn og friðarsinn- inn Carl von Ossietzky en honum var meinað að yfirgefa Þýskaland af nas- istum. Samanburðurinn er því aug- ljóslega vandræðalegur fyrir Kínverja. Þrátt fyrir það telja Kínverjar sig hafa unnið mikinn sigur í baráttu sinni við Nóbelsverðlaunanefndina. Vegna þrýstings frá Kína hafa 19 ríki ákveðið að afþakka boð um að hafa fulltrúa sína viðstadda verðlauna- afhendinguna. Að sama skapi er sú staðreynd talin ósigur fyrir Banda- ríkin, en á meðal þessara 19 ríkja eru nokkur sem talin hafa verið til traustra bandamanna Bandaríkj- anna. Þar á meðal eru Egyptaland, Marokkó og Afganistan, en þau hafa öll þegið umfangsmikla efnahagsað- stoð frá Bandaríkjunum á undanförn- um árum og áratugum. Kínversk yfirvöld hafa hneppt 250 manns í stofufangelsi vegna Nóbelsverðlauna: Á nálum vegna friðarnóbels Í aðdraganda olíuslyssins á Mexíkóflóa í apríl síðastliðnum fór eftirlitsmaður í reyk- ingapásu á ögurstundu. Hann hefði hugsanlega getað varað samstarfsmenn sína við sprengingu sem varð skömmu síðar. Í henni létust 11 manns. Komið hefur í ljós að starfsmaður á borpalli olíufyrirtækisins British Pet- rolium í Mexíkóflóa, sem lak allt að 10 milljónum lítra af olíu í einu stærsta olíuslysi sögunnar, hefði getað varað samstarfsmenn sína við sprengingu á pallinum – ef hann hefði ekki verið í reykingapásu. Sprengingin, sem olli síðan lekanum, átti sér stað 20. apríl síðastliðinn. Í henni létust 11 manns og 17 slösuðust. Nú stendur banda- ríska strandgæslan fyrir rannsókn á tildrögum slyssins og komu þessar upplýsingar í ljós í kjölfar yfirheyrslu sem átti sér stað í síðustu viku. Allt á fullt í reykingapásunni Maðurinn, Joseph E. Keith að nafni, starfaði sem „leðjueftirlitsmaður“ en hann fylgdist með magni leðju sem fylgdi hráolíunni sem dælt er upp úr olíulindinni. Ef hlutfallið af hráolíu og gasi verður of mikið í olíubrunninum sjálfum er nauð- synlegt fyrir leðjueftirlitsmanninn að láta vita – svo unnt sé að slaka á dæluþrýstingi, en annars getur myndast hætta á sprengingu. Það er einmitt það sem gerðist í Mexíkó- flóa, en Keith sagði við yfirheyrslu að þegar hann hefði brugðið sér frá eftirlitsstöð sinni hefðu mælar ekki sýnt neitt sem benti til þess að hætta væri yfirvofandi. Mælarnir munu hafa farið á fullt í þær 10 mínútur sem það tók Keith að ganga upp á matstofu, fá sér kaffi og reykja sígar- ettuna sína. Gekk fram á lík og kastaði sér í sjóinn Þegar Keith sneri aftur sýndu mæl- arnir ekkert óvenjulegt en sprenging- in átti sér stað skömmu síðar. Sjálfur varð hann ekki var við sprenginguna fyrr en hálftíma síðar, þegar loftræsti- tæki í klefa hans bráðnaði fyrir fram- an augun á honum. Hann flýtti sér út og gekk beint á látinn samstarfsfé- laga. Hann náði að bjarga sér ásamt 113 öðrum starfsmönnum á borpall- inum með því að kasta sér í sjóinn og klifra upp í björgunarbát. Framleiðendur eftirlitsbúnaðar ósamvinnuþýðir Bandaríska strandgæslan er ekki eina stofnunin sem stendur að rannsókn á tildrögum olíuslyss- ins í Mexíkóflóa. Einnig stendur yfir sjálfstæð rannsókn nefndar sem skipuð var af forseta Banda- ríkjanna, Barack Obama. Þeirri nefnd hefur hins vegar orðið lít- ið ágengt, ekki síst vegna