Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Síða 19
Erlent | 19Helgarblað 4.–6. mars 2011
Ákæra hefur verið gefin út á hend-
ur Bradley Manning, óbreytta her-
manninum sem grunaður er um að
hafa lekið leyniskjölum bandaríska
utanríkisráðuneytisins og hersins
til uppljóstrunarsíðunnar Wikile-
aks. Ákæran er í 22 liðum og er hann
meðal annars sakaður um að „að-
stoða óvininn“, sem eru einar alvar-
legustu sakir sem hægt er að bera á
bandarískan hermann. Viðurlögin
við þeirri ákæru eru dauðarefsing og
fékk David Coombs, verjandi Mann-
ings, þær upplýsingar á miðvikudag
að saksóknari hersins myndi fara
fram á hámarksrefsingu. Síðar sama
dag kom þó yfirlýsing frá hernum,
þar sem því var lýst yfir að ef Mann-
ing yrði fundinn sekur – yrði hann
dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Naut hjálpar Lady Gaga
Ákæran sem gefin var út í vikunni
byggir á sjö mánaða rannsókn á
meintum glæpum Mannings, sagði í
yfirlýsingu frá hernum. Kemur þar í
ljós að yfirmenn Mannings í grunn-
þjálfun höfðu haft áhyggjur af and-
legu ástandi hans áður en hann var
sendur til Íraks árið 2009. Manning
brotnaði einu sinni niður þegar hann
var í Írak og segja þeir sem stóðu hon-
um næst að hann hafi í raun fengið
taugaáfall. Það var eftir áfallið sem
Manning tók að smygla leynigögnun-
um frægu, en hann starfaði við gagna-
greiningu í hernum. Hann smyglaði
gögnunum með því að mæta alltaf
til vinnu með ferðageislaspilara en í
honum var skrifaður diskur með Lady
Gaga. Þegar Manning var sestur nið-
ur fyrir framan tölvu hreinsaði hann
tónlist Lady Gaga af disknum og hlóð
niður leyniskjölum. Öryggisverðir við
tölvuverið höfðu engan grun um að-
gerðir Mannings.
Í slæmu andlegu ástandi
Manning var handtekinn í maí í fyrra
og hefur síðan þurft að dúsa í einangr-
un í hámarksöryggisfangelsi í Quant-
ico í Virginíuríki. Klefi hans er 180 sm
á breidd og 350 sm á lengd. Þar þarf
hann að dvelja öllum stundum fyr-
ir utan einn klukkutíma á dag. Þá má
hann hreyfa sig með því að ganga í
hringi innandyra, algerlega einn síns
liðs. Hann hefur aldrei hitt aðra fanga
og einu samskipti hans eru við fanga-
verði. Í klefa sínum má hann hafa
eina bók eða eitt tímarit og fær hann
að horfa á sjónvarp eina klukkustund
á dag, stundum lengur um helgar.
Hann er vakinn klukkan 5 á morgn-
ana en eftir það má hann ekki sofna
fyrr en um 8 að kvöldi. Fangaverðir
þurfa að ganga úr skugga um að hann
sé vakandi, með því að fá munnlega
staðfestingu á fimm mínútna fresti.
Mannréttindasamtök, þar á með-
al Amnesty International, hafa gagn-
rýnt aðbúnað Mannings. Hafi yfirvöld
grunað að hann væri við slæma and-
lega heilsu áður en hann var sendur
til Íraks ættu þau að geta ímyndað sér
hvernig andlegt ástand hans er nú.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
n Óbreytti hermaðurinn sem er talinn hafa lekið leyniskjölum til Wikileaks
hefur nú verið ákærður n Bandaríski herinn ætlaði að fara fram á dauða-
refsingu en Bradley Manning verður líklega dæmdur í lífstíðarfangelsi
MANNINGS BÍÐUR
LÍFSTÍÐARFANGELSI
„Ákæran er í 22
liðum, meðal
annars er hann sakaður
um að „aðstoða óvininn“.
Bradley Manning
Verður líklega dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi.
Tveir bandarískir hermenn liggja í valnum eftir skotárás:
Skotárás í Frankfurt
Tveir féllu í skotárás á flugvellinum
í Frankfurt í Þýskalandi á miðviku-
dag. Fórnarlömbin voru bandarískir
hermenn á leið til Rammstein-flug-
stöðvarinnar, höfuðstöðva banda-
ríska flughersins í Evrópu. Skotmað-
urinn var 21 árs Kosovo-Albani, Arif
Uka að nafni, en ekki er vitað hvað
honum gekk til með skotárásinni.
