Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 60

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 60
60 Pistill Föstudagur10. desember 2010 Jólalegir A f einhverjum ástæðum þykja ísbirnir vera jólalegar skepnur, þó þannig hafi alls ekki alltaf verið. Hvítur feldur þeirra minnir eflaust marga á snjó- inn, sem er auðvitað jafn jóla- legur og malt og appelsín, pip- arkökur og umferðarteppur við kirkjugarða á aðfangadag. En það er varla mikið annað í fari ísbjarna sem er jólalegt. Ísbirnir eru grimm rándýr, sem leggja sér lítið annað til munns en krútt- lega seli og það er svo sannarlega ekkert jólalegt við það. En ekki má vanmeta markaðsfræðinga, þeim tekst iðulega að „skapa þann raunveruleika sem hentar þörfum nútímans hverju sinni“, svo farið sé klaufalega með orð franska félagsmannfræðingsins Pierres Bourdieus. Því síður má vanmeta mátt Coca-Cola, en þar hafa starfað sennilega allra bestu markaðsfræðingar mannkyns- sögunnar. Ísbirnir drekka kók Rétt eins og bandaríska gos- drykkjaframleiðandanum tókst að skapa nútímaímynd vest- rænna þjóða á jólasveininum á norðurpólnum hefur honum nú einnig tekist að skapa krútt- lega og jákvæða ímynd af hinum sanna íbúa norðursins. Ísbjarn- arauglýsingar Coca-Cola birt- ust fyrst á skjánum árið 1993 og eru nú þegar meitlaðar í huga yngri kynslóða. Í þeirri fyrstu, sem bar titilinn „Norðurljós“, má sjá ísbjarnarpar stilla sér upp fyrir framan tunglskinsbirtuna og virða fyrir sér norðurljósin, svona rétt eins og við mennirn- ir horfum á kvikmynd. Þau gæða sér á kóki úr flösku og eftir fylg- ir hinn frægi velþóknunarsvip- ur, drykkurinn er bjarndýrunum greinilega að skapi. Höfundur auglýsingarinnar, Ken Stewart, fékk reyndar hug- myndina frá labrador-hundi sínum – sem var hvítur að lit og minnti marga á ísbjörn. Tekn- ar voru upp hreyfingar ísbjarna og þær greindar í tölvu, svo gera mætti ísbirnina sem trúverð- ugasta. Stewart sagði að hann vildi skapa „persónur sem væru skemmtilegar, saklausar og hefðu öll þau persónueinkenni sem kalla má mannleg.“ Hins vegar er rétt að benda á, að kom- ist lesendur í kynni við alvöru ís- björn, dugar sennilega ekki að bjóða honum kókflösku. Nonni og Manni lenda í birninum Þeir sem muna eftir sjónvarps- þáttunum um Nonna og Manna (þar sem lesendur bókanna safn- ast óðum til feðra sinna), gleyma því seint þegar bræðurnir voru staddir á bóndabæ vinafjöl- skyldu þegar ísbirni bar að garði. Þá var einmitt verið að halda jól, og gleðin sem þeim fylgdi breytt- ist skjótt í martröð. Birnirnir voru hinir verstu, greinilega svangir og úrillir. Lukkulega fyrir Garðar Thor Cortes og Einar Örn Einars- son (Nonna og Manna) var Luc Merenda (Haraldur) skammt undan. Hann reyndist hetja, eins og svo oft áður. Væntanlega geta allir verið sammála um að ísbirnir geti verið jólalegir, svo lengi sem þeir eru fastir á skján- um með kókflösku – eða þá blóð- ugir og dauðir eftir spjót Harald- ar Merenda (hvað varð svo um hann, ég bara spyr?). bjorn@dv.is Íslendingar bíða spenntir eftir að Jón Gnarr efni kosningaloforð sitt og láti útvega ísbjörn fyrir Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Það væri sér- staklega við hæfi nú þegar jólin nálgast. En hvað er svona jólalegt við ísbirni? ísbirnir Ísbjarnarhúnn Ungviði hvítabjarna er óneitanlega sætt. Ísbirnir í tunglsljósinu Kókið er ómissandi, alltaf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.