Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 34
Kölski kom í spilið
Í Þjóðviljanum árið 1962 er sagt frá því að eftir að heimilisfólk hafði
lokið við jólamatinn féll allt í dúnalogn á heimilum. Stranglega
bannað var að spila á spil, syngja, dansa eða rífast og viðhafa ljótan
munnsöfnuð því þá var voðinn vís. „...þá var kölski vís til þess að
sökkva bænum með öllu sem í honum var,“ segir í grein Þjóðviljans.
Ef menn spiluðu er kölski sagður hafa komið í spilið, og eldra fólk hafi vitað dæmi þess.
Fólkið hafði enda enga löngun til að gera neitt af sér því mikið þótti í húfi. Eins og greint
er frá hér að framan kveikti fólk á kertum svo bjart varð í baðstofunni. „Víða mun það
hafa verið siður að láta loga ljós í baðstofu á jólanóttina og mun það enn gert á mörgum
heimilum bæði í sveit og við sjávarströnd, því að jólanóttin er helgust allra nótta.“
34 Jólasiðir Föstudagur10. desember 2010
Milda Culinesse inniheldur A, D og E vítamin,
Omega 3 og Omega 6. Milda Culinesse er tilvalið
í alla matargerð fyrir jólin og frábært í gömlu
góðu smákökuuppskriftirnar!
J
ólapakkar, jólakort, jólakveðjur
og ljúffengur jólamatur með
öllu tilheyrandi þykir sjálfsagð-
ur hluti jólanna eins og við
þekkjum þau. En þessir hlutir
þóttu ekki jafn sjálfsagðir fyrr á öld-
um þegar ýmsar venjur, óvenjulegar
segja eflaust sumir, voru viðhafðar.
DV leitaði í gamlar heimildir, með-
al annars Lesbók Morgunblaðsins
frá árinu 1948, og stiklar á stóru um
venjur sem eru flestum gleymdar.
Jólin eru ein stærsta hátíð kristinna manna og líklega elsta hátíð hér á landi. Jóla-
hátíðin hefur þó breyst í aldanna rás og hafa gamlir siðir vikið fyrir nýjum. DV rifjar
hér upp ýmsar venjur sem viðhafðar voru á árum áður og núlifandi kynslóðum
Íslendinga þykja vafalítið framandi.
Gamlar
jólavenjur
á Íslandi
Skattur
sem gladdi
Þegar jólafastan hófst kom jólahugur í fólk
og var jafnan haldið upp á upphaf hennar.
Fékk fólk þá betri mat en það átti að venjast.
Heimildir eru hins vegar fyrir því að annar
siður hafi verið viðhafður á Norðurlandi,
einkum í Þingeyjar- og Eyjafjarðarsýslum,
langt fram á 19. öld. Sá nefndist kvöldskattur
og þótti gleðja mikið.
Kvöldskatturinn varð að koma á óvart og
því var hann ekki bundinn við neinn sérstak-
an dag. Eina reglan var sú, að einhvern dag í
fyrstu viku jólaföstunnar, skyldi hann gefast.
Í Lesbókinni kemur fram að húsfreyjan á
heimilinu hafi ekki látið á neinu bera þegar
hún fór inn í búr til að skammta mat. Í stað
þess að koma með hversdagslegan mat kom
húsfreyjan með allt það besta sem í boði var;
hangikjöt, pottbrauð, flatbrauð og nóg af
smjöri. Slíkt var magnið að fólk gat borðað
afganga næstu daga á eftir, rétt eins og
gengur og gerist í dag.
Vökustaurar til
að sofna ekki
Það er ekki einungis nú á dögum sem fólk
finnur fyrir stressi í aðdraganda jólanna.
Síðasta vikan fyrir jól fyrr á öldum var
jafnan annasöm og var þá einkum keppst
við prjónaskap og ullarvinnu. Slík var
vinnan að húsbændur gáfu hvorki sjálfum
sér né öðrum tíma til að sofa. „Var það þá
ekki fátítt að fólk setti á sig svonefnda
vökustaura, og af því fékk vikan fyrir jólin
nafn og var kölluð staurvika,“ eins og það er
orðað í Lesbók Morgunblaðsins árið 1948.
Vökustaurarnir, sem einnig voru kallaðir
augnateprur, voru gerðir úr smáspýtum,
ekki ólíkum eldspýtum að stærð. Stundum
var notað baulubein úr þorskhöfði eða
eyruggabein.
Endarnir stóðu inn í skinnið í augntóftun-
um og því þótti mjög sársaukafullt að halla
augunum aftur. Eru húsbændur sagðir hafa
gætt þess að setja vökustaurana á fólk sitt
þegar það sofnaði.
Sumir fóru í jólaköttinn
Að fara í jólaköttinn er gamalt íslenskt orðatiltæki sem oft er kastað fram í hálfkæringi
nú á dögum. Ef einhver fékk ekki nýja flík um jólin fyrr á öldum var sagt að hann færi í
jólaköttinn, eða klæddi jólaköttinn. Samkvæmt þjóðsögum var jólakötturinn hálfgerð
óvættur, og var hann sagður taka hvern þann sem fengi ekki nýja flík um jólin – skipti þá
engu hvort viðkomandi fékk nýja skó, eins og venjan var um jól fyrr á öldum.
Börnin fengu
tólgarkerti
Jólagjafir eru órjúfanlegur hluti jólahá-
tíðarinnar en áður fyrr þótti ekki jafn
sjálfsagt að börn fengju fokdýr leikföng
eins og í dag. Á vef Þjóðminjasafnsins er
vitnað í bækur Árna Björnssonar, Sögu
daganna og Sögu jólanna. Þar kemur fram
að fyrsti vísirinn að eiginlegum jólagjöfum
hér á landi hafi verið þegar börnum, og
stundum öllum á heimilinu, voru gefin
kerti á jólunum.
