Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Page 17
Fréttir | 17Helgarblað 4.–6. mars 2011 „Smáríki geta haft áhrif“ n Diana Wallis, varaforseti Evrópuþingsins, hélt fyrirlestur í Háskóla Íslands á miðvikudag n Hún segir að smáríki geti vel látið til sín taka innan þingsins n Völd þingsins eru meiri eftir upptöku Lissabon-sáttmálans n Hún hefur beitt sér fyrir beinu lýðræði innan ESB „Smáríki geta haft mikil áhrif innan Evrópuþingsins,“ segir Diana Wall- is, varaforseti Evrópuþingsins. Wallis var stödd hér á landi í vikunni og hélt fyrirlestur fyrir fullu húsi í Háskóla Ís- lands á vegum Alþjóðamálastofnun- ar og Lagastofnunar. Wallis hefur set- ið á Evrópuþinginu síðan árið 1999 og hefur verið varaforseti þingsins undanfarin þrjú ár. Hún situr einnig í þingnefnd Evrópuþingsins gagnvart Evrópska efnahagssvæðinu og eru málefni Íslands því henni sérstaklega hugleikin. Yfirskrift fundarins var „Áhrif þingmanna smáríkja á Evrópuþing- inu í kjölfar Lissabon-sáttmálans.“ Wallis segir að áhrif þingsins hafi aukist umtalsvert í kjölfar upptöku Lissabon-sáttmálans og ræddi hún núverandi stöðu þingsins sem lög- gjafarvalds í Evrópusambandinu og einnig hvernig smáríki geta látið að sér kveða innan þingsins. Að fyrir- lestrinum loknum ræddi Wallis við blaðamann DV. Geta haft frumkvæði Það lá því beinast við að spyrja hvert væri hlutverk Evrópuþingsins sem löggjafarvalds, eftir upptöku Lissa- bon-sáttmálans. „Eftir upptöku sáttmálans er Evrópuþingið orðið viðurkenndur og áberandi aðili í lög- gjafarferlinu, í mun meira mæli en nokkurn tímann áður. Nú stendur þingið jafnfætis framkvæmdastjórn- inni við allar ákvarðanir, en áður má segja að framkvæmdastjórnin hafi haft yfirhöndina. Þingið er nú fullgild- ur samstarfsaðili framkvæmdastjórn- arinnar sem löggjafi,“ segir Wallis. Þegar kemur að löggjafarferlinu hafa hins vegar hvorki stakir þing- menn né þingmannanefndir rétt til þess að bera fram lagafrumvörp með beinum hætti. Það er framkvæmda- stjórnin sem leggur fram lagafrum- vörp enn þann dag í dag. Þingið get- ur hins vegar haft frumkvæði að lagafrumvörpum, með svokölluðum lagafrumvarpsskýrslum, sem fram- kvæmdastjórninni er skylt að taka til umfjöllunar. Wallis segir þó að frum- kvæðið sem sé í höndum þingsins sé nóg. „Algjörlega, í gegnum þing- nefndirnar eða þingmannasamtök- in er hægt að senda framkvæmda- stjórninni skýrslur sem eru þá teknar til umfjöllunar innan ákveðins tíma- ramma.“ Beint lýðræði er nýjung Wallis benti einnig á nýbreytni sem Evrópuþingið hefur komið til leið- ar og hefur verið henni hjartans mál síðan hún gerðist Evrópuþingmað- ur. Nú hefur verið samþykkt „borg- aralegt frumkvæði“, sem þýðir í raun að almenningur getur haft bein áhrif á lagasetningu innan Evrópusam- bandsins. Skrifi milljón einstaklingar undir lagafrumvarpsskýrslu er fram- kvæmdastjórninni skylt að fjalla um hana á sama hátt og skýrslur sem koma beint frá þinginu. „Þetta er eitt mikilvægasta skref sem tekið hefur verið í beinu lýðræði að mínu viti. Nú geta ríkisborgarar aðildarríkja haft bein áhrif á lagasetningu, sem er til að mynda ekki hægt innan stjórnskipun- ar aðildarríkjanna sjálfra.