Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Síða 16
16 | Fréttir 4.–6. mars 2011 Helgarblað Samkvæmt heimildum DV var öllum meðlimum MC Iceland boðið til Nor- egs núna um helgina. Það hefur ekki verið gert áður en heimildir blaðsins herma að gangi allt að óskum gæti svo farið að MC Iceland snúi heim sem fullgildur meðlimir Hells Angels. Tilraunir Hells Angels til að ná fót- festu á Íslandi má rekja allt til ársins 2002, að minnsta kosti. Snemma það ár voru danskir félagar í samtökun- um stöðvaðir við komu til landsins og þeim meinað að koma inn í land- ið. Þeir höfðu hlotið dóma fyrir ýmis gróf brot, meðal annars morð, mann- drápstilraunir, fíkniefnamisferli og of- beldi. Síðar barst starfsfólki í sendi- ráði Íslands í Kaupmannahöfn hótun frá Hells Angels í Danmörku, að því er lögregla greindi frá. Skilgreindir sem glæpasamtök Um sumarið 2002 var norskum fé- lögum í Hells Angels einnig meinað að koma inn í landið auk þess sem fimm norskum félögum var vísað úr landi í desember 2003. Fleiri dæmi má finna um af- skipti lögreglu af komu Vítisengla til landsins. Þannig höfðu lögreglan og sérsveit ríkislögreglustjóra mikinn viðbúnað vegna komu norrænna félaga í Hells Angels til landsins snemma árs 2007. Tilefni komu þeirra var afmælisveisla sem MC Iceland stóð fyrir í húsnæði sínu á Hverfisgötu en samtökin hafa nú aðsetur í Hafnarfirði. Í upphafi árs 2008 stonfaði MC Iceland (sem áður hét Fáfnir) til formlegra tengsla við Hells Angels með því að gerast stuðningsklúbb- ur samtakanna, sem skilgreind eru sem alþjóðleg glæpasamtök. Í apríl sama ár hafði lögreglan svo enn og aftur mikinn viðbúnað í Leifsstöð þegar hópur erlendra Vítisengla lagði leið sína til landsins í tengsl- um við veisluhöld á vegum klúbbs- ins. Breytingar innan hópsins Árið 2009 lagði klúbburinn á Íslandi formlega niður nafnið Fáfnir og tók upp opinbera nafnið MC Prospect of Hells Angels Iceland. Í febrúar í fyrra var Leif Ivar Krist- anssen, foringja Hells Angels í Nor- egi, meinuð innkoma í landið og hann sendur aftur til Noregs en kom- an var talin vera liður í inngöngu ís- lenska klúbbsins í Hells Angels-sam- tökin. MC Iceland hefur tekið nokkr- um breytingum eftir því sem á inn- gönguferlið hefur liðið. Auk Jóns Trausta hafa þeir Fjölnir „tattú“ og Hilmar Leifsson hætt í samtökunum. Hilmar er sagður hafa viljað söðla um og losna við áreiti sem samtök- unum fylgir. Samtökunum stýrir nú Einar „Boom“ Marteinsson. Ekki dæmdir sem hópur Þess ber að geta að þó meðlimir MC Iceland á Íslandi hafi komist í kast við lögin hafa samtökin ekki verið dæmd fyrir að brjóta lögin. Ríkislögreglustjórar Norðurland- anna hafa þó skýra stefnu um að berjast gegn skipulagðri glæpa- starfsemi og vinna að því saman. Þeir segja að innan vébanda Hells Angels séu í mörgum tilvikum harðsvíraðir, þaulskipulagðir og hættulegir glæpamenn. Þau kynni og þau tengsl auki því hættu á að íslensku félagarnir taki upp að- ferðir og starfshætti erlendra Vítis- engla. Raunar kunni slík krafa að koma fram af hálfu erlendu félag- anna. Á vef lögreglunnar kemur fram að hvarvetna þar sem Hells Ang- els og önnur sambærileg vélhjóla- samtök nái fótfestu fylgi aukin