Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Blaðsíða 62
62 Jólabíómyndir Föstudagur10. desember 2010 Jólagjafir ferðamannsins Ferðafélag Íslands Árgjald FÍ Gjafakort FÍ Árgjald FÍ er tilvalin jólagjöf sem gefur aðgang að skemmti legum félags skap, heilbrigðri útiveru og góðri hreyfingu. Félagsaðild í Ferðafélagi Íslands veitir aðgang að ferðum og skálum á góðum kjörum og afslætti í fjölda útivistar verslana. Við bjóðum einnig gjafakort FÍ fyrir sumar leyfisferðir, helgar ferðir, dagsferðir og skíðaferðir. Upplifðu náttúru Íslands! S k rá ð u þ ig i n n – d rí fð u þ ig ú t! Árbók FÍ 2010 Sextán handhæg rit um göngu leiðir og svæði, söguslóðir o.fl. Vatnaleiðin, Gönguleiðir í Hvalfirði, Norður við fjölvindahaf, Lauga vegurinn, Eyjar í Hraunhafi, Biskupaleiðin og margt, margt fleira… Fræðslurit FÍ Árbækur FÍ – Ritröðin öll Einstakur bókaflokkur um náttúru Íslands í 83 bindum. www.fi.is Die Hard (1988) IMDb: 8,3 Leikstjóri: John McTiernan Aðalhlutverk: Bruce Willis. Auðvitað ætti Die Hard ekki að flokkast undir neitt annað en jólamynd. Myndin gerist í jólaboði í Nakatomi-turn- inum í Los Angeles og er upphaf eins albesta fjórleiks kvikmyndasögunnar. Lögreglumaðurinn John McClane er mættur til að hitta konuna sína í jólaboði fyrirtækis hennar. Því miður fyrir hann en sem betur fer fyrir okkur neyðist McClane til að afgreiða slatta af hryðjuverkamönnum sem vilja gera vonda hluti. Alvöru karlmenn byrja ekki jólin án þess að hlaða í Die Hard. Love Actually (2003) IMDb: 7,8 Leikstjóri: Richard Curtis Aðalhlutverk: Hugh Grant, Martine McCutcheon, Liam Neeson, Colin Firth og Emma Thompson. Bretunum leiðist nú ekki að hóa í alla leikara landsins þegar gera á stórar myndir. Oft verða þessar myndir eins og áramótaskaup Bretlands því þarna er einfaldlega öllum hóað saman. Úr verður líka flott ræma sem allar konur elska. Ef strákarnir vilja slá í gegn eftir að hafa tekið Die Hard-kvöld með félögunum þá er um að gera leigja Love Actually og hjúfra sig með konunni undir teppi. Í desember gleyma konurnar Notebook og vilja bara sjá þetta jólaáramótaskaup Breta frá 2003. Kiss Kiss Bang Bang (2005) IMDb: 7,8 Leikstjóri: Shane Black Aðalhlutverk: Robert Downey Jr., Val Kilmer og Michelle Monaghan. Þriðja myndin í jólaþrenningu Shanes Black og núna leikstýrði hann sjálfur. Í þetta skiptið setur hann upp reifara með Robert Downey Jr. í aðalhlutverki og inn í hann smíðar hann afskaplega skemmtilega fléttu. Eins og í hinum myndum Blacks er jólaandinn svolítið falinn á bak við fléttuna og klækina en þessi mynd gefur hinum tveimur ekkert eftir. Lethal Weapon (1987) IMDb: 7,6 Leikstjóri: Richard Donner Aðalhlutverk: Mel Gibson og Danny Glover. Shane Black er handritshöfundur og leikstjóri sem er mikið jólabarn. Hann hefur skrifað þrjár „öðruvísi“ jólamyndir og þetta er ein af þeim. Upphaf hins magnaða fjórleiks um félaga Riggs og Murtaugh sem halda uppi lögum og reglum í borg englanna. Fyrsta myndin gerist um jólin og er algjörlega í anda Shanes Blacks sem hefur greinilega ekki átt of góðar stundir um jólin sjálfur ef miðað er við hvernig sumum persónum hans líður um hátíðarnar. Eins og allir kvikmyndaunnendur vita er þessi frábæra mynd alltaf pottþétt, bæði um jól og páska. Eyes Wide Shut (1999) IMDb: 7,2 Leikstjóri: Stanley Kubrick Aðalhlutverk: