Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Side 16
16 | Erlent 28. mars 2011 Mánudagur
Portúgalar hafa safnast saman á göt-
um úti undanfarna daga og vikur til
að mótmæla mögulegum efnahags-
björgunaraðgerðum af hálfu Evrópu-
sambandsins og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Vilja Portúgalar ekki hljóta
sömu örlög og Grikkir og Írar, þar
sem stjórnvöld hafa þurft að skera
miskunnarlaust niður í opinberum
útgjöldum með tilheyrandi neikvæð-
um áhrifum á almannaþjónustu.
Portúgalar hafa sem áður segir
safnast saman á götum úti, en þar
syngja þeir hástöfum baráttusöngva.
Það kemur ef til vill á óvart, að sá bar-
áttusöngur sem mest er sunginn er
framlag Portúgala til Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovisi-
on, sem fram fer í Düsseldorf í Þýska-
landi dagana 12–14. maí næstkom-
andi. Það er óhætt að segja að það
teljist til undantekninga að keppn-
islög í Eurovision geti talist pólitísk,
og við fyrstu áheyrn mætti álykta
hið sama um lag Portúgala, „A Luta
é Alegria,“ með hljómsveitinni Ho-
mens da Luta. Lauslega þýtt upp á ís-
lensku gæti titillinn verið „Baráttan
er ánægja,“ en hljómsveitarnafnið er
einmitt Baráttumennirnir.
Forsætisráðherrann sagði af sér
Mikil óvissa ríkir í Portúgal þessa
dagana eftir að José Socrates, sem
hafði verið forsætisráðherra síð-
an árið 2005, sagði af sér á fimmtu-
daginn og boðaði til nýrra kosninga.
Socrates, sem er einnig aðalritari
Sósíalistaflokksins í Portúgal, sagði
af sér eftir að nýju frumvarpi um
frekari niðurskurð og aðhaldsað-
gerðir í ríkisfjármálum var hafnað
af portúgalska þinginu. Frumvarp-
ið kvað á um miklar skattahækkan-
ir sem og aukaskatt sem leggja átti á
lífeyrisgreiðslur. Þetta fór mjög fyrir
brjóstið á portúgölskum almenningi
sem lét duglega í sér heyra og safnað-
ist saman dag hvern til að mótmæla
frumvarpinu. Frumvarpið hafði ver-
ið undirbúið af bæði portúgölsku
ríkisstjórninni sem og fulltrúum Evr-
ópusambandsins, en markmiðið var
að leiðrétta mikinn fjárlagahalla sem
nú ríkir þar syðra. Mestur var fjár-
lagahallinn árið 2009 eða 9,3 pró-
sent af vergri þjóðarframleiðslu og
var von portúgalskra stjórnvalda að
honum yrði náð niður í liðlega 4 pró-
sent á þessu ári.
„Við þurfum enga hjálp“
Lengi hefur verið í umræðunni að
Portúgal þurfi á efnahagslegum
björgunaraðgerðum að halda, í lík-
ingu við þær sem Evrópusambandið,
í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn, hefur staðið fyrir á Grikklandi og
Írlandi. Socrates hefur þó ætíð sagt
að Portúgal þurfi ekki á björgunar-
aðgerðunum að halda. „Ég veit hvað
það myndi þýða. Ég veit hvað það
gerði bæði Írum og Grikkjum og ég
vil ekki að það sama komi fyrir mína
þjóð,“ sagði Socrates eftir fund með
leiðtogum aðildarríkja Evrópusam-
bandsins í Brussel á föstudag.
