Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2011, Síða 10
10 | Fréttir 3. janúar 2011 Mánudagur
Ríkisstjórnin getur í samræmi við ný-
leg lög um fækkun ráðuneyta hald-
ið áfram undirbúningi að stofnun
atvinnuvegaráðuneytis með samein-
ingu iðnaðar-, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytis. Í samræmi við
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar og upphaflegt frumvarp stóð til að
atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neyti yrði stofnað um nýliðin áramót
samtímis formlegri stofnun innan-
ríkisráðuneytis og velferðarráðuneyt-
is með sameiningu eldri ráðuneyta.
Ætlunin var þó að fresta stofnun at-
vinnuvegaráðuneytisins til 1. apríl á
þessu ári. Niðurstaðan á þingi varð á
endanum sú að sameining ráðuneyta
undir atvinnuvegaráðuneyti var ekki
tímasett. Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra hefur engu að síður
heimild samkvæmt lögunum til að
stofna nýtt ráðuneyti.
Varnarleikir
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra benti á í Morgun-
blaðsgrein um áramótin að áform-
in um að hrófla við sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytinu hefðu strax
í upphafi sætt mikilli gagnrýni, ekk-
ert síður innan greinanna sjálfra en
innan VG. Um þetta atriði vísar hann
einnig til samþykkta flokksráðs VG
sem samþykkti fyrir ári að ekki yrði
hróflað við stjórnsýslulegri stöðu eða
dregið úr vægi málaflokkanna sem
heyra undir sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytið. Jafnframt getur
Jón þess að ofangreindar tímasetn-
ingar hafi á endanum verið felldar
brott.
„Það er því misvísandi þegar sagt
er að ákvörðun liggi fyrir um að leggja
niður sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðuneytið enda ástæða til að láta
reyna á þá sameiningu sem þegar
er orðin og meinta hagræðingu sem
henni tengist,“ segir Jón í grein sinni.
Málefnin eða persónan?
Jóhanna Sigurðardóttir vísaði til
stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinn-
ar þegar skrif Jóns voru borin undir
hana í fjölmiðlum eftir ríkisráðsfund
á gamlársdag og áréttaði að atvinnu-
vegaráðuneyti yrði stofnað. Í ára-
mótaávarpi sínu lagði hún áherslu á
að leiddar yrðu til lykta áratugalang-
ar deilur um auðlindamál. „Við þurf-
um að ná sátt um nýjan grunn að sjálf-
bærri og sanngjarnri stefnu varðandi
dýrmætustu auðlindir þjóðarinnar,
meðal annars um fiskveiðistjórnar-
kerfið. Auðlindir sjávar, orkan í iðrum
jarðar og þau verðmæti sem fólgin eru
í vatninu, jafnt heitu sem köldu eiga að
vera sameign þjóðarinnar og þannig
þarf að ganga frá málum að arðurinn
renni með sanngjarnari hætti en ver-
ið hefur til allra Íslendinga,“ sagði Jó-
hanna.
Þar sem gert er ráð fyrir að um-
hverfis- og auðlindamál verði und-
ir sama ráðuneyti og atvinnuvegir og
nýsköpun undir öðru ráðuneyti virðist
einboðið að stjórnkerfisbreytingunum
þurfi að ljúka áður en tekið verður til
við að framfylgja auðlindastefnu ríkis-
stjórnarinnar.
Vert er að undirstrika að Jón og
nánir samverkamenn hans hafa frá
upphafi tekið illa hugmyndum um
stofnun atvinnuvega- og nýsköpun-
arráðuneytis. Jafnvel hafa stuðnings-
menn Jóns haldið fram að ráðherrar
vilji hann út úr ríkisstjórninni og tal-
að um aðför að honum. „Hann hefur
verið lagður í pólitískt einelti með afar
ósanngjörnum og illskeyttum hætti,“
sagði Atli Gíslason, þingmaður VG, í
viðtali við DV í lok ágúst á nýliðnu ári.
Eldfimt mál
Forsætisráðherra hefur fullt umboð
og lagaheimild til þess að halda áfram
undirbúningi að sameiningu iðnað-
ar-, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneyta undir merkjum atvinnu-
vegaráðuneytis og undir þá heimild
skrifaði Jón einnig á þingi síðastliðið
sumar.
Þetta er einnig í samræmi við vilja
meirihluta allsherjarnefndar Alþing-
is sem fjallaði um fækkun ráðuneyt-
anna og skilaði nefndaráliti. Varafor-
maður nefndarinnar er Atli Gíslason
en auk hans situr Álfheiður Ingadóttir í
nefndinni fyrir vinstri græna. Nefndin
taldi að þörf væri á lengra samráðsferli
áður en atvinnuvegaráðuneytið yrði
að veruleika og lagði því til að tíma-
setningar yrðu felldar brott. Samt sem
áður samþykkti meirihluti nefndar-
innar síðastliðið sumar að haldið yrði
áfram undirbúningi. „Meiri hlutinn
leggur áherslu á að áfram verði unnið
að undirbúningi og samráði vegna at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis
og umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
is, þó ekki sé lögð til afgreiðsla á þeim
hluta málsins nú, þannig að allar fyrir-
hugaðar ráðuneytabreytingar nái fram
að ganga eigi síðar en áformað var
samkvæmt frumvarpinu.
