Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Side 45
Fókus | 45Helgarblað 4.–6. mars 2011
Hárbeitt og fjörug dansveisla í Borgarleikhúsinu:
Kraftmikill dans og sirkuslistir
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir
dansveisluna Sinnum þrír í kvöld á
Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. Sýnd
verða þrjú ólík verk á einu kvöldi og
munu áhorfendur upplifa kraftmik-
inn dans, ærslafullan kabarett og
sirkuslistir. Fyrsta verkið ber heitið
Grossstadtsafari og er nýtt verk eft-
ir Jo Strömgren sem hefur áður unn-
ið með Íslenska dansflokknum. Hann
er höfundur Grímuverðlaunaverks-
ins Kvart sem dansflokkurinn hefur
sýnt hérlendis sem og víða erlendis
og fengið frábæra dóma. Verkið White
for Decay er eftir Sigríði Soffíu Níels-
dóttur sem kemur nú til liðs við ÍD í
fyrsta sinn. Sigríður er ungur dans-
höfundur sem hefur vakið mikla at-
hygli fyrir verk sín þar sem hún bland-
ar gjarnan myndlist við dans. Að
lokum er það Heilabrot eftir tvíeyk-
ið Steinunni og Brian en barneign-
ir, ástarsorg, sjálfsálit, lýtaaðgerðir og
glamúrstílistar eru meðal þess sem
ber á góma í þessu grátbroslega verki.
Steinunn Ketilsdóttir segir þau Brian
hafa fengið hugmyndina að verkinu
í hugmyndavinnu fyrir djammviku
haustið 2009 en þá var það kynnt sem
verk í vinnslu. „Þetta er ólínuleg saga
margra aðila sem tvinnast saman í
eina heild. Hver karakter í verkinu er
að glíma við sitt og við fáum innsýn í
heim þeirra. Er heimur þeirra raun-
verulegur eða óraunverulegur? Við
rýnum í ýktar tilfinningar þeirra og
veltum upp spurningum um hvernig
við erum lituð af samfélaginu.“
Hvað er að gerast?
n Margrét syngur
Tjarnarbíó og Majónes leikhúsbar bjóða
til nokkurra viðburða á næstunni þar sem
boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá
ásamt hlaðborði í sal Tjarnarbíós. Munu
viðburðirnir heita Stundin. Fyrsta kvöldið
er núna á föstudagskvöld en þá mun
stórsöngkonan Margrét Eir vera með
Söngleikjastund. Fyrir sýninguna munu þær
Áslaug Snorra og Anna Bogga galdra fram
suðrænt hlaðborð. Húsið er opnað klukkan
18.30 fyrir matargesti en sýningin sjálf hefst
klukkan átta.
n Dansað á Nasa
Hinn magnaði Alex Metric sem kom sá og
sigraði á síðustu Iceland Airwaves-hátíð
verður í brjáluðu stuði á Nasa á föstudags-
kvöldið. Alex Metric hefur verið að slá í gegn
um alla Evrópu með slagara sínum Open
Your Eyes. Tónleikarnir hefjast klukkan
23:59 á föstudagskvöldið og standa fram
eftir nóttu. Miðinn kostar 1.500 krónur en
hægt er að nálgast einn slíkann á miði.is.
n Wacken Metal Battle á Sódómu
Wacken Open Air er stærsta og virtasta
þungarokksfestival í heiminum og hefur
verið haldið sleitulaust síðan 1990. Árið
2004 stofnaði festivalið til hljómsveitar-
keppni, Wacken Metal Battle. Keppnin hefur
vaxið jafnt og þétt frá 2004 og í ár munu 30
þjóðir halda undankeppnir í sínu landi og
verður Ísland þar á meðal í þriðja sinn. Sig-
ursveitin í hverju landi fyrir sig fyrir sig hlýtur
að launum þátttökurétt í lokakeppninni á
Wacken. Sveitirnar sem taka þátt í ár eru:
Angist, Atrum, Gruesome Glory, Ophidian
I, Gone Postal og Carpe noctem ásamt
þremur gestaveitum, Skálmöld, Wistaria
og Moldun. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og
kostar 1000 krónur inn.
