Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 4. mars 2011 Helgarblað
Blekkingar
Rúmlega 48
milljarða
króna lán Lands-
banka Íslands til
eignarhaldsfé-
lagsins Styttu í að-
draganda banka-
hrunsins haustið
2008 var ákvarðað
nákvæmlega út frá
skuldum eignarhaldsfélagsins Fons
við bankann. Í viðskiptunum seldi
Fons, sem var í eigu Pálma Haralds-
sonar fjárfestis, tæplega 30 prósenta
eignarhlut í bresku matvöruverslana-
keðjunni Iceland til Styttu, sem var í
eigu Stoða og þriggja lykilstarfs-
manna Iceland-keðjunnar – Mal-
colms Walker, Andrews Pritchard og
Tarsem Dhaliwa – fyrir tæpa áttatíu
milljarða króna. Um 50 milljarðar
komu frá Landsbankanum. Eftir-
stöðvarnar af láninu fyrir Iceland
komu frá Glitni.
Pálmi fær afskrifað
Lands-
banki Ís-
lands afskrifaði
um 800 milljónir
króna af skuldum
Ferðaskrifstofu
Íslands, sem er
í eigu Pálma
Haraldssonar í
Fons, í ársbyrjun
2010. Þetta kemur fram í ársreikn-
ingi Ferðaskrifstofu Íslands, sem á og
rekur ferðaskrifstofurnar Sumarferð-
ir, Úrval-Útsýn og Plúsferðir, frá því í
ágúst í fyrra.
Móðurfélag Ferðaskrifstofu Íslands
er eignarhaldsfélagið Nupur Hold-
ing sem einnig á Feng, móðurfélag
Iceland Express. Nupur Holding er
aftur í eigu eignarhaldsfélagsins Wa-
verton Group Limited sem skráð er
á eyjunni Tortóla. Um 70 starfsmenn
vinna hjá félaginu samkvæmt árs-
reikningi þess.
Gunnar Rúnar
á Sogn
Ómögulegt
er að segja
hversu lengi
Gunnar Rúnar
Sigurþórsson
þarf að sæta ör-
yggisgæslu á rétt-
argeðdeildinni
að Sogni. Innlagnartími fer eftir eðli
veikinda og árangri meðferðar og er
útskrift í höndum dómara að fengnu
áliti meðferðaraðila. Meðferðin getur
tekið mörg ár og í mörgum tilfellum,
ef um alvarleg veikindi er að ræða,
getur innlögn verið mun lengri en
ef menn eru dæmdir sakhæfir og
dæmdir til refsingar.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á
þriðjudag Gunnar Rúnar, sem varð
Hannesi Þór Helgasyni að bana þann
15. ágúst síðastliðinn, til að sæta ör-
yggisgæslu á viðeigandi stofnun.
Fréttir vikunnar í DV
1 2
3
Fjölþrepa
bakbrettið
• Teygir á hrygg og bakvöðvum
• Minnkar vöðvaspennu
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Verð: 7.950 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
„Ég lét þær fara bara strax og kom
þeim fyrir úti í sveit,“ segir kona á Ak-
ureyri sem er fyrrverandi hænsnaeig-
andi. Nágrannakona hennar hefur
verið ákærð fyrir að ráðast á hana og
hóta að drepa hænurnar hennar. Þetta
gerði nágrannakonan eftir að hæn-
urnar struku úr garðinum eigandans
yfir í garð hennar. „Það er ekkert hægt
að standa í svona löguðu,“ segir fórn-
arlambið um þessa óskemmtilegu lífs-
reynslu.
Slegin í andlitið
Atvikið átti sér stað í garðinum við
heimili árásarkonunnar þann 29. maí
í fyrra og hefur lögreglustjórinn á Ak-
ureyri gefið út ákæru á hendur henni.
Málavöxtum er lýst þannig í
ákærunni að hænur konunnar –
fórnarlambsins í málinu – hafi strokið
yfir í garð ákærðu sem var allt annað
en sátt við veru þeirra þar. Samkvæmt
ákæru sló hún til nágrannakonunnar
með neti sem hún notaði til að fanga
hænurnar, reif bol sem fórnarlambið
klæddist, togaði og reif í hár hennar og
sló hana ítrekað í andlitið. Afleiðingar
árásarinnar voru meðal annars
þær að fórnarlambið hlaut roða
og sár á vinstra eyra, blóðtaum við
hljóðhimnuna og eymsli í hálsi.