skipulögð glæpastarfsemi í kjöl- farið. Þeim fylgi stóraukin hætta á hótunum, fjárkúgunum og ofbeldi. Lögregla hefur um árabil litið svo á að viðleitni samtakanna til að ná fótfestu hér á landi feli í sér alvar- lega ógn við samfélag og allsherjar- reglu. Eins og DV greindi frá seint á síð- asta ári fullyrðir evrópska lögregl- an Europol að mótorhjólagengi hafi stóraukið starfsemi sína á síð- ustu árum, einna helst í Austur- Evrópu. Vitað sé að gengin stundi skipulagða glæpastarfsemi á víð- um grundvelli. Þau stundi fjár- svik, fjárkúgun, morð, limlestingar, vopnasmygl og mansal, auk rána og fíkniefnasmygls. Ein helsta for- senda aukinnar starfsemi Hells Angels, Bandidos og sambærilegra mótorhjólagengja er samkvæmt Europol aukið alþjóðlegt samstarf þeirra í mismunandi Evrópulönd- um og innlimun nýrra meðlima í ólíkum löndum. Gengin stundi skipulagða útrás sem vex hratt dag frá degi. Ofbeldi hefur aukist Samkvæmt Europol eru Hells Ang- els með tögl og hagldir á evrópska kókaínmarkaðnum og stórvirkir í framleiðslu og dreifingu á kanna- bis og amfetamíni. Amfetamínið er framleitt í Litháen og skipulögð glæpagengi vinna náið með mótor- hjólagengjum þar í landi við dreif- ingu efnanna. Ólík mótorhjólagengi berjast um hina gróðavænlegu markaði í Suður- og Austur-Evrópu. Ofbeldi hefur aukist og Europol býst við nýrri og enn alvarlegri ofbeldis- öldu þegar enn önnur mótorhjóla- gengi munu herja á Hells Angels í þessum hluta Evrópu. Lögreglan segir að mótorhjóla- gengin noti löglegar byggingar- einingar samfélagsins til peninga- þvættis og myndi sambönd við stjórnvöld og valdamikið fólk. Þá er vitað að gengin hafa hrundið af stað átaki til að bæta ímynd sína í fjölmiðlum. Líkt og í öðrum löndum Skand- inavíu hafa mótorhjólagengin Hells Angels og Bandidos skotið föstum rótum í Noregi. Dagblaðið Aftenposten fullyrðir að þeim vaxi nú stöðugt ásmegin. Gengin leggi sífellt undir sig nýjar borgir og bæjar félög. Þar komi þau upp stór- um hópum aðdáenda, sem fái að koma í veislur og á tónleika gegn því að vinna ýmis verk fyrir geng- in, en séu hins vegar ekki fullgildir meðlimir. Peningaþvætti og fíkniefni Í Svíþjóð eru Vítisenglar stærstu glæpasamtökin sem koma að skipulagðri glæpastarfsemi. Með- limir Vítisengla eru á bilinu 100 til 120 talsins. Fjölmargir áhangenda- klúbbar fylgja samtökunum og þegar þeir eru taldir með eru með- limirnir á bilinu 500 til 600 talsins. Vítisenglar í Noregi hafa und- anfarið komið undir sig fótunum í hefðbundnum atvinnugreinum. Þeir þurfa sífellt að finna leiðir til að koma peningum úr fíkniefna- heiminum í umferð og eru farn- ir að nota viðskiptalífið til þess. Norska lögreglan hefur fundið slóð peninga Vítisengla inn í fasteigna- og byggingariðnaðinn, sem og inn í veitingahúsarekstur og aðra hefð- bundna atvinnustarfsemi. Margir meðlima Vítisengla í Noregi hafa búið til fyrirtæki á sínum eigin nöfnum sem þeir nota til að kaupa eignir og koma þannig „svörtum“ peningum samtakanna í umferð – með öðrum orðum; þvo pening- ana. MC Iceland var boðið til Noregs um helgina: Fullgildir Vítisenglar um helgina? MC Iceland var boðið til Noregs um helgina: Glæpasamtök í