Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Side 70
70 ættfræði umsjón: kjartan gunnar kjartansson kjartan@dv.is 10. desember 2010 föstudagur
Geir Waage
sóknarprestur í reykholti
Geir fæddist á Hrafnseyri við Arnar-
fjörð og ólst þar upp. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1971, stundaði nám í ensku
og sagnfræði við Háskóla Íslands
1971–72 og nám í guðfræði frá 1972 og
lauk þaðan embættisprófi í guðfræði
1978.
Geir var stundakennari við Voga-
skóla í Reykjavík 1971–72, við Þing-
hólsskóla í Kópavogi 1973–76, við
Námsflokka Reykjavíkur 1976–78 og
hefur verið sóknarprestur í Reykholts-
prestakalli frá 1978. Þá hefur hann
sinnt aukaþjónustu í Hvanneyrar-
prestakalli í forföllum sóknarpresta
þar og forfallakennslu við Héraðs-
skólann í Reykholti og við Kleppjárns-
reykjaskóla frá 1978.
Geir sat í stjórn Heimdallar, félags
ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík
1972–72, í stjórn Stúdentafélags Há-
skóla Íslands 1976–77, í stjórn Hins ís-
lenska Lúthersfélags 1981–83, í stjórn
Prestafélags Íslands 1981–87, var vara-
formaður þess 1983–84, ritari 1984–86
og formaður þess 1986–87 og 1992–98,
formaður Hallgrímsdeildar Presta-
félags Íslands 1982–85, formaður Ís-
leifsreglunnar um skeið, sat í skóla-
nefnd Kleppjárnsreykjaskóla 1983–98,
í stjórn Dvalarheimilis aldraðra í Borg-
arnesi frá 1989, í stjórn Héraðsskjala-
safns Borgarfjarðar 1991–98, var for-
maður skólanefndar Héraðsskólans
í Reykholti 1991–95, í stjórn Norræna
prestasambandsins, NPS, 1992–98 og
formaður þess 1994–96, kirkjuþings-
maður 1995–97 og 1998–2002, í hér-
aðsnefnd Borgarfjarðarprófastsdæmis
frá 1998, hefur sinnt ýmsum nefnd-
arstörfum á vegum þjóðkirkjunnar,
m.a. formaður löggjafarnefndar 1998–
2001. Hann hefur verið í stjórn og um
skeið varaformaður stjórnar Norræna
hússins frá 2001.
Geir var sæmdur Den kongelige
norske fortjenstorden 1990 og var
gerður heiðursfélagi í Prestafélagi Ís-
lands 2007.
Fjölskylda
Geir kvæntist 23.6. 1973, Dagnýju
Emilsdóttur, f. 17.9. 1952, mót-
tökustjóra Snorrastofu í Reykholti.
Hún er dóttir Carls Emil Ole Möll-
er Jónssonar, f. 11.3. 1912, d. 13.5.
1958, skrifstofu- og verslunarmanns
í Reykjavík, og k.h., Hrefnu Sigríðar
Ólafsdóttur, f. 15.12. 1917, húsfreyju.
Börn Geirs og Dagnýjar eru
Heiðrún, f. 20.2. 1972; Gunnhildur,
f. 31.7. 1976, maki Mikael Pärt, börn
þeirra eru Anna, Pétur og Tómas;
Bryndís, f. 23.7. 1981, maki Guðni
Páll Sæmundsson; Ásgeir, f. 25.7.
1984.
Kjörforeldrar Geirs: Garðar Bern-
harður Jónsson Waage, f. 29.7. 1929,
d. 23.5. 1994, bóndi á Hrafnseyri við
Arnarfjörð, og Jakobína Jónsdóttir
Waage, f. 28.4. 1922, d. 18.10. 1988,
húsfreyja.
Reykholtskórinn heldur tón-
leika, til heiðurs afmælisbarninu,
í Reykholtskirkju á afmælisdaginn
og hefjast þeir kl. 20.30. Að tónleik-
um loknum bjóða sóknarnefndir í
prestakallinu upp á veitingar í safn-
aðarsal kirkjunnar. Sóknarbörn, ætt-
ingjar, vinir og velunnarar sr. Geirs
eru hjartanlega velkomnir.
60 ára á föstudag
Gísli fæddist að Miðhúsum í Ós-
landshlíð í Skagafirði og ólst þar
upp hjá foreldrum sínum. Fjórtán
ára flutti hann með þeim og syst-
kinum sínum að Brimnesi í Ólafs-
firði en þar bjuggu faðir hans og
systir í tvíbýli.
Gísli stundaði sjómennsku og
alla almenna vinnu á sínum yngri
árum. Hann flutti með fjölskyldu
sína til Reykjavíkur 1953. Þar vann
hann bæði til sjós og lands, þó
lengst af í Fiskverkun Jóns Hall-
dórssonar, eða þar til hann flutti
til Grindavíkur 1962 þar sem hann
vann við Fiskverkun.
