Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2011, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2011, Qupperneq 20
20 | Fókus 16. febrúar 2011 Miðvikudagur Leiklistarráð úthlutar styrkjum fyrir árið 2011: 60 milljónir til atvinnuleikhópa Leiklistarráð Menningar- og menntamálaráðuneytisins til- kynnti á mánudag hvaða at- vinnuleikhópar hlytu styrk frá ráðinu árið 2011. Alls sóttu 67 að- ilar um fjármagn til 85 verkefna auk sex umsókna um samstarfs- samninga. 53,1 milljón var út- hlutað en í leiklistarráði eru Guð- rún Vilmundardóttir, formaður, skipuð án tilnefningar, Jórunn Sigurðardóttir, tilnefnd af Leik- listarsambandi Íslands og Hera Ólafsdóttir, tilnefnd af Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa. H vað gera forsetar þegar þeir eru orðnir leiðir á því að vera sífellt að afgreiða bréf og standa í öllu því stússi sem fylgir þeirra háa embætti? Eða prinsessur sem alltaf verða að hanga heima í höllinni innan um hirð- fólk og lífverði og mega ekki fara út að leika sér með öðrum krökkum? Jú, þau slá sér bara saman og drífa sig upp í sveit, villast kannski smá- vegis, en rata aftur til byggða, finna skemmtilegar beljur og landnáms- hænur, og gott ef ekki sjálf sig í leið- inni. Aftur til náttúrunnar, sagði Rousseau. Þau sannindi eru greini- lega í fullu gildi í Bessastaðaleiknum sem frumsýndur var nýlega á stóra sviði Þjóðleikhússins. Leikurinn er byggður á barna- sögum Gerðar Kristnýjar, Ballið á Bessastöðum og Prinsessan á Bessa- stöðum. Eftir viðtökum í salnum að dæma ætti hann að skírskota til barna á öllum aldri, þó að líklega sé hann nú frekar fyrir þau yngri. Sögu- sviðið er sem sagt forsetasetrið og svo auðvitað sveitin og fjöllin. Þang- að koma kóngur og drottning í heim- sókn ásamt prinsessunni litlu sem er afabarn þeirra; þau eru að sjálfsögðu öll í gulli og glimmer eins og kóngar og drottningar eiga að vera. Annars eru þau hjón miklir fjallagarpar og hafa stutta viðdvöl hjá forseta, búin að fá nóg af veisluhöldum og hefðar- standi og stefna beint á fjöll; það fer ekki á milli mála hverrar þjóðar þau eru. Á forsetasetrinu ræður ríkjum Halldóra ráðskona, en forsetinn er einhleypur og heldur svona barns- legur í sér, verður víst að segjast. En þegar hann fær fallegt bréf norðan úr Mývatnssveit ásamt prjónuðum ullarsokkum – í fánalitunum nema hvað – þá fer hjartað að slá örar. Aldrei að vita nema næsta útgáfa sögunnar heiti Brúðkaupið á Bessa- stöðum. Jafnvel efni í unglingaleikrit það sem sumir virðast sakna mjög í leikhúsunum? Söguefnið er rýrt, satt er það, og boðskapurinn hvorki frumleg- ur né sérlega markverður. En þetta er framreitt með miklum ágæt- um; það kann Ágústa Skúladóttir og hennar fólk – „med glimt i øjet“. Og ekki hjálpar músíkin lítið til, líf- legir og á köflum býsna hugljúfir söngvar Braga Valdimars við texta hans og Gerðar Kristnýjar; þau tvö kunna að láta standa í hljóðstafn- um, hvað sem líður skáldskapar- gildi að öðru leyti. Um leikendur er það að segja að leikgleðin geislar af þeim; hér eru allir með í leiknum af lífi og sál, enginn í fýlu úti í horni (enda leyfir Ágústa leikstjóri ekkert slíkt) og naumast ástæða til að hæla einum umfram annan. Ég stenst þó ekki mátið að nefna drauginn sem Kjartan Guðjónsson leikur, því að þarna er draugur eins og vera ber á Bessastöðum; að vísu er það ekki hún Apollonía sáluga, sem ætti lít- ið erindi í svona sögu; nei, þetta er afturgenginn bakari frá 18. öld og sá fær sko tækifæri til að sýna sína kúnst. Það var snjallræði að bæta honum við; prakkarann má alls ekki vanta í svona leik – hvað væri Kardi- mommubær án ræningja eða Hálsa- skógur án Mikka? Og vitaskuld fær draugsi tækifæri til að bæta fyrir syndir sínar í lokin, þó ekki séu þær stórvægilegar. Er það annars tilviljun hvað andlitsgervi og jafnvel taktar minna