Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 66

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 66
66 VIÐTAL 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR A llir sem koma að starfi Wikileaks gæta fyllsta ör- yggis. Kristinn Hrafnsson notast við þrjá síma; sinn eigin og tvo aðra og annar þeirra er dulkóðaður. Önnur samskipti fara fram í gegnum samskiptaforrit sem eru dulkóðuð. Örfáir hafa vitn- eskju um hvað gögn samtakanna sem ekki hafa birst hafa að geyma og Krist- inn er einn þeirra. Hann segist búast við að leyniþjónustur njósni um sig. Margir hafa velt fyrir sér hvort Kristinn hafi tekið við stjórn Wikileaks nú þegar Julian Assange er í gæslu- varðhaldi. Kristinn segir svo ekki vera. „Það var búið að leggja fram ákveð- ið plan um það hverjir myndu taka við ritstjórn Wikileaks ef til þess kæmi að Julian yrði tekinn úr leik. Stjórn á samtökunum hefur færst í hendurn- ar á þröngum hópi fólks sem skiptir með sér verkum og býr jafnframt yfir ritstjórnarlegu valdi vefsíðunnar. Það kom í minn hlut að verða talsmað- ur samtakanna út á við á meðan Jul- ian var tekinn úr leik,“ segir Kristinn og aðspurður kveðst hann vera í þess- um þrönga hópi sem stjórnar nú Wiki- leaks. Náið samstarf við Julian Julian Assange gaf sig fram við lög- reglu í Bretlandi vegna ásakana um nauðgun í Svíþjóð. Kristinn segir að hann hafi verið í mjög nánu og góðu sambandi við Julian fyrir handtökuna. „Við tókum ákvarðanir í samein- ingu. Því hefur verið lýst sem svo að Julian hafi verið nánast einráður í ákvarðanatöku samtakanna en það er ekki rétt. Að sjálfsögðu þarf ákvarð- anavaldið að liggja á einhverjum stað en ákvarðanir eru teknar í nánu sam- starfi við þann kjarnahóp sem er í æðstu stöðu innan samtakanna,“ seg- ir Kristinn. Nú þegar Julian Assange hefur verið gerður óvirkur í starfi Wikileaks beinast öll spjót fjölmiðla að Kristni. Í fyrradag var hann tíu stórum viðtöl- um, auk þess sem hann svaraði ótal fyrirspurnum annarra miðla. Nafn hans og andlit birtast nú í öllum helstu fjölmiðlum heims og hann er orðinn annað andlit Wikileaks. Kristinn seg- ir að sú staða sem hann sé kominn í geti reynst honum dýrkeypt. Öflin sem Wikileaks eigi í stríði við séu af þeirri stærðargráðu. Finni Bandaríkjastjórn leiðir til að ákæra Julian Assange og fá hann framseldan til Bandaríkjanna segir Kristinn að starfsmenn Wiki- leaks séu allir í hættu. „Það segir sig sjálft að ef þeim tekst að finna leið- ir til að ákæra Julian að þá eru leiðir til að ákæra alla þá starfsmenn Wiki- leaks sem hafa komið fram opinber- lega. Í þeim hópi er ég að sjálfsögðu,“ segir Kristinn og bætir við: „Ég held að það sé full ástæða til að fara nokk- uð gætilega og ég á allt eins von á því að með einhverjum hætti verði reynt að draga úr trúverðugleika mínum eða leggja stein í götu mína með einhverj- um hætti. Það er hins vegar áhætta sem maður er tilbúinn að taka þegar maður er að berjast fyrir því sem mað- ur hefur trú á." Gerir ráð fyrir njósnum Mark Stephens, einn lögmanna Jul- ians Assange, hefur sagt frá því í fjöl- miðlum að leyniþjónustur fylgist með honum, samstarfsmönnum hans og Julian. Kristinn segist búast við því að það sé njósnað um hann sjálfan. „Ég hef ekki neinar sannanir fyrir því en ég hef hins vegar vísbendingar um að það