Gísli sat um árabil í stjórn
Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Fjölskylda
Gísli kvæntist Ragnheiði Berg-
mundsdóttur húsmóður, en hún
lést 2003. Ragnheiður fæddist
á Látrum í Aðalvík, dóttir Berg-
mundar Sigurðssonar frá Látrum
og Ágústu Stefánsdóttur sem var
ættuð úr Eyrarsveit á Snæfellsnesi.
Börn Gísla og Ragnheiðar: Est-
er, á þrjár dætur; Haraldur, á þrjú
börn; Ágústa Halldóra, gift Haf-
steini Sæmundssyni, eiga fjög-
ur börn; Margrét Rebekka, gift
Gunnari Vilbergssyni, eiga þrjá
syni; óskírð dóttir andvana fædd;
Sigríður Jóna gift Þórarni H. Guð-
mundssyni, eiga fjögur börn; Páll
en sambýliskona hans er Ásta Jó-
hannesdóttir og eiga þau tvær
dætur; Inga Fríða, gift Óttari Hjart-
arsyni, eiga þau tvö börn.
Afkomendur Gísla eru orðnir
sextíu og níu talsins, í fimm ætt-
liðum.
Systkini hans voru Ásta, nú lát-
in, húsfreyja og bóndi á Brimnesi í
Ólafsfirði; Haraldur, dó ungur; Ari,
nú látinn, fiskmatsmaður á Sauð-
árkróki.
Foreldrar Gísla voru Jón Páls-
son bóndi í Miðhúsum og síðar á
Brimnesi, og k.h., Sigríður Jóns-
dóttir úr Svarfaðardal.
Gísli tekur á móti gestum í sal
Víðihlíðar sunnudaginn 12.12.
milli kl.14.00 og 17.00. Hann af-
þakkar gjafir en söfnunarbaukur
til styrktar Hjálparstarfi Kirkjunnar
verður á staðnum.
Gísli Hólm Jónsson
fyrrv. sjómaður
60 ára á föstudag
Guðný fæddist á Kjalvararstöðum í
Reykholtsdal í Borgarfirði og ólst þar
upp. Hún lauk gagnfræðaprófi frá
Héraðsskólanum í Reykholti, lauk
hjúkrunarnámi 1972, lauk framhalds-
námi í svæfingarhjúkrun 1979 og
stundaði nám og lauk prófi í ljósmóð-
urfræði 1988. Hún hóf síðar djákna-
nám við guðfræðideild Háskóla Ís-
lands og lauk því námi árið 2007.
Guðný var hjúkrunarfræðingur á
ýmsum sjúkrahúsum í Reykjavík og
auk þess á Sjúkrahúsi Akraness. Hún
var hjúkrunarfræðingur við Sjúkra-
hús Vestmannaeyja 1980–88, ljós-
móðir þar 1988–2010 og tók þar á
móti 500 börnum. Hefur verið ljós-
móðir í Reykjavík frá 2010. Þá vígð-
ist hún til djákna í Vestmannaeyjum
2008 og starfaði við það í eitt ár. Guð-
ný er nú að hefja kennslu við Fram-
haldsskólann í Vestmannaeyjum frá
næstu áramótum.
Fjölskylda
Guðný giftist 19.4. 1990 Kristjáni
Gunnari Eggertssyni, f. 20.8. 1947,
starfsmanni Vestmannaeyjahafn-
ar. Hann er sonur Eggerts Ólafs-
sonar skipasmiðs og Helgu Ólafs-
dóttur húsmóður en þau eru bæði
látin.
Systkini Guðnýjar eru Snorri
Bjarnason, f. 1944, ökukennari, bú-
settur í Reykjavík; Halldór Bjarna-
son, f. 1945, smiður í Borgarnesi;
Ármann Bjarnason, f. 1947, bóndi
á Kjalvararstöðum; Ásdís Bjarna-
dóttir, f. 27.7. 1948, d. 2.4. 1950.
Foreldrar Guðnýjar voru Bjarni
Þ. Halldórsson, f. 16.11. 1905, d.
30.7. 1984, bóndi á Kjalvararstöð-
um, og Þórlaug Margrét Símon-
ardóttir, f. 6.3. 1909, d. 3.11. 1972,
húsfreyja.
Guðný dvelur á afmælisdaginn
með ættingjum og vinum.
Guðný Bjarnadóttir
ljósmóðir og djákni
Bergur P. Jónsson
fyrrv. deildarstjóri hjá flugmálastjórn
Bergur fæddist í Kaupmannahöfn
en ólst upp í Reykjavík, í Blátúni við
Kaplaskjólsveg. Hann lauk prófi frá
Verslunarskóla Íslands 1945, lauk
grunnnámi í flugumferðarstjórn
1948, stundaði framhaldsnám og
nám í radaraðflugsstjórn í Atlanta í
Bandaríkjunum 1950–51, sótti nám-
skeið á vegum Alþjóða flugmála-
stofnunarinnar, ICAO, í París 1980
og í Montreal 1982 í hönnun og
öryggisútreikningum aðflugskerfa
flugvalla og hefur auk þess sótt ýmis
námskeið og ráðstefnur um korta-
gerð og mælingar vegna þeirra.