“ Verða að vera á varðbergi Ef líkja má Evrópusambandinu við ríki má að sama skapi líkja fram- kvæmdastjórninni við ríkisstjórn, eða framkvæmdavald, og Evrópuþinginu við þjóðþing, eða löggjafarvald. En hvernig er þá sambandinu milli fram- kvæmdastjórnarinnar og þingsins háttað. Er samstarfið ætíð á jákvæð- um nótum? „Það er auðvitað erfitt að segja. Framkvæmdastjórnin er fram- kvæmdavaldið og við í þinginu verð- um alltaf að vera á varðbergi gagnvart því og skoða grannt hvað hún er að gera hverju sinni. En á sama hátt þarf framkvæmdastjórnin að fylgjast með okkur. Hlutverk þessara arma löggjaf- arvaldsins er að vera gagnrýnin á störf hvors annars, og því kann það oft að hljóma eins og samstarfið sé slæmt. Reynsla mín er þó sú að samstarfið sé gott og jákvætt þegar á heildina er litið. Jafndýrt og kaffibolli á dag Evrópuþingið er annað stærsta lýð- ræðislega kjörna þing í heimi. Aðeins þjóðþing Indverja er stærra. Óhjá- kvæmilega hefur Evrópuþingið því fengið þá gangrýni, og þá sérstak- lega frá efasemdarmönnum um Evr- ópusamstarfið, að þingið sé lítið ann- að en risavaxið skrifræðisbákn sem kostar formúu. „Lýðræði er dýrt. Ég myndi segja að betra sé að hafa starf- andi lýðræði með kjörnum fulltrúum sem geta komið til leiðar þeim sjón- armiðum sem kjósendur vilja koma á framfæri. Það er gömul saga og ný að fólk segi Evrópusamstarfið of dýrt en mikið af þessum kostnaði fer til dæm- is í þýðingarþjónustu, sem ég myndi telja að kæmi sér vel fyrir Ísland og tungu ykkar. Með tungumálaþjónust- unni er gagnsæið í evrópskri stjórn- sýslu mun betur tryggt, því það gefur augaleið að fólk getur betur kynnt sér málefnin þegar það les um þau á eig- in tungumáli. Ég hef reyndar heyrt því fleygt að tungumálaþjónusta Evrópu- sambandsins kosti jafnmikið á ári og það myndi kosta hvern einasta ríkis- borgara aðildarríkja ESB að fá sér einn kaffibolla á dag. Fyrir mér er það ekki mikill fórnarkostnaður.“ Léleg kjörsókn Allt síðan árið 1979 hafa verið haldn- ar beinar kosningar til Evrópuþings- ins. Þá var kjörsókn um 63 prósent, en síðan hefur kjörsókn hrakað. Í kosn- ingum til Evrópuþingsins árið 2009, þeim fyrstu síðan Lissabon-sáttmál- inn var samþykktur, var kjörsókn að- eins 43 prósent. Er þetta ekki ákveðið vandamál? „Kjörsóknin er okkur ofar- lega í huga en við getum í það minnsta sagt að við gefum almenningi færi á að kjósa. Ég vonast þó til þess að kjör- sóknin fari að færast til hins betra, að- allega vegna þess að þingið er mun áhugaverðara nú eftir upptöku Lissa- bon-sáttmálans en það var áður. Á þingið safnast nú saman mjög hæfi- leikaríkt fólk, þar sem þingið hefur mun meiri áhrif nú en áður. Ég býst við að almenningur fari því að fylgjast bet- ur með, en með því að kjósa sína full- trúa getur almenningur einmitt haft áhrif. Ég held að sá möguleiki sé fyr- ir hendi að fólki verði sýnt fram á að þingið skipti máli og það mun um leið auka áhuga fólks á þinginu.