Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Side 82

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Side 82
82 TÆKNI UMSJÓN: PÁLL SVANSSON palli@dv.is 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR Barbie-dúkka á gátlista FBI Barbie Video Girl, sérstök útgáfa af hinum frægu Barbie-dúkkum, kom í verslanir vestanhafs í júlí síðastliðnum en þessi útgáfa er búin innbyggðri myndavél sem er falin í hálsmeni dúkkunnar. Á dögunum kom í ljós að bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur sent sérstaka viðvörun (Cyber Crime Alert) til útibúa sinna víðsvegar um Bandaríkin en skjalinu var síðan lekið til fjölmiðla í framhaldinu. Áhyggjur alríkislögreglunnar eru taldar vera vegna þeirrar hættu að óprúttnir aðilar, þar á meðal barnaníðingar, geti nýtt sér dúkkuna til að nálgast myndskeið af barninu og umhverfi þess en hægt er að flytja myndskeiðin frá dúkkunni með USB-kapli yfir á tölvu eða síma. Nokkrar stórar leikfangaverslanir hafa þegar hætt sölu á þessari gerð Barbie og á Facebook hefur verið stofnuð sérstök síða sem hvetur fólk til að sniðganga hana og þá kannski sérstaklega núna þegar jólagjafakaupin færast í aukana. ÞÚ FÆRÐ ALLA HÖRÐU JÓLAPAKKANA Á BETRA VERÐI Í TÖLVULISTANUM FRÁBÆR JÓLATILBOÐ NóatúNi 17 Sími 414 1700 GLERÁRGÖtU 30 Sími 414 1730 miðvaNGi 2-4 Sími 414 1735 aUStURvEGi 34 Sími 414 1745 HafNaRGÖtU 90 Sími 414 1740 REykjavíkURvEGi 66 Sími 414 1750 Reykjavík • akuReyRi • egilsstaðiR • keflavík • selfoss • HafnaRfjöRðuR United HD MMP 9530 1.5TB Margmiðlunarspilari með innbyggðum 1.5TB hörðum disk. HDMI, Composite og Optical tengi. USB tengi fyrir minnislykla og inn byggður SD/MMC kortalesari. Fullkomin fjarstýring. SJÓNVARPSFLAKKARI 1.5TB MYNDAVÉL 19.990 14.990 Panasonic DMC F4 Með 12,1 milljón punkta uppl., LUMIX Vario linsu, Digital hristivörn, 4x Optical og 4x Digital Zoom, 5.0 - 20.0mm linsu, 2.7" LCD skjá, HD hreyfimyndatöku, 50MB minni, kortarauf ofl. Epson SX420W Prentari og skanni með LCD skjá og þráðlausu netkorti. Prentar A4 í 5760 x 1440p upplausn og 35 bls. á mín. Skannar í 1200 x 2400. Kortalesari. USB. Windows og Mac. FJÖLNOTATÆKI HEYRNARTÓL Philips SHO9560 The Stretch O´Neill heyrnartól. Nánast óbrjótanleg. 5 stjörnu þægindi. Með Dynamic 40mm hátölurum, djúpum bassa, Neodymium, 12Hz - 24kHz, 32 Ohm, 105dB næmni, 24k gulltengi og Cable stress relief tengi. Vafinn slitsterkur 1.2m OFC kapall. 19.990 27.990 Piparkakan og Nexus S Google kynnti í vikunni nýja útgáfu af hinu vinsæla Android-stýrikerfi sínu fyrir snjallsíma og snertitölv- ur. Piparkaka (Gingerbread), eða Android 2.3, kallast uppfærslan en í henni má finna veigamiklar breyt- ingar á viðmóti, meðal annars end- urbætt lyklaborð. Android 2.3 nýtir einnig örgjörva betur en fyrri útgáfur kerfisins og öll svörun ætti nú að vera hraðari og keyrsla á leikjum léttari. Notandaviðmót Nýja útgáfan hefur nýtt þema og lykla- borð. Stafir lyklaborðins eru ekki eins þétt saman og áður sem gerir not- andanum auðveldara fyrir að temja sér hraðari og nákvæmari innslátt auk þess sem nú er hægt að nýta fjöl- snertiviðmótið til fulls á þann hátt að halda niðri völdum hnöppum sam- tímis til að fá fram sérstakar breyt- ingar (modifiers). Valinn texta er nú hægt að draga og sleppa líkt og fyrir- finnst í ákveðnum útgáfum Motorola- og Samsung-síma/snertitölva. Aðrar nýjungar Notendur geta nú með auðveldum hætti fengið yfirsýn á þau forrit sem eru í gangi á hverjum tíma, hversu mikið örgjörvaafl þau nota eða slökkt á þeim, allt á einum stað. Meðal annarra nýjunga má nefna stuðning við SIP-staðalinn sem gerir notendum kerfisins kleift að hringja í IP-síma á netinu í gegnum Wi-Fi og betri stuðning við ýmis tæki sem hafa fleiri en eina myndavél. Android 2.3 styður auk þess fleiri skráarsnið fyr- ir mynd og hljóð, til að mynda hinn nýja WebM-staðal. Nexus S Samhliða Android 2.3 kynnti Goog- le áform sín varðandi næstu kyn- slóð Nexus snjallsímans en fyrirtæk- ið hefur þróað símann í samstarfi við Samsung. Nexus S mun síminn kall- ast, margir segja með réttu því sím- inn er eins og samruni Nexus One og hins vinsæla Samsung Galaxy S. Sala á Nexus One-símanum gekk ekki sem skyldi og á endanum var síminn tekinn af markaði. Með Nexus S vonast Google til að ná meiri vinsældum á snjallsímamarkaðnum en síminn er meðal annars búinn 4 tommu Super AMOLED snertiskjá, 1Ghz Hummingbird-örgjörva, 16GB geymslurými, 720p myndskeiðs- upptöku, 5 megapixla myndavél, sér myndavél fyrir spjall, 3G, Wi-Fi, Blá- tönn og taltíma í allt að 6,7 klukku- tíma. Áætlað er að Nexus S kosti ólæst- ur í kringum 530 Bandaríkjadali eða um 61 þúsund krónur íslenskar. Þrátt fyrir að Google-síminn, eða Nexus One, hafi á endanum verið tekinn af mark- aði vegna dræmrar sölu hefur fyrirtækið engan veginn hætt framleiðslu og þróun snjallsíma. Android 2.3 Stafir lyklaborðins eru ekki eins þétt saman og áður sem gerir notandanum auðveldara fyrir að temja sér hraðari og nákvæmari innslátt. Nexus S Áætlað er að Nexus S kosti ólæstur í kringum 530 Bandaríkjadali eða um 61 þúsund krónur íslenskar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.