Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 43
saman í skál og hrærið þar til allir kekkir eru horfnir. Hrærið síðan sýrða rjómann saman við. Standi og þroskist á köldum stað í lokuðu íláti. Minnst sólarhring, helst viku. Öflugt sinnep 35 grömm brún sinnepsfræ 4 matskeiðar vatn 1/2 matskeið hvítvínsedik 2 teskeiðar hunang 1/2 teskeið salt 2 matskeiðar olía Þórarinn notar þungavigtaraðferð til þess að kremja sinnepsfræin. „Nauðsynlegt er að eiga fallbyssukúlu til að kremja þurr sinnepsfræin á stóru bretti. Aukið við vatni og ediki og valtið áfram með kúlunni. Bætið við hunangi og salti og skrapið loks leðjuna upp í krukku. Látið þroskast í minnst viku. Hvort tveggja sinnepið má svo bragðbæta og efla að vild með ýmsu kryddi. Einnig koníaki, viskí, bjór eða hverju sem manni dettur í hug.“ Risapönnukökur frá Hollandi Art Shalk á rætur að rekja til Hollands. Jólahefðir í mat og drykk eru töluvert frábrugðnar þeim íslensku. „Í Hollandi er mikið borðað af villibráð svo sem dádýrum og fasönum. Eitthvað sem lítil hefð er fyrir hér á landi og jafnvel erfitt að fá hráefni til slíkrar matargerðar.“ Art kann þó lausnina á því. „Í Hollandi borða krakkar mikið af pönnu- kökum sem eru allt öðruvísi en íslensku pönnukökurnar. Hollenskar pönnukökur eru stórar og þykkar. Fólk notar alls konar álegg, svo sem lauk, tómata, egg og beikon og oft púrru, skinku, sveppi eða geitaost. Svo er alltaf síróp sett ofan á og flórsykur. Í kringum jólin eru mjög oft sett rauð ber ofan á pönnukökuna og rjómi. Börnin klippa síðan fígúrur út úr smjörpappír og strá sykri yfir eða setja berin inn þannig að jóla-formin myndast ofan á pönnukökuna.“ Uppskrift (4 pönnukökur): 250 gr hveiti 2 msk. sykur 1/2 tsk. salt 2 egg 75 gr brætt smjörlíki ½ l mjólk Mjólk bætt í eftir þörfum Matarmiklar pönnukökur: Skerið sveppi, púrru og skinku í smáa bita og steikið í olíu með smá salti og pipar. Þegar pönnukökudeigið er komið á pönnuna og byrjað að bakast er grænmetismaukinu varlega dreift yfir og pressað aðeins inn í deigið. Svo þarf að snúa pönnukökunni. Í lokin er gott að raspa ost yfir og láta bráðna. Jólapönnukökur: Steikið pönnukökurnar (án grænmetisins náttúrulega). Hitið frosin (eða fersk) ber, t.d. skógarber, á pönnu með smá vatni og smá sykri. Rjóminn þeyttur. Þurrefnin eru sett saman í skál og dálítið af mjólk sett út í. Eggjunum er því næst bætt út í. Smjörlíkinu er hellt út í og þynnt með mjólk eftir þörfum. Athugið að deigið á ekki að vera allt of þunnt. Svo er deiginu ausið með ausu á heita smurða steikingarpönnu og bakaðar fallegar pönnukökur. Þegar pönnukakan er bökuð og hefur tekið á sig fallega brúnan lit báðum megin er hún sett á disk og viskustykki sett yfir til að halda henni heitri og mjúkri. Art leggur áherslu á veigamikið atriði að mati þeirra feðga: „Alvöru pönnukökusnillingar henda svo pönnukökunum upp í loft til þess að snúa þeim! Endilega prófið það!“ Jóhann Sigurðarson framreiðir aðalréttinn á jólaborðið og leggur til uppskrift sem hann er afar hrifinn af, pekingönd. Þrátt fyrir miklar annir í leikhúsinu gefur hann sér góðan tíma í að borða góðan mat og slappa af. „Þetta er mikið nostur en afar Föstudagur 10. desember 2010 Jólamatur 43 Veljum Ísland www.utivist.is Ferðaáætlun Útivistar 2011 kemur út 11. desember Nauðsynlegt að eiga fallbyssukúlu Þórarinn kremur sinnepsfræin í rótsterkt sinnep með fallbyssukúlu. Fljúgandi hollenskar pönnukökur Alvöru pönnukökusnillingar henda pönnukökunum upp í loft til að snúa þeim. Art er með taktana á hreinu! ljúffengur jólamatur og fyrirhöfnin er hluti af því að útbúa góðan jólamat,“ segir Jóhann. Pekingönd Jóhanns 2 kg önd 2 msk. soyasósa 2 msk. dökkur púðursykur Mandarín pönnukökur 500 gr hveiti smá salt 300 ml sjóðandi vatn Sesam seed olía Borið fram með: 1 lítil agúrka, skorin í 5 cm lengjur á þykkt við eldspýtu 1 búnt af vorlauk, skorið á sama hátt 8 msk. hoisin-sósa vorlauksblóm Setja öndina á kaf í sjóðandi vatn í 2 mín. Þerra vel. Hengja hana upp þar sem loftar vel um hana yfir nótt. Blanda saman soyasósu og sykri og nudda öndina vel. Láta hana hanga þannig í 2 klst. þar til blandan er þurr á henni. Leggja hana síðan á rist í forhitaðan ofn og steikið við 200 gráður í eina og hálfa klst. Á meðan eru pönnukökur gerðar. Sigta hveiti og salt í skál. Hræra vatni rólega saman, hrært þar til náðst hefur stíft deig. Hnoðum og gerum um 5 cm þykka rúllu. Skerið rúlluna í 1 cm þykkar sneiðar og rúllið þær út í þunnar pönnukökur. Pensla aðra hlið pönnukökunnar með sesame seed-olíu og leggja þær tvær og tvær saman. Setja pönnu með engri feiti á yfir hita, þegar pannan er orðin heit er hitinn aðeins lækkaður og pönnuköku- „samloka“ sett á. Þegar hún er byrjuð að blása upp er henni snúið og steikt á hinni hliðinni. Þegar pönnukökurnar eru steiktar eru þær teknar í sundur og brotnar til helminga. Leggið þær á volgt fat, setjið álpappír yfir svo þær þorni ekki. Haldið þeim heitum. Nú skerum við stökku húðina af öndinni og röðum henni á volgt fat. Skreytum með agúrku. Tökum allt kjötið af beinunum og röðum því einnig á volgt fat. Skreytum með vorlauknum Smyrjum pönnukökur með hoisin-sósu. Þekjum með skinni og kjöti. Setjum nokkur stykki af agúrku og vorlauk með. Síðan er þessu rúllað upp eins og pönnuköku. Borið fram með brúnuðum kartöflum og hindberjasultu. kristjana@dv.is Frí frá leikhúsönnum Þegar Jóhann hefur lokið jólatörninni í eldhúsinu leggst hann í matargerð og eldar pekingönd fyrir fjölskylduna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.