Lofsamaði hænurnar í fyrstu
Árásin kom hænsnaeigandanum
gjörsamlega í opna skjöldu, enda
hafa konurnar búið hlið við hlið
í þrjátíu ár og ágætis vinskapur
verið á milli þeirra. Segir konan að
hinni ákærðu hafi ekki alltaf verið í
nöp við hænurnar. „Nei, nei, henni
fannst þær æðislegar. Hún brytjaði
niður mat handa þeim og hún þáði
egg undan þeim,“ segir fyrrverandi
hænsnaeigandinn. Ákærða lofsamaði
hænurnar allt þar til nokkrum dögum
fyrir árásina. Þá fór hún, samkvæmt
frásögn konunnar við DV, að tala
um að hún væri búin að fá nóg af
þeim og kvartaði yfir því að þær
skitu út um allt. Segir konan að hún
hafi strax farið að gera ráðstafanir
vegna kvartananna og ákærða vissi
að til stæði að þeim yrði komið fyrir
úti í sveit. Það tók hins vegar nokkra
daga að gera aðstöðu fyrir hænurnar
á nýjum stað, en á þeim dögum sem
liðu frá fyrstu kvörtunum hinnar
ákærðu, þangað til árásin átti sér
stað virðist sem andúð hennar á
hænunum hafi vaxið gífurlega, með
fyrrgreindum afleiðingum.
Mikil niðurlæging
Konan sem varð fyrir árásinni segir
það hafa verið mikla niðurlægingu að
láta ráðast svona á sig. Þess er krafist
í ákærunni að ákærða verði dæmd
til refsingar og til að greiða allan
sakarkostnað. Þá gerir brotaþoli einnig
bótakröfu á hendur ákærðu að fjárhæð
433.060 krónum, auk vaxta. Ákærða
neitar sakargiftum eins og þeim er lýst
í ákærunni samkvæmt upplýsingum
frá saksóknara. Aðalmeðferð í málinu
fer fram í Héraðsdómi Norðurlands
eystra á næstu vikum.
Ákærð fyrir að hóta
að drepa hænurnar
n Réðst á nágrannakonu sína og hótaði að drepa hænurnar hennar, samkvæmt ákæru
n Fannst hænurnar æðislegar fyrst um sinn n Gerði strax ráðstafnir vegna kvartana
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Hún brytjaði niður
mat handa þeim
og hún þáði egg undan
þeim.
Akureyri Atvikið átti sér stað á Akureyri þann 29. maí í fyrra.
Þáði egg Nágrannakonan var mjög sátt við
hænurnar fyrst um sinn. Myndin er úr safni.
Miklu munar á
leiguverði
Neytendasamtökin hafa birt nið-
urstöður könnunar á leiguverði en
hingað til hafa slíkar upplýsingar
verið afar takmarkaðar og lítt að-
gengilegar almenningi.
Neytendasamtökin stóðu því fyrir
könnun á húsaleiguverði með því að
kalla eftir upplýsingum frá leigjend-
unum sjálfum. Þeirri vinnu er nú
lokið og eru niðurstöðurnar kynntar
í skýrslu samtakanna sem er að-
gengileg á heimasíðu þeirra.
Í tilkynningu frá samtökunum
segir að viðbrögðin hafi verið mjög
góð og alls hafi borist 814 svör, þar af
682 frá leigjendum á höfuðborgar-
svæðinu. Flestir þátttakendur leigja
þriggja herbergja íbúðir en einn-
ig bárust mörg svör frá leigjendum
tveggja og fjögurra herbergja íbúða.
Flestir þátttakenda leigja í hverfi 101
í Reykjavík en einnig var góð þátt-
taka frá leigjendum í Kópavogi og í
hverfi 105.
Þar segir einnig að það hafi vakið
athygli hve mikill munur sé á leigu-
verði á höfuðborgarsvæðinu sam-
kvæmt könnuninni og leiguverði
samkvæmt reiknivél fyrir neysluvið-
mið velferðarráðuneytisins. Vissu-
lega hafi alltaf legið fyrir að tölurnar
sem fram koma í neysluviðmiðinu
séu á margan hátt gallaðar og feli
einungis í sér gróf viðmið, en hins
vegar hafi komið örlítið á óvart að
munnurinn skuli vera svo mikill sem
raun ber vitni.
Leita að vitnum
Ekið var á karlmann á fertugsaldri á
mótum Hverfisgötu og Smiðjustígs í
Reykjavík um ellefuleytið á miðviku-
dagskvöld. Lögreglan leitar að vitn-
um að slysinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni var hvítri Toyota Yaris-bif-
reið ekið suður Smiðjustíg og inn
á Hverfisgötu til austurs en þá fór
gangandi vegfarandi yfir götuna og
varð fyrir bílnum. Maðurinn kvart-
aði undan verkjum í baki og fótum
og var fluttur á slysadeild til að-
hlynningar.
Þeir sem urðu vitni að slysinu eru
vinsamlegast beðnir að hafa sam-
band við lögregluna í síma 444-1000.