Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 4.–6. mars 2011 Helgarblað Eigendur Sögu verktaka ósáttir við Dögg Pálsdóttur: Íhuga að fara í meiðyrðamál Eigendur Sögu verktaka ehf. íhuga að fara í meiðyrðamál við Dögg Páls- dóttur, hæstaréttarlögmann og fyrr- verandi varaþingmann Sjálfstæðis- flokksins, vegna ummæla þar sem hún sakar þá um að hafa falsað töl- ur um efniskostnað og grætt á því. Þessi ummæli koma fram á stefnu þar sem Dögg krafði Sögu vertaka um 14 milljónir en því máli var vísað frá dómi. Hún lét svipuð orð falla í DV þar sem hún ásakaði verktakana um að tefja verkið og hækka kostnaðinn þannig. Orri Blöndal annar eiganda Sögu verktaka segir þetta vera alvarlegar ásakanir sem eigi við engin rök að styðjast og nefnir því til stuðnings að fyrirtækið hafi unnið mál bæði fyrir héraðs- og Hæstarétti á hendur Dögg og að hún skuldi þeim nú þrjátíu milljónir fyrir vinnu á tveimur íbúð- um í eigu hennar og sonar hennar Páls Ágústs Ólafssonar í Hátúni 6. „Við erum ekki meiri skjalafalsarar en svo að við unnum í þessu máli,“ segir Orri en héraðsdómur dæmdi í málinu í desember 2009 og Hæsti- réttur staðfesti þann dóm í fyrrasum- ar. Dögg er hins vegar komin í skulda- aðlögun hjá umboðsmanni skuldara, sem þýðir að Saga grípur í tómt. Þeir geta ekki innheimt skuldina á meðan mál Daggar er til umfjöllunar hjá um- boðsmanni skuldara. Dögg og Páll Ágúst keyptu tvær íbúðir á efstu hæð í blokkinni árið 2006 með það fyrir augum að end- urgera þær og búa síðan í þeim. Þau leitaðu í kjölfarið til Sögu verktaka og óskuðu eftir tilboði í verkið auk þess að byggja 60 fermetra viðbyggingu við íbúðirnar tvær. Orri Blöndal segir með ólíkindum að Dögg komist upp með að svíkj- ast undan því að borga 30 milljón- ir þar sem Hæstiréttur Íslands hafi dæmt hana til að borga, enn fremur segir Orri það vera í hæsta máta óá- byrgt að kona sem er varaþingmaður komi fram með dylgjur og alvarlegar ásaknir á þeirra hendur. Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 Nýtt teppi á stigaganginn – nú er tækifærið !!!! Eitt verð - niðurkomið kr. 5.690 m2 Verðdæmi: 70 fermetra stigahús með 8 íbúðum Heildarverð kr. 398.300 Endurgr. VSK og meðal skattaafsl (68.460) Raunverð kr. 329.840 pr. íbúð aðeins 41.230 Komum á staðinn með prufur og mælum, ykkur að kostnaðar lausu Milljarða króna velta Ferðaskrifstofu Íslands, sem er í eigu Pálma Har- aldssonar fjárfestis, er ekki sýnileg í ársreikningi fyrirtækisins fyrir árið 2009. Í rekstrarreikningi fyrirtækisins er ekki tilgreint hversu háar rekstrar- tekjurnar voru á því ári. Rekstrartekj- ur ferðaskrifstofunnar voru hins veg- ar á bilinu 4,6–4,8 milljarðar króna á árunum 2007 til 2008 og má því ætla að rekstrartekjur fyrirtækisins fyrir árið 2009 hafi hlaupið á nokkrum milljörðum króna, þó tekjurnar hafi að öllum líkindum lækkað talsvert í kjölfar íslenska efnahagshrunsins. Ástæðan fyrir því að ekki er minnst á tekjur fyrirtækisins af ferða- þjónustu á árinu er ekki kunn. Líkt og DV greindi frá á miðvikudaginn fékk Ferðaskrifstofa Íslands afskrif- aðar um 800 milljónir króna af skuld- um félagsins eftir að Pálmi Haralds- son eignaðist það árið 2009. Skuldir félagsins námu þá rúmum tveimur milljörðum króna og var það í reynd tæknilega gjaldþrota. Pálmi, sem einnig á flugfélagið Iceland Express, kom hins vegar með nýtt hlutafé inn í ferðaskrifstofuna, og má segja