Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Page 44
44 | Fókus 4.–6. mars 2011 Helgarblað
Carmen sýnd á Akureyri og í Kringlubíói:
Ópera í þrívídd
Á laugardaginn verður í fyrsta skipti
á Íslandi sýnd ópera í þrívídd en
það eru Sambíóin sem standa fyrir
sýningunum. Ein ástsælasta ópera
allra tíma, Carmen, verður frum-
sýnd í þrívídd á laugardagskvöldið.
Carmen er ein allra stærsta ópera
sögunnar en hún er eftir Georges
Bizet.
Upphaflega var þetta samvinnu-
verkefni RealD og Konunglegu óp-
erunnar í Lundúnum en upplifunin
ætti að verða mögnuð fyrir alla unn-
endur óperunnar. Með þrívíddar-
tækninni verður nú hægt að sökkva
sér dýpra en nokkru sinni áður í
þessa spennandi óperu um ástir, af-
brýðisemi og svik.
Carmen í þvívídd verður sýnd frá
og með fimmta mars og verður boð-
ið upp á skjátexta á ensku, frönsku,
spænsku, þýsku, portúgölsku, ít-
ölsku og japönsku þar sem það á
við.
Í fréttatilkynningu frá Sambíó-
unum segir: „Carmen í þrívídd er
einstakur viðburður, sem státar af
einhverri dáðustu óperutónlist sem
samin hefur verið, í flutningi nokk-
urra bestu söngvara heims. Þetta
er tilvalinn viðburður fyrir þá sem
hafa dálæti á óperutónlist jafnt og
fyrir þá sem eru að kynnast henni í
fyrsta skipti.“
Sæti á sýningarnar verða núm-
eruð en heimsfrumsýningin verður
í Kringlubíói og á Akureyri klukk-
an 17.00 á laugardaginn. Þrjár aðr-
ar sýningar verða svo í boði. Ní-
unda mars klukkan 18.00, 12. mars
klukkan 17.00 og síðasta sýningin
verður svo 26. mars klukkan 17.00.
Seinni þrjár sýningarnar eru allar í
Kringlubíói.
Hvað ertu að gera?
mælir með...
LEIKVERK
Nei, ráðherra!
„...frammistaða
leikenda allmisjöfn.
Sumir misstu sig í
ofleik; aðrir héldu sig
betur á mottu skýrrar
persónusköpunar.“
Jón Viðar Jónsson
KVIKMYND
127 Hours
„Frábærlega raunsönn og frumleg mynd
sem á allar óskarsverðlaunatilnefningarnar
fyllilega skildar.“
Valgeir Örn Ragnarsson
LEIKVERK
Ballið á
Bessa-
stöðum
„Sem bókmenntaverk
er leikritið ekki nema
upp á svona tvær stjörnur, ef þá það.
Sýningin slagar hins vegar hátt í fjórar.“
Jón Viðar Jónsson
mælir ekki með...
KVIKMYND
How Do You
Know
„Fín mynd til að
steingleyma.“
Erpur Eyvindarson
Gísli Einarsson, dagskrárgerðarmaður og
nýrkrýndur sjónvarpsmaður ársins
Á hvaða tónlist ertu að
hlusta núna?
„Það glamrar hérna einhver safndiskur
af klassískum verkum fyrir imba. Svona
klassísk verk fyrir byrjendur. Ég læt þetta
rúlla í tölvunni svona við og við.“
Hvaða tímarit eru í uppáhaldi og
hvers vegna?
„Það er nú bara Andrés önd. Hjá Andrési
önd má finna alla þá heimspeki sem í einum
manni er að finna.“
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
„Ætli ég setji ekki bara tærnar upp í loftið.
Svo kíki ég kannski í sund í Borgarnesi og fæ
mér jafnvel einn öl ef þannig liggur á mér.“
Hvaða bækur eru í
uppáhaldi hjá þér?
„Núna er það Hringnum lokað eftir Michael
Ridpath. Þetta er erlend spennusaga sem
gerist á Íslandi í fortíð og nútíð. Svo er ég
ávallt með Íslandsatlasinn á skrifborðinu.
Ég verð að glugga í hann við og við, svona
starfsins vegna. Annars er ég í vondum
málum.“
Andrés önd
fullur af heimspeki
Ný upplifun
Carmen í 3D.
Helgi Björnsson mun á minn-ingartónleikum um Hauk Morthens syngja lag sem
margir hafa veigrað sér við að
syngja, Til eru fræ. „Það stoppar
mig ekki af, þetta er svo fallegt lag,
það á að heyrast,“ segir Helgi. Tón-
leikarnir fara fram föstudagskvöld-
ið 4. mars í Salnum í Kópavogi.
Helgi segist hafa verið heillað-
ur af Hauki Morthens í langa tíð og
að hann sé hans helsta fyrirmynd.
