Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Side 72
Ingibjörg fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún gekk í Ísaksskóla,
Melaskólann og Hagaskólann, lauk
verslunarprófi 1969 og stúdents-
prófi frá Verzlunarskóla Íslands
1971.
Ingibjörg hóf sumarstörf hjá
Eimskip 1965 og starfaði þar síð-
an í farþegadeild til 1973. Hún hóf
þá störf hjá Flugleiðum og starfaði
þar, lengst af í hlutastarfi til 2002,
starfaði hjá Verslunarmannafé-
lagi Reykjavíkur frá 2002, samhliða
formennsku í LÍV og bar ábyrgð á
erlendum samskiptum auk sam-
skipta við önnur sambönd og félög
innan ASÍ.
Ingibjörg sat í stjórn Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur frá 1975,
var formaður Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna frá 1989,
fyrst og ein kvenna, sat lengi í sam-
bandsstjórn ASÍ og í miðstjórn ASÍ,
var varaforseti ASÍ 1992–2000 og
2003–2010, var varamaður í stjórn
Lífeyrissjóðs verslunarmanna
1977–95 og aðalmaður 1995–2009
og sat í skólanefnd Verzlunarskóla
Íslands frá 1979, lengst af sem
varaformaður.
Ingibjörg var kona sátta og
lausna og barðist ötullega fyrir rétt-
indum launafólks og jafnrétti.
Trúin átti stóran sess í lífi henn-
ar og var hún formaður sóknar-
nefndar Neskirkju er hún lést.
Ingibjörg var sæmd gullmerki
LÍV og gullmerki VR.
Fjölskylda
Kjörsynir Ingibjargar eru Bjarni
Jónsson, f. 10.11. 1982, og er unn-
usta hans Jenný N. Sigurðardótt-
ir, f. 15.6. 1984, en faðir Bjarna er
Jón Rafn Jóhannesson, f. 3.5. 1945;
Andrés Jón Esrason, f. 29.11. 1986
en faðir hans var Esra Seraja Pét-
ursson, f. 11.9. 1918, d. 1.12. 2000.
Móðir Bjarna og Andrésar Jóns var
Áslaug Jónsdóttir, f. 5.5. 1948, d.
5.4. 1996. Faðir Áslaugar er Jón Ei-
ríksson, f. 29.9. 1925, móðurbróð-
ir Ingibjargar og afi drengjanna.
Móðir Áslaugar og amma drengj-
anna er Anna Bjarnadóttir, f. 23.7.
1927, fyrri kona Jóns Eiríkssonar.
Síðari kona Jóns var Áslaug Kristín
Sigurðardóttir, f. 21.9. 1924, d. 15.9.
2009.
Fyrrv. sambýlismaður Ingi-
bjargar er Jón Austmar Sigurgeirs-
son, f. 9.10. 1949, kvæntur Kristínu
Harðardóttur, en dætur þeirra eru
Guðrún María og Fjóla Rún. Heim-
ili Ingibjargar var dætrum Jóns
ætíð opið.
Síðustu árin bjó Irina S. Ogurt-
sova, f. 23.7. 1980, í kjallaraíbúð
Ingibjargar á Starhaganum. Hún
varð strax hluti af fjölskyldunni og
reyndist Ingibjörgu hjálpleg og góð
vinkona.
Systir Ingibjargar var María Guð-
mundsdóttir, f. 9.3. 1943, d. 25.10.
1980, skrifstofumaður í Reykjavík
og síðar húsmóðir í Bandaríkjun-
um. Eiginmaður hennar var Timot-
hy David Creighton, nú kvæntur
Ruth Barnett Creighton.
Foreldrar Ingibjargar voru Guð-
mundur Jónsson, f. 2.11. 1908, d.
13.3. 1973, fulltrúi hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, og k.h., Helga
Sigríður Eiríksdóttir, f. 22.6. 1915,
d. 15.8. 2003, húsmóðir og starfs-
maður við Landsbókasafnið.
Ætt
Guðmundur var bróðir Jóns, fram-
kvæmdastjóra H. Benediktsson
& Co., föður Ásbjörns röntgen-
læknis. Annar bróðir Guðmund-
ar er Elías, faðir Guðmundar Jóns
röntgenlæknis. Systir Guðmundar
var Guðrún, móðir Ásbjörns ráð-
gjafa og Sigrúnar Elísabetar, móð-
ur knattspyrnusystkinanna Guð-
rúnar Sóleyjar Gunnarsdóttur og
Guðmundar Gunnarssonar. Guð-
mundur fulltrúi var sonur Jóns,
verslunarmanns í Reykjavík, bróð-
ur Guðmundar, forseta borgar-
stjórnar. Jón var sonur Ásbjörns,
tómthúsmanns á Eyrarbakka Ás-
björnssonar, og Guðrúnar Sig-
urðardóttur, b. í Efra-Seli í Flóa
Björnssonar, b. í Garðhúsum Sig-
urðssonar.