að innkoma hans hafi bjargað félaginu frá þroti. í ársbyrjun 2010 gerði Pálmi samkomulag við Landsbankann þess efnis að hann myndi greiða bankan- um 250 milljónir króna upp í nærri 500 milljóna króna útistandandi skuld félagsins við bankann, þar áður var bankinn búinn að afskrifa rúman hálfan milljarð króna af skuldum fé- lagsins. Rúmlega 600 milljóna króna viðskipti Eitt af því sem Pálmi Haraldsson gerði eftir að hann eignaðist Ferðaskrif- stofu Íslands 2009 var að samþætta í auknum mæli rekstur fyrirtækjanna tveggja, ferðaskrifstofunnar og Ice- land Express. Í ársreikningi Iceland Express fyrir árið 2009 kemur fram að félagið hafi farið frá því að tapa milljarði króna á árinu 2008 og yfir í að græða 590 milljónir á árinu 2009. Í ársreikningnum kemur fram að þessi 1.600 milljóna króna viðsnúningur sé að mestu tilkominn vegna krafna á tengda aðila sem jukust um 1.200 milljónir króna á milli ára. Matthías Imsland, forstjóri Ice- land Express, sagði í viðtali við Við- skiptablaðið að 800 milljónir króna af þessum kröfum hefðu verið á Ferða- skrifstofu Íslands. „Það eru kröfur sem eru tilkomnar vegna þess að við höfum verið að fljúga fyrir Ferðaskrif- stofu Íslands vegna ferða sem flognar voru frá ágúst og út desember. Þetta eru að mestu kröfur vegna viðskipta- skuldar sem var til um síðustu áramót en hefur síðan verið greidd,“ sagði Matthías. Í ársreikningi Iceland Express fyr- ir árið 2009 kemur fram að Ferða- skrifstofa Íslands hafi keypti vörur og þjónustu af systurfélagi sínu, Ice- land Express, fyrir nærri 620 milljónir króna á árinu 2009. Jafnframt kemur fram að tæplega 440 milljónir króna af kröfum Iceland Express á hendur ferðaskrifstofunni hafi verið vegna skammtímaláns sem ferðaskrifstof- an fékk. Afar líklegt má telja að Ice- land Express hafi fjármagnað hluta af þeirri innspýtingu fjármagns inn í rekstur Ferðaskrifstofu Íslands sem Landsbankinn reiknaði með í við- skiptunum við Pálma. Segja má, til einföldunar, að hagn- aður Iceland Express á árinu 2009 hafi verið tilkominn vegna viðskipta við Ferðaskrifstofu Íslands. Af þessu sést hversu gríðarlega mikilvægt það hefur verið fyrir Pálma og Iceland Ex- press að ná ferðaskrifstofunum til sín. Skuldirnar stökkbreyttust Heimildir DV herma að Ferðaskrif- stofa Íslands hafi verið mjög gott fyr- irtæki fram að hrunárinu 2008. Til að mynda greiddu þáverandi hlut- hafar fyrirtækisins sér út 110 millj- óna króna arð árið 2008 vegna góðrar rekstrarafkomu árið 2007. Í ársbyrjun 2008 var virði fyrirtækisins talið vera 2,1 til 2,8 milljarðar króna og gerðu rekstraráætlanir ráð fyrir að fyrirtæk- ið yrði skuldlaust eftir 3 til 5 ár. Eftir fall krónunnar í mars 2008 breyttist staða fyrirtækisins hins veg- ar gríðarlega og skuldir þess við er- lenda aðila eins og hótel og flugfé- lög stökkbreyttust. Við bankahrunið varð ljóst að félagið yrði gjaldþrota að öllu óbreyttu. Einnig varð ljóst að erfitt yrði að reka ferðaskrifstofu eft- ir bankahrunið þar sem fólk myndi fækka utanlandsferðum til muna og allur kostnaður við rekstur skrifstof- unnar aukast, meðal annars út af lágu gengi krónunnar. Landsbankinn var því í ákveðn- um vandræðum því óvíst var að ein- hver myndi vilja koma að rekstri ferðaskrifstofunnar miðað við hvern- ig ástatt var fyrir henni, skuldirnar 2 milljarðar og langvarandi kreppa yfir vofandi. Þá kom Pálmi Haralds- son hins vegar