Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Side 56
56 Jólagjafir Föstudagur10. desember 2010
Gjafakort – þá fá allir eitthvað fallegt!
Blue Lagoon gjafakort eru fáanleg í verslunum Bláa Lónsins
á baðstað, að Laugavegi 15, Blue Lagoon spa og Hreyfingu í Glæsibæ.
Gisting í Bláa Ló
ninu – Lækningalind Blue Lagoon húðvörur Líkamsrækt Einkaþjálfun
Aðgangur í Bláa Lónið Spa meðferðir Snyrtimeðferðir Nudd Veitingar á LAVA
Gjafakort
Must Be Santa – Bob Dylan
Gamli meistarinn fer á kostum á jólaplöt-
unni Christmas in the Heart sem hann
sendi frá sér í fyrra. Þar má helst nefna
lagið Must Be Santa, sem er brjálæðis-
lega hressandi jólalag sem Dylan syngur
með sinni hrjúfu rödd. Mjög gott lag fyrir
jólalagahatarann til að byrja á.
Ave Maria – Botnleðja
Hafnfirsku rokkararnir í Botnleðju tóku
sína eigin útgáfu af hinu sígilda Ave Maria
um árið. Illfáanlegt en goðsagnakennt.
Fyrirgefðu að ég rotaði þig um
jólin – Tvíhöfði
Borgarstjórinn í Reykjavík ásamt
Sigurjóni Kjartanssyni í grínlagi sem allir
17 ára strákar eiga inni á tölvunni sinni.
Nei nei ekki á kjólinn – Sverrir
Stormsker
Ef þú ert í algjörri andspyrnu við jólin og
vilt snúa öllu upp í grín og kaldhæðni, þá
er hægt að mæla með klámvísu Sverris
Stormskers, sem sungin er af Sveppa, yfir
jólalag HLH flokksins.
Ef ég nenni – Helgi Björnsson
Ekki er annað hægt en að bera ómælda
virðingu fyrir manni sem veigrar sér ekki
við að koma fram í ísbjarnarpels á tón-
leikum. Svo er lagið auðvitað geðveikt.
O Holy Night – Sufjan Stevens
Ef þú ert „hipster“ eru góðar líkur á því
að þetta sé uppáhaldið þitt, alveg þar til
Jónsi í Sigurrós gefur út jólaplötu.
White Christmas – Bing Crosby
Ekki hlusta á allar hinar útgáfurnar af
þessu lagi. Farðu á YouTube og finndu
50 ára gamalt svarthvítt myndband
með Crosby að syngja lagið og meðtaktu
jólagleðina.
Fairytale of New York – Pogues
Írskt kæruleysislegt þjóðlagajólarokk
eins og það gerist best. Shane MacGowan
forsprakki sveitarinnar er hálftannlaus og
það er skemmtilega ó-jólalegt.
The Christmas Song – Mel Torme
og Judy Garland
Einhvern tímann sveigði þróun jólalaga af
réttri braut. Það var hins vegar löngu eftir
að Mel og Judy sátu við píanóið og sungu
fyrir heiminn.
Little Drummer Boy – Low
Látið ekki blekkja ykkur þó hljómsveitin
hafi trúarlegan bakgrunn í samfélagi
mormóna í Bandaríkjunum. Þetta er eitt
allra ferskasta jólalag sem hægt er að
komast yfir.
Gjafir til
heimilisins
Fallegar gjafir til heimilisins eru alltaf
vel þegnar. Góðar hugmyndir að
slíkum gjöfum eflaust líka. Þessar
gjafir gleðja örugglega og eru flestar
á viðráðanlegu verði.
Friðarljós á heimilið - Dúfuljós
Myconceptstore.is - Verð 17.900 kr.
Brjóttu skurnina og ræktaðu kryddjurtir- Eggling
Kisan - Verð 1.900 kr.
Fallegt skrautkerti - Julies kerti
Habitat - Verð 3.990 kr.
Skrautlegir kaffibollar - Woodland espressobollar og diskar, 4
bollar í setti.
Habitat - Verð 3.510 kr.
Fallegt að eiga og að gefa - Rauðvínskarafla
Habitat - Verð: 7.700 kr.
Mjúkur og rómantískur- Velúrpúði
Myconceptstore.is - Verð 8.900 kr.
Falleg rúmföt eiga alltaf við - IKEA Beata rúmföt
- Verð: 4.990 kr.
Jólalög fyrir þá sem
þola ekki jólalög
T
il eru þeir sem þola einfaldlega ekki jólalög. Geta ekki hugsað
sér að kveikja á útvarpinu í desember af hræðslu við að heyra
allt of glaðlegar og hallærislega útsettar jólaballöður frá ofan-
verðum níunda áratugnum, með íslenskum dægurlagasöng-
konum í fararbroddi. Væntanlega eru þær studdar synthesizer, jólabjöll-
um og bakröddum sem syngja „jól, jól, jól.“ Alveg er öruggt að textinn
fjallar um jólasveininn eða hvað verður í pökkunum undir jólatrénu.
Jólalagahatarinn upplifir sig sem Trölla úr ævintýri Dr. Zeus og þarf sífellt
að verja sig gegn hamingjukórnum allt í kringum hann.
Ekki eru þó öll jólalög með þessum hætti og jafnvel hörðustu jólalaga-
hatarar ættu að geta skrifað geisladisk í bílinn með að minnsta kosti 10
jólalögum sem engin ástæða er til að hata. DV mælir hér með 10 jóla-
lögum fyrir þá sem þola ekki jólalög. Hver veit nema gegnfrosið hjartað
þiðnaði aðeins við að hlusta á þessi lög. Það gæti jafnvel orðið til þess að
sá sem þolir ekki jólalög, fikri sig aðeins yfir í hefðbundnari jólalög og
meðtaki gleðina. Eitt skref í einu.