Móðir Guðmundar var Þór-
unn Gunnarsdóttir, í Gunnarshúsi
á Eyrarbakka, bróður Gísla, b. á
Högnastöðum, langafa Sigurðar
E., fyrrv. forstjóra Húsnæðisstofn-
unar, og Þorgríms, fyrrv. formanns
Lögreglufélags Reykjavíkur, Guð-
mundssona. Gunnar var sonur
Jóns, b. í Efra-Langholti Magnús-
sonar, b. þar, bróður Helga, langafa
Magnúsar Guðmundssonar ráð-
herra. Helgi var einnig langafi Sig-
urbjargar, móður Björgvins, fram-
kvæmdastjóra VSÍ, og dr. Jakobs
Sigurðssonar. Þá var Helgi afi Val-
gerðar, ömmu Guðmundar, for-
stjóra í Víði. Annar bróðir Magn-
úsar í Efra-Langholti var Þorsteinn,
langafi Ingigerðar, langömmu
Karls Steinars, fyrrv. varaformanns
Verkamannasambandsins. Þriðji
bróðir Magnúsar var Jón, langafi
Margrétar, ömmu Halls og Símonar
Símonarsona, margfaldra Íslands-
og Norðurlandameistara í bridge,
og langömmu Friðriks Ólafsson-
ar stórmeistara. Systir Magnúsar
var Ingunn, ættmóðir Reykjaætt-
ar, langamma Magnúsar, prófasts
og alþm., föður Péturs ráðherra.
Önnur systir Magnúsar var Mar-
grét, langamma Stefáns í Núpskoti,
afa Brynjólfs Bjarnasonar, heim-
spekings og ráðherra. Magnús var
sonur Eiríks, ættföður Bolholtsætt-
ar Jónssonar. Móðir Gunnars var
Kristín Gísladóttir. Móðir Kristín-
ar var Ástríður, systir Einars, lang-
afa Önnu, móður Ingólfs Jónssonar
ráðherra. Ástríður var dóttir Gunn-
ars, hreppstjóra í Hvammi í Landi
Einarssonar, og Kristínar Jónsdótt-
ur yngra, b. í Vindási Bjarnason-
ar, ættföður Víkingslækjarættar
Halldórssonar, forföður forsætis-
ráðherranna Davíðs Oddssonar
og Jóhönnu Sigurðardóttur. Móð-
ir Þórunnar var Ingibjörg, systir
Margrétar, móður Ólafs Gíslasonar
stórkaupmanns, föður Gísla lækn-
is. Ingibjörg var dóttir Guðmundar,
á Eyrarbakka, bróður Aldísar, lang-
ömmu Manfreðs Vilhjálmssonar
arkitekts. Önnur systir Guðmundar
var Ingigerður, langamma Þorgerð-
ar Ingólfsdóttur söngstjóra. Guð-
mundur var sonur Þorsteins, b. á
Vorsabæ Jörundssonar.
Helga Sigríður var dóttir Eiríks,
járnsmiðs í Reykjavík Jónssonar, b.
á Keldunúpi Pálssonar, b. í Hraun-
koti, bróður Páls, langafa Guðjóns
Samúelssonar, húsameistara ríkis-
ins. Móðir Jóns var Ingibjörg Þor-
láksdóttir. Móðir Eiríks var Helga
Eiríksdóttir.
Móðir Helgu Sigríðar var María,
systir Jóns, föður efnaverkfræðing-
anna Aðalsteins og Harðar. Syst-
ir Maríu var Jóhanna, amma Guð-
laugs Björgvinssonar, forstjóra MS.
María var dóttir Bjarna, b. á Geir-
landi Jónssonar, og Sigríðar, systur
Þorvarðar, prófasts og skólastjóra
í Vík, afa Sigurgeirs, fyrrv. ráðu-
neytisstjóra,og Ólafs yfirlæknis,
Jónssona. Hálfbóðir Sigríðar var
Hannes, í Forsæludal, afi Hann-
esar, afa Hólmfríðar Karlsdóttur,
fyrrv. alheimsfegurðardrottningar.
Sigríður var dóttir Þorvarðar, pr. á
Prestsbakka, bróður Friðriks, lang-
afa Ólafs, afa Ólafs Ragnars Gríms-
sonar forseta. Þorvarður var sonur
Jóns, pr. á Breiðabólstað Þorvarðs-
sonar. Móðir Sigríðar var Valgerð-
ur, systir Hákonar, kaupmanns
í Bíldudal, föður Ingibjargar H.
Bjarnason, fyrstu konunnar sem
kjörin var á Alþingi.
Útför Ingibjargar fór fram frá
Neskirkju, þann 3.12. sl.