útrás Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is MC Iceland Hefur aðsetur í Hafnarfirði og eru hér með innflutningspartí. MYND BJÖRN BLÖNDAL Stýra kókaínmarkaðnum Gengin leggja sífellt undir sig nýjar borgir og bæjarfélög að sögn Europol. Lögreglan framkvæmdi ólöglegar handtökur: Ríkið greiddi þeim skaðabætur Sjö karlmönnum sem handteknir voru í félagsheimili vélhjólaklúbbs- ins Fáfnis á Hverfisgötu í júlí 2007 voru í október í fyrra dæmdar skaða- bætur af hálfui íslenska ríkisins. Handtökurnar voru dæmdar ólög- mætar en þeir voru látnir sitja inni í nærri sólarhring. Fimm mannanna eru enn félagar í samtökunum, sá sjötti var rekinn úr samtökunum en sá sjöundi var látinn og runnu skaða- bæturnar því í dánarbú hans. Hverjum þeirra voru dæmdar 100 þúsund krónur í skaðabætur auk vaxta. Þá var málskostnaður þeirra felldur niður. Forsaga málsins er sú að mið- vikudaginn fjórða júlí árið 2007 réðst sérsveit ríkislögreglustjóra til inngöngu í félagshúsnæði Fáfnis við Hverfisgötu og bjargaði þar meðlimi klúbbsins. Í frétt DV af málinu tveimur dög- um eftir handtökurnar kom fram að ósætti hafi komið upp í félagsheim- ilinu þannig að slagsmál brugust út. Var það vegna þess að einn meðlim- ur klúbbsins vildi hætta í samtök- unum og líkti einn heimildarmanna DV atburðinum við pyntingar. Lögreglan rannsakaði í kjölfarið málið en upphaflega voru tíu með- limir Fáfnis handteknir og tveir þeirra úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Rannsókn málsins leiddi ekki til ákæru og því töldu sjömenningarnir að handtökurnar hefðu verið ólög- mætar. Mennirnir tveir sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fengu bætur frá ríkinu vegna málsins. baldur@dv.is „Við erum fjölskylduklúbbur fyrst og fremst, ekki glæpasam- tök,“ sagði Einar Ingi Marteinsson í samtali við DV á dögunum. En hann er oft nefndur Einar „Boom“ og er forseti mótorhjólasamtak- anna MC Iceland á Íslandi. Sam- tökin eru nú á þröskuldi þess að verða fullgildir meðlimir að Hells Angels. Samkvæmt heimildum DV hefur félagið nú þegar verið stofn- að, félagasamtökin HA Iceland, sem stendur fyrir Hells Angels Ice- land. Haraldur Johannessen ríkis- lögreglustjóri hefur opinberlega sagst vilja banna Vítisengla á Ís- landi. Embætti hans vill meina að MC Iceland leiti að ungmennum til að stofna götugengi, svokallað- ar stuðningsgrúppur við klúbbinn, eins og tíðkast í öðrum löndum. Þessar stuðningsgrúppur séu ekki viðurkenndir Vítisenglar en sjái um að fremja glæpi fyrir þá. Stýrihópur á vegum Harald- ar vill einnig meina að MC Ice- land hafi boðið meðlimum ann- arra mótorhjólaklúbba á Íslandi að heimsækja sig en þau samskipti hafi öll verið á vinalegum nótum. Þá bendi ýmislegt til þess að tveir íslenskir mótorhjólaklúbbar séu nú þegar stuðningsklúbbar MC Iceland og mótorhjólamenn sem tengjast alþjóðlegu samtökunum þannig orðnir hátt í 200 talsins. baldur@dv.is Einar „Boom“ segir MC Iceland friðsælan klúbb: „Fjölskylduklúbbur“ Friðsamleg samtök? Einar Ingi Marteins- son segir MC Iceland ekki stunda glæpi. Vinir í heimsókn Vélhjólaklúbburinn Fáfnir/ MC Iceland tekur á móti gestum í Leifsstöð 2009.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.