Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Blaðsíða 31
LíkamshLutar í trúarbrögðum Sýning Hannes-
ar Lárussonar, Líkamshlutar í trúarbrögðum, verður opnuð sunnudaginn 12.
desember klukkan 12.10 eftir messu í fordyri Hallgrímskirkju. Þetta er þriðja
sýningin í sýningaröðinni Kristin minni sem Listvinafélag Hallgrímskirkju
stendur fyrir. Hannes lýsir sýningu sinni á eftirfarandi hátt: „Útvaldir líkams-
hlutar manna gegna lykilhlutverki í öllum trúarbrögðum. Þeir eru ýmist
baðaðir helgiljóma eða myrkvaðir bannhelgi; jafnvel hvort tveggja í senn.
Þeir eru hjúpaðir dulúð og þess vegna óþrjótandi uppspretta hugaróra og
táknmáls. Það er í líkamanum sem trúin og listin mætast.“
aðventutónLeikar sinfó Sinfóníuhljómsveit
Íslands heldur aðventutónleika laugardaginn 11. desember
klukkan 17.00 í Háskólabíói. Sveitin fær til liðs við sig tvo breska
stórsöngvara, annars vegar tenórsöngvarann James Gilchrist, sem
er einn sá fremsti í sinni röð, og sópransöngkonuna Katherine
Watson, sem er ein skærasta stjarnan í hinum víðfræga hópi Les
Arts Florissants. Nicholas Kraemer er hljómsveitarstjóri og eru
örfá sæti laus. Þann 17. og 18. desember verða svo jólatónleikar
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
föstudagur
Jólatónleikar Siggu
n Sigga Beinteins heldur sína árlegu jóla-
tónleika í nokkrum kirkjum landsins
fyrir jólin 2010. Á tónleikunum syngur
Sigga falleg jólalög, klassískar perlur í
bland við lög af áður útkomnum diskum.
Að þessu sinni koma fram með Siggu
góðir gestir og kórar. Tónleikar hennar í
Grafarvogskirkju hefjast klukkan 20.00
en miðinn kostar 3.900 krónur.
Sigfús heiðraður
n Á föstudagskvöldið verða haldnir
tónleikar í Salnum í Kópavogi þar sem
Sigfús Halldórsson verður heiðraður.
Sigfús er maðurinn á bak við lög eins og
Tondeleyo, Litlu fluguna, Dagnýju og
Við Vatnsmýrina. Stórskotalið söngvara
á borð við Stefán Hilmarsson, Heru Björk
Þórhallsdóttur og Egil Ólafsson flytja
perlur Sigfúsar í Salnum en tónleikarnir
hefjast klukkan 20.00.
Ensími og Bloodgroup á Faktorý
n Jólaplögg Record Records fer fram á
Faktorý föstudags- og laugardagskvöld.
Miðinn kostar 1.500 krónur bæði kvöldin
og tónleikarnir hefjast klukkan 22.30
bæði kvöldin. Á föstudagskvöldið koma
fram Ensími, Bloodgroup, Of Monsters
and Men og Sing for me Sandra.
Laugardagur
Grænir tónleikar Sinfó
n Græna tónleikaröðin hjá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands er tilvalin fyrir þá
sem eru að stíga fyrstu skrefin inn
í heim sígildrar tónlistar en alvanir
tónleikagestir finna þar líka margt við
sitt hæfi. Helst ber að nefna ódauðlega
tónlist Gershwin-bræðra við Porgy og
Bess, sem verður flutt með sannkölluðu
úrvalsliði einsöngvara. Tónleikar í þessari
tónleikaröð verða haldnir á laugardaginn
klukkan 17.00 og auðvitað í Háskólabíói.
Agent Fresco og Moses Hightower á
Faktorý
n Jólaplögg Record Records fer fram á
Faktorý föstudags- og laugardagskvöld.
Miðinn kostar 1.500 krónur bæði kvöldin
og tónleikarnir hefjast klukkan 22.30
bæði kvöldin. Á laugardagskvöldið koma
fram Agent Fresco, Moses Hightower, For
a Minor Reflection og Útidúr.
Bó segir gó á Akureyri
n Hinir ótrúlegu jólatónleikar Björgvins
Halldórssonar, Jólagestir Björgvins, verða
haldnir í Hofinu á Akureyri á laugardags-
kvöldið. Uppselt var á tónleikana fjórum
sinnum í Reykjavík en enn eru nokkrir
miðar lausir á Akureyri. Þetta er eitthvað
sem enginn má láta framhjá sér fara.
Palli á Manhattan
n Páll Óskar ætlar að vera gordjöss á
Manhattan í Keflavík á laugardagskvöld-
ið. Páll Óskar mætir auðvitað í glimmer-
dressinu og tekur öll sín vinsælustu lög
ásamt því að þeyta skífum alla nóttina.