sé verið að hlera síma og fylgjast með tölvupóstsendingum sem gerir að verkum að ég nota ekki þessi tæki fyrir viðkvæmar upplýsingar. Ég geri beinlínis ráð fyrir því að einhverj- ar leyniþjónustur séu að fylgjast með manni í þeirri stöðu sem ég er í nú,“ segir Kristinn og aðspurður hvort ein- hverjar öryggissráðstafanir hafi verið gerðar til að tryggja öryggi hans segir hann ekki svo vera. „Það eru engar sérstakar öryggis- ráðstafanir í gangi varðandi mína per- sónu, ekki nema það að ég reyni að halda dvalarstað mínum leyndum og það fari ekki mjög víða hvar ég held mig. Ég hef skipt mjög ört um dvalar- stað hér í London síðustu daga,“ seg- ir Kristinn og bætir við að starfsmenn Wikileaks fari að öllu með gát hvað varðar samskipti sín á milli. „Öll samskipti innan Wikileaks- hópsins fara fram með tækni sem er dulkóðuð og það er ómögulegt að komast í þau samskipti með hlerun- um.“ Gríðarmikill þrýstingur Með birtingu sendiráðsskjalanna hef- ur þrýstingur bandarískra stjórnvalda og annarra ríkisstjórna á Wikileaks margfaldast. Stjórnvöld víða standa ráðþrota gagnvart samtökunum en reyna allt til að stöðva leka skjalanna sem nú renna út til heimspressunnar á hverjum degi. Kristinn segir pressuna á starfsmönnum Wikileaks vera mikla. „Þetta er búið að vera mikil rússí- banareið og núna er þessi slagur far- inn að harðna allverulega. Strax í vor fundum við fyrir miklum þrýstingi þegar við birtum þyrluárásarmynd- bandið frá Bagdad. Þá fengum við yfir okkur gusu frá Bandaríkjamönn- um sem innihélt stóryrði og fordæm- ingu frá Pentagon. Þessi þrýstingur jókst með útgáfu Afganistanskjala og svo Íraksskjalanna í sumar. Nú hefur þessi þrýstingur náð nýjum hæðum og viðbrögðin vegna birtingar sendi- ráðsskjalanna taka út yfir allan þjófa- bálk. Í raun hefur þetta snúist upp í að vera augljós barátta um tjáningarfrels- ið og fjölmiðlafrelsi sem á undir högg að sækja núna.“ Er ekki í blaðamennsku til að afla sér vinsælda Kristinn segist orðinn sjóaður gagn- vart andúð í sinn garð eftir að hafa starfað í blaðamennsku á Íslandi í 20 ár. Hann segir þá reynslu nýtast vel núna. „Ég hef aldrei verið í blaðamennsku til að afla mér sérstakra vinsælda með- al valdhafa og maður hefur oft fengið að finna fyrir því, bæði með baknagi og beinum árásum á Íslandi. Ég er kominn með býsna harðan skráp eftir þá reynslu og það að fá síðan fúkyrð- in og fáránlegar yfirlýsingar frá æðstu stofnunum Bandaríkjanna og fleiri ríkisstjórnum er ekki neitt sem bítur í gegnum þann skráp,“ segir Kristinn. Opinberar upplýsingar sem áttu að fara leynt Fjölmiðlar fjalla nánast stöðugt um sendiráðslekann og þar koma fram ýmsar yfirlýsingar sem Kristinn svarar fullum hálsi. „Ég er í rauninni að gera það sama og ég hef alltaf verið að gera í mínu starfi; að opinbera upplýsingar um það sem átti leynt að fara en eiga augljóslega erindi við almenning. Það er einkennilegt að á sama tíma og við erum fjölmiðlasamtök í samstarfi við virtustu prentmiðla í vesturheimi að öll spjót hafa staðið á Wikileaks en þeir hafa ekki þorað enn að beina spjótum sínum að fjölmiðlunum sem við erum í samstarfi við. Þó var örlítið breyttur tónn í Joe Lieberman í Bandaríkjun- um í vikunni þegar hann var spurður um þátt New York Times. Aðspurður hvort hann teldi að blaðið hefði