skorts á upplýsingum frá framleiðanda eft- irlitsbúnaðar sem notaður var á borpallinum. Fyrirtækið sem um ræðir heitir National Oilwell Var- co og hefur það séð British Petrol- ium fyrir eftirlitsbúnaði á olíubor- pöllum um árabil. Nýverið kom fram í bréfi forsetanefndarinnar að National Oilwell hindraði fram- gang rannsóknarinnar. „Við höf- um leitað eftir aðstoð frá Nation- al Oilwell Varco í meira en mánuð vegna málsins. Þeir hafa aðallega verið ósamvinnuþýðir, annaðhvort með því að neita að birta gögn sem skipta máli eða tefja birtingu þeirra.“ AfdrifArík reykingApásA björn teitsson blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is Mælarnir munu hafa farið á fullt í þær 10 mínútur sem það tók Keith að ganga upp á matstofu, fá sér kaffi og reykja sígarett- una sína. olíuborpallur bP, Deepwater Horizon Þessi mynd var tekin þegar reynt var að slökkva elda í kjölfar sprengingarinnar. Liu Xiaobo Situr í fangelsi fyrir að krefjast mannréttinda í Kína. Winklevoss-tvíbur- arnir stefna aftur Tvíburabræðurnir Tyler og Camer- on Winklevoss stefna stofnanda Facebook á ný. Þeir höfðu áður stefnt honum fyrir að stela hug- myndinni að samskiptasíðunni Facebook og unnu það mál. Út úr því fengu þeir 65 milljónir dollara en nú segja þeir stofnanda Face- book, Mark Zuckerberg, hafa logið til um virði Facebook og vilja fá ótilgreinda upphæð frá honum í skaðabætur. Facebook hefur svarað þess- ari stefnu og segja Winklevoss- tvíburana þjást af eftirsjá eftir að hafa samið um 65 milljóna dollara skaðabætur frá Zuckerberg. Face- book segir Zuckerberg ekki hafa verið skyldugan til þess að greina tvíburunum frá réttu virði síðunn- ar. Winklevoss-tvíburarnir eru orðnir frekar þekktir eftir að kvik- myndin um tilurð Facebook, The Social Network, var tekin til sýn- inga á þessu ári. Tvíburarnir fengu upphaflega Zuckerberg til þess að búa til samskiptavef fyrir Harvard- háskólann. Zuckerberg samþykkti það en skildi við verkefnið til þess að vinna að sínu eigin sem varð á endanum Facebook. Zuckerberg gefur auðæfin Auk þess sem Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, þarf að verj- ast fornum fjendum hefur hann tilkynnt að hann hyggist gefa auð- æfi sín til góðgerðamála. Sautján bandarískir milljarðamæringar til viðbótar hafa slegist í lið með Warren Buffet og Bill Gates í átaki sem miðar að því að þeir allra rík- ustu gefi að minnsta kosti helming allra sinna auðæfi til góðgerðar- mála. Ýmist á meðan þeir lifa eða eftir að þeir eru allir. Zuckerberg er einn af þeim þekktari sem ný- lega gekk til liðs við The Giving Pledge-átakið. Fimmtíu og sjö milljarðamæringar hafa nú heitið því að gefa auðæfi sín til góðgerð- armála. Samtök Buffets og Gates taka ekki við neinum peningum sjálf en gera þess í stað heiðursmanna- samkomulag við auðmenn um að gefa auðæfi sín. Buffet strengdi þess heit árið 2006 að gefa 99 prósent allra auð- æfa sinna en hann, ásamt Bill Gates, er einn ríkasti maður ver- aldar. Bill og eiginkona hans, Me- linda Gates, hafa í gegnum tíðina gefið 28 milljarða dollara til góð- gerðarmála. Hægt er að kynna sér átakið á thegivingpledge.org.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.