Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Síða 62
Davíð Smári Helenarson, oftast kall-
aður Dabbi Grensás, opnar nýjan
skemmtistað um helgina. Staðurinn
hefur hlotið nafnið Vestur en hann er
í eigu Davíðs og Armandos Luis Ro-
driguez. Báðir eru þeir í Semper Fi-
klúbbi Jóns Hilmars Hallgrímssonar,
sem er betur þekktur sem Jón stóri.
Klúbburinn er staðsettur í Reykjavík.
Davíð Smári hefur reglulega brugð-
ið fyrir í fjölmiðlum en þá yfirleitt
vegna frétta af dómsmálum tengd-
um honum. Hann hefur hlotið þó
nokkra dóma fyrir líkamsárásir og hef-
ur þurft að sitja suma þeirra af sér á
Litla-Hrauni. Hann er hvað þekktast-
ur fyrir að hafa ráðist á landsliðsfót-
boltamanninn Hannes Þ. Sigurðsson
en hann var líka ásakaður um að hafa
veist að knattspyrnukappanum Eiði
Smára Guðjohnsen í miðbæ Reykjavík-
ur en bar af sér þær sakir í sjónvarps-
viðtali. Þá er hann líka þekktur fyrir að
hafa ráðist á knattspyrnudómara þegar
hann keppti ásamt utandeildarliði sínu
Dynamo Gym 80 sumarið 2008.
Semper Fi-klúbburinn var stofnað-
ur í kringum áramótin og var ætlunin
að hann kæmi sér upp klúbbhúsi. Dav-
íð Smári sagði nýverið á Facebook-síðu
Jóns Hilmars „það styttist í salinn hjá
okkur jón minn“. Í samtali við DV þegar
Semper Fi var stofnað sagði Jón Hilm-
ar að klúbburinn væri opinn öllum og
dæmdum mönnum yrði ekki vísað frá.
„Brotamenn mega alveg koma, alveg í
tonnatali maður. Það eru nokkrir slík-
ir inni í hópnum núna. Það er ekkert
að því. Árni Johnsen er velkominn. Við
erum með afbrotamenn alls staðar, við
getum ekki mismunað í þessum stóra
hópi,” sagði Jón Hilmar.
62 | Fólkið 4.–6. mars 2011 Helgarblað
Skemmtistaðurinn Vestur opnaður um helgina:
DABBI GRENSÁS OPNAR SKEMMTISTAÐ
Fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir er
komin til landsins og er farinn að skrifa
í Fréttatímann. „Ég er nú bara farin að
skrifa í blöð,“ segir hún á Facebook-síð-
unni sinni. Á Facebook gantast hún líka
við barnsföður sinn. Þegar hann veltir
því upp hvort að hann eigi að reyna
við nýju stelpuna svarar Þóra: „nýja
stelpan hefur geðveikt skap og nennir
ekki svona vitleysum“. Þóra er reynd
fjölmiðlakona og vakti verðskuldaða
athygli í Kastljósinu áður en hún flutti til
Noregs, þar sem hún starfaði einmitt í
fjölmiðlum.
Að vinna með
fyrrverandi
Tónlistarmaðurinn Þorgrímur
Haraldsson, oftast kallaður Toggi, ætlar
að halda görðum bæjarins í toppstandi í
sumar. Hann er rekstrarstjóri garðaþjón-
ustunnar Hreinir garðar sem sérhæfir sig
í viðhaldi og snyrtingu garða á stórhöf-
uðborgarsvæðinu. Toggi er þekktur fyrir
allt annað en garðyrkjustörf en hann
hefur getið sér gott orð sem tónlistar-
maður, myndlistamaður og bloggari.
Hann hefur verið iðinn við að semja jafnt
fyrir sig og aðra tónlistarmenn, en hann
á stóran þátt í lögum sem hafa slegið
í gegn í flutningi Páls Óskars á síðustu
mánuðum og árum.
Toggi í
garðyrkju
Dabbi Grensás Opnar nýja skemmti-
staðinn Vestur þar sem Risið var um
tíma. MYND BJÖRN BLÖNDAL
Risið Davíð Smári opnar skemmtistað á
Tryggvagötunni. MYND RÓBERT REYNISSON
Ég er að því alla daga sko. Svo lengi sem þú ert líkamlega hraustur og andlega heil-
brigður og jákvæður þá er þetta
auðvitað það flottasta og skemmti-
legasta sem hægt er að hugsa sér,“
segir tónlistarmaðurinn Bubbi
Morthens um bleyjuskipti en hann
er blessunarlega ekki laus við þær í
bráð. Bubbi á nefnilega von á sínu
öðru barni með fegurðardrottning-
unni Hrafnhildi Hafsteinsdóttur en
þetta staðfesti hann í samtali við
DV.
„Við eigum von á barninu í ágúst,“
segir Bubbi sem er 54 ára gamall
en Hrafnhildur er 35 ára. Fyrir eiga
þau hjónin dótturina Dögun París
sem er nýorðin tveggja ára. Bubbi
og Hrafnhildur byrjuðu saman
snemma árs 2006 og giftu sig tveim-
ur árum síðar. Þau búa í paradísinni
við Meðalfellsvatn í Hvalfirðinum
þar sem Bubbi ræktar meðal ann-
ars rósir.
Bubbi var hæstánægður með líf-
ið þegar blaðamaður DV náði tali af
honum. Hann vildi þó lítið tjá sig en
sagði þó að allir aðstandendur fjöl-
skyldunnar væru himinlifandi með
tíðindin.
„Ég vil helst segja sem minnst
um þetta en það eru allir standandi
hamingjusamir og glaðir og Guð er
góður,“ segir Bubbi. „Við eigum bara
von á barninu í ágúst og ég er alveg í
skýjunum með þetta.“
tomas@dv.is
skipta um bleyjur
Ekki of gamall til að
Bubbi Morthens:
n Bubbi Morthens á von á sínu öðru barni með fegurðardrottningunni Hrafnhildi Hafsteins-
dóttur n Allir hamingjusamir og glaðir n Eiga von á barninu í ágúst n Að skipta um bleyjur
er það skemmtilegasta sem hægt er að hugsa sér, segir Bubbi
Nýtt barn á leiðinni Bubbi á von á sínu
öðru barni með Hrafnhildi Hafsteinsdóttur.
MYND RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR
Flott par Bubbi og
Hrafnhildur.
MYND BJÖRN BLÖNDAL