Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 28. mars 2011 Mánudagur Marcel Wojcik hrökk við þegar hann tók strætó númer sex á sunnudaginn: Fann tarantúlu í strætó Hinum 25 ára gamla Marcel Wojcik var heldur betur brugðið á sunnudag- inn þegar hann tók strætó númer sex, sem gengur frá Hlemmi og í Spöngina í Grafarvogi, með félögum sínum. Aft- ast í vagninum, í sætinu við hliðina á honum segist hann hafa fundið stærð- arinnar tarantúlu. „Einn vinur minn hljóp fram og talaði við vagnstjórann og hann bað okkur bara um að fara út,“ segir Marcel. Hann segist þó hafa ver- ið of forvitinn til þess að yfirgefa dýrið sem hann segir að hafi þá enn verið á lífi. Marcel tók til þess bragðs að skella tarantúlunni í plastbox sem hann var með á sér og gerði á það nokkur göt. Hann tók hana með sér heim og segir hana lítið hafa hreyft sig, hálftíma síðar var hún dauð. „Hún er jafn stór og höndin á mér og ég er 25 ára karlmaður og ekki með litlar hendur,“ segir Marcel sem hefur ekki hugmynd um hvaðan köngulóin er upprunnin. Aðspurður hvort hann telji að einhver hafi sleppt henni í strætisvagninum segir Marcel: „Það lítur út fyrir það en ég veit það ekki. Mér finnst bara svo skrítið að finna svona í strætó.“ Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is Slakaðu á heima • Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd • Djúpslökun með infrarauðum hita • Sjálfvirkt og stillanlegt nudd Verið velkomin í verslun okkar prófið og sannfærist! Úrval nuddsæta Verð frá 29.750 kr. Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Millistjórnendur Með hærri laun en jóhanna Fyrir utan Seðlabankastjóra voru 7 starfsmenn bankans með hærri grunnlaun en forsætisráðherra í byrjun árs 2010, þrátt fyrir að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því í maí 2009 sé kveðið á um að enginn ríkislaun skuli vera hærri en laun forsætisráðherra. Í öllum tilfell- um höfðu launahæstu stjórnendur bankans þó umtalsvert hærri heild- arlaun. Þannig höfðu 11 starfsmenn bankans um 1,2 milljónir króna á mánuði eða meira. Samkvæmt gögnum sem DV hef- ur undir höndum var Arnór Sig- hvatsson alls með 1.432 þúsund krónur á mánuði snemma á síðasta ári. Hann hafði 1.065 þúsund krón- ur á mánuði í grunnlaun, sem ger- ir grunnlaun hans á þeim tíma 130 þúsund krónum hærri en grunnlaun Jóhönnu Sigurðardóttur sem hefur 935 þúsund krónur í grunnlaun. Al- gengt er að millistjórnendur í Seðla- bankanum hefðu vel yfir milljón króna á mánuði . Þannig hafði Ing- var A Sigfússon rekstrarstjóri tæp- ar 1.340 þúsund krónur á mánuði í heildargreiðslur. Millistjórnendur með meira en milljón Eftir að Jóhanna settist á forsætisráð- herrastól, gerði hún málefni Seðla- bankans að forgangsmáli, meðal annars með því að reka Davíð Odd- son. Skömmu síðar lýsti hún því yfir að enginn ríkisstarfsmaður ætti að hafa hærri laun en forsætisráðherra. Samkvæmt sömu gögnum hafði Arnór hæstu mánaðarlaunin fyr- ir utan Seðlabankastjóra, en nokkr- ir aðrir starfsmenn bankans höfðu umtalsvert hærri grunnlaun en Jó- hanna forsætisráðherra. Þannig hafði Jón Þorvarður Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri skrifstofu banka- stjórnar, 1.208 þúsund krónur á mánuði í grunnlaun og 1.340 þúsund krónur í heildarlaun. Sigurður Sturla Pálsson, fram- kvæmdastjóri alþjóða- og markaðs- sviðs,  og Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamála- sviðs, höfðu báðir 1.180 þúsund krónur á mánuði í grunnlaun. Sömu grunnlaun höfðu þær Sigríður Loga- dóttir aðallögfræðingur bankans og Kristín Hannesdóttir aðalbókari. Heildarlaun miklu hærri en grunnlaun Alls höfðu 33 starfsmenn Seðla- bankans meira en 700 þúsund krónur í heildarmánaðarlaun með aukagreiðslum. Þannig hafði starfs- maður á fjármálasviði um 800 þús- und á mánuði. Starfsmenn á al- þjóða- og markaðssviði  höfðu um 800–850 þúsund krónur í heildar- laun á mánuði. Þess má geta að það eru sambærileg laun og ráðherrar hafa á mánuði. Margir þessara starfs- manna höfðu hins vegar umtalsvert lægri grunnlaun sem voru á bilinu 370 til 440 þúsund krónur á mánuði. Hvað