Tom Cruise og Nicole Kidman. Eitt af meistaraverkum Stanleys Kubricks. Fullkomlega skotin í alla staði og mynd sem heldur kynferðislegri spennu allan tímann þrátt fyrir að bjóða ekki upp á neitt kynlífsatriði. Hjónakornin, sem leikin eru af Cruise og Kidman, eru stödd á skrýtnum stað í hjónabandi sínu og ferð þeirra í eitt svakalegasta partí allra tíma gerir lítið til að hjálpa hjónabandinu. Það er kannski betra að taka þessa skömmu fyrir eða eftir jólin. Die Hard 2 (1990) IMDb: 7,0 Leikstjóri: Renny Harlin Aðalhlutverk: Bruce Willis. Eins og fyrsta myndin gerist önnur myndin um ævintýri Johns McClanes um jólin. Nú er hann staddur á flugvelli í Los Angeles á háannatíma. Myndin er svo jólaleg að hún byrjar og endar á jólalagi. Í þetta skiptið þarf McClane að hlaupa út um allan flugvöllinn til að meiða og drepa hryðjuverkjamenn sem vilja leysa alræmdan herforingja úr haldi. Þeir komast þó ekki langt: Jibbí kaj ei, moðerfokker! Gremlins (1984) IMDb: 7,0 Leikstjóri: Joe Dante Aðalhlutverk: Zach Galligan, Phoebe Cates og Hoyt Axton. Kannski ekki myndin til að sýna krökkunum rétt áður en þau fara að sofa á Þorláksmessu. Gremlins er fyrir löngu orðin klassík og var lengi vel ein af aðaljólamyndunum þar til framboðið varð of mikið. Gremlins er ein af þessum myndum sem hefur svolítið týnst á undanförnum árum sem er synd. Alls ekki mynd sem boðar komu jólanna en þó skemmtilega öðruvísi jólamynd sem allir ættu að kíkja á aftur. Batman Returns (1992) IMDb: 6,9 Leikstjóri: Tim Burton Aðalhlutverk: Michael Keaton, Danny DeVito og Michelle Pfeiffer. Önnur myndin um Leðurblökumanninn gerist um jólin en í þessari ræmu er hann að berjast við Mörgæsarmanninn og Kattarkonuna. Tim Burton leikstýrði fyrstu tveimur myndunum enda eru þær vel drungalegar en þó flottar á hans einstaka hátt. Opnunaratriðið í myndinni er afskaplega absúrd en þó eins jólalegt og Tim Burton getur boðið upp á. Það hefur aðeins verið gerð ein vond mynd um Leðurblökumanninn og þetta er ekki hún. The Long Kiss Goodnight (1996) IMDb: 6,6 Leikstjóri: Renny Harlin Aðalhluverk: Geena Davis og Samuel L. Jackson. Einu sinni var Geena Davis svakaskutla og lék í flottum bíómyndum. Þessi er ein af þeim en hún er einnig skrifuð af jólabarninu Shane Black. Davis leikur fyrrverandi launmorðingja sem glímir við minnisleysi en þegar hún fer smám saman að muna hver hún er fer skemmtileg atburðarás af stað. Ljómandi fín ræma sem fangar kannski ekki alveg jólaandann en gerist þó um jólin. The Ice Harvest (2005) IMDb: 6,2 Leikstjóri: Harold Ramis Aðalhlutverk: John Cusack, Billy Bob Thornton og Connie Nielsen. Ein af best földu jólamyndunum enda er hún ekki fyrir alla. Það gengur einfaldlega allt á afturfótunum hjá John Cusack í þessari mynd og er hann svo sannarlega ekki í neinum jólaanda. Cusack rífst við son sinn um trönuberjasósu yfir jólamatnum og finnur síðan látna konu við jólatré. Eftir það breytast jólin hjá honum í martröð sem þó er hægt að hlæja að. Ertu orðinn þreyttur á Santa Clause, National Lampoon’s Christmas Vacation, Home Alone, Miracle on 34th Street og öllum hinum dæmigerðu jólamyndunum? Viltu samt horfa á mynd sem gerist um jólin til að komast í hátíðargírinn? Þá þarftu að fara yfir þenna lista og horfa á... Hinar jólamyndirnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.