Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Side 14
14 | Fréttir 4.–6. mars 2011 Helgarblað UPPGJÖRIÐ ER Í NÁND n Lögreglan óttast fjóra hópa á Íslandi og spáir uppgjöri innan tíðar n Almennir borgarar gætu lent á milli n Lögreglan telur að Jón Trausti Lúth- ersson ætli að hefna sín n Íslenskir glæpamenn sameinast af ótta við erlendan glæpahóp Lögreglan óttast um eigið öryggi ekki síður en öryggi almennings ef til uppgjörs kemur á milli glæpa- hópa sem skotið hafa rótum á Ís- landi undanfarin ár. Samkvæmt leyniskjölum sem DV hefur und- ir höndum metur lögreglan hættu á því að átökin gætu brotist út á stöðum þar sem almennir borgar- ar gætu lent á milli. Nýr hópur ís- lenskra glæpamanna hafi verið stofnaður til þess að bregðast við breyttri stöðu í undirheimum. Lögreglan óttast enn fremur að Jón Trausti Lúthersson, sem rek- inn var úr vélhjólasamtökunum MC Iceland, áhanganda Hells Ang- els, hyggi á hefndir vegna brott- vikningarinnar. Hann hafi stuðlað að stofnun hóps, bæði á Íslandi og í Haugasundi í Noregi, sem styðji helstu óvini Hells Angels á heims- vísu; Outlaws. Uppgjör sé í vænd- um. Stjórnvöld bregðast við „Við munum beita öllum mögu- legum ráðum til að losa Ísland við glæpahópa og sporna af alefli gegn því að slíkum hópum, sem reyni að brjótast inn í íslenskt samfé- lag, takist það ætlunarverk. Í und- irbúningi er lagafrumvarp sem auðveldar lögreglunni að glíma við glæpamenn en ég tek fram að við munum gæta þess rækilega að rýmkaðar rannsóknarheimildir verði háðar dómsúrskurði og eft- irliti,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra í samtali við DV en á föstudaginn var lagafrum- varpið kynnt á blaðamannafundi. Lögregla óttast að í hörð átök stefni í undirheimum Reykjavíkur, sér í lagi á milli klúbba sem tengj- ast tveimur af stærstu vélhjóla- gengjum í heimi; Hells Angels og Outlaws, eða Vítisengla og Útlaga. Fréttablaðið greindi frá þessu fyrir helgi en þetta er sögð megin ástæða þess að lögregla fái nú auknar rannsóknarheimildir. Hverjir eru Útlagarnir? Klúbburinn MC Iceland, áður Fáfnir, hefur í nokkur ár verið í inn- gönguferli til þess að gerast full- gildur meðlimur Hells Angels. Um MC Iceland og Hells Angels hefur mikið verið skrifað í íslenskum fjöl- miðlum. Hinn klúbburinn, MC Black Pistons, er lítt þekktur á Íslandi. Um er að ræða stuðningssamtök Outlaws, eða The McCook Outlaws Motorcycle Club, sem stofnuð voru í Bandaríkjunum, nærri Chicago, árið 1935. Vélhjólaklúbburinn hef- ur fært verulega út kvíarnar undan- farin ár og áratugi og er með starf- semi víða um heim, meðal annars í Asíu og víða um Evrópu. Samkvæmt skjölum sem DV hefur undir höndum telur lög- reglan að stofnun Black Pistons- hópsins sé bein ögrun við MC Ice- land sem stefnir að inngöngu í Hells Angels og hafi raunar kom- ið klúbbn um í opna skjöldu. Lík- ur séu á því að MC Iceland fái skýr fyrirmæli að utan um að mæta beri þessari ógn af hörku. Þegar DV spurði formann MC Iceland hvort von væri á uppgjöri á milli hópanna sagði hann það af og frá. „Við erum ekki í stríði við neinn,“ sagði hann en vildi að öðru leyti ekkert láta hafa eftir sér, hvorki um MC Iceland né Black Pistons. Útlagar á Íslandi Eins og áður sagði má rekja stofn- un Black Pistons á Íslandi til þess að Jón Trausti Lúthersson, sem