Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2011, Side 6
6 | Fréttir 3. janúar 2011 Mánudagur
Félag N1 tók 150
milljónir í arð
n Aðilar tengdir N1 eignuðust Kynnisferðir árið 2009 n Hlutafé
hluthafanna fært niður - stærsti hluthafinn eignast félagið einn
n Tók allt hlutafé aftur út úr félaginu í formi 150 milljóna arðs
Kynnisferðir ehf., félag sem hefur
síðustu ár verið í eigu olíufélags-
ins N1 að mestu leyti, greiddi út
150 milljóna króna arð til hluthafa
síns í fyrra. Hagnaður félagsins var
sagður vera rúmar 233 milljón-
ir króna á árinu. Fyrirtækið starfar
á sviði ferðaþjónustu og á og rek-
ur langferðabíla sem það leigir út
og selur skoðunarferðir til ferða-
manna. Á sama tíma og arðurinn
var greiddur út var allt hlutafé eina
hluthafa Kynnisferða ehf., Aust-
ur-Vestur ehf., skrúfað niður í 0 og
nýr eigandi eignaðist félagið. Í árs-
reikningnum er þetta orðað sem
svo að hlutafé félagsins hafi verið
jafnað á móti ójöfnuðu tapi. Nýtt
hlutafé að upphæð 150 milljónir
króna var lagt inn í félagið.
Nýr eigandi Kynnisferða, Hneta
ehf., er að öllu leyti í eigu eignar-
haldsfélagsins Ísdekks sem var
stofnað af olíufélaginu N1 árið
2007. Skráður eigandi Ísdekks
heitir Guðmundur Ásgeirs-
son en félagið var stofnað af
N1 árið 2007. Allir núverandi
eða fyrrverandi stjórnarmenn
Hnetu og Ísdekks tengjast N1
með einum eða öðrum hætti
en þrír þeirra Jón Gunnsteinn
Hjálmarsson, Guðjón Auð-
unsson og Elías Bjarni Guð-
mundsson hafa verið starfsmenn
félagsins og Benedikt Ein-
arsson er sonur stærsta hluthafa
N1, Einars Sveinssonar.
N1 eignast félagið
Kynnisferðir hafa því farið frá því
að vera í eigu nokkurra aðila, fjár-
festingafélags í eigu móðurfélags
N1, BNT, að 40 prósent leyti, Guð-
mundar Arnaldssonar að 30 pró-
sent, Gísla Friðjónssonar að 17
prósent, sem og annarra hluthafa
yfir í að vera alfarið í eigu og lúta
stjórn N1. Forstjóri N1 er Hermann
Guðmundsson.
N1 er eitt skuldugasta fyrir-
tæki landsins en talið er að skuld-
bindingar félagsins gagnvart
lánardrottnum nemi allt að 70
milljörðum króna. Félagið hefur
ekki skilað ársreikningi síðan árið
2007 og hefur átt í viðræðum við
stærsta lánardrottinn sinn Íslands-
banka varðandi framtíð félagsins.
Félagið nánast gjaldþrota
Arðgreiðslan út úr Kynnisferðum
og eignarhaldið á félaginu vekur
mikla athygli í ljósi þess að í árs-
reikningi félagsins fyrir árið 2008
gerði endurskoðandi þess, Gunn-
ar Þór Ásgeirsson, fyrirvara við árs-
reikninginn í ljós stöðu félagsins,
nærri 240 milljóna króna taps og
neikvæðrar eiginfjárstöðu. Í árs-
reikningnum segir um þessa stöðu:
„Til þess að félagið verði rekstrar-
hæft á næstu 12 mánuðum þá þarf
félagið að fara í fjárhagslega endur-
byggingu...“
Félagið rambaði því
á barmi gjaldþrots
2008, hlutafé hlut-
hafans var skrúfað
niður 2009, félag-
ið skipti um eig-
anda, þessi eig-
andi lagði félaginu
til 150 milljónir í
formi nýs hluta-
fjár og svo tók þessi
sami hluthafi sömu
upphæð út úr félag-
inu í formi arðs við
lok rekstrarársins. Í
ársreikningi Kynnis-
ferða fyrir árið 2009
orðar stjórn félags-
ins tillöguna um
arðgreiðsluna
á eftirfarandi
hátt: „Stjórn-
in leggur til
að greiddur
verði 100 arð-
ur af hluta-
fé að fjár-
hæð 150.
millj. kr.“
Á sama
tíma fóru
aðilar tengdir N1 frá því að vera
kjölfestufjárfestar yfir í að eiga fé-
lagið að fullu.
Í ársreikningi Hnetu, eiganda
Kynnisferða, kemur fram að 150
milljónirnar sem settar voru inn í
Kynnisferðir sem nýtt hlutafé hafi
verið lán frá tengdu félagi. Ekki er
vitað hvaða félag um ræðir. Hluta-
fjáraukning Kynnisferða var því
fjármögnuð með láni frá tengd-
um aðila og svo greiða Kynnis-
ferðir hlutafjáraukninguna aftur til
Hnetu með arðgreiðslu.
Skuld færð sem tekjur
Í ársreikningi Kynnisferða fyrir
árið 2009 er hagnaður félagsins
á árinu, sem arðgreiðslan byggir
á, ekki skilgreindur nánar. Í sam-
anburði við árið á undan, þar
sem tap félagsins var sagt nærri
40 milljónir, gekk starfsemin vel.
Forsendur voru fyrir hendi til að
greiða út arð þar sem félagið skil-
aði hagnaði og eiginfjárstaðan var
jákvæð um nærri 340 milljónir
króna.
