Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 46
46 Tölvuleikir Föstudagur10. desember 2010 Veldu rétta tölvuleikinn Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis. GEFÐU GJÖF SEM GEFUR www.gjofsemgefur.is GEFÐU GEIT P IP A R \T B W A • S ÍA • 102985 Það getur verið erfitt að velja réttu leikina í tölvu- leikjaflóðinu sem fylgir jólunum. DV tók saman nokkra af bestu leikjunum sem koma út fyrir þessi jól. Til að hjálpa lesendum enn frekar að velja er sett með einkunn af vefsíðunni gamerankings.com sem er meðaleinkunn helstu tölvuleikjagagnrýnenda heims. WORLD OF WARCRAFT: CATACLYSM Netspilunar hlutverka- og ævintýraleikur PC, MAC GRAN TURISMO 5 Bílaleikur PS3 CALL OF DUTY: BLACK OPS Skotleikur PC, PS3, XBOX 360, WII, NDS ASSASSIN Ś CREED: BROTHERHOOD Hasarleikur PC, PS3, XBOX 360 FIFA 11 Knattspyrnuleikur PC, PS2, PS3, XBOX 360, WII, NDS HALO: REACH Hasarleikur XBOX 360 CIVILIZATION 5 PC, MAC GOLDENEYE 007 WII, DS NBA JAM PS3, XBOX 360, WII FLEIRI GÓÐIR MOVE- STÝRIKERFIÐ PC, MAC Nýjasta viðbótin við einn vinsælasta tölvuleik fyrr og síðar. Hún kom í búðir 7. desember og má búast við því að einhverjar af þeim 12 milljónum manns sem spila leikinn reglulega muni vilja kaupa hana, eða bara allir. Ný svæði og tveir nýir ættbálkar eru á meðal þess sem er að finna í þessari viðbót frá Blizzard. Einkunn: Ekki komin. Þeir sem hafa spilað tölvuleiki lengur en í einn dag þekkja sennilega Gran Turismo-leik- ina. Einhverjir vönduðustu og raunverulegustu bílaleikir sem gerðir hafa verið. Þessi fimmti leikur í röðinni hefur fengið góða dóma. Eins og vanalega er mikil áhersla lögð á alls kyns smáatriði þannig að bílanördar ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Sem fyrr er áhersla lögð á að stýrikerfið sé sem raunverulegast. Einkunn: 85,04% Einn af þessum allra stærstu fyrir þessi jól. Call of Duty-leikirnir hafa verið á meðal vinsælustu fyrstu persónu skotleikja heims um nokkurt skeið. Leikurinn á undan Modern Warfare þykir til dæmis einstaklega góður. Hernaðarleikir þar sem spilendur leysa hin ýmsu verkefni en leikirnir hafa samt náð hvað mestum vinsældum í fjölspilun. Black Ops hefur ekki fengið alveg jafngóða dóma og forveri hans en frábæra þó. Bara orðspor Call of Duty-leikjanna mun tryggja að þessi verði vinsæll. Einkunn: 89,09% Þriðji leikurinn í röðinni og sá sem hefur fengið besta dóma hingað til. Hér gefst spilendum tækifæri til þess að bregða sér í hlutverk launmorðingja á miðöldum. Leikurinn gerist að mestu leyti í Róm en hann hefur verið lofaður fyrir ótrúlegt útlit og mikil smáatriði. Leikur sem ætti að endast spilendum vel yfir jólin. Einkunn: 91,36% Fifa 11 mun án efa seljast eins og mjólk fyrir þessi jól enda hafa Fifa-leikirnir fest sig í sessi sem bestu fótboltaleikirnir á þriðju kynslóðar leikjatölvur. Líkt og Fifa 10 hefur leikurinn fengið mjög góða dóma en fjölbreytnin er töluverð. Hægt er að spila með hundruðum liða og í öllum sterkustu deildum heims að því ógleymdu að netspilun leiksins þykir góð. Einkunn: 88,04% Vissulega nokkuð langt liðið frá því að hann kom út sem var um miðjan september. En ef þú vilt færa einhverjum sem á Xbox 360 eitt af því besta sem í boði er þá er Halo: Reach málið. Geimhasar af bestu sort. Einkunn: 91,70% Sid Meier‘s Civilizat- ion V er fyrsti og eini tölvuleikurinn sem hefur verið tilnefndur til Grammy-verð- launa. Það er nú eitthvað. En að öllu gríni slepptu þá vita tölvuleikjaunnendur hvers lags snilld er hér á ferð. Ódauðlegir leikir sem verða betri og flottari með hverri útgáfunni. Stórleikur sem endist og endist. Spilendur byggja upp samfélög alveg frá grunni og sinna öllum þeim skyldum sem því fylgir. Einkunn: 89,82% Endurgerð á ódauð- legum og samnefnd- um leik frá árinu 1997. GoldenEye 007 er einn af bestu leikjunum sem kom út á Wii fyrir þessi jól. Spilendur bregða sér í hlutverk breska njósnarans James Bond og hafa verkefni í fyrri leiknum verið endurbætt og öðrum bætt við. Frábær fjöl- og netspilun í leik þar sem ekki er reynt að finna upp hjólið á ný sem endurvekur einstaka stemningu úr fyrri leiknum. Einkunn: 84,23% Hver man ekki eftir NBA Jam á Super Nintendo? Klassískur körfuboltaleikur þar sem raunveruleikan- um var hliðrað lítil- lega til fyrir sjúklega öflugar troðslur og skemmtilega takta. Leikurinn var ekki síður vinsæll í spilakössum, en í honum spilar maður tveir á móti tveimur. NBA Jam er leikurinn ef þú ef þú ert í stuði fyrir nostalgíu um jólin. Einkunn: 74,85% Move er nýjasta við- bótin við PlayStation 3-tölvuna. Hún bætir Wii-eiginleikunum við PlayStation eða hreyfistýringuna sem hefur einkennt Nin- tendo Wii hingað til. Hægt er að fá fjöldann allan af leikjum sem eru gerðir sérstaklega fyrir Move. Það geta allir leikið sér í svifdiskakasti og þar fram eftir götunum. Metroid: Other M – Wii, DS Need for Speed: Hot Pursuit – PC, PS3, Xbox 360 Super Meat Boy – Xbox 360, PC Tron Evolution – PC, PS3, Xbox 360, Wii Red Dead Redemption: Undead Nightmare – PS3, Xbox 360 StarCraft 2 – PC Football Manager 2011 – PC Medal of Honor – PC, PS3, Xbox 360 DJ Hero 2 – PS3, Xbox 360, Wii God of War: Ghost of Sparta – PSP James Bond Blood Stone – PC, PS3, Xbox 360, NDS, Wii Guitar Hero: Warriors of Rock – PS3, Xbox 360, Wii NBA 2K11 – PC, PS2, PS3, PSP, Xbox 360, Wii Star Wars: Force Unleashed 2 – PC, PS3, Xbox 360, Wii, NDS NHL 11 – PS3, Xbox 360
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.