Bergur stundað skrifstofustörf
hjá Olíufélaginu hf., Essó á árun-
um 1945–48, fyrst á aðalskrifstofu
félagsins í Hafnarstræti og síðar á
Keflavíkurflugvelli og annaðist þar
stöðvarstjórn vegna afgreiðslu elds-
neytis á flugvélar. Hann starfaði síð-
ast í aðalbirgðarstöð í Reykjavík.
Bergur hóf störf sem flugum-
ferðarstjóri hjá Flugmálastjórn
árið 1948, fyrst á Reykjavíkurflug-
velli 1948–50 en síðan á Keflavíkur-
flugvelli á árunum 1951–52. Hann
starfaði síðan ýmist í flugstjórnar-
miðstöðinni í Reykjavík eða við upp-
lýsingaþjónustu Flugmálastjórnar á
árunum 1953–63. Bergur var skip-
aður deildarstjóri upplýsingaþjón-
ustu Flugmálastjórnar er hún var
stofnuð 1963 og sinnti því starfi þar
til hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir 1994.
Fjölskylda
Fyrri kona Bergs var Elísabet Anna
María Pálsdóttir, f. 27.5. 1925, d.
19.10. 1974, skrifstofumaður. Hún
var dóttir Páls G. Þorbergssonar, f.
29.6. 1894, d. 17.5. 1979, verkstjóra
hjá LÍÚ, og Önnu Árnadóttur, f. 26.7.
1891, d. 29.2. 1996, húsmóður, dótt-
ur sér Árna Þórarinssonar, prests á
Stóra-Hrauni, hvers ævisögu Þór-
bergur Þórðarson skráði.
Börn Bergs og Elísabetar eru
Rakel Ólöf, f. 2.4. 1951, d. 16.4. 1952;
Páll Þór, f. 3.2. 1953, sjúkraliði í
Reykjavík; Rakel Ólöf, f. 21.11. 1956,
tækniteiknari og grafískur hönnuð-
ur og á hún tvö börn; Anna Gyða,
f. 27.4. 1965, leikskólakennari og
sálfræðingur í Reykjavík en maður
hennar er Eysteinn Sigurðsson og á
hún tvö börn.
Bergur kvæntist 24.4. 1980 seinni
konu sinni, Svanhvíti Sigurlinna-
dóttur, f. 6.8. 1934, fyrrv. skrifstofu-
manni hjá Menningarsjóði og síðar
hjá Listasafni Íslands og myndlist-
arkonu. Hún er dóttir Sigurlinna
Péturssonar, f. 12.12. 1899, d. 20.6.
1976, byggingameistara, verk-
smiðjueiganda og uppfinninga-
manns í Reykjavík, Hafnarfirði og
loks í Garðabæ, og Vilhelmínu Ól-
afsdóttur, f. 11.5. 1905, d. 18.3. 1983,
húsmóður.
Stjúpbörn Bergs: Vilhelmína
Roysdóttir, f. 4.2. 1954, húsmóðir í
Reykjavík og á hún fimm börn; Haf-
dís Sigrún Roysdóttir, f. 14.1. 1959,
kennari og bóndi að Svínafelli í Ör-
æfum en maður hennar er Jóhann
Þorsteinsson bóndi og eiga þau þrjú
börn; Sigurður Einarsson, f. 28.1.
1962, íþróttafræðingur og fram-
kvæmdastjóri í Hveragerði en kona
hans er Sigríður Björk Jónsdóttir og
á hann þrjú börn.
Systkini Bergs: Kolbrún, f. 12.9.
1923, d. 2.7. 1971, húsmóðir; Jarl,
f. 15.2. 1934, d. 4.11. 1999, löggiltur
endurskoðandi.
Foreldrar Bergs voru Jón Þorleifs-
son, f. 26.12. 1891, d. 14.6. 1961, list-
málari í Reykjavík og frammámað-
ur meðal myndlistarmanna, og k.h.,
Rakel Ó. Pétursdóttir, f. 9.11. 1897, d.
10.9. 1952, ljósmóðir og frumkvöð-
ull í ræktun sem m.a. gerði tilraunir
með hörrækt á Bessastöðum og lét
vinna dúk úr hörnum sem er altaris-
klæði í Bessastaðakirkju.
Jón og Rakel bjuggu um tíu ára
skeið í Kaupmannahöfn. Eftir að
þau komu heim byggðu þau sér
húsið Blátún við Kaplaskjólsveg í
Reykjavík og bjuggu þar síðan til
æviloka. Síðari eiginkona Jóns er
Úrs ula Pálsdóttir, f. 17.3. 1928.
Ætt
Jón var sonur Þorleifs Jónssonar,
alþm. að Hólum í Hornafirði, og Sig-
urborgar Sigurðardóttur.
Rakel var fædd í Aðalvík, dótt-
ir Péturs Einarssonar og Svanhvítar
Kristjánsdóttur.
85 ára á laugardag
90 ára á sunnudag