Í svörtum fötum á Spot
n Hin geysivinsæla ballhljómsveit
Í svörtum fötum sér um fjörið á
skemmtistaðnum Spot í Kópavogi næsta
laugardagskvöldið. Jónsi og félagar eru
þekktir fyrir lítið annað en fjör þannig að
það má búast við stuði í Kópavoginum.
Arnaldur Gauti Johnson gefur út borðspilið Fjör til enda:
„Fannst vanta hresst spil“
Íslenska borðspilið Fjör til enda
er komið út en höfundur spilsins
er Arnaldur Gauti Johnson. „Mér
fannst vanta hresst spil þar sem
enginn þarf að svara sérhæfðum
spurningum, ráða í orð eða leika
hlutverk. Ég held að það hafi ekk-
ert fjörugt íslenskt spil sem er ekki
spurninga- eða orðaspil komið
út síðan Hættuspilið kom út fyrir
meira en 10 árum,“ segir Arnaldur
en hann hafði dundað sér við gerð
spilsins um nokkurt skeið áður en
hann ákvað að kýla á útgáfu þess í
nóvember.
Arnaldur vill leggja ríka áherslu
á að spilið geti hentað öllum og sé
ekki of flókið. „Mitt markmið var að
búa til fjörugt spil fullt af húmor og
óvæntum uppákomum sem ekki
væri dauður punktur í. Allir taka
virkan þátt allan tímann og það
eina sem þarf til að vinna spilið er
blanda af kænsku og heppni. Mér
fannst líka skipta máli að það þyrfti
ekki að liggja yfir leiðbeiningum í
20 til 40 mínútur til að læra spilið,
það getur alveg drepið stemningu
spilakvöldsins. Fjör til enda er hægt
að læra á um 2 til 3 mínútum.“
Arnaldur stofnaði fyrirtæk-
ið Stemning ehf. í tengslum við
útgáfu spilsins en þar sem hann
stendur einn að útgáfunni hjálp-
uðu vinir og vandamenn við að
pakka í kassa og ganga frá. „Það
hefur verið skemmtilegt og lær-
dómsríkt að gefa út svona spil. Það
er heldur meira umstang í kring-
um það en ég reiknaði með, satt að
segja. En ég er svo heppinn að vera
með einstaklega hjálpsamt fólk á
bak við mig, vinir og fjölskylda hafa
komið og lagt okkur lið við pökkun-
arvinnu.“
Fjör til enda er í raun heims-
fornaflakk þar sem leikmenn
ferðast um alla jörðina og
lenda í ýmsum uppá-
komum og þraut-
um. Leikmenn
geta meðal ann-
ars unnið ferð
með einka-
þotu til Suður-
Ameríku, fleytt
sér áfram á reiðhjóli, lest,
leigubíl eða setið fastir í heim-
sókn á norðurpólnum.
asgeir@dv.is
föstudagur 10. desember 2010 fókus 31
Hvað er að
GERAsT?
Fjör til
enda Er komið í
verslanir.
húmor á meðan börnin eiga ekkert
að skilja það. Fullorðna fólkið getur
auðvitað orðið dauðleitt á því að lesa
sömu bækurnar aftur og aftur þannig
að það þarf líka að hugsa um það,“
segir Huginn.
Verður að njóta lífsins
„Fullorðnir geta líka lært af þess-
ari bók eins og börnin og ekki síð-
ur útrásarvíkingarnir.“ En kanínan í
bókinni reisir viðskiptaveldi í anda
Baugsfeðga og bankanna. „Fullorðna
fólkið getur lært það af bókinni að
gleyma sér ekki í þessum hversdags-
leika og sökkva sér í vinnu. Auðvit-
að eru peningar þarfaþing fyrir alla
en það verður líka að vita hvenær er
komið nóg,“ segir Huginn.
„Bókin einfaldar hlutina líka rosa-
lega fyrir útrásarvíkingana,“ bæt-
ir hann við og hlær. „Það sem dauði
kanínunnar táknar er að hún borð-
ar aldrei neitt af auðæfunum. Hún
tekur sér aldrei tíma til að njóta þess
sem hún hefur aflað sér og deyr því
með tóman maga. Þó að maður vinni
mikið verður maður að gefa sér tíma
til þess að njóta lífsins. Aftan á bók-
inni er einmitt kanína að draga aðra
kanínu upp úr hatti. Það er svona
blekking töframannsins eins og auð-
mannanna. Það er að segja þessi
sjónhverfing að þykjast vera ríkur þó
að maður eigi ekki innistæðu fyrir
því. Í raun á kanínan ekkert því hún
étur aldrei neitt af því sem hún safn-
ar. Það er eins með útrásarvíkingana
sem voru alltaf að leika sér með tölur
og vinargreiða en það var aldrei nein
inneign fyrir neinu sem þeir áttu.“
Með peningana í baksýnis-
speglinum
Huginn er viðskiptafræðingur og
lauk mastersnámi í viðskiptafræði
í erlendum háskóla. Eftir að hann
kom heim starfaði hann sem mark-
aðsstjóri hjá Prentsmiðjunni Odda
en á undan því var hann verðbréfa-
miðlari og hafði það gott sem slík-
ur. „Lífið var voða þægilegt þegar ég
var verðbréfamiðlari. Ég fékk ágætis
launaseðla og var að detta inn á það
að fara að afla virkilega hárra tekna.