“ Minnka áhrifin heima fyrir? Með auknum áhrifum Evrópuþings- ins, sem setur lög ásamt framkvæmda- stjórninni, er ekki úr vegi að spyrja hvort áhrif Evrópusambandsins eigi ekki eftir að yfirgnæfa völd ríkisstjórna og þjóðþinga aðildarríkjanna. „Ég tel að svo sé ekki. Við störfum á mismun- andi sviðum sem þurfa ekki endilega að skarast. Sum mál er einfaldlega betra að fjalla um á milliríkjagrund- velli, sem er það sem Evrópusam- starfið snýst um. Þar á ég við mál eins og umhverfisvernd eða málefni innri markaðarins, málefni sem ná í raun út fyrir landamæri ríkja. Vitaskuld eru önnur málefni sem verða alltaf til um- fjöllunar á innanríkisgrundvelli. Heil- brigðismál, menntunarmál og svo má lengi telja. Ég tel að stjórnvöldum að- ildarríkja stafi engin ógn af Evrópu- samstarfinu, það auðveldar aðeins samstarf á þeim sviðum sem eru við- eigandi hverju sinni.“ Ísland getur haft áhrif Evrópuþingið telur 736 þingmenn og þar starfa 20 fastanefndir. Sam- kvæmt Lissabon-sáttmálanum á hvert aðildar ríki aldrei færri en sex þing- menn, sem er sú tala þingmanna sem Ísland fengi ef samningur að aðild yrði samþykktur. Gæti Ísland þá búist við því að hafa áhrif innan þingsins? „Við verðum að muna að þingmenn starfa ekki sem fulltrúar landa sinna heldur sem fulltrúar stjórnmálasamtaka inn- an þingsins. Það veitir hverjum þing- manni stuðning til að afla sér upp- lýsinga um öll þau málefni sem hann vill. Einstök ríki geta sjaldnast fjallað um öll þau mál sem þeim þóknast, en innan ramma stjórnmálasamtakanna er það hins vegar mögulegt. Ekki má gleyma að smáríki kjósa sér yfirleitt nefndir þar sem fjallað er um mikil- vægustu málefni þeirra, og þar sem tilteknir þingmenn geta búist við að hafa mikil áhrif. Ég býst fastlega við því til dæmis, að íslenskur Evrópuþing- maður myndi vafalaust sitja í sjávarút- vegsnefnd. Þar sem Ísland yrði stærsta fiskveiðiþjóð sambandsins, ef af aðild verður, myndi sá þingmaður augljós- lega hafa burði til að hafa mikil áhrif. En auðvitað skipta einstaklingarnir sjálfir miklu máli, séu þeir kraftmikl- ir og duglegir getur hvaða þingmaður sem er haft mikil áhrif – sama hvaðan hann kemur. Það er að minnsta kosti mín reynsla.“ Næststærsta þing í heimi Kosið hefur verið til Evrópuþings í bein- um lýðræðislegum kosningum síðan árið 1979. Með upptöku Lissabon-sáttmál- ans hefur hlutverk þingsins öðlast meira vægi, sem er liður í tilraun ESB til að auka hlut lýðræðis innan sambandsins. Þingmenn eru 736 og á þinginu eru töluð öll 23 opinber tungumál Evrópusam- bandsins. Þingmenn starfa sem fulltrúar stjórnmálasamtaka en ekki sem fulltrú- ar ríkja sinna. Stjórnmálasamtökin eru lík stjórnmálaflokkum á þjóðþingum. Stærstu flokkarnir á Evrópuþinginu eru Evrópuflokkurinn (European People‘s Party), sem er mið-hægri flokkur sem líkja má við Sjálfstæðisflokkinn, og Bandalag demókrata og sósíalista, sem líkja má við Samfylkinguna. Þingið starfar í Strassborg og einnig í Brussel, auk þess sem fjársýsla og skjalageymsla er staðsett í Lúxemborg. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is „En auðvitað skipta einstaklingarnir sjálfir miklu máli, séu þeir kraftmiklir og duglegir get- ur hvaða þingmaður sem er haft mikil áhrif - sama hvaðan hann kemur. Diana Wallis Hefur verið Evrópuþingmaður síðan árið 1999 og varaforseti þingsins undanfarin þrjú ár

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.