Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.2011, Qupperneq 19
Umræða | 19Miðvikudagur 9. mars 2011
„Fátt betra
en gull“
1 Móðirin látin laus: Myrti nauð-gara dóttur sinnar Mari Carmen
Garcia er laus úr fangelsi en hún myrti
nauðgara dóttur sinnar árið 2005.
2 Jón Trausti Lúthersson: „Fullgildur meðlimur í Outlaws“
Óttast er að Jón Trausti hyggi á
hefndir vegna brotthvarfs síns úr
Fáfni.
3 „Hugrakkasta kona veraldar“ flúði Hin tvítuga Marisol Valles tók
að sér starf lögreglustjóra en hefur
gefist upp.
4 Elvis fékk sendingu frá Grace-land Theodór Elvis fékk á dögunum
sendan pakka frá Graceland, heimili
kóngsins í Bandaríkjunum.
5 Sonurinn fer ekki í skóla vegna eineltis: „Hætt að geta grátið
yfir þessu“ Móðir ellefu ára drengs
um einelti.
6 Bræðurnir ekki til rannsóknar Friðjón og Haraldur Þórðarsynir eru
ekki til rannóknar hjá efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra.
7 Hundur át tærnar af eiganda sínum á meðan hann svaf James
Little vaknaði upp við að hundurinn
hans hafði étið af honum þrjár tær.
Dóra María Lárusdóttir skoraði
sigurmark íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu gegn Danmörku á
Algarve-mótinu á mánudaginn en það
var í fyrsta skiptið sem Ísland leggur
Dani að velli. Stelpurnar hafa unnið alla
leiki sína á mótinu og spila til úrslita í
fyrsta skiptið í sögunni í dag, miðviku-
dag. Þar mætir Ísland liði Bandaríkj-
anna sem hefur verið eitt allra besta
landslið heims undanfarin ár og
áratugi.
Hver er konan?
„Dóra María Lárusdóttir“
Hvar ertu uppalin?
„Vesturbænum og síðar í Fossvogi.“
Hvað drífur þig áfram?
„Það er bara að gera alltaf betur en síðast.“
Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi?
„Ég bý í Svíþjóð og mér líður ágætlega þar.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Það eru nautalundir.“
Besta bíómynd sem þú hefur séð?
„Það er Stella í orlofi.“
Uppáhaldsknattspyrnumaður eða
-kona?
„Það er Romario.“
Hvernig var að koma inn eftir meiðsl og
skora sigurmarkið gegn Dönum?
„Það var mjög notaleg tilfinning.“
Hvernig er tilfinningin að vera að fara að
spila til úrslita á þessu sterka móti?
„Hún er bara frábær, þetta bara styrkir
okkur sem lið og við erum komnar þarna
til að láta finna fyrir okkur. Það er bara
frábært.“
Hver er helsta ástæða þessa frábæra
gengis núna?
„Þetta er bara hópur sem er búinn að vera
lengi saman og þekkjum vel inn á hver aðra
og erum alltaf hungraðri í að gera betur.
Eigið þið möguleika í Bandaríkin?
„Þær eru vissulega með mjög gott lið og
örugglega það besta í heiminum. En við
höfum staðið í þeim áður og gert jafntefli
við þær. Ég tel enga spurningu að við eigum
séns á móti þeim en það verður erfitt og við
verðum algjörlega að eiga okkar besta leik.“
Er gott silfur gulli betra?
„Nei, ég held að það sé fátt betra en gull.“
„Frekar illa. Það er leiðinlegt að vinna í
svona færð.“
Stöðuvörður númer 13.
„Hann er fínn.“
Daniel Spirite
23 ára öryggisvörður.
„Hann er indæll, ég kann að meta hann.“
Hanna Casey
25 ára listamaður.
„Bara vel, þá verður bjart og fínt.“
Halla Kristjánsdóttir
36 ára skrifstofustjóri.
„Mér líkar snjór.“
Alexander
30 ára veitingamaður.
Mest lesið á dv.is Maður dagsins
Hvernig líkar þér snjórinn?