Mótmæla í takt við Eurovision
Nuno Moreira stundar háskólanám
í Lissabon. Hann var einn af 200
þúsund mótmælendum sem söfn-
uðust saman til að hlýða á Homens
da Luta flytja framlag sitt til Euro-
vision, laugardaginn 12. mars. Við-
burðurinn var skipulagður á sam-
skiptasíðunni Facebook, rétt eins
og svo margir mótmælafundir sem
hafa farið fram í Mið-Austurlönd-
um og Norður-Afríku á undanförn-
um mánuðum. Moreira sagði í við-
tali við blaðamann breska blaðsins
Telegraph, að ástandið væri á ábyrgð
stjórnmálamanna. „Það fór allt úr-
skeiðis vegna stjórnmálamannanna,
alveg sama hvort þeir voru hægri-
eða vinstrisinnaðir. Þeir hafa völdin
og hjá þeim kemst bara eitt að, að
græða, græða, græða,“ sagði Moreira,
sem fannst vanta upp á lýðræðislega
stjórnarhætti í Portúgal. „Við viljum
alvörulýðræði, það er þjóðin sem á
að taka alvöruákvarðanir um póli-
tíska stefnu. Þetta er ekkert flókið,
hvort sem það er í Portúgal, í Líbíu
eða í Bandaríkjunum.“
Lánshæfismat lækkað
Í kjölfar þess að ríkisstjórn José
Socrates sagði af sér, lækkaði alþjóð-
lega matsfyrirtækið Standard & Po-
or’s lánshæfismat Portúgal úr A- í
BBB sem er lægsta einkunnin í fjár-
festingarflokki. Áhættuálagið á ríkis-
skuldabréf Portúgala er nú um átta
prósent, en fjármálatímaritið Fin-
ancial Times hafði spáð því að ef
álagið hækkaði umfram sjö prósent
neyddust Portúgalar til að sækjast
eftir björgunaraðgerðum frá ESB og
AGS. Þurfa Portúgalar að endurfjár-
magna ríkisskuldabréf sín í byrjun
maí en ekki er með öllu ljóst hvort
nægilegt fé sé til í sjóðum þeirra til að
það takist. Þar að auki ríkir nú stjórn-
arkreppa og ekki er búist við að nýj-
ar kosningar fari fram fyrr en í fyrsta
lagi um miðjan maí, eða um það leyti
sem Homens da Luta stígur á svið í
Düsseldorf.
Björgunarpakkinn er tilbúinn
Björgunaraðgerðir eru þegar eyrna-
merktar Portúgölum af hálfu Evr-
ópusambandsins og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins. Þær myndu felast í
neyðarláni sem hljóðar upp á 75
milljarða evra, eða sem samsvarar
rúmlega 12 þúsund milljörðum ís-
lenskra króna. Ef af björgunarað-
gerðunum verður, er ljóst að portú-
galska þjóðin mun þurfa að horfa
upp á mikinn niðurskurð og skatta-
hækkanir. Christine Lagarde, fjár-
málaráðherra Frakklands, varaði
Portúgala við því að ef þeir þægju
neyðaraðstoð yrði borðleggjandi að
þeir myndu horfa upp á almennan
niðurskurð. „Þetta er spurning um
að bæði gefa og þiggja. Hvert það að-
ildarríki sem leitar eftir slíkri hjálp
verður að geta tekið til í sínu eigin
fjármálakerfi til sýna fram á að það sé
tilbúið til þess að takast á við vand-
ann sem að steðjar.“
Þrátt fyrir mikla óvissu í Portú-
gal, þar sem ríkir stjórnarkreppa
auk þess sem landið virðist ramba
á barmi gjaldþrots, er sennilega eitt
öruggt. Portúgalska þjóðin mun
koma til með að verða límd við sjón-
varpið þegar Baráttumennirnir stíga
á stóra sviðið í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva í maí.
A Luta é Alegria
eftir Vasco Duarte
Stundum finnst þér þú vera dapur
stundum finnst þér þú vera var um þig
stundum finnst þér þú vera hræddur
og stundum finnur þú fyrir örvæntingu.
Dag og nótt
er baráttan ánægja
og við stígum skrefið áfram
hrópandi á götum úti.
Það er ástæðulaust að herða sultarólina
það er ástæðulaust að kvarta
það er ástæðulaust að yggla brýnnar
og reiðin er tilgangslaus, hún hjálpar
þér ei.
Færðu fram brauðið, færðu fram ostinn,
færðu fram vínið
hinir gömlu koma, hinir ungu koma,
drengurinn mun koma.
Fögnum ástandinu
syngjum á móti aðgerðum.
Margir munu segja þér að passa þig
margir munu reyna að þagga niður í þér
margir vilja að þú verðir sár
og margir munu reyna að selja þér loftið
sjálft.
Dag og nótt
er baráttan ánægja
og við stígum skrefið áfram
hrópandi á götum úti.
BARÁTTUSÖNGURINN ER
EUROVISION-FRAMLAG
n Portúgalir mótmæla niðurskurði og
skattahækkunum með því að syngja Euro-
vision-framlag þjóðarinnar í ár n Forsæt-
isráðherrann, José Socrates, sagði af sér
á fimmtudaginn n Björgunaraðgerðir
ESB og AGS líklega óumflýjanlegar
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Sagði af sér José
Socrates á blaða-
mannafundi í Brussel
á föstudaginn.
Alþýðuhetjur
Hljómsveitin Homens
da Luta hefur sungið
sig í hjörtu Portúgala.