Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2011, Page 14
Frábær
humarsúpa
n Lofið fær Sægreifinn fyrir humar-
súpu sem aldrei klikkar. Viðskipta-
vinir, sem reglulega heimsækja stað-
inn, segja að alltaf sér hægt að ganga
að góðri humarsúpu vísri.
Drjúgur skammtur af brauði
og smjöri fylgir og súpan er
auk þess vel úti látin;
bæði er skálin djúp og
dágóður slatti af humri
í hverri skál. Humar-
súpuna á Sægreifanum
ættu allir að prófa.
Bannað að
fara í ljós
Fólki yngra en 18 ára er nú óheimil
notkun sólarlampa, í öðrum
tilgangi en læknisfræðilegum, á
sólbaðsstofum og öðrum sam-
bærilegum stofum. Fram kemur
á vef heilbrigðisráðuneytisins að
síðustu áratugi hafi tíðni sortuæxla
í húð hér á landi aukist verulega.
Talið er líklegt að aukningin stafi
einkum af notkun ljósabekkja, auk
tíðari sólarlandaferða. Frá 1990 hafi
Íslendingar verið með lægstu tíðni
sortuæxla í húð á Norðurlöndum
en á síðustu árum hafi hún aukist
mikið og séu íslenskar konur nú
með hæstu tíðnina. Lega landsins
gerir að verkum að sólargeislun er
tiltölulega lítil en notkun ljósabekkja
tvöföld eða þreföld samanborið við
nágrannalöndin. Fullorðnir mega
áfram baða sig í ljósum ljósabekkja.
Engir pakkar
bárust
n Íslenskur fjölskyldufaðir vildi lasta
póstinn. Sagðist hafa sent pakka til
ungrar íslenskrar fjölskyldu í Þýska-
landi þann 6. desember. Sendingin
hafi átt að taka fjóra til sex daga en á
aðfangadag voru engir pakkar komn-
ir. Hann segist hafa fengið þau svör
frá póstinum að pakkarnir hafi þann
8. desember verið í Dan-
mörku þaðan sem þeir
áttu að fara til Þýska-
lands. „Við fjölskyldan
erum sár því þetta er
mikið tilfinningamál
fyrir okkur og hvað þá fyrir
blessuð börnin,“ sagði hann.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Þættir um peninga Ferð til fjár er yfirskrift sjónvarpsþáttar sem sýndur
verður á RÚV í kvöld, mánudag. Annar þáttur verður á dagskrá næsta mánudag.
Stofnun um fjármálalæsi stendur að gerð þáttanna en í þeim verður fjallað um fjármál
á fróðlegan og skemmtilegan hátt, að því er segir í kynningu á þættinum. Tekið verður
á algengum ranghugmyndum um peninga, sparnað og eyðslu. Hugtök um peninga eru
útskýrð á mannamáli og áhorfendur vaktir til umhugsunar um eigin fjármál. Þættirnir
byggja á samnefndri bók eftir Breka Karlsson en umsjónarmaður er fréttamaðurinn
Guðmundur Gunnarsson. Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirðharðsdóttir og Laddi eru
á meðal leikenda.
14 | Neytendur Umsjón: Baldur Guðmundsson baldur@dv.is 3. janúar 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Verð á lítra 209,5 kr. Verð á lítra 211,3 kr.
Bensín Dísilolía
Verð á lítra 209,3 kr. Verð á lítra 211,0 kr.
Verð á lítra 210,1 kr. Verð á lítra 211,4 kr.
Verð á lítra 209,2 kr. Verð á lítra 211,1 kr.
Verð á lítra 209,4 kr. Verð á lítra 211,2 kr.
Verð á lítra 209,5 kr. Verð á lítra 211,3 kr.
Algengt verð
Almennt verð
Algengt verð
Akureyri
Melabraut
Algengt verð
Áramótaheit margra er að taka upp
heilbrigðari lífsstíl og huga að reglu-
legri og góðri hreyfingu. Í janúar fyll-
ast að jafnaði líkamsræktarstöðvar af
fólki með háleit markmið um að koma
líkamanum í betra form og gerði DV
verðathugun á líkamsræktarkortum
á nokkrum stöðum. Ekki var unnt að
taka saman upplýsingar um allar lík-
amsræktarstöðvar á landinu og eins
skal þess getið að ekki voru skoðuð hin
ýmsu tilboð né aðstaða til líkamsrækt-
ar á stöðunum en ætla má að íburðar-
meiri stöðvar séu dýrari. Athugunin
leiddi í ljós að töluverður munur er á
verði kortanna eftir stöðvum en mest-
ur verðmunur reyndist vera 131,1 pró-
sent.
Ódýrast á Selfossi
DV gerði sams konar könnun fyrir ári
og voru þá svipaðar niðurstöður. Eins
og þá eru ódýrustu árskortin hjá Actic
en fyrirtækið er með stöðvar víða um
land. Einhver munur er á kortunum
hjá Actic eftir staðsetningu en lægst er
það á Selfossi á 27.990 krónur. Tekið
skal fram að Actic er með lægsta verðið
af þeim stöðvum sem hér eru skoðað-
ar og ekki útilokað að hægt sé að finna
árskort á lægra verði.
