Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 76
Magnús Leifsson, grafískur hönnuður og handritshöfundur, vinnur þessa dagana að gerð
annarrar þáttaraðar af Steindanum okkar sem sýnd verður á Stöð 2 eftir áramót. Hann átti eitt sinn
andsetinn páfagauk og getur horft aftur og aftur á Ferris Bueller ś Day Off. Magnús hefur lítinn áhuga
á því að fara á trúnó með íslenskum ráðamönnum.
Nafn og aldur?
„Magnús Leifsson, 27 ára.“
Atvinna?
„Grafískur hönnuður og handritshöfundur
Steindans okkar.“
Hjúskaparstaða?
„Í sambandi með Hildi Sigrúnu Valsdóttur, fata- og
búningahönnuði.“
Fjöldi barna?
„Ekki neitt.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Ég átti andsetna fuglinn Óliver fyrir mörgum
árum.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Forgotten Lores og Gnúsi Yones á laugardaginn.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Nei.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
„Peysa sem Hildur, kærastan mín, gerði og gaf mér
í jólagjöf 2008.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl-
um?
„Já.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Semi.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að
hafa haldið upp á?
„Skammast mín ekki beint fyrir neitt en set samt
spurningarmerki við eitthvað furðulegt „jungle“
sem ég datt í fyrir mörgum árum.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Nákvæmlega núna er það Runaway af nýjustu
plötu Kanye West.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Fara á NBA-leik í mars.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur?
„Ferris Bueller´s Day Off, því mér finnst allt við
hana vera sniðugt og skemmtilegt.“
Afrek vikunnar?
„Keypti mitt fyrsta jólatré og síðan náðum við í
vinnunni að taka heilan helling af góðu efni fyrir
seríu tvö af Steindanum okkar.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Eftir nokkrar tilraunir þurfti ég að bíta í það súra
epli að hljóðfæri væru ekki mín deild.“
Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið?
„Já.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Fun and games.“
Hvaða íslenska ráðamann myndir þú vilja
hella fullan og fara á trúnó með?
„Pant ekki.“
Hvaða fræga einstakling myndir þú helst
vilja hitta og af hverju?
„Væri til í eitthvað allsherjar sprell með Steve Nash
því hann virkar endalaust góður á því.“
Hefur þú ort ljóð?
„Nokkur „borderline“ ljóð fyrir Steindann okkar.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ice-a mann og annan í vinnunni.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest?
„Engum sem ég veit um. Lenti oft í því samt eitt
sumar að fullir Bretar kölluðu á eftir mér að ég
væri líkur Joe Cole.“
Ertu með einhverja leynda hæfileika?
„Man öll símanúmer.“
Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Nei.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Prikið.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú
ferð að sofa?
„Tek síðasta internet-hringinn minn.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Að læra af mistökunum og halda áfram.“
Líkt við Joe Cole
af fullum Bretum
M
YN
D
IR SIG
TRYG
G
U
R A
RI
76 HIN HLIÐIN 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR