Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Síða 35
35M E N N I N G A R V E R Ð L A U N D V 2 0 1 0H E L G I N 4 . – 6 . M A R S 2 0 1 1 HEIÐURSVERÐLAUN Kristinn Sigmundsson segir röddina í fínu formi og að hann eigi nóg eftir. Hann hlakkar til að taka þátt í opnun Hörpu. Á flakki um heiminn í 20 ár Herdís Þorvalds-dóttir leikkona hlaut heiðursverð- laun Menningarverðlauna DV að þessu sinni. Það var Ögmundur Jónas son innanríkisráðherra sem afhenti Herdísi verðlaunin og hélt ræðu um ævi og störf þess- arar mögnuðu leikkonu henni til heiðurs. Herdís hefur stað- ið á sviði í hartnær 70 ár og er ein ástsælasta leikkona Íslands fyrr og síðar. Leiksigrar hennar hafa ekki bara verið í leikhúsum landsins heldur hefur hún leikið í ódauðlegum myndum eins og 79 af stöðinni, Atómstöðinni og Hafinu. Auk þess sem hún átti eftirminnilega frammistöðu nýlega í sjónvarpsþáttaröðinni Hamarinn sem sýnd var í Sjónvarpinu. Verst farna landið Þegar Herdís hafði þakkað fyrir sig eftir að hafa tekið við heiðursverð- laununum notaði hún tækifærið og vakti athygli á því málefni sem er henni sérlega hjartfólgið, landeyð- ingu á Íslandi. Þráðurinn var svo tekinn upp að nýju þegar blaðamað- ur DV náði tali af henni. „Þetta var óvænt uppákoma, ánægjuleg. Vegna þess að ég gat minnst á verkefni sem ég hef verið að vinna að,“ segir Herdís. „Ég hef skrifað ótal greinar í blöð síðustu 20, 30 ár um gróður- eyðingu á landinu okkar. Hvernig við höfum farið með það. Við eigum þann heiður að vera verst farna land af búsetu sem þekkist í Evrópu. En höldum samt áfram sama rányrkju- búskap enn þann dag í dag. Hvers vegna?“ Ömurlegt ástand Herdísi er málið svo hjartfólgið að hún vinnur nú að gerð heimildar- myndar um landeyðingu. „Ég er að gera heimildarmynd um þetta öm- urlega ástand á landinu og hvern- ig væri hægt að stöðva stöðug- ar skemmdir á gróðurríkinu. Mín von er að fólk átti sig á ástandinu og það spyrji sig: Eigum við halda svona áfram næstu 100 árin? Að halda ekki í við skemmdirnar vegna lausagöngu búfjár á landinu eða að breyta rányrkjubúskap í ræktun- arbúskap með búfé í girðingum í vörslu eigenda sinna svo að landið fái frið til að græða sárin.“ Herdís segir DV hafa verið blaðið sem hafi vakið athygli á málum sem enginn annar vilji ræða og að nú sé kominn tími til að sinna þessu háalvarlega máli. „Þetta blað hefur oft vakið at- hygli á því sem miður fer í þjóðfé- laginu og á að reyna að fela. Og það er vel. Kannski sendi ég ykkur grein með frekari skýringum á ástandinu á landinu.“ Alls staðar girt af Herdís segir að ástandið sé svo al- Herdís Þorvaldsdóttir leikkona hlaut heiðurs verðlaun Menn- ingarverðlauna DV á miðvikudag. Herdís notaði tækifærið til að vekja athygli á heimildar mynd sem hún er að gera um gróður- eyðingu á Íslandi. Hún segir landsmenn girta af á meðan skepnur hlaupi lausum hala um og tæti upp landið. Herdís seldi málverk eftir Gunnlaug Scheving til þess að fjármagna myndina sem hún gerir með hjálp barnabarna sinna. Fjallkonan hrópar á vægð varlegt að á 100 árum hafi Land- græðslunni ekki tekist að snúa þróuninni við. „Landgræðslan