Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2011, Qupperneq 16
16 | Erlent 3. janúar 2011 Mánudagur
Valdatíð Kennedy-fjölskyldunn-
ar í Washington er nú lokið, í það
minnsta um sinn. Fulltrúadeild-
arþingmaðurinn Patrick Kennedy
mun hætta þingmennsku nú um
áramótin, en hann ætlar að einbeita
sér að því að safna fé sem verja á til
rannsókna á heilasjúkdómum. Fað-
ir hans, Edward Kennedy, lést ein-
mitt eftir baráttu við heilakrabba-
mein sem greindist árið 2008. Hann
var þar með næstsíðasti meðlim-
ur Kennedy-fjölskyldunnar til að
kveðja Washington á undan syni
sínum. Þegar Edward, eða Teddy
eins og hann var kallaður, lést í fyrra
hafði hann verið öldungadeildar-
þingmaður fyrir Massachusetts-ríki
síðan árið 1962 eða í 47 ár.
Hafa verið í Washington
síðan 1947
Það var eldri bróðir Teddys Kenne-
dys, John Fitzgerald Kennedy, sem
hóf vegferð Kennedy-fjölskyldunn-
ar í Washington þegar hann var
kjörinn í fulltrúadeild bandaríska
þingsins árið 1947, þá aðeins þrí-
tugur að aldri. Hann var síðan kos-
inn á öldungadeildarþingið árið
1953 og þar starfaði hann uns hann
sigraði Richard Nixon í forseta-
kosningum árið 1960. Kennedy
tók við embætti forseta Banda-
ríkjanna í byrjun árs 1961 en var
myrtur í Dallas þann 22. nóvember
árið 1963. Enn þá er deilt um hvað
gerðist þann örlagaríka dag í Dallas
og ljóst er að öll kurl eru ekki enn
komin til grafar, þó að fullyrt sé í
rannsóknarskýrslu um málið að
Lee Harvey Oswald hafi verið einn
að verki.
Það voru aðeins tvö ár, 1960–
1962, þar sem enginn meðlimur
Kennedy-fjölskyldunnar átti sæti
í öldungadeildinni. Þegar John F.
Kennedy varð forseti fékk hann
Robert bróður sinn til að sitja í rík-
isstjórn sinni, en hann var dóms-
málaráðherra frá 1961 til 1964.
Robert varð síðar öldungadeildar-
þingmaður fyrir New York-ríki, en
þeirri stöðu gegndi hann frá 1965
og allt þar til hann var myrtur árið
1968, þegar hann sóttist eftir út-
nefningu demókrata til forseta-
framboðs.
Joseph Kennedy byggði
upp veldið
Það var faðir þeirra Johns, Roberts
og Edwards sem lagði grunninn
að glæstum stjórnmálaferli sona
sinna. Hann tók við viðskiptaveldi
föður síns í byrjun 20. aldar og
færði út kvíarnar og varð einn rík-
asti maður Massachusetts. Marg-
ar sögusagnir hafa verið um hvaða
brögðum Joseph beitti til að öðlast
auð sinn, meðal annars var hann
sakaður um víðtæk mafíutengsl og
innherjaviðskipti í þann mund sem
kreppan mikla skall á árið 1929.
Náði hann þar að bjarga fjármála-
veldi sínu og bæta við auð sinn í
kjölfarið, þegar hann gat keypt upp
fyrirtæki sem skyndilega voru orð-
in verðlaus.
Hetjudáð í heimsstyrjöldinni
Joseph ætlaðist ætíð til mikils af son-
um sínum og var þess fullviss að einn
þeirra yrði einhvern tímann forseti
Bandaríkjanna. Upphaflega var elsti
sonurinn, Joseph yngri, þeirra lík-
legastur en það breyttist skyndilega
þegar flugvél hans var skotin niður er
hann gegndi herskyldu í bandaríska
flughernum í seinni heimsstyrjöld-
inni. Þá tók John við keflinu en fer-
ill hans var ævintýri líkastur. Hann
barðist einnig í síðari heimsstyrjöld-
inni þar sem hann var skipstjóri á
PT-109-tundurspilli með 13 manna
áhöfn. Árið 1943 lenti áhöfn Johns
í ógöngum þegar tundurspillirinn
var sprengdur í tvennt í Kyrrahafinu
skammt frá Salómonseyjum. Tveir
létust í sprengingunni en Kennedy
náði að safna saman eftirlifandi með-
limum áhafnarinnar á brot af skip-
inu. Á því broti komst svo áhöfnin á
eyðieyju sem var í nokkurra kílómetra
fjarlægð. Áhöfninni var bjargað sex
dögum síðar.
Fyrir þetta afrek fékk John æðstu
orðu bandaríska hersins fyrir hug-
rekki og óhætt er að segja að ímynd
hans sem stríðshetju hafi hjálpað til
við að koma pólitískum ferli hans af
stað. Hann var kominn til Washing-
ton sem fulltrúadeildarþingmaður
tveimur árum eftir stríðslok.