að félaginu og sá sér leik á borði með því að samþætta rekstur hennar og Iceland Express. Miðað við ársreikning Iceland Ex- press 2009 og áhrif Ferðaskrifstofu Ís- lands á bætta rekstrarafkomu flugfé- lagsins var þetta afar klókt hjá Pálma. n Iceland Express seldi Ferðaskrifstofu Íslands þjónustu fyrir um 620 milljónir árið 2009 n Heildarvelta Ferðaskrifstofu Íslands kemur ekki fram í ársreikningi fyrirtækisins n Veltan árin þar á undan var á bilinu 4,6 til 4,8 milljarðar króna n Eignarhald Pálma á Ferðaskrifstofu Íslands á stóran þátt í bættri rekstrarafkomu Iceland Express 620 MILLJÓNIR FÓRU Á MILLI FYRIRTÆKJA PÁLMA „Það eru kröfur sem eru tilkomnar vegna þess að við höfum verið að fljúga fyrir Ferða- skrifstofu Íslands vegna ferða sem flognar voru frá ágúst og út desember. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Rúmlega 600 milljóna viðskipti Viðskipti Iceland Express, sem Matthías Imsland stýrir, og Ferðaskrifstofu Íslands námu mörg hundruð milljónum króna árið 2009. Ferðaskrifstofa Íslands keypti þá vörur og þjónustu af Iceland Express fyrir um 620 milljónir króna. Friðrik gefur Athafnamaðurinn og kaffihúsa- eigandinn Friðrik Weisshappel afhenti Fjölskylduhjálp Íslands ávísun upp á 300 þúsund krónur í hádeginu á fimmtudag. Friðrik opnar þvottvélakaffi- húsið Laundromat 12. mars næstkomandi en í stað þess að splæsa í veitingar fyrir gesti þegar staðurinn verður opnað- ur með pompi og prakt ákvað hann að láta peningana renna til góðgerðamála. Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskyldu- hjálpar Íslands, tók á móti þessari góðu gjöf og var að vonum afar þakklát. Mörg hundruð fjölskyldna leita til Fjölskylduhjálpar Íslands í hverri viku og hefur fjöldi þeirra sem til samtakanna leita vaxið gríðarlega síðustu misseri. Of lítill ávinningur Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir fjárhagslegan ávinning af tillög- um um sameiningu grunnskóla og leikskóla í borginni vera of lítinn. Skýrsla starfshóps um greiningu tækifæra til samrekstrar og/eða sameiningar leikskóla, gunnskóla og frístundaheimila var kynnt í borg- arráði á fimmtudag. Í greinargerð fulltrúa minnihluta í starfshópnum er ábyrgðinni alfarið varpað á meiri- hluta Besta flokksins og Samfylking- arinnar. Þorbjörg Helga sat hjá við af- greiðslu hennar vegna þess að hún taldi fjárhagslegan ávinning af til- lögunum of lítinn miðað við það rask á skólastarfi sem þær hafa í för með sér. Í greinargerð minnihlutans stendur: „ Fjárhagslegur ávinning- ur er það lítill að engan veginn nást áætlanir um hagræðingu á þessu ári né því næsta á þeim þremur sviðum sem um ræðir. Samtals er hagræðing af sameiningu og samrekstri 2012 undir einu prósenti af heildarút- gjöldum þeirra þriggja sviða sem unnu að þessarri skýrslu.“ Í greinargerð minnihluta kemur jafnframt fram að fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins átelur þau vinnubrögð að tölur um hagræðingu hafi ekki verið sendar áfram fyrr en á síðustu dög- unum fyrir útgáfu skýrslunnar. „Í þokkabót hafa tölurnar tekið stórkostlegum breytingum á síðustu klukkustundunum áður en skýrslu starfshópsins var endanlega lokað og alls ekki staðfestar af hópnum né fjármálastjórum sviða.“ Ósáttir Sumarliði Már Kjartansson og Orri Blöndal, eigendur Sögu verktaka, vilja fá skuld sína greidda af Dögg Pálsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.