gerði bankinn? DV leitaði svara hjá Seðlabankanum um hvort bankinn hefði brugðist við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að engin ríkislaun skuli vera hærri en laun forsætisráðherra með því að lækka laun starfsmanna sinna. Einnig spurði DV hversu margir starfsmenn bankans hefðu nú hærri grunnlaun en forsætisráðherra. Vegna anna við kynningu áætlunar um afnám gjaldeyrishafta hafði svar við fyrirspurninni ekki borist þegar DV fór í prentun. n Framkvæmdastjórar í Seðlabankanum með umtalsvert hærri laun en forsætisráðherra n Arnór Sighvatsson var með 1.432 þúsund á mánuði n Ríkisstjórnin vildi að engin ríkislaun væru hærri en laun forsætisráðherra Heildarlaun stjórnenda og millistjórnenda í Seðlabankanum í ársbyrjun 2010. Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri kr. 1.432.500 Ingvar A. Sigfússon rekstrarstjóri kr. 1.340.719 Þórarinn Gunnar Pétursson framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjórnar kr. 1.340.719 Jón Þorvarður Sigurgeirsson framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjórnar kr. 1.312.375 Sigurður Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs kr. 1.312.375 Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs kr. 1.312.375 Tryggvi Pálsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs kr. 1.312.375 Martin Seneca hagfræðingur á hagfræðisviði kr. 1.224.500 Kristín Hannesdóttir aðalbókari kr. 1.195.378 Erla Árnadóttir aðalbókari kr. 1.195.375 Sigríður Logadóttir aðallögfræðingur bankans kr. 1.195.375 Laun í Seðlabanka Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is „Sigurður Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs, og Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, höfðu báðir 1.180 þúsund krónur á mánuði í grunnlaun. Arnór Sighvatsson Hafði 1.432 þúsund krónur í heildar- laun á mánuði í fyrra. Jóhanna Sigurðardóttir Lýsti því yfir í maí 2009 að engin ríkislaun ættu að vera hærri en forsætisráðherralaun. Rúmu hálfu ári síðar höfðu fjölmargir millistjórnendur í Seðlabankanum umtalsvert hærri grunn- laun en hún. Unglingar á Re-Play Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af skemmti- staðnum Re-Play við Grensásveg aðfaranótt sunnudags. Fjölmennt var á staðnum og þurfti lögreglan að vísa tuttugu gestum, sem ekki höfðu aldur til þess að vera þar, út af staðnum. Stutt er síðan lögreglan þurfti að leysa upp samkvæmi á staðnum. Í febrúar þurfti lögreglan að leysa upp stórt samkvæmi á staðnum og var ástæðan sú að allir gestir stað- arins voru undir lögaldri. Eigandi staðarins er Ásgeir Þór Davíðsson, oftast nefndur Geiri á Goldfinger, en hann er einnig eigandi nektardans- staðarins Goldfinger í Kópavogi. Flestir vilja mál- sókn gegn Bretum Samkvæmt viðhorfskönnun sem MMR gerði fyrir þjóðmálafélagið Andríki fyrr í þessum mánuði, telja 86,5% Íslendinga að íslensk stjórn- völd hefðu átt að draga Breta fyrir dóm vegna beitingar hryðjuverkalaga. Í könnuninni var spurt: „Telur þú að íslensk stjórnvöld hefðu átt að stefna breskum stjórnvöldum fyrir dóm vegna beitingar hryðjuverkalaga gegn Íslendingum í nóvember 2008?“ Af þeim sem svöruðu sögðu 86,5% já. Nei sögðu 13,5%. Mikill meirihluti í öllum aldurs-, menntunar-, tekju- og starfshópum telur að draga hefði átt Breta fyrir dóm vegna beitingar hryðjuverkalaganna. Úrtak var 902 einstaklingar á aldrinum 18–67 ára. Afstöðu tóku 72,7%. Rannsaka bruna á Range Rover Tæknideild lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu rannsakar Range Rover-bifreið sem brann til kaldra kola í Hveragerði aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni á Selfossi eru eldsupptök ókunn, en eigandi bílsins er búsettur í Hveragerði. Lögreglan vill ekki útiloka að kveikt hafi verið í bílnum og engar upplýsingar er að fá um hvort einhver hafi verið yfirheyrður í tengslum við brunann. Líklega er um milljónatjón að ræða, en ekki liggur fyrir hvaða árgerð bíllinn er. Forvitinn Marcel var svo forvitinn að hann ákvað að setja tarantúluna í plastbox, hálftíma síðar dó hún.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.