Ættinni til skammar
Eins hetjuleg og afrek Johns kunna
að hljóma var ekki eins farið með Ed-
ward. Hann gekk í herinn árið 1951
þegar Kóreustyrjöldin stóð sem hæst.
Edward leist illa á að fara á vígvöllinn
og notaði pólitísk tengsl föður síns
til þess að vera skipaður í skrifstofu-
stöðu hjá Atlantshafsbandalaginu í
París. Þegar hér var komið sögu hafði
Edward einnig verið vikið úr Harvard-
háskóla fyrir svindl, en hann fékk
skólafélaga sinn til að taka próf fyrir
sig gegn greiðslu. Eftir að herskyldu
hans lauk fékk hann aftur inngöngu í
skólann og fór að ganga betur. Hann
útskrifaðist svo sem lögfræðingur frá
Virginíu-háskóla og hóf síðan afskipti
af stjórnmálum. Eins og áður segir tók
hann við öldungadeildarþingsætinu
sem John átti áður, árið 1962.
Eftir að báðir bræður Edwards
höfðu verið myrtir litu margir til
hans og vonuðust til þess að hann
gerði atlögu að forsetaembættinu.
Þeir draumar hurfu eins og dögg fyr-
ir sólu árið 1969, þegar Edward ók bíl
sínum út af brú hjá Chappaquidd-
ick-eyju, nálægt ættaróðali Kennedy-
fjölskyldunnar í Martha's Vineyard.
Bíllinn lenti í vatninu og slapp Ed-
ward ómeiddur. Með honum í för
var hins vegar 28 ára gömul kona,
Mary Jo Kopechne, sem hafði starf-
að á kosningaskrifstofu Roberts. Ed-
ward flúði af vettvangi, en líklegt þyk-
ir að hann hafi ekið undir áhrifum
áfengis . Edward tilkynnti ekki um
slysið fyrr en degi síðar, en þá hafði lík
Kopechne þegar fundist.
Atvikið vakti mikla athygli í Banda-
ríkjunum og víðar, og var talið að
möguleikar Edwards til að verða for-
seti væru þar með taldir. Það reyndist
rétt, Edward gerði einu sinni tilraun til
að fá útnefningu Demókrataflokksins
sem forsetaframbjóðandi árið 1980,
en tapaði þeirri baráttu fyrir Jimmy
Carter.
Bölvun og framtíð Kennedy-
fjölskyldunnar
Í Bandaríkjunum er mönnum tíðrætt
um bölvun Kennedy-fjölskyldunnar.
Hér hefur þegar verið minnst á dauða
Josephs yngri í síðari heimstyrjöld-
inni, sem og morðin á þeim John og
Robert. Þá hafa tveir synir Roberts
einnig látist fyrir aldur fram, David,
lést úr of stórum skammti eiturlyfja
árið 1984 og Michael lést í skíðaslysi
árið 1997. Kyntáknið, John F. Kennedy
yngri, sem var talinn til Íslandsvina,
lést einnig í dularfullu flugslysi nálægt
Martha's Vineyard árið 1999.
Ómögulegt er að segja til um pól-
itíska framtíð Kennedy-fjölskyldunn-
ar. Stjórnmálaskýrendur vestanhafs
eru þó ekki bjartsýnir fyrir hennar
hönd. Í raun má telja ótrúlegt að Patr-
ick, sem nú er að kveðja stjórnmálin,
hafi náð jafnlangt og raun ber vitni
en hann hefur lengi barist við eitur-
lyfja- og áfengisfíkn. Helstu vonir fjöl-
skyldunnar eru nú bundnar við Joe
Kennedy, elsta son Roberts, en hann
var fulltrúadeildarþingmaður um 12
ára skeið, frá 1987 til 1999. Vonast var
til þess að hann byði sig fram til öld-
ungadeildarinnar þegar næst verð-
ur kosið árið 2013. Í nóvember í fyrra
gaf hann hins vegar út yfirlýsingu þess
efnis, að hann hefði engan áhuga á að
bjóða sig fram.
Kennedy-fjölskyldan
kveður Washington
n Með brotthvarfi Patricks Kennedys úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings lýkur valdatíð Kennedy-fjölskyldunnar í
Washington n Fjölskyldan hefur átt fulltrúa þar síðan 1947 n Ótrúleg saga sigra, vonbrigða og jafnvel bölvunar
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Það var faðir
þeirra Johns, Ro-
berts og Edwards sem
lagði grunninn að glæst-
um stjórnmálaferli sona
sinna.
Forsetinn með feðgum Hér má sjá forseta
Bandaríkjanna, Barack Obama, ásamt feðgun-
um Teddy og Patrick Kennedy. Teddy lést í fyrra
og nú hefur Patrick sagt skilið við stjórnmálin.
Forseti
John F. Kennedy á PT-109-tundurspillinum
sem var sprengdur í loft upp.