Málsatvik voru þau að nokkrir
hermenn, nýkomnir frá Bandaríkj-
unum, biðu eftir rútu flughersins fyr-
ir utan flugstöðina. Þegar rútan var
komin og mennirnir voru að stíga
um borð hóf Uka skothríð en hann
var með skammbyssu innanklæða.
Tveir féllu og tveir særðust alvarlega í
árásinni. Þegar Uka hafði klárað skot-
færi sín flúði hann inn í flugstöðvar-
bygginguna þar sem mikil skelfing
greip um sig. Lögreglumenn veittu
honum eftirför og var Uka handtek-
inn innan nokkurra mínútna. Fjöl-
margir urðu vitni að skotárásinni og
sögðu þeir að rúta flughersins hefði
verið öll þakin götum eftir byssukúl-
ur. Flugvöllurinn í Frankfurt er einn
sá fjölfarnasti í heimi, en þangað
hafa Íslendingar meðal annars flogið
reglulega um árabil.
Í fyrstu var óttast að um hryðju-
verkaárás hefði verið að ræða, en
nýlega minnkuðu Þjóðverjar við-
búnað sinn vegna yfirvofandi hættu
á hryðjuverkum. Í nóvember barst
þýska þinginu, Reichstag, sprengju-
hótun. Síðan þá hefur hryðjuverka-
hætta verið talin aðsteðjandi án
þess þó að nokkur hryðjuverk hafi
verið framin. Boris Rhein, inn-
anríkisráðherra sambandsríkis-
ins Hessen, sagði voðaverkið vera
„óskiljanlegan og hryllilegan glæp“.
Hann sagðist jafnframt ekki geta
sagt til um hvað Uka hefði gengið til
með árásinni. Barack Obama, for-
seti Bandaríkjanna, sagði á frétta-
mannafundi í Washington að hann
væri bæði „sorgmæddur og hneyksl-
aður“ yfir árásinni og vottaði hann
fjölskyldum fórnarlambanna sam-
úð sína.
Illa leikin rúta Sjá má gat eftir byssukúlu hjá glugga bílstjórans.
Beyoncé söng
fyrir Gaddafi
Poppsöngkonan Beyoncé Know-
les segist hafa gefið það fé, sem hún
þáði fyrir að koma fram á einkatón-
leikum fyrir Gaddafi-fjölskylduna,
í góðgerðastarfsemi. Beyoncé segir
nánar tiltekið að hún hafi látið féð
renna í neyðarsjóð handa fórnar-
lömbum jarðskjálftans á Haítí, sem
átti sér stað í byrjun síðasta árs. Það
var þó nokkrum dögum fyrr sem
hún söng fyrir Gaddafi, eða aðfara-
nótt nýársdags 2010. Beyoncé þáði
tvær milljónir dollara fyrir þjónust-
una, en það samsvarar um 240 millj-
ónum íslenskra króna. Tónleikarnir
fóru fram á eyjunni St. Barts í Kar-
íbahafinu, nema hvað?
Danir sleppa
sjóræningjum
Þrátt fyrir að hafa handsamað rúm-
lega 200 sómalska sjóræningja hafa
Danir einungis gert tilraun til að
sakfella fimm þeirra – og voru þeir
degnir fyrir dóm í Hollandi. Danski
sjóherinn sendi á sínum tíma her-
skip á slóðir sómalskra sjóræn-
ingja eftir að danskri skútu með sjö
manna áhöfn var rænt. Kenneth
Nielsen, aðmíráll í danska sjóher-
num, játaði þetta í viðtali við Poli-
tiken. „Við höfum sleppt um 200
sjóræningjum sem við höfum haft í
haldi á þessum slóðum.“ Danir hafa
nú kallað herskipið sem um ræð-
ir heim, þrátt fyrir að enn séu níu
danskir ríkisborgarar í haldi sóm-
alskra sjóræningja, segir Politiken.
Höfrungar í
hættu
Sífellt fleiri höfrungar drepast í Mex-
íkóflóa og skolar hræjum af þeim
næstum daglega upp á strendur
Bandaríkjanna. Er talið að olíulek-
inn mikli, sem varð eftir að bor-
pallurinn Deepwater Horizon sökk
í fyrra, sé ástæðan fyrir höfrunga-
harmleiknum. Næstum allir höfr-
ungarnir sem hafa fundist dauðir
eru aðeins kálfar og segja sumir vís-
indamenn að þeir gætu hafa fæðst
andvana. Náttúruverndarsamtök í
Louisiana-ríki í Bandaríkjunum eru
nú að rannsaka hræin en höfrunga-
dauðinn er talinn geta haft slæm
áhrif á ferðaþjónustu í ríkinu.