Ingibjörg Rannveig
Guðmundsdóttir
FORMAÐUR LANDSSAMBANDS VERSLUNARMANNA
Örn Arnarson
SKÁLD
f. 12.12. 1884, d. 25.7. 1942
Örn Arnarson er skáldanafn
Magnúsar Stefánssonar sem
fæddist í Kverkártungu á Langa-
nesströnd, sonur Stefáns Árna-
sonar, bónda þar, og Ingveldar
Sigurðardóttur, frá Svínafelli í
Hjaltastaðaþinghá.
Örn var alinn upp í fátækt og
stundaði lengi almenn verka-
mannastörf sem til féllu víða um
land, s.s. sjómennsku og vega-
vinnu. Hann lauk samt gagn-
fræðaprófi frá Flensborg í Hafn-
arfirði og síðar kennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands. Örn var
síðan skrifstofumaður og kenn-
ari síðari starfsár sín og var þá bú-
settur í Hafnarfirði.
Örn gaf út kvæðasafnið Illgresi
1924 sem varð afar vinsælt. Hann
var ekki nýrómantíkus eins og
menntaðir samtímamenn hans.
Í bókmenntasögu Kristins E.
Andrés sonar er honum skipað á
bekk með skáldum sem ortu und-
ir eldri áhrifum, s.s. Jakobi Thor-
arensen og Guðmundi frá Sandi.
Hann var málsvari íslenskrar al-
þýðu og orti um brauðstrit henn-
ar sem hann þekkti af eigin raun.
Þess vegna er grunnt á þjóðfélags-
ádeilu og beiskju í kvæðum hans
þó hann sé gamansamur og glett-
inn á yfirborðinu.
Örn orti í mjög hefðbundn-
um stíl og verður seint talinn til
boðbera nýjunga í ljóðlist. En
hann bjó yfir mikill bragsnilld
og er feikilega kjarnyrtur. Þess-
ir hæfileikar hans skipa honum
á bekk með helstu skáldum síð-
ustu aldar. Þekktustu kvæðin
hans eru sjómannskvæðin Stjáni
blái og Hrafnistumenn, Rímur af
Oddi sterka, ljóðið um lítinn fugl
á laufgum teigi, sem oft er sung-
ið við lag Sigfúsar Halldórsson-
ar, og hið gullfallega kvæði Þá var
ég ungur sem hann orti til móður
sinnar skömmu fyrir andlát sitt.
Örn var jarðsettur í Hafnarfjarð-
arkirkjugarði.
Gunnar
Bjarnason
RÁÐUNAUTUR
f. 13.12. 1915, d. 15.9. 1998
Gunnar fæddist á Húsavík, son-
ur Bjarna Benediktssonar, kaup-
manns og útgerðarmanns, og Þór-
dísar Ásgeirsdóttur, hótelstjóra og
bónda.
Gunnar lauk búfræðiprófi frá
Hvanneyri, B.Sc.-prófi frá Den
kongelige Veterinær og Landbo-
højskole og námi í alifugla- og
svínarækt við Búnaðarháskólann
í Kaupmannhöfn. Hann var ráðu-
nautur Búnaðarfélags Íslands í
hrossarækt og hestaverslun 1940–
61, í alifugla- og svínarækt 1963–78
og í hestaútflutningi hjá landbún-
aðarráðuneyti og Búnaðarfélagi
Íslands 1965–87, var forstöðumað-
ur Fóðureftirlits ríkisins 1973–
80, kennari við Bændaskólann á
Hvanneyri og skólastjóri Bænda-
skólans á Hólum 1961–62.
Gunnar var eldhugi sem rakst
illa á meðal spilltra og staðnaðra
möppudýra íslensks landbúnaðar.
Hann var hrakinn úr skólastjóra-
stöðunni á Hólum enda var fram-
lag hans til íslensks landbúnaðar
á við mörg landbúnaðarráðuneyti.
Hann átti drjúgan þátt í að koma á
nútíma alifugla- og svínarækt hér
á landi, lét hanna frá eigin hyggju-
viti járnristaflóra sem ollu byltingu
í fjósagerð víða erlendis og var einn
veigamesti frumkvöðull að út-
flutningi íslenska hestsins.
Gunnar var fluggreindur, kapp-
samur og geislandi af lífsgleði,
hlýr persónuleiki og með allra
skemmtilegustu mönnum. Hann
var náfrændi Jónasar Kristjáns-
sonar, fyrrv. ritstjóra DV, ræddi oft
lengi við þennan frænda sinn á rit-
stjóraskrifstofu hans og hafði án
efa mikil áhrif á gagnrýnin leiðara-
skrif Jónasar um íslenskan land-
búnað.
Bók Gunnars, Líkaböng hringir,
útg. 1982, er ádeilurit á landbúnað-
arkerfið en ævisaga hans, Kóngur
um stund, kom út 1995.
Fædd 19.8. 1949 - Dáin 24.11. 2010
72 MINNING UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON kjartan@dv.is 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR
ANDLÁTMERKIR ÍSLENDINGAR