mikið á þjóðkunnan íslensk- an matarlistafrömuð? Búningarnir, jú, ég má til með að hæla þeim líka; þeir voru sannarlega litskrúðugir og flottir, alveg frá hvirfli til ilja. Stjörnugjöfin er svolítið vanda- söm að þessu sinni. Sem bók- menntaverk er leikritið ekki nema upp á svona tvær stjörnur, ef þá það. Sýningin slagar hins vegar hátt í fjórar. En þar sem hinn annars svo strangi gagnrýnandi var í besta skapi þegar hann kvaddi Þjóðleikhúsið og gekk út í slabbið ásamt ungum ferða- félaga sínum, lætur hann mildina og örlætið ráða og gefur þrjár og hálfa stjörnu. LagLega farið með Lítið efni Ballið á Bessastöðum Þjóðleikhúsið Höfundur: Gerður Kristný Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Tónlist: Bragi Valdimar Skúlason Leikmynd: Guðrún Oyahals Búningar: María Th. Ólafsdóttir Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson Brúðugerð: Bernd Ogrodnik Leikrit Jón Viðar Jónsson Draugurinn á Bessastöðum „Ég stenst þó ekki mátið að nefna drauginn sem Kjartan Guðjónsson leikur...“ Jóhannes Haukur Jóhannesson Leikur í Ballinu á Bessastöðum sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. nixon í Sam- bíóunum Í kvöld verður endursýnd í Smára- bíóunum-Kringlunni útsending Metro politan-óperunnar á óperunni Nixon in China eftir John Adams. Óperan, sem var frumsýnd árið 1987, fjallar um heimsókn Richards Nixons til Kína árið 1972 og koma bæði Nixon og Maó ásamt eiginkon- um fram á sviðinu. Óperan hlaut blendnar viðtökur við frumsýning- una, en hún hefur víða verið sýnd síðan og fest sig í sessi sem eitt af helstu verkum bandarískrar nútím- aóperulistar. Leikstjóri sýningarinn- ar er Peter Sellars, sem stýrði einnig frumsýningunni á sínum tíma, en Sellars er einn af frægustu óperu- leikstjórum samtímans og umdeild- ur mjög. Nixon er sunginn af barit- ónsöngvaranum James Maddalena sem söng hlutverkið einnig á frum- sýningunni. Það er tónskáldið sjálft, John Adams, sem stjórnar hljóm- sveit Metropolitan-óperunnar. Sandler og aniston vinsæl Gamanmyndin Just Go With It var vinsælasta mynd landsins í síðustu viku. Hún kom ný inn á lista og fór beint í fyrsta sæti með 4.375 gesti og rúmar 4,1 milljónir í tekjur. True Grit, sem tilnefnd er til 10 óskarsverðlauna, kom einnig ný inn og fór beint í annað sætið með 2.655 gesti og 2,7 milljónir í tekjur. Þá situr Yogi Bear í þriðja sæti með 2.850 gesti og 2,4 milljónir í tekjur. tilnefnd til gullbjarnarins Tyrkneska myndin Our Grand Des- pair er tilnefnd til Gullbjarnarins á kvikmyndahátíðinni í Berlín sem nú stendur yfir. Það var íslenska kvik- myndatökukonan Birgit Guðjóns- dóttir sem tók myndina. Myndin er heimsfrumsýnd á hátíðinni í dag en kvikmyndahátíðin í Berlín er ein sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu og telst til svokallaðra A-hátíða. Þetta er í fyrsta skipti sem mynd sem er tekin upp af Íslendingi er tilnefnd til Gull- bjarnarins en Birgit er búsett í Berlín þar sem hún hefur búið undanfarin tíu ár. Birgit er enginn nýgræðing- ur í greininni og hefur hún unnið við gerð mynda eins og The Bourne Sup remacy, Æon Flux og Jargo. Nafn Upphæð Sviðslistahópurinn 16 elskendur 8.000.000 kr. Common Nonsense 4.000.000 kr. Fígúra 3.950.000 kr. Aldrei óstelandi 3.600.000 kr. Netleikhúsið Herbergi 408 5.500.000 kr. Íslenska hreyfiþróunar- samsteypan 4.850.000 kr. Ég og vinir mínir 3.600.000 kr. Nafn Upphæð Kvenfélagið Garpur 4.650.000 kr. Framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang 600.000 kr. Naív/Himneska 4.800.000 kr. Söguleikhúsið 3.150.000 kr. The Island Project 3.500.000 kr. Tinna Grétarsdóttir 900.000 kr. Málamyndahópurinn 1.000.000 kr. Pálína frá Grund 1.000.000 kr. Úthlutun leiklistarráðs 2011 16 elskendur Fékk 8 milljónir í styrk til uppsetningar á verkinu Sýning ársins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.