rekinn var nokkuð óvænt úr Fáfni vegna deilna um fjármál, fluttist til Noregs og stofnaði MC Black Pistons í Haugasundi, að því er heimildir blaðsins herma. Því til stuðnings má geta þess að á Face- book-síðu norska klúbbsins er Jón Trausti á meðal vina auk þess sem honum líkar við, samkvæmt sam- skiptasíðunni, ótal klúbba sem kenna sig við Outlaws, þar á með- al íslenska klúbbinn. Samkvæmt skjölum sem DV hefur undir hönd- um fundust merki íslenska Black Pistons-klúbbsins við tollskoðun á Keflavíkurflugvelli fyrir um þremur vikum. Samkvæmt sömu skjölum eru meðlimir í hópnum aðeins um einn tugur, enn sem komið er. Lög- reglan óttast að innan hópsins sé að finna einstaklinga sem hiki ekki við að beita lögreglu ofbeldi ef þörf krefji. Jón Trausti er eins og fram hef- ur komið búsettur í Noregi og fer því ekki fyrir MC Black Pistons á Íslandi. Heimildir DV herma að það geri hins vegar frændi hans og vinur, Ríkharður Ríkharðsson eða Rikki Rikhards Sylo, eins og hann kallar sig á Facebook. SYLO er skammstöfun fyrir Support Your Local Outlaws, sem er stuðningsyf- irlýsing við Outlaws-samtökin. Verða brátt meðlimir Heimildir DV herma að um þrír mánuðir séu þar til MC Black Pist- ons verði fullgildur meðlimur í Outlaws en til samanburðar má nefna að inngönguferli MC Iceland í Hells Angels hefur staðið yfir í það minnsta frá árinu 2002. Einn við- mælandi DV orðaði það þannig að í Outlaws gengju menn sem hafa ekki getað haldið sig við þær reglur sem Hells Angels setur sér. Þeir séu því sýnu verri en félagsmenn MC Iceland en samkvæmt heimildum innan lögreglunnar eru í báðum hópum menn sem eru þekktir fyrir ofbeldisverk. DV er ekki kunnugt um umfang og starfsemi Black Pistons að öðru leyti en að í samtökunum eru um tíu manns. Samkvæmt heimildum hafa þeir ekki húsnæði undir starf- semi sína. DV tókst ekki að ná tali af Ríkharði, sem sagður er formað- ur klúbbsins. Brenndu merki Hells Angels Eins og að framan segir óttast lög- regla mjög að slá kunni í brýnu með hópunum. Samkvæmt heimildum DV innan MC Iceland munu félags- menn ekki vera spenntir fyrir því að hafa frumkvæði að slíku uppgjöri með tilheyrandi fjölmiðlafári sem kunni að skapast. MC Iceland líti ekki á Black Pistons sem mikinn keppi- naut. Það stangast raunar á við heim- ildir DV innan lögreglunnar sem tel- ur að persónuleg óvild, metingur og fjárhagslegir hagsmunir séu nægar forsendur til átaka á milli hópanna. Til viðbótar þessu ber að nefna at- vik sem gerðist um áramótin. Þá var tekið upp myndband þar sem með- limir Black Pistons brenndu merki Hells Angels. Það þykir hinn mesta vanvirðing enda líta félagsmenn vél- hjólaklúbba á merki klúbbsins sem afar merkan, jafnvel heilagan hlut. Myndbandið komst í umferð og olli úlfúð en atvikið þykir þó eitt og sér ekki næg ástæða til uppgjörs eða átaka, í það minnsta ekki að sinni. Fleiri glæpahópar Enn fleiri glæpahópar hafa skot- ið rótum á Íslandi samkvæmt þeim gögnum sem DV hefur und- ir höndum. Hópur afbrotamanna frá Póllandi og Litháen hafi mynd- Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is „Við munum beita öllum mögulegum ráðum til að losa Ísland við glæpahópa. Vélhjólagengi Lögreglan óttast að til átaka komi á milli tveggja vélhjólaklúbba á Íslandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.