er búin að starfa hér í 100 ár. Hún átti 100 ára afmæli fyrir þremur árum. Landið var bókstaflega að fjúka hér út á haf þegar hún var stofnuð. Á þessu afmæli var þetta tekið upp, hvað landgræðslan hefur fengið mikla fjármuni og hvað hún hefði áorkað á þessum hundrað árum. Þeir geta ekki sannað það að á 100 árum hafi þeir haft undan. Að þeir vinni á. Skemmdirnar eru það mikl- ar og stöðugar að þeir hafa bókstaf- lega ekki undan. Eigum við að halda svona áfram í 100 ár?“ Herdís segir að skipulagið sé á hvolfi. „Gaddavírsgirðingar eru hér þvers og kruss um landið sem við fólkið höfum borgað. Þúsundir kíló- metra eftir vegum. Svo er ekki bara kostnaður við að koma þessu upp heldur er viðhaldið óheyrilegt. Þetta er gert í staðinn fyrir að girða bara af skepnurnar og að eigendurnir beri ábyrgð á þeim. Að þær séu girtar af í staðinn fyrir fólkið í landinu. Þá gjörbreyttist þetta allt og landið gæti farið að gróa. Við gætum farið að losna við þennan gaddavír. Þetta er orðið bara eins og flóttamannabúðir. Við erum alls staðar girt af.“ Skólarnir hafa brugðist Að mati Herdísar hafa skólar lands- ins brugðist þeirri skyldu sinni að fræða landsmenn um hversu al- varlegt ástandið sé í raun og veru. „Skólarnir hafa algjörlega brugðist í þessum efnum. Ég heyri það. Fólk bara veit ekkert af þessu. Það fer allt á annan endann út af einu álveri fyrir austan sem er 0,5 prósent af landinu. En þó að landið okkar fjúki út á haf í tonnatali á hverju ári, þá segir enginn neitt.“ Herdís segir kosningarkerfið í landinu spila þar stóra rullu. „Þetta virðist alltaf vera eitthvert feimnis- mál. Það má ekki snerta við bænd- unum. Því þeir eru fjögur eða fimm atkvæði á móts við okkur. Atkvæða- jafnvægið er svo skelfilegt. Þess vegna þorir enginn flokkur að hrófla við þeim því þá hóta þeir bara að kjósa ekki þann flokk. Þeir eru svo hræddir um atkvæðin sín.“ Fjallkonan hrópar á vægð Herdís, sem 87 ára, lætur aldurinn ekki stoppa sig í því að gera heim- ildarmyndina sem ber nafnið Fjall- konan hrópar á vægð. „Ólafur Egill Ólafsson, dóttursonur minn, hefur verið mér innan handar. Hann fer yfir handritið og hjálpar mér. Svo á ég dótturdóttur sem er lögfræðingur og hún hjálpar mér með fjármálin.“ Myndin hefði ekki orðið að veru- leika ef barnabörn Herdísar hefðu ekki lagt henni lið. „Ég nefndi þetta. Að mig langað svo mikið til að gera þessa mynd. Svo seldi ég stóra Scheving-mynd sem ég átti og fjár- magnaði þetta þannig. En ég hefði ekki farið út í þetta nema út af því að þau sögðu: Amma, ég skal hjálpa þér með þetta.“ Myndin var tekin upp síðasta sumar og er nú í klippingu. „Ég hugsa að ég sýni myndina nú ekki í sumar en svona með haustinu. Sjónvarpið ætlar að sýna hana, sem er frábært.“ Fullt af frábærum leikurum Herdís hefur undanfarið ár farið með hlutverk móður Jóns Hregg- viðssonar í Íslandsklukkunni. Þetta eru tímamót, bæði fyrir Þjóðleikhús- ið og fyrir Herdísi. Hún fór nefnilega einnig með hlutverk í Íslandsklukk- unni fyrir rúmum 60 árum þegar leikhúsið var stofnað. Þetta er því fyrsta verk Herdísar og það síðasta. „Ég get varla ímyndað mér það. Að leika meira héðan af. Þetta er svona lokaverkefni og ég er mjög fegin að geta klárað það. Þá hef ég skilað mínu.