Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 9. mars 2011 Miðvikudagur Vinna við siðareglur ráðherra og starfsmanna ráðuneyta á lokastigi: Styttist í siðareglurnar Vinna við setningu siðareglna fyrir ráðherra ríkisstjórnarinnar er á loka- stigi, segir í svari frá forsætisráðuneyt- inu við fyrirspurn DV. Í júní síðastliðn- um var samþykkt á Alþingi frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra þess efnis að settar yrðu al- mennar siðareglur fyrir alla ríkisstarfs- menn. Í frumvarpinu kom einnig fram að forsætisráðherra ætti að staðfesta sértækari siðareglur fyrir ráðherra og starfsmenn Stjórnarráðs Íslands. Svarið frá forsætisráðuneytinu er svohljóðandi: „Undirbúningur fyr- ir setningu siðareglna ráðherra er á lokastigi en drög að þeim hafa verið til skoðunar á vettvangi forsætisráðu- neytisins og samhæfingarnefndar um siðferðileg viðmið í stjórnsýslunni sem skipuð var sl. haust á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands.“ Í fréttum um frumvarp Jóhönnu í fyrra kom fram að áhersla yrði lögð á að reglurnar yrðu settar í samráði við þá sem fara ættu eftir þeim og að þær yrðu innleiddar með markvissum hætti, til að mynda með námskeið- um. Þá er gert ráð fyrir að hægt verði að setja fram kvartanir um brot á þess- um siðareglum til embættis umboðs- manns Alþingis. Samkvæmt þessu svari forsætis- ráðuneytisins verður þess því ekki langt að bíða að umræddar siðareglur fyrir ráðherra verði kláraðar og settar formlega. Í svari forsætisráðuneytisins kem- ur einnig fram að forsetaembættið vinni að setningu sértækra siðareglna fyrir embættið í samvinnu við Alþingi. Því ættu sérstakar siðareglur fyrir for- seta Íslands einnig að líta dagsins ljós í náinni framtíð. ingi@dv.is Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Rafknúnir hægindastólar sem auðvelda þér að setjast og standa upp Fjölbreytt úrval Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Leiðrétting Í frétt DV á mánudaginn var því ranglega haldið fram að Friðjón Þórðarson fjárfestir hefði verið rekinn úr starfi sínu hjá verð- bréfafyrirtækinu Virðingu haustið 2008 í kjölfar rannsóknar lögregl- unnar á meintum efnahagsbrot- um hans hjá fyrirtækinu. Lögregl- an hefur nú fallið frá rannsókn á ætluðum brotum Friðjóns. Hið rétta er að Friðjón sagði upp starfi sínu hjá Virðingu. Þetta kemur fram í athugasemd frá Virðingu sem send var á ritstjórn DV. Þetta leiðréttist hér með. Mikill áhugi er meðal fjárfesta á fraktflugfélaginu Bláfugli sem er í meirihlutaeigu Íslandsbanka í gegn- um eignarhaldsfélagið Miðengi, samkvæmt heimildum DV. Félagið var áður í eigu Icelandair Group en færðist yfir til Íslandsbanka og Glitn- is í kjölfar fjárhagslegrar endurskipu- lagningar félagsins. Íslandsbanki á 71 prósent í félaginu. Tilkynnt var um breytinguna á eignarhaldi í byrj- un þessa mánaðar. Bláfugl var yfir- tekið af Icelandair í febrúar árið 2005 og hefur verið hluti af samstæðunni síðan þá. 44 starfsmenn störfuðu hjá fyrirtækinu árið 2009. Bláfugl á eina þotu sem flýgur í fraktflugi með ýmiss konar varning og vörur, meðal annars íslenskan fisk, til Kölnar í Þýskalandi á hverri nóttu auk þess sem félagið leigir fjór- ar þotur sem notaðir eru erlendis til að fljúga með sendingar fyrir flutn- ingafyrirtækin Fedex og DHL. Þessar fjórar vélar fljúga því ekki frá Íslandi. Rekstur fyrirtækisins hefur gengið afar vel og er það ekki síst að þakka góðum samningum við Fedex og DHL, samkvæmt heimildum DV, en þoturnar fjórar fljúga einungis með sendingar fyrir fyrrnefnd tvö fyrir- tæki. Hlutast til um starfsemina Samkeppniseftirlitið hefur skyld- að Miðengi til að selja Bláfugl eins fljótt og auðið er vegna samkeppn- issjónarmiða, meðal annars vegna þess að Íslandsbanki á hlut í Ice- landair Group, en dótturfélag þess, Icelandair Cargo, á í samkeppni við Bláfugl. Þetta kom fram í úrskurði sem Samkeppniseftirlitið sendi frá sér nú í febrúar. Í úrskurðin- um sagði: „Íslandsbanki skal selja eignarhlut sinn í Bláfugli eins fljótt og verða má og eigi síðar en [...]