Hægt en örugglega Vetur konungur tók hraustlega á móti flestum landsmönnum þegar þeir skriðu úr
fylgsnum sínum í gærmorgun. Vel búnir bílar komust greiðlega leiðar sinnar en miklar umferðartafir urðu á
stofnæðum. Mynd: Sigtryggur Ari
Myndin
Dómstóll götunnar
S
jálfsmynd hvers einstakl-
ings byggir á kortlagningu.
Fólk metur innra borð sem
ytra, eiginleika sína, kosti,
galla og eigin forráð gagnvart sínum
nánustu og heildinni. Sjálfsmynd
þjóðar byggir á sama grunni, heil-
drænu mati. Í þessu hefur landan-
um misreiknast og þrátt fyrir slæman
skell tregðast hann við að skipta um
reikniformúlu.
Eitt sem einkennir kortlagningu
þessarar fámennu eyþjóðar er remb-
ingurinn við að vera stórþjóð. Mikil-
mennskubrjálæðið birtist hve gleggst
í alheimsfjármálamiðstöð á Íslandi.
Óprúttnir aðilar nýttu sér þessa
glámskyggni og kollvörpuðu hér öllu
siðferði á örfáum árum. Nú er blekk-
ingin öllum ljós. Engu að síður draga
menn lappirnar í nauðsynlegu end-
urmati.
Þrjú hundruð þúsund manna
þjóð er eins og breiðstræti í Berlín.
Samt ætlum við að byggja hátæknis-
pítala sem með réttu ætti að þjóna
milljón manna upptökusvæði, hann
á líka að vera háskólasjúkrahús og
mennta lækna sem skila sér illa eða
ekki til baka. Við sjáum háskóla í
hverjum vog sem eiga að standast
samanburð við það besta í heimin-
um. Látum í veðri vaka að tónlist-
arhús sé þjóðinni eins og stígvél-
ið bóndanum forðum. Að ekki sé
minnst á allt malbikið, göngin og
íþróttahúsin, hvergi er þyrping nema
þessa njóti.
Helmingur vinnuafls trítlar um
ganga hins opinbera og varla til það
flokksskírteini sem ekki á víst sæti í
einhverri nefnd. Þrískipting valdsins
er samrassa virðingu alþingis og yfir-
lýst markmið valdhafa ýmist aftur-
kölluð eða ná ekki flugi vegna hreins
klúðurs.
Sumir sjá svo ESB í hillingum og
halda að rödd 300 þúsund hræðna
glymji í Brussel og bergmáli. Sam-
hliða er tuggið á ónýtri krónu og ein-
hverjum skuldbindingum gagnvart
áhættufjárfestum í Hollandi og Bret-
landi. Enginn nefnir þá leið að gefa
veiðileyfi á bankaræningjann sjálfan.
Nei, íslenskum skattborgurum skal
beitt fyrir þessa ánauðar þreskivél.
Rök um lánastopp og einangrun eru
endurtekin og þjóðinni hótað heims-
endi gangi hún ekki til samninga. En
þjóð sem stendur gegn ranglæti, trú-
ir á málstað sinn og fylgir honum eftir
mun vinna þó hún tapi. Þannig þjóð
mun njóta virðingar og eftirspurnar,
þjónkun og smjaður hins vegar aldrei.
En hvernig getum við aukið verð-
mætasköpun? Til þess þarf einka-
framtaksvæðingu þar sem frelsi og
ábyrgð eru ekki aðskilin. Vinstri-
vængurinn þarf að koma út úr
skattaskápnum og hægri vængurinn
að sprengja af sér þrönghagsmuna-
fjötrana. Fyrst og síðast verður þó að
kortleggja þjóðina samkvæmt íbúa-
fjölda og auðlindum. Á vogarskál
hagkvæmninnar er sú tvenna þjóð-
inni afar hagstæð og hrein vitfirring
að afsala slíku tækifæri hvort sem er
til annarra þjóða eða í hendur sjálf-
hyglishópa hér heima fyrir. Hætt-
um að vera stór og þá munum við
stækka.
Hættum að vera svona stór
Kjallari
Lýður
Árnason