„Haukur var einstakur söngvari
og það er erfitt að feta í hans fót-
spor, reyndar er það ómögulegt en
það er mér að sama skapi kært að
heiðra minningu hans með þess-
um hætti.“ Helgi hefur ávallt verið
hrifinn af tónlist frá árunum 1950–
1960 og á tónleikunum mun hann
syngja helstu lögin sem Haukur
gerði fræg á sínum tíma.
Fleiri plötur á leiðinni
Helgi Björnsson er mikilvirkur í
söngnum þessa dagana því auk þess
að heiðra Hauk Morthens stefnir
hann á að gefa út þriðju plötu Reið-
mannanna í sumar. Hann er að auki
með önnur lög í kollinum sem hann
ætlar að gefa sér tíma til að vinna úr.
„Vinsældir Reiðmannanna í sumar
komu okkur þægilega á óvart. Plat-
an seldist vel og það er alltaf gam-
an að því. Við gefum út okkar þriðju
plötu í sumar og vonandi verður
hún jafnfarsæl.“
Kemur enn að starfi
Admiralspalast í Berlín
Það er þó ekki bara söngurinn sem
á hug hans því Helgi á enn hlut í
leikhúsinu Admiralspalast í Berl-
ín og kemur enn að starfi leikhúss-
ins og hugmyndavinnu þótt hann
sé dottinn úr daglegum rekstri þess
en eins og þekkt er dró Helgi sig úr
rekstrinum eftir efnahagshrunið og
tapaði umtalsverðum peningum á
uppfærslum leikhússins. Leikhús-
ið er farsælt og Helgi hefur gaman
af því að tengjast því enn sem hlut-
hafi. „Ég tek ekki lengur þátt í dag-
legum rekstri leikhússins sem slík-
um, sem hluthafi fæ ég þó að koma
að hugmyndavinnu tengdri leik-
húsinu og hef ákaflega gaman af
því.“ Helga þykir ákaflega vænt um
borgina og dvelur þar um vikutíma
í hverjum mánuði. „Berlínarborg
er alveg yndisleg borg og mér líður
afskaplega vel í henni. Hér er mikil
saga og hér er afslappað andrúms-
loft. Ég er alltaf með annan fótinn í
Berlín og djöflast þar eitthvað. Þetta
Til eru fræ
Helgi Björnsson mun á minningartónleikum um
Hauk Morthens syngja lag hans Til eru fræ sem
margir söngvarar hafa veigrað sér við að syngja enda
samofið persónu Hauks. Helgi lætur það ekki stoppa
sig: „Þetta er svo fallegt lag, það á að heyrast.“
Mottu-
mars
Nonni Quest og Beta í Kristu styðja við Mottumars og fengu þau
25 nafntogaða karlmenn til liðs við sig, alla með mottu. Strák-
arnir í Illusion tóku síðan þessar flottu portrettmyndir af þeim
sem verða til sýnis í Kringlunni. Hægt er að festa kaup á þessum
myndum en ágóðinn rennur til Krabbameinsfélagsins. Aðalbjörn Tryggvason Kristján Kristjánsson Pétur Örn Guðmundson
Um Hauk Morthens
Óumdeilt er að Haukur Morthens hafi verið
einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar.
Haukur fæddist 17. maí 1924 í Reykjavík,
sonur Edvards Morthens og Rósu Guð-
brandsdóttur.
Haukur söng fyrst með kór Miðbæjarskóla
sem barn. Engum duldust hæfileikar hans
og hann helgaði sig söngnum alla sína ævi.
Síðasta söngskemmtun hans var á nýársdag
1992 en skugga bar á þá skemmtun því
Haukur var þá orðinn mjög veikur og lést
skömmu síðar.
Haukur var ekki bara vinsæll á Íslandi, ferðaðist með eigin hljómsveit og aflaði
sér mikilla vinsælda í Danmörku og Færeyjum. Haukur var sæmdur riddarakrossi
fálkaorðunnar og æðstu orðu Góðtemplarareglunnar á Íslandi og var bæði vel liðinn
og virtur.
Haukur var bindindismaður og þótti góð fyrirmynd í sinni stétt. Kannski var það
einmitt þess vegna sem hann var svo afkastamikill og úthaldsgóður en alls er talið
að hann hafi tekið upp allt að fjögur hundruð lög þótt ekki séu þau öll aðgengileg
aðdáendum hans.
Plötur Hauks eru eftirsóttir safngripir og meðal hans heitustu aðdáenda eru Syk-
urmolarnir sem léku oft lög með Hauki Morthens í upphafi tónleika sinna. Sigtryggur
Baldursson hefur löngum byggt sinn söngstíl og lagaval á Hauki Morthens og Helgi
Björnsson heiðrar hann nú á tónleikum í Salnum laugardagskvöldið 5. mars.
Helgi mun á minningartónleikum syngja helstu lögin sem Haukur gerði fræg á sínum
tíma, þar á meðal Til eru fræ sem margir söngvarar hafa veigrað sér við að syngja
enda samofið persónu Hauks.Þykir vænt um Berlín Helgi dvelur þar
eina viku í hverjum mánuði. MYND HÖRðuR sVEINssoN