“ en vegna trúnaðar mátti ekki nefna hvenær þarf að vera búið að selja fé- lagið. Heimildir DV herma að um sé að ræða um það bil tveggja mánaða frest. Hagnaðist 2008 og 2009 Í ársreikningum Bláfugls fyrir árin 2008 og 2009 kemur fram að félag- ið hagnaðist umtalsvert á árunum 2008 og 2009. Árið 2008 var hagnað- urinn nærri fjórar milljónir dollara, um 460 milljónir króna á núvirði, og árið 2009 var hagnaðurinn rúmlega 500 þúsund dollarar, tæplega 60 milljónir króna á núvirði. Hagnað- urinn árið 2008 varð til þess að félag- ið greiddi út arð upp á 1,8 milljónir dollara árið 2009 vegna rekstrarárs- ins þar á undan. Íslenska efnahags- hrunið og kreppan hér á landi sem fylgdi hefur því ekki sett verulegt strik í reikninginn í starfsemi félags- ins enda er starfsemi þess að lang- mestu leyti utan Íslands auk þess sem tekjur þess eru í evrum. Rekstrartekjur félagsins námu rúmlega 41 milljón dollara, um 4,7 milljörðum króna, árið 2009 og er eiginfjárstaða þess jákvæð um nærri 18 milljónir dollara, rúma tvo millj- arða króna. Á móti eru skuldir upp á rúmlega 33 milljónir dollara, tæp- lega 3,8 milljarða króna á núvirði, sem ekki telst mjög mikil skuldsetn- ing þegar litið er til rekstrartekna félagsins. Af þessum sökum verður ekki annað sagt en að um sé að ræða afar álitlegt fyrirtæki. Skráning í Kauphöllina möguleg Nýir eigendur félagsins þurfa að selja það eins fljótt og auðið er líkt og áður hefur komið fram. Form- legt söluferli á félaginu er hins veg- ar ekki hafið, samkvæmt heimildum DV. Meðal þess sem Íslandsbanki og Glitnir muni vera að velta fyrir sér um þessar mundir sé með hvaða hætti selja eigi félagið og hafi sá möguleiki verið ræddur að bjóða hlutabréf í félaginu til sölu í Kaup- höll Íslands frekar en að selja það til fagfjárfesta. Ein af ástæðunum fyrir því að þessi möguleiki er inni í myndinni er sá að margir kynnu að hafa áhuga á félaginu sökum þess hversu vel það hefur gengið og að því gæti verið grundvöllur fyrir því að skrá félagið í Kauphöllina. Ekkert hefur hins vegar verið ákveðið í þessum efnum og kann því að fara svo að reynt verði að selja félagið til fagfjárfesta frekar en á hlutabréfamarkaði. Bláfugl gæti farið á hlutabréfamarkað n Mikill áhugi er á fraktflugfélaginu Bláfugli n Íslandsbanki yfirtók félagið n Fyrirtækið skilaði góðum hagnaði n Rekstrartekjur námu nærri 5 milljörðum króna árið 2009 Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „ Íslandsbanki skal selja eignarhlut sinn í Bláfugli eins fljótt og verða má og eigi síðar en […] Gott fyrirtæki Mikill áhugi mun vera á fraktflugfélaginu Bláfugli, sem var áður í eigu Icelandair. Félagið á eina þotu sem flytur vörur frá Íslandi til Kölnar á hverri nóttu og leigir aðrar fjórar sem notaðar eru til flutninga utan Íslands. Af ársreikningi félagsins að dæma stendur það afar vel. Íslandsbanki stærsti hluthafinn Eignarhaldsfélag Íslandsbanka, Miðengi, er stærsti hluthafi Bláfugls. Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka. Húsleit í byggingarvöruverslunum: Neita allri sök Lögreglan og Samkeppniseftirlitið á höfuðborgarsvæðinu gerðu húsleit í byggingarvöruverslununum Byko og Húsasmiðjunni á þriðjudag vegna gruns um meint verðsamráð við inn- flutning og sölu á timbri og annarri grófvöru. Samkvæmt því sem DV kemst næst var lagt hald á tölvugögn og annað slíkt í húsleitunum og í kjölfarið var starfsfólk verslananna yfirheyrt. Rannsóknin beinist ein- göngu að meintu samráði við inn- flutning og sölu á timbri. Fyrirtæk- in voru fljót að bregðast við ásökunum og sendu út yfirlýs- ingar þar sem ásökunum um verðsamráð var hafnað. „BYKO hefur ávallt lagt sig fram um að tryggja að starfsemi fyrirtækisins og viðbrögð þess á markaði séu í samræmi við sam- keppnislög. Fyrirtækið hefur unnið með rannsóknaraðilum og afhent þau gögn sem óskað hefur verið eftir,“ segir í tilkynningu sem Iðunn Jónsdóttir, stjórnarformaður BYKO, sendi frá sér vegna húsleitanna. Arnar Sigurðsson, forstjóri Húsa- smiðjunnar, sendi einnig frá sér til- kynningu þar sem hann segir að fyr- irtækið muni aðstoða við rannsókn málsins enda hafi það ekkert að fela. „Af þessu tilefni vill Húsasmiðjan taka fram að hún vísar öllum ásök- unum um verðsamráð á bug.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.