Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Blaðsíða 26
26 | Fólk 28. mars 2011 Mánudagur Ásdís Rán alsæl í Búlgaríu á ný: Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdótt- ir hefur leikið á als oddi eftir að hún snéri aftur til Búlgaríu í fyrsta skipti eftir að hún flutti þaðan í sum- ar. Ásdís hefur verið dugleg við að deila gleðinni með Facebook-vin- um sínum og ljóst að ísdrottning- unni líkar lífið vel í Búlgaríu, enda gert það gríðarlega gott sem fyrir- sæta þar undanfarin ár. En fríið hefur ekki gengið áfalla- laust fyrir sig. Ferðafélagi Ásdísar brákaðist þegar vaskurinn á hótel- herbergi þeirra gaf sig og lenti á fæti hennar. Ekki var um neinn hasar að ræða heldur gaf vaskurinn sig þeg- ar þær vinkonurnar voru að bursta tennurnar. Ásdís og vinkonur hennar hafa verið duglegar við að fara út á líf- ið en það er töluvert ódýrara að lifa eins og stjarna í Búlgaríu en í Þýskalandi þar sem Ásdís er bú- sett ásamt fjölskyldu sinni. Hvað þá hér á Íslandi. „Það er ekki allstaðar sem maður getur boðið þremur út að borða á geggjaðan matsölustað, sushi hlaðborð, 4 hvítvínsflöskur og fleira fyrir 15 þúsund krónur. Ég elska Búlgaríu!“ sagði fyrirsætan alsæl á Facebook-síðu sinni fyrir helgi. En Ásdís er ekki bara stödd í Búlgaríu til þess að skemmta sér. Fyrirsætan vinnur að því að senda frá sér kjólalínu sem kallast Mid- night Queen og á Ásdís í viðræðum við búlgarska verslanakeðju um að selja kjólana. Hér heima verða kjól- arnir fáanlegri í Hagkaupi en Ásdís segir vanta kynþokkafulla kokteilk- jóla hér á landi. Hún hafi hingað til þurft að kaupa alla slíka kjóla er- lendis. Líkt og fyrr sagði er Ásdís bú- sett í Þýskalandi þar sem eigin- maður hennar, Garðar Gunnlaugs- son, leikur knattspyrnu. Ásdís sagði í samtali við DV á dögunum á ekki væri víst með framhaldið þar sem samningur Garðars kláraðist í sum- ar. Það er því ekki útilokað að ís- drottningin snúi aftur til Búlgaríu. Auglýsir eftir takkaskóm Fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir mætti á sína fyrstu fótboltaæfingu í 20 ár í síðustu viku. Eftir fyrstu æfinguna var hún komin með stöðu vinstri bakvarðar. „Vinstri bakvörður hér!“ tilkynnti hún eftir æfinguna á Facebook-síðunni sinni. Ekki leið á löngu þar til hún fór að auglýsa eftir takkaskóm til að spila í en Sigmar Guðmundsson, fyrr- verandi sambýlismaður Þóru, stingur upp á því að hún fái sér líka legghlífar. „Þá er ég ekki að meina svona tískudót,“ sagði hann til að taka af allan vafa. FÓTBROT OG FÍNT AÐ BORÐA Elskar Búlgaríu Ásdís Rán virðist sakna Búlgaríu. MYND BJÖRN BLÖNDAL H ópur fólks með Ágeir Þór Davíðsson, Geira í Gold- finger, í broddi fylkingar fór með rútu í einkapartí sem skipulagt var í kringum fegurðar- samkeppnina Ungfrú Vesturland. Einkapartíið skipulögðu þær Hildur Líf og Linda Ýr Kjerúlf sem hvað frægastar eru fyrir VIP-partí sem haldið var á skemmtistað Geira, Re-Play. Þó að tilgangur ferðar- innar hafi líka verið að fylgjast með keppninni Ungfrú Vesturland mætti hópurinn bæði seint og fór snemma og missti af úrslitunum. Meðal þeirra sem fóru með í ferðina ásamt þeim Hildi og Lindu voru Jón Hilmar Hallgrímsson, betur þekktur sem Jón stóri leiðtogi samtakanna Semper Fi, og tengda- sonur Geira, Ríkharður Ríkharðs- son, en hann er leiðtogi íslensks mótorhjólaklúbbs sem er stuðn- ingsklúbbur erlendu samtakanna Outlaws. Samkvæmt skýrslu lögreglunnar sem DV birti nýverið eru þetta tveir af fjórum helstu hópum í undirheimum landsins. Lögreglan óttast að til uppgjörs komi milli hópanna fjögurra, en af þessu að dæma liggja engar víglínur milli þess- ara tveggja hópa. Þvert á móti virðist Geiri á Gold- finger vera lím sem teng- ir þá saman. Hópurinn vakti mikla athygli þegar hann mætti á keppnina og söfnuðust ungmenni saman fyrir utan húsnæðið þar sem keppnin var haldin til að reyna að sjá Jón stóra og flykktust konur á besta aldri að Geira á Goldfinger og vildu fá af sér mynd með honum, samkvæmt heimildum DV. Jón stóri hjálpaði svo Geira, sem á endanum fékk nóg, í gegnum þvöguna og dreif hópinn aftur upp á hótelið sem leigt hafði verið undir partíið. Á hótelinu var öllum sem tóku þátt í partíhöldunum gefnir smokk- ar til að gæta fyllsta öryggis. Linda Ýr sá um að dreifa smokkunum á partígestina, samkvæmt heimild- um DV. Partíið ætlaði Geiri á Goldfinger í sólarhingslöngu partíi: engan enda að taka Rútuferð á Akranes Hópurinn tók saman rútu á Akranes þar sem keppnin Ungfrú Vesturland fór fram. MYND BJÖRN BLÖNDAL Allir fengu smokka Linda Ýr dreifði smokkum á alla partígestina. MYND BJÖRN BLÖNDAL Leiðtogi Outlaws Ríkharður ásamt dóttur Geira. MYND BJÖRN BLÖNDAL Atli „Winning“ Fyrrverandi útvarps- og blaðamaðurinn Atli Már Gylfason sendi vandræðapés- anum Charlie Sheen myndbandsskilaboð á vefnum Youtube fyrir helgi. Atli er einn af þeim 250 sem koma enn til greina sem aðstoðarmenn kappans en upphaflega sóttu 75.000 um starfið. Atli vonast til að komast í gegnum næsta niðurskurð með myndbandinu en þá verða 50 eftir. Í mynd- bandinu, sem um 5.000 manns hafa horft á, svarar Atli einni af þremur spurningum sem umsækjendum bauðst að svara en hún snýr að góðgerðamálum tengdum jarðskjálft- anum í Japan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.