En ég ákvað frekar að hætta til að
ferðast um heiminn. Ég hefði alveg
getað haldið áfram að vinna og feng-
ið enn hærri laun því ég var að vinna
mig upp í fyrirtækinu en mér fannst
jafnmikilvægt að skoða heiminn,“
segir Huginn sem hélt þá í langa ferð
þar sem hann skoðaði Norður-Am-
eríku, Suður-Ameríku og Mið-Aust-
urlönd svo dæmi séu tekin.
„Á meðan ég var í þessu meist-
aranámi kviknaði náttúrulega í Ís-
landi. Mér fannst því ekkert voðalega
spennandi að koma heim og fara
beint inn í bankana og bendla mig
þannig eitthvað við þá. Ég ákvað því
að láta á það reyna að verða rithöf-
undur og svo kemur það bara í ljós
hvort það gangi.“
Ætlar að nota íslenska
listamenn
Bækurnar fjórar eru mjög fallega
myndskreyttar en athygli vekur að
fjórir listamenn eru notaðir við gerð
bókanna en enginn þeirra er Íslend-
ingur. „Ég leita að listamönnum sem
mér finnst passa við hvert verkefni,“
segir Huginn. „Erlendis eru fleiri
listamenn á lausu og auðvitað miklu
meira af fólki. Ég skoða gagnagrunna
þar sem eru milljón manns skráðir
og þar fletti ég í gegnum mismun-
andi stílbrögð. Það finnst mér svolít-
ið þægilegt. Ég ætla nú samt að fara
að reyna að nota íslenska listamenn,
þetta er ekki alveg nægilega gott hjá
mér. Málið er bara að ég hef svo lítið
verið í kringum þennan bransa hér
heima og þekki lítið til.“
Vill endurnýjun
á listamannalaunum
Gengi Hugins sem rithöfundar hef-
ur verið ágætt hingað til. Allar bæk-
urnar sem hann skrifaði árið 2008
eru uppseldar og segir hann lítið eft-
ir af bókunum sem komu út í fyrra.
Alls seldi hann átta þúsund bækur
á árinu 2009. Hann fékk samanlagt
16.000 eintök af bókunum fjórum
fyrir þessi jól þannig að Huginn er
nokkuð stórtækur. „Það tekur svolít-
inn tíma að byggja þetta upp. Fyrst
um sinn er maður náttúrulega að
kynna sig og þá þarf maður að gefa
alls kyns afslætti. En ég var að fá
fyrsta styrkinn minn um daginn frá
Nordplus og ég er mjög sáttur við
það. Nú bíður maður bara eftir þess-
um helvítis listamannalaunum,“ seg-
ir Huginn en hann er ekki alveg sátt-
ur við hvernig þeim er úthlutað.
„Það er rosaleg stöðnun varðandi
listamannalaunin því það eru alltaf
sömu aðilarnir sem fá styrkina trekk
í trekk. Þegar það gerist hættir mark-
aðurinn að hafa áhrif á það hver fær
styrkinn í stað þess að virkja fólk í að
gera eitthvað nýtt. Það á auðvitað að
gefa nýju fólki tækifæri og annað-
hvort virkar það eða ekki. Ég vonast
nú samt til að fá þau ekki á næsta ári
heldur þarnæsta,“ segir barnabóka-
höfundurinn Huginn Þór Grétars-
son. tomas@dv.is
Radísurnar
sýndu kanínunni hvar
selleríin stóðu blýsperrt, græn og
girnileg, svo kanínunni fannst hún svífa á
draumaskýi upp til hæstu hæða...
Tíu sinnum meira en tíu sinnum meira en kálhausarnir. Tölurnar
hringsnerust í hausnum á kanínunni sem gapti í undrun sinni. Þúsund... Það er
miklu meira en nóg fyrir fleiri daga en ég kann að telja upp í, hugsaði kanínan.
Þar uppi í hlíðinni, þegar hún ætlaði að bíta í fyrsta selleríið, var orgað: „KANÍNA!“
Kanínan gráðuga Útrásarvíkingurinn alveg dáleiddur af peningum og græðgi.