n Litli tónsproti Sinfó
Litli tónsprotinn er hluti af frábærri
tónleikaröð Sinfóníuhljómsveitarinnar en
hún er áskrift að góðri skemmtun fyrir alla
fjölskylduna og gefur yngstu tónlistarunn-
endunum einstakt tækifæri til að kynnast
töfrum tónlistarinnar á klukkutímalöngum
tónleikum. Þar eru sígild ævintýri spiluð en
meðal annars verður töfraflautan í styttri
útgáfu og með sögumanni. Tónleikarnir
hefjast klukkan 14.00 en miðinn kostar
1.700 krónur. Hægt er að kaupa einn slíkan
á miði.is.
n Guðrún heiðrar Ellý
Söngkonan glæsilega Guðrún Gunnars-
dóttir heldur tónleika í Hofi á Akureyri á
laugardagskvöldið. Tónleikarnir verða til
heiðurs Ellý Vilhjálms sem hefði orðið 75
ára í desember síðastliðnum. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20:00 en miða er hægt að
kaupa á miði.is. Verðið er 3.900 krónur.
n Eivör og vinir í Austurbæ
Á sunnudagskvöldið verða magnaðir tón-
leikar í Austurbæ þar sem söngkonan Eivör
Pálsdóttir mun spila sína frábæru tónlist
ásamt vinum sínum. Ávallt er uppselt á
tónleika Eivarar sem á ótal aðdáendur hér
á landi. Tónleikarnir eru eins og áður segir í
Austurbæ á sunnudagskvöldið og hefjast
klukkan 20.00. Miðinn kostar 3.300 krónur
en hægt er að næla sér í miða á miði.is.
04
mar
Föstudagur
05
mar
Laugardagur
06
mar
Sunnudagur
Til eru fræ
Hallgrímur J. Hallgrímsson Nonni Quest Erpur Ey vindarson Sigurður Guðmundsson Haukur Holm
er skemmtileg borg og
mér þykir vænt um hana,
sérstaklega vegna þess að
ég á marga vini þar í dag.“
Duran Duran-aðdá-
endur komast í feitt
Helgi og eiginkona
hans, Vilborg Hall-
dórsdóttir, búa í
Reykjavík en Helgi
leigir íbúð í Berl-
ín þar sem hann
dvelur eins og
áður segir eina
viku í mánuði. „Ég
þarf að geta átt hér
fastan stað þegar verk-
efnin eru mikil í leikhúsinu.
Næst á döfinni er uppistand með
Helge Sneide. Íslendingar vita lík-
lega ekki hver það er en hann mætti
kalla eins konar Ladda Þýskalands,“
segir Helgi og skellir upp úr. Helgi
nefnir að ótrúlegustu uppákomur
séu haldnar í þessu litla en virðu-
lega leikhúsi í Berlín, í fyrra hafi
Muse haldið tónleika í leikhúsinu
sem hafi verið mikil upplifun og í
maímánuði gefst hörðum aðdáend-
um hljómsveitarinnar Duran Duran
tækifæri til þess að hlýða á sveitina
spila í sal leikhússins. „Þetta verða
spennandi tónleikar í leikhúsinu
í maí og eflaust á mörgum eft-
ir að þykja eftirsóknarvert að
sjá þessa sveit spila í 1.700
manna sal. Þetta er leikhús
þar sem leikhúsupplifun-
in er oft brotin upp með
skemmtilegum hætti.“
Kristjana@dv.is
Heiðrar minningu
Hauks Morthens
Helgi Björnsson
syngur þekkt lög Hauks
Morthens á tónleikum
í Salnum í Kópavogi,
föstudagskvöldið
5. mars. MyND Hörður
SvEiNSSoN
Kabarett, sirkuslistir og hárbeittur
kraftmikill dans Sýnd verða þrjú ólík
verk á einu kvöldi og munu áhorfendur
upplifa kraftmikinn dans, ærslafullan
kabarett og sirkuslistir.