Tólgarkerti voru steypt fyrir hver jól þar
sem þau gáfu bjartara ljós en lýsislamp-
arnir. Kertin þóttu dýr og því aðeins
notuð til hátíðarbrigða, eins og á jólum.
Stemningin sem myndaðist í baðstofun-
um þótti mjög jólaleg þegar allir höfðu
kveikt á sínu kerti.
Jólagjafir fóru að verða almennari þegar
líða tók á 19. öldina og sérstaklega á seinni
hluta hennar þegar innflutningur á ýmsum
varningi tók að aukast.
Fullt af pökkum Jólagjafir fóru að
verða almennar á seinni hluta 19. aldar
þegar innflutningur á ýmiss konar
varningi varð algengari. Mynd PhotoS.coM
Nanna Rögnvaldardóttir hefur hald-
ið stórt jólaboð á ári hverju og boð-
ið til sín allt að 80 gestum. Hún er því
nánast með svarta beltið í því að raða
saman smáréttum fyrir góða gesti.
Nanna gaf út bókina Smárétti fyrir
jólin og gefur lesendum DV nokkrar
hugmyndir úr henni um hvernig er
hægt að setja saman matarboð í stíl
sjöunda áratugarins.
Kokkteilar
Kokkteilar geta verið mjög skemmti-
legir og flottir forréttir eða smáréttir.
Best er auðvitað að eiga slatta af litlum
vínglösum eða staupum á fæti en ef
þau eru ekki til má til dæmis notast við
skotglös (snafsaglös), litla diska eða
jafnvel stökk salatblöð. Og þótt rækju-
kokkteilar séu þekktastir – það er varla
hægt að halda matarboð í stíl sjöunda
áratugarins án þess að þeir komi þar
einhvers staðar við sögu – þá er vel
hægt að nota ýmislegt annað, bæði
sjávarfang, kjötmeti og grænmeti.
Best er að bera fram litla gaffla með
glösunum en í standandi boði gæti
þó tannstöngull dugað, ef það sem er í
kokkteilnum er ekki allt of smátt skor-
ið. Þessa kokkteila má líka bera fram
í stærri glösum eða á forréttardiskum
og hafa þá sem einfalda en góða for-
rétti um hátíðirnar.
Rækjukokkteill með lárperu
Nokkur salatblöð, t.d. lambasalat eða
eikarlaufssalat
10 cm biti af gúrku
Nokkrir vel þroskaðir konfekttómatar
1 lítil lárpera, vel þroskuð
250 g risarækjur, soðnar og skelflettar
(eða humar)
Rífðu salatið niður eða skerðu það í
ræmur. Skerðu gúrkuna í litla teninga
eða stafi og saxaðu tómatana smátt.
Afhýddu lárperuna og skerðu hana í
litla bita. Taktu frá jafnmargar rækjur
og glösin eru sem þú ætlar að nota en
skerðu afganginn í bita. Settu salat-
blöð í botninn á hverju glasi. Bland-
aðu saman gúrku, tómötum, lárperu
og rækjubitum og settu ofan á salat-
ið. Dreyptu einni teskeið af sósu yfir
og settu svo eina rækju á glasbarminn
eða ofan í glasið.
Kokkteilsósa:
100 g sýrður rjómi
2–3 msk. tómatsósa úr flösku
1 msk. sæt chilisósa (Heinz)
1 tsk. dijon-sinnep
Pipar
Salt
Hrærðu allt saman, smakkaðu og
bragðbættu eftir þörfum.
chili-rækjukokkteill
200 g litlar eða meðalstórar rækjur,
soðnar og skelflettar
150 ml tómatsósa úr flösku
100 ml austurlensk sæt chili-sósa
2–3 vorlaukar (grænu blöðin)
Kóríanderlauf
Spínat- eða salatblöð
Láttu rækjurnar þiðna og bland-
aðu þeim svo saman við tómatsósu,
chili-sósu, smátt saxaðan vorlauk
og 1–2 tsk af smátt söxuðu kóríand-
erlaufi. Láttu standa nokkra stund.
Rífðu eða saxaðu nokkur spínat- eða
saltblöð og settu í botninn á litlum
glösum eða staupum. Austu rækjum
og sósu yfir og skreyttu með kórí-
anderlaufi.
Skinku- og mozzarellakokkteill
75 g hráskinka
12 litlar mozzarellakúlur (1 poki,
120 g)
12 kirsuberjatómatar
½ krukka grilluð paprika í olíu
Nokkur rifin salatblöð, t.d. klettasal-
at eða eikarlaufssalat
2 tsk. hvítvínsedik
Nokkur basilíkublöð
Nýmalaður pipar
Salt
Rífðu eða skerðu hráskinkuna í bita
eða ræmur. Skerðu hverja mozzar-
ellakúlu og hvern tómat í tvennt.
Skerðu paprikuna í bita. Settu svo-
lítið salat í botninn á hverju glasi og
síðan dálitla hrúgu af skinku, hálf-
an mozzarellaost, hálfan tómat og
smávegis papriku. Hrærðu saman
3 msk. af olíunni úr paprikukrukk-
unni, edikið, nokkur smátt söx-
uð basilíkublöð, pipar og salt og
dreyptu yfir. Skreyttu með litlu bas-
ilíkublaði. kristjana@dv.is
Matarboð
Í anda sjöunda áratugsins