Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2011, Page 64
Hamborg-
arafa-
brikku-
búllan!
Verndarengill Leifs
n Knattspyrnuvefsíðan fótbolti.
net birti á fimmtudaginn áhuga-
verðan pistil þar sem fjallað er um
„huldumanninn Albert Örn“. Albert er
karakter á netinu sem kemur ávallt
Leifi Garðarssyni, fyrrverandi þjálfara
Víkings, til varnar á spjallborði félags-
ins og hrósar honum
óspart sem þjálfara.
Albert bjó síðan til
Facebook-síðu þar
sem umræðuefn-
ið var aðallega
Leifur en sú síða
hvarf um leið og
það kvisaðist út
að pistillinn væri
á leið í birtingu.
Gríðarleg
umræða um
pistilinn mynd-
aðist á Facebook,
sérstaklega hjá
mönnum tengdum
boltanum, en
þar voru flestir
sammála um að
Albert væri Leifur
sjálfur. Það er þó
alls ekki sannað.
Simmi og
Jói á Búllunni
n Viðskiptavinum Hamborgarabúll-
unnar við Geirsgötu brá talsvert þeg-
ar inn gengu Sigmar Vilhjálmsson og
Jóhannes Ásbjörnsson, betur þekktir
sem tvíeykið Simmi og Jói. Eins og
kunnugt er reka þeir félagar Ham-
borgarafabrikkuna og hefðu því flestir
búist við að þeir snæddu sína ham-
borgara á heimavelli. Viðskiptavinur
með húmorinn í lagi spurði þá félaga
hvort þeir væru ekki að fara húsavillt.
„Síður en svo,“ svaraði Sigmar
brosandi. „Við erum nákvæmlega á
réttum stað.“ Þeir félagar pöntuðu sér
hvor sína steikarsamlokuna og fengu
sér báðir kokteilsósu og bernaise til
að dýfa frönskunum í.
Troðfullt hjá Tobbu
n Troðfullt var út úr dyrum í frum-
sýningarteiti Tobbu Marinósdóttur á
skemmtistaðnum Austur á fimmtu-
dagskvöld, en fyrsti þátturinn af sjón-
varpsþáttunum Makalaus fór í loftið
fyrr um kvöldið. Bókin sló rækilega í
gegn í fyrra og hvert upplagið á fætur
öðru seldist upp. Margir hafa beðið
þess með mikilli eftirvæntingu að sjá
aðalsögupersónu bókarinnar, Lilju
Sigurðardóttur, öðlast líf á skjánum
og því má búast við að þættirnir gefi
bókinni ekkert eftir í vinsældum.
Það er leikkonan og góðvinkona
Tobbu Lilja Katrín
Gunnarsdóttir sem
fer með hlutverk
nöfnu sinnar í
þáttunum og
þykir gera
það listavel
að mati
fjölmargra
aðdáenda
sem séð
hafa fyrsta
þáttinn.
Ögmundur Jónasson innanríkisráð-
herra ætlar að láta kanna möguleika
á því að menning og listir fái að ein-
hverju leyti að njóta tekna sem Ís-
lensk getspá hefur af lottóinu í land-
inu. Þetta kom fram í máli hans við
afhendingu Menningarverðlauna DV
síðastliðinn miðvikudag. Kvaðst Ög-
mundur ætla að skipa starfshóp til
þess að fara yfir skiptingu lottótekn-
anna með mögulega endurskoðun í
huga.
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, for-
maður Félags kvikmyndagerðar-
manna, færði hugmyndina í tal
þegar hún kynnti tilnefningar og
verðlaun DV á sviði kvikmynda-
gerðar. Viðbrögð Ögmundar féllu í
góðan jarðveg hjá viðstöddum.
Eins og nú háttar til fá Íþrótta-
samband Íslands og UMFÍ 60 pró-
sent lottóteknanna í sinn hlut en
Öryrkjabandalag Íslands 40 pró-
sent.
Ágúst Guðmundsson leikstjóri
kynnti hugmyndina í Morgun-
blaðsgrein í september 2009. Þar
kom meðal annars fram að víða
um lönd njóta menning og list-
ir tekna af opinberu lottói. Þannig
skiptast tekjurnar til helminga milli
íþrótta og lista í Noregi. Í Finnlandi
og Danmörku, Bretlandi og víð-
ar er hluti lottópeninganna einnig
eyrnamerktur menningu og listum.
„Hingað til hafa stjórnmálamenn
verið tregir til að íhuga breytingar á
lottóinu. En nýir tímar kalla á ný úr-
ræði. Þá má gjarnan hugleiða þann
kost að menning og listir fái að njóta
góðs af lottóarðinum við hlið ann-
arra,“ sagði í greininni.
Innanríkisráðherra vill endurskoða skiptingu lottótekna:
Hluti lottópeninga renni til lista
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fimmfaldur Lottópottur stefnir í 40 milljónir.
Leyfðu þér smá Lottó!
05/03 20
11 | WW
W.LOTTO
.IS
Skráðu þig sem aðdáanda Lottó á
facebook.com/lotto.is
BOLLA! BOLLA!
BOLLAÐU TIL ÞÍN
MILLJÓNUM
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HeLgarBLaÐ 4.–6. MArS 2011 27. tbl. 101. árg. leiðb. verð 595 kr.
Við afhendingu Menningarverð-
launa DV Ögmundur Jónasson ætlar
að endurskoða skiptingu lottótekna með
menninguna í huga.