Hæsta verð hefur lækkað
Dýrustu árskortin í þessari könnun
eru hjá Hreyfingu líkt og fyrir ári en svo
virðist sem stöðin hafi lækkað verð síð-
an þá. Nú kostar kort sem er staðgreitt
64.692 krónur. Ef fólk vill dreifa greiðsl-
unni yfir árið kostar þar 5.990 krónur á
mánuði sem gera 71.880 krónur. Sama
kort kostaði hins vegar 73.280 krónur
fyrir ári. World Class og Bjarg hafa ekki
breytt verðinu á sínum kortum síðan
í síðustu könnun og Sporthúsið hefur
lækkað það um 500 krónur. Árskort í
Baðhúsinu hefur hækkað um tæpar
4.000 krónur á milli ára.
Eins og fyrr segir þá er ekki tekið
mið af tilboðum sem stöðvarnar bjóða
upp á en þau eru mörg og neytendum
er einnig ráðlagt að athuga hvort stétt-
arfélög þeirra greiði niður kostnað á
líkamsræktarkortum.
Skólakortin
Margar líkamsræktarstöðvar bjóða
námsmönnum upp á ódýrari kort en
annað hvort eru þau árskort eða til 10
mánaða. Í þeim flokki eru það einn-
ig Actic-stöðvarnar sem bjóða upp á
lægstu kortin en árskort fyrir náms-
menn á Selfossi er á 25.990 krónur.
Studio Dan á Ísafirði auglýsir ekki sér-
stök skólakort en bendir á að skólafólk
fái 13 prósenta afslátt af mánaðarkort-
um og þriggja mánaða kortum. Lík-
amsræktarstöðin Bjarg á Akureyri aug-
lýsir sérstakt verð fyrir námsmenn en
það gildir einnig fyrir öryrkja, einstæða
foreldra og ellilífeyrisþega.
n Töluverður munur á líkamsræktarkortum n Munar allt
að 131% n Ódýrast í Actic á Selfossi n Svipað verð og fyrir ári
Stöð Árskort Verðmunur* Árskort (áskrift) Mánaðarkort Skólafólk
Actic Selfoss 27.990 kr. - - - 25.990 kr.
Actic Vestmannaeyjum 31.990 kr. 14,3% - - 27.990 kr.
Actic Sundlaug Kópavogs 35.990 kr. 28,6% - - 31.990 kr.
Heilsuakademían 44.995 kr. 60,8% - 7.995 kr. -
Studio Dan Ísafirði 46.800 kr. 67,2% - 8.300 kr. 13% afsl. af völdum kortum
Veggsport 49.900 kr. 78,3% 4.600 kr. 10.900 kr. 42.900 kr. (12 mán.)
Hress Hafnarfirði 58.990 kr. 110,8% - 10.990 kr. 39.990 kr. (12 mán.)
Sporthúsið 61.000 kr. 117,9% - 11.900 kr. 38.900 kr. (10 mán.)
Bjarg Akureyri 62.000 kr. 121,5% 5.167 kr. 11.100 kr. 57.600 kr. (4.800 á mán.)
Baðhúsið 62.900 kr. 124,7% - 11.900 kr. 49.900 kr. (10 mán.
World Class 63.420 kr. 126,6% 5.880 kr. 12.130 kr. -
Hreyfing 64.692 kr. 131,1% 5.990 kr. 10.900 kr. -
* Miðað er við ódýrasta árskortið, í Actic Selfossi
Verð á kortum líkamsræktarstöðva
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Ekki voru
skoðuð
ýmis tilboð né
aðstaða til
líkamsræktar.
VELDU ÓDÝRUSTU
LÍKAMSRÆKTINA
Einkaþjálfari um líkamsrækt:
Hugsa hreyfinguna til lengri tíma
Margur er væntanlega með slæma samvisku
eftir allan þann mat og kræsingar sem
torgað var yfir hátíðirnar því í janúar fyllast
líkamsræktarstöðvar af þeim sem vilja hrista
af sér jólakílóin.
„Það sem skiptir mestu málið þegar fólk
fer af stað aftur í líkamsræktinni eftir hlé er
að byrja rólega,“ segir Jens Andri Fylkisson,
einkaþjálfari hjá Heilsuakademíunni. Fólk
verður að hugsa hreyfinguna til lengri tíma
og passa að sprengja sig ekki strax með því
að fara of geyst af stað. „Ég hvet líka fólk til
að nota fagfólkið og leita sér aðstoðar hjá
einkaþjálfurum.“
Jens segir að hann hafi oft séð fólk fara
af stað af fullum krafti með það markmið
að ná af sér aukakílóum á mettíma. „Fólk fer þá of geyst af stað og nýtir ekki aðstoð
þjálfaranna. Þá er hætta á því að fólk geri æfingar rangt og skaði sig. Betra er að fara á
námskeið eða fylgja uppsettu plani. Ef fólk vill leita til einkaþjálfara þá er sniðugt að
fara saman í hóp,“ segir hann.
Auk þessa er afar mikilvægt að huga að mataræðinu og borða reglulega. „Helst þarf
að borða fimm til sex sinnum á dag. Gott er að vigta matinn og forðast unnin mat og
skyndibita. Eins þarf að draga úr neyslu hvíts sykurs og hveitis. Við þurfum að borða
hollari og betri mat og hægt er að fá ráðleggingar hjá þjálfara í sambandi við það,“ segir
Jens að lokum. gunnhildur@dv.is
Líkamsræktar-
stöðvar Margir huga
að aukinni hreyfingu í
byrjun nýs árs.