Svo virðist hins vegar sem
hagnaður Kynnisferða, og þar
með forsendan fyrir arðgreiðsl-
unni á hlutafénu, hafi verið til-
kominn vegna gjaldfærslu á láni
sem það á útistandandi hjá fyrr-
verandi hluthafa félagsins, Aust-
ur-Vestur. Í dag er það félag í eigu
Kynnisferða - fór frá því að vera
móðurfélag þess yfir í að vera
dótturfélag - og er sami stjórnar-
formaður í því félagi, Jón Gunn-
steinn Hjálmarsson, og er stjórn-
arformaður Kynnisferða, Hnetu
og Ísdekks.
Hagnaður Austur-Vestur er
sagður hafa verið 222 milljónir
árið 2009 og er sá hagnaður að öllu
leyti tilkominn vegna „tekjufærð-
ar skuldar við Kynnisferðir“. Í árs-
reikningi Austur-Vestur fyrir árið
2008 kemur hins vegar fram að fé-
lagið hafi skuldað dótturfélagi sínu
Kynnisferðum 222 milljónir króna.
Í ársreikningnum er þetta orð-
að svona: „Að ákvörðun stjórnar
Kynnisferða ehf. var krafa félagsins
á hendur Austur-Vestur ehf. gjald-
færð í árslok 2009. Bókfærð skuld
Austur-Vestur ehf. í árslok 2008 er
því tekjufærð á árinu 2009.“ Aust-
ur-Vestur virðist því hafa skuldað
Kynnisferðum 222 milljónir króna
2008 en ári síðar virðist þessu vera
öfugt farið af einhverjum ástæð-
um.
Ekkert í ársreikningi Austurs-
Vestur eða Kynnisferða bendir
hins vegar til að annað hvort fé-
lagið hafi greitt eða tekið við pen-
ingum vegna þessarar skuldar en
jafnframt virðist sem bæði félög-
in hafi skilað hagnaði á rekstr-
arárinu vegna greiðslu hennar.
Í tilfelli Kynnisferða var skuldin
við Austur-Vestur færð til bókar
sem hagnaður. Kynnisferðir gátu
svo greitt hluthafa sínum aft-
ur hlutaféð sem hann hafði lagt
inn í félagið vegna þessa og staða
beggja félaganna virðist betri fyr-
ir vikið.
„Til þess að félagið
verði rekstrarhæft
á næstu 12 mánuðum þá
þarf félagið að fara í fjár-
hagslega endurbyggingu.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Skin og skúrir Félag í eigu olíufélagsins N1 fór frá því að ramba
á barmi gjaldþrots árið 2008 yfir í að greiða hluthafa sínum 150
milljóna króna arð árið 2009. Hagnaður félagsins virðist hafa
verið tilkominn vegna skuldaafskrifta. Hermann Guðmundsson
er forstjóri N1 og Einar Sveinsson stærsti hluthafinn.
Reykjavíkurborg hækkar:
Dýrara í sund
og strætó
Ný gjaldskrá Strætó bs. tekur gildi
í dag. Fargjöld hækka á bilinu 5 til
25 prósent vegna verðlagsbreytinga
síðustu ára og minnkunar á framlög-
um sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu, að því er segir í tilkynningu
frá Strætó.
Stakt fargjald í strætó kostar nú
350 krónur en kostaði áður 280
krónur. Afsláttur eldri borgara mið-
ast við 70 ár en ekki við 67 ár eins og
áður. Börn og ungmenni fá nú ein-
ungis afsláttarkjör með kaupum á
sérstökum 20 miða kortum þar sem
börn 6–12 ára greiða 40 krónur fyrir
ferðina og ungmenni 12–18 ára 105
krónur. Ætli börn og ungmenni hins
vegar að greiða fyrir eina ferð með
peningum kostar það 350 krónur.
Þá breytist
einnig gjald-
skrá sundlauga
Íþrótta- og tóm-
stundaráðs í
Reykjavík. Stakt
gjald fyrir full-
orðna hækkar úr
360 krónum í 450
krónur en stakt
gjald fyrir börn lækkar í 100 krónur.
Gjaldskylda fellur niður við 70
ára aldur og miðast við afmælisdag.
Rafræn kort sem hafa þegar verið
gefin út fyrir 67 ára og eldri á árinu
2010 gilda áfram.
Þá hefur reglum varðandi ald-
urstakmörk án fylgdarmanns í sund
verið breytt og mega börn sem fædd
eru árið 2001 og fyrr fara í sund án
fylgdarmanns.
Leituðu að
týndum manni
Björgunarsveitin Brák og lögregl-
an í Borgarnesi leituðu í Hítardal á
sunnudag að manni sem varð við-
skila við félaga sinn um hádegisbilið.
Um þrjátíu björgunarsveitarmenn
leituðu á svæðinu að manninum,
sem lét vita af sér í gegnum farsíma.
Hann tjáði björgunarsveitarmönn-
um að hann væri við bæjarrústir, en
ekki var vitað nákvæmlega hvaða
bæjarrústir maðurinn átti við. Mikil
þoka var á svæðinu þegar leitað var
að manninum en hann fannst síð-
degis heill á húfi.
Margir myndu
sitja heima
Átján prósent kjósenda myndu skila
auðu eða kjósa ekki ef gengið yrði
til kosninga nú, samkvæmt nýjum
Þjóðarpúlsi Gallup. Fjórtán prósent
tóku ekki afstöðu eða neituðu að
gefa hana upp. Ríkisstjórn Sam-
fylkingar og Vinstri grænna nýtur
stuðnings 37 prósenta kjósenda.
Fimm prósent þeirra sem svöruðu
könnuninni sögðust myndu kjósa
aðra flokka en þá sem bjóða nú þeg-
ar fram.