fram- ið eitthvað ólöglegt sagðist hann vilja skoða það. Og þá sá maður framan í grímulaust valdið sem er tilbúið að beina spjótum sínum að fjölmiðlum,“ segir Kristinn ákveðinn. Hræsni Bandaríkjastjórnar Bandaríkjastjórn stærir sig oft af frelsi fjölmiðla og vísar iðulega í fyrsta við- auka stjórnarskrár landsins sem kveð- ur á um frelsi fjölmiðla. Kristinn gefur lítið fyrir þær fullyrðingar. „Ég held að við séum að upp- lifa núna grófustu árás sem gerð hef- ur verið á tjáningarfrelsið af hálfu bandarískra stjórnvalda sem er í full- kominni mótsögn við útbólgna sjálfs- mynd Bandaríkjanna sem framvörð og verndara tjáningar- og fjölmiðla- frelsis í heiminum. Það er hreint út sagt grátbroslegt svo ekki sé meira sagt að á sama tíma og þeir standa í bar- áttu við að þagga niður í Wikileaks þá er því lýst yfir að sérstakur tjáningar- frelsisdagur UNESCO verði haldinn í Bandaríkjunum í maí á næsta ári. Á þessum viðburði á að ræða frelsi fjöl- miðla og rétt fólks til að lýsa skoðun- um sínum og koma fréttum af átaka- svæðum á framfæri með nýrri tækni í gegnum netið. Það sjá allir í gegn- um þessa hræsni sem er fullkomin og glórulaus.“ Umfangsmiklar árásir í netheimum Margvíslegar árásir hafa verið gerð- ar á vefsíðu Wikileaks undanfarna daga og segir Kristinn að líklegast sé að Bandaríkjastjórn standi að baki þeim árásum. Árásirnar hafa ekki bor- ið árangur og nú hefur verið brugðið á það ráð að reyna að loka á allar fjár- mögnunarleiðir Wikileaks. Bæði Visa og Mastercard hafa lokað á greiðslu- þjónustu sína við vefsíðu Wikileaks og gert þannig almenningi erfitt fyrir að styrkja starf samtakanna. „Það er alveg öruggt að riftun samn- inga þessara fyrirtækja við Wiki leaks eru vegna beinna skipana frá háttsett- um embættismönnum í stjórnsýslu Bandaríkjanna og samantekin ráð að mínu mati til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að leggja stein í götu Wikileaks. Það er óskaplega einkenni- legt að upplifa það að þessar árásir skuli eiga rætur að rekja til ríkis sem lítur svo á að það sé sjálft kyndilberi frjálsrar orðræðu og fjölmiðlafrelsis Kristinn Hrafnsson fréttamaður er í innsta hring uppljóstrunarvefjarins Wikileaks. Hann er opinber talsmaður samtakanna og er nú orðinn annað andlit Wiki leaks eftir að Julian Assange var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarð- hald í Bretlandi. Allir helstu fjölmiðlar heims reyna nú að ná viðtali við Kristin og þrýstingurinn á hann og samtökin er mik- ill. Jóhannes Kr. Kristjánsson ræddi við Kristin sem stendur í eldlínunni í London. ANNAÐ ANDLIT WIKILEAKS Ég á allt eins von á því að með einhverjum hætti verði reynt að draga úr trú- verðugleika mínum eða leggja stein í götu mína með einhverjum hætti. Kempurnar Kristinn Hrafnsson ásamt Daniel Ellsberg, sem lak Pentagon-skjölunum til fjölmiðla á sínum tíma, Gavin MacFadyen, forstöðumanni miðstöðvar rannsóknarblaða- mennsku í London, sem vinnur náið með Wikileaks og Julian Assange stofnanda og ritstjóra Wikileaks. MYND INGI R. Í eldlínunni Síðustu tíu daga hefur Kristinn verið í stanslausum viðtölum við fjölmiðla. Hér er hann að ræða við blaðamenn í Frontline blaðamannaklúbbnum í London þar sem hann tók þátt í pallborðsumræðum um Wikileaks. MYND REUTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.