“ Hún segir mikinn mun á leiklist- inni í dag og þegar hún var að stíga sín fyrstu skref. „Á þessum árum, í kringum 1950, þá þekkti maður allt þetta listafólk. Bæði málarana og leikarana. Í dag er þetta fólk í hundraðatali. Það hafa útskrifast átta leikarar annað hvert ár í öll þessi ár svo þú getur ímyndað þér hver fjöldinn er orðinn. Maður get- ur ekki orðið fylgst með öllu þessu nýja fólki. Það er orðið mjög vel skólað og meira fagfólk en við vor- um á sínum tíma. Það er bara eitt sem ég hef ekki verið nægilega ánægð með og það er framsögnin. Fólk er farið að tala meira saman eins og það gerir bara úti á götu. En stórum í leikhússal þurfa allir að heyra. Þetta er ekki há- vaði heldur að taka vel utan um svo allir heyri.“ Herdís segir dásamlegt hversu mikið af frábærum leikurum þjóðin eigi í dag. „Leikhúsin eru uppfull af frábæru fólki. Og nú er Harpa að koma. Og allir hrópa húrra. Það er fínt,“ segir Herdís og hlær að lokum. Æviágrip Herdís Þorvaldsdóttir er þjóðþekkt fyrir hlutverk sitt á leiksviðinu síðustu áratugina. Hún hefur verið einn af burðarleikurum þjóðarinnar í meira en hálfa öld og fært íslensku þjóðinni stórkostlegar gjafir. Herdís hóf leiklistarferil sinn hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1941, eða fyrir 69 árum. Leikferill Herdísar spannar því orðið sjötíu ár eða lengur en nokkurs annars íslensks leikara fyrr eða síðar og á ferli sínum hefur hún leikið yfir 120 hlutverk í Þjóðleikhúsinu. Herdís var fastráðinn við Þjóðleikhúsið frá upphafi og hefur því verið hluti af leikarahópi Þjóðleikhússins í þau rúmu sextíu ár sem leikhúsið hefur starfað. Fyrsta hlutverk hennar var Snæfríður í leikgerð Íslandsklukkunnar eftir Halldór Laxness og Lárus Pálsson og á næstu árum lék hún fjölda stórra hlutverka á sviði leikhússins. Herdís hefur aldrei kvatt sviðið eða hætt að þroskast í list sinni. Þá hefur hún leikið mikið í útvarp og sjónvarp og á síðari árum í kvikmyndum. Og enn stendur Herdís á sviðinu, nú síðast í hlutverki móður Jóns Hreggviðssonar í leikgerð Benedikts Erlingssonar á Íslandsklukkunni. Herdís hefur einnig verið afkastamikill leikari í útvarpi og á seinni árum áberandi í hlutverkum á hvíta tjaldinu. Herdís Þorvaldsdóttir hefur séð tvenna tíma í íslenskri leiklistarsögu. Þegar hún kom fram var ekkert atvinnuleikhús til í landinu og mjög margir höfðu megnustu ótrú á slíku. Atvinnuleikari var jafnvel háðsyrði á götum Reykjavíkur. Herdís var í hópi þeirra ungu leikara sem tóku þeirri áskorun sem í því fólst að þjóðin eignaðist atvinnuleikara og hefur aldrei brugðist þeim skyldum sem því fylgdu. Í fagmannlegum vinnubrögðum hefur hún orðið yngri leikurum sönn fyrirmynd, ekki síst í meðferð íslenskrar tungu sem henni hefur jafnan verið mjög hugleikin, enda er hún einn af okkar bestu ljóðaflytjendum. Herdís og Ögmundur Ráðherrann afhenti Herdísi heiðurs - verðlaunin. 60 ár í Þjóðleikhúsinu Herdís í sínu síðasta hlutverki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.