Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2011, Page 26
26 | Fólkið 3. janúar 2011 Mánudagur
Þetta verður ekki týpískur hand-boltaþáttur,“ segir Anton Rúnars-son, stórskytta Valsmanna í N1-
deildinni, sem verður þáttastjórnandi
nýs þáttar um handbolta sem hefst á
ÍNN 5. janúar. Ber þátturinn nafnið
Harpix í hárið. „Við munum kynnast
leikmönnum í íslenska landsliðinu
ásamt fleirum, fara á bak við tjöld-
in og kynnast persónunni á bak við
leikmanninn. Við ætlum að reyna að
gera þetta áhugavert, spennandi og
skemmtilegt fyrir alla aldurshópa sem
hafa gaman af sportinu,“ segir Anton.
Í þættinum verða einnig tek-
in viðtöl við landsþekkta einstakl-
inga og ýmislegt annað sem tengist
handboltanum. „Það verður spjallað
um N1-deildina, landsliðið, atvinnu-
mennskuna og ýmislegt fleira sem
ekki hefur verið sýnt áður,“ segir Ant-
on en íslenska landsliðið heldur á
heimsmeistaramótið í handbolta um
miðjan janúar.
Anton sló í gegn í fyrra þegar hann
fór á láni til Gróttu í N1-deildinni en
hann leikur í dag með uppeldisfélagi
sínu, Val. Verður ekkert skrýtið fyrir
Anton að stýra handboltaþætti þegar
hann er sjálfur lykilmaður í svona
stóru liði?
„Já og nei. Það er kannski að ein-
hverju leyti svolítið skrýtið. Eftir að ég
fékk spurninguna um hvort ég væri
klár í að stýra þessum þætti hugs-
aði ég mig vel um. Ég fékk álit hjá
góðum mönnum innan handboltans
og komst að þeirri niðurstöðu að ég
myndi alla vega ekki tapa á þessu. Það
vilja allir meiri og ítarlegri umfjöllun
um handbolta og þar er ég sjálfur ekki
undanskilinn. Eftir að mér var boðið
þetta tækifæri, að stýra mínum eigin
þætti með mínum hugmyndum, var
þetta eiginlega aldrei spurning,“ segir
Anton Rúnarsson, stórskytta og sjón-
varpsmaður.
tomas@dv.is
Handboltakappinn Anton Rúnarsson
byrjar með nýjan þátt á ÍNN:
Allir fá
harpix
í hárið
Leikarinn og leikstjórinn Gísli Örn
Garðarsson játar því á Facebook að
uppáhaldslagið hans sé með söng-
konunni Beyoncé og segir það hljóta
að kalla á sjálfsskoðun. Hann segir
orðrétt í stöðufærslu sinni: „Ég ætla að
opna mig á nýju ári. Uppáhaldslagið
mitt 2010 er með Beyoncé! Það kallar
óneitanlega á einhverja sjálfsskoðun!
Hver ætli ég sé í raun og veru?“
Arnar Eggert Thoroddsen:
Tek fyrirsætustörfin alvarlega
Blaðamaðurinn og rokkspekúlantinn Arnar Eggert Thoroddsen er að eigin sögn fyrirsæta í hjáverkum. Það fengu
vinir hans á Facebook að vita þegar hann
birti þeim sérstaka áramótakveðju þar sem
hann sat fyrir fáklæddur. „Það kemur fyrir
að ég þarf að sitja fyrir og þá tek ég fyrir-
sætustörfin alvarlega. Þegar ég var beðinn
um að sitja fyrir á mynd fyrir Viðskiptablað
Morgunblaðsins þar sem ég dæmdi þessa
græju sem ég held á skellti ég mér auðvitað
úr að ofan.“
Arnari þykir þetta glæsileg mynd og í
athugasemdakerfi Facebook gleðjast vin-
ir hans mjög yfir uppátækinu en óvænta
athygli fá þó húðlitir sokkarnir sem hann
klæðist sem almennt þykja jaðra við að
vera tískuglæpur. Sigurbjörg Þrastardótt-
ir, ljóðskáld og vinkona Arnars, segir um
sokkana: „Húðlitir sokkar! Gæfan fylgi þér,
mikli straumbreytir.“
Áramótakveðja Arnars Eggerts Í
kveðjunni óskar fyrirsætan, blaðamaðurinn
og rokkspekúlantinn vinum sínum gleðilegs
nýs árs og lýkur kveðjunni á þessum orðum:
„Rokk og ról, nú sem endranær!“
Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona og afreksíþrótta-kona, setti Íslandsmet á heims-
meistaramótinu í sundi sem fram
fór í Dúbaí. Förin þangað reyndist
mikil ævintýraferð og Ragnheiður
auðvitað stolt af árangrinum. Í lok
ferðarinnar ákvað hún að lyfta sér
aðeins upp og lenti þá í kostulegri
uppákomu á klúbbi í Dúbaí þar sem
hún hitti hinn heimsþekkta fata-
hönnuð Roberto Cavalli.
Stóð uppi á stólum
Skemmst er frá því að segja að Cav-
alli hreifst svo mjög af Ragnheiði
að hann eyddi kvöldinu í að ræða
við hana. Viðstaddir sögðu uppá-
komuna hafa verið bráðfyndna.
„Cavalli er lágvaxinn og stóð uppi
á stólum til að ná af henni góðum
myndum,“ segir vinkona Ragnheið-
ar. „Þá spjölluðu þau saman í nokkr-
ar klukkustundir og bað hann í lok
kvöldsins um heimilisfang
Ragnheiðar til þess að geta
sent henni kjóla. Hann
sagði það verða jólagjöf
hans til hennar.“
Það ætti að koma Ragn-
heiði vel að mynda þessi
góðu tengsl við Roberto Cav-
alli enda er hún komin með
umboðsmann og stefnir hátt í
fyrirsætubransanum.
Ragnheiður tók þessari yfir-
drifnu athygli af stökustu ró en
hafði að sögn ferðafélaganna
afar gaman af þessu atviki.
„Þetta var í lok ferðarinnar og
í fyrsta skipti sem við fórum
út,“ segir vinkona Ragnheið-
ar. Það var tilviljun að við
hittum hann þarna af því að
daginn eftir var tískusýning
hans í Dúbaí. Ragnheiður
fór að sjálfsögðu á sýning-
una og hafði gaman af.“
FÆR JÓLAGJAFIR FRÁ
ROBERTO CAVALLI
n Hitti hönnuðinn eftir Íslandsmet
Kært á milli Kolfallinn fyrir sjarma Ragnheiðar.
Heitar myndir Ragnheiður
er komin með umboðsmann og
stefnir hátt. Tengsl við Roberto
Cavalli ættu að koma sér afar vel.
Stórhrifinn Roberto Cavalli eyddi
kvöldinu í félagsskap Ragnheiðar
og vinkvenna hennar.
Ragnheiður Ragnarsdóttir:
Beyoncé í
uppáhaldi