Það er skoðun meiri hlutans að í
aðdraganda sameiningar ráðuneyta, í
þessu tilviki sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytis og iðnaðar-
ráðuneytis, geti verið heppilegt
verklag að sami ráðherra gegni
þeim ráðuneytum sem til stend-
ur að sameina mánuðina áður en
sameiningin á sér stað og stjórni því
verki, til dæmis frá áramót-
um.“
Þar sem Jón hef-
ur lýst andstöðu
við breytingar á
sjávarútvegs-
og landbúnað-
arráðuneytinu
og ítrekað hana
um áramótin
er eins víst að
hann geti orðið
Þrándur í Götu
þeirra breyt-
inga sem hér eru
nefndar og kveð-
ið er á um meðal
annars í stefnuyfir-
lýsingu ríkisstjórn-
arinnar.
Ganga ekki í takt
Fyrir um einum mánuði lagði Jón
fram í ríkisstjórn frumvarp um sjáv-
arútvegsmál, eins og DV hefur greint
frá. Þar er meðal annars gert ráð fyrir
að sjávarútvegsráðherra fái heimild
til að auka aflaheimildir á yfirstand-
andi fiskveiðiári og að ríkinu verði
heimilt að leigja sjálft út allt að 10
þúsund tonn af þorski og 5 þúsund
tonn af ýsu auk annarra tegunda.
Þetta átti að skila allt að 2,8 milljörð-
um króna í tekjur fyrir ríkissjóð.
Viðbrögð Steingríms J. Sigfússon-
ar fjármálaráðherra og formanns VG
við fréttum af þessu frumvarpi verða
að teljast athyglisverð og verða vart
skilin öðruvísi en sem gagnrýni á
vinnubrögð Jóns. Í áramótaviðtali við
DV sagði Steingrímur að venjan væri
að fara ekki út með mál sem ekki hafi
verið fjallað um í ríkisstjórn. „Þetta
frumvarp var það seint fram komið
að það var augljóst að það
skipti litlu máli hvort
það biði. Engum datt
í hug að það yrði af-
greitt fyrir áramót.
Það sem við viljum
skoða annars vegar
eru fiskifræðileg rök
með aukningu kvóta.
[...] Hitt sem menn
spurðu eðlilega
um voru
tengsl þessa frumvarps við stóra
verkefnið um heildarendurskoðun
á fiskveiðilöggjöfinni og hvort þetta
yrði ekki með einhverjum hætti að
fara saman. Er ekki skynsamlegt að
ná þessu fram einhvern veginn sam-
an, líka mögulegri kvótaaukningu
sem menn eru spenntir fyrir?“
Alþingi kemur saman á nýju ári
þann 17. janúar. Af ummælum Stein-
gríms má hins vegar ráða að margt sé
enn órætt og eins víst að málið taki
umtalsverðum breytingum áður en
það verður afgreitt úr ríkisstjórn.
Staða Jóns er allsérstök innan rík-
isstjórnarinnar. Hann sætir gagnrýni
fyrir vinnubrögð og þykir fara eigin
leiðir án samráðs við aðra ráðherra
úr báðum flokkum. Ljóst er þó að
margir stjórnarliðar geta vel hugsað
sér að styðja róttækar tillögur Jóns í
frumvarpinu sem nú bíður afgreiðslu
neðarlega í málaskrá ríkisstjórnar-
innar.
Andstaða Jóns við sameiningu
ráðuneyta tengist án alls vafa hug-
boði hans um að honum verði fórn-
að og hann missi ráðherrastól líkt
og Gylfi Magnússon, Álfheiður Inga-
dóttir, Kristján L. Möller og Ragna
Árnadóttir í byrjun september. Við-
brögð hans og stuðningsmanna
hans hafa því gefið þeirri kenningu
byr undir vængi að „órólega deildin“
innan VG gefi ekki eftir ráðherrastól
Jóns átakalaust, ekki síst vegna þess
að þar á bæ telji menn ráðuneyt-
ið undir stjórn Jóns einnig vera eitt
helsta vígi ESB-andstæðinga.
Afstaða Jóns og vinnubrögð vekja
því blendin viðbrögð, ekki aðeins
meðal stjórnarliða og innan ríkis-
stjórnarinnar heldur einnig meðal
hagsmunasamtaka innan sjávarút-
vegsins. Samfylkingin þolir illa ein-
dregna andstöðu hans við ESB en
gæti fellt sig við róttæka stefnu hans í
sjávarútvegsmálum. Landssamband
íslenskra útvegsmanna aðhyllist af-
stöðu Jóns til ESB en stendur stuggur
af róttækum áformum hans varðandi
stjórn fiskveiða.
n Jóhanna Sigurðardóttir stendur fast við áform um frekari fækkun ráðuneyta
n Jón Bjarnason óttast um ráðherrastólinn og snýst til varnar n Átök blasa við
um stofnun atvinnuvegaráðuneytis og framtíð Jóns á ráðherrastóli
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
RáðheRRastóll
jóns eR í uppnámi
Brýna raustina Jóhanna
Sigurðardóttir og Steingrímur J.
Sigfússon, oddvitar ríkisstjórnar-
innar, hafa bæði brýnt raustina
um jól og áramót gagnvart
andstæðingum í eigin röðum sem
og stjórnarandstæðingum.
Einfari Framtíð
Jóns Bjarnasonar
á ráðherrastóli er
ótrygg. Hann snýst
til varnar, nú síðast í
blaðagrein.