Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Side 18
18 | Umræða 28. mars 2011 Mánudagur
„Þetta var ekki drauma-
kosturinn en þetta var
eini kosturinn.“
n Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri
Langanesbyggðar, um 100 milljóna
leigusamning sem sveitarfélagið hefur
gert við V Laugaveg ehf, félag í eigu
Arnars og Bjarka Gunnlaugssona. – DV
„Ég var lang-
yngstur á
hjartadeild-
inni.“
n Svavar Halldórsson,
fréttamaður á RÚV, um það þegar hann
fékk hjartaáfall fyrir fjórum árum, þá
aðeins 37 ára að aldri. – DV
„Ég vil bara fá dótið mitt
til baka.“
n Ester Gísladóttir sem síðastliðin
fimm ár hefur barist fyrir að fá hluti úr
gámi sem stendur við Sundahöfn. – DV
„Ég syrgi þær báðar, og
það er eðlilegt því báðar
voru þær stór hluti af
minni tilveru.“
n Bragi Kristjónsson bóksali um
fyrrverandi eiginkonur sínar sem báðar
eru látnar. – DV
„Eina fólkið sem fær að
vita hvors kyns barnið er
eru þau sem ætla að
prjóna eitthvað handa
því.“
n Ágústa Eva Erlendsdóttir leikkona
um barnið sem hún ber undir belti. – DV
„Það er mjög óráðlegt að
ætlast til þess að raun-
ávöxtun á innborganir sé
hærri en hagvöxtur.“
n Ólafur Margeirsson hagfræðingur um
ávöxtunarkröfu íslensku lífeyrissjóðanna.
– DV
Blekking Hannesar
F
rjálshyggjusinnaði prófessor-
inn Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson hefur um áraraðir þegið
stórfé frá þeim sem hann hefur
mært. Peningarnir sem hann þiggur
eru gjarnan úr vasa almennings, þvert
gegn lífsskoðunum hans og veitend-
anna.
Hannes er reglulega gagnrýnd-
ur fyrir að hafa brotið höfundarlög
með notkun á verkum nóbelsskálds-
ins Halldórs Laxness, sem hann var
dæmdur fyrir. En það skiptir litlu máli,
enda hagnaðist Hannes varla á því og
enginn tapaði í raun. Það sem skipt-
ir meira máli er hlutdeild Hannesar í
klíku sjálfstæðismanna sem nærðist á
íslenskum almenningi.
Hannes var meðlimur í svoköll-
uðum Eimreiðarhópi ungra sjálf-
stæðismanna, sem beitti sér fyrir því
að sveigja stefnu flokksins í átt til ný-
frjálshyggju undir lok áttunda ára-
tugarins. Í hópnum voru, ásamt
Hannesi: Davíð Oddsson, síðar for-
sætisráðherra, Þorsteinn Pálsson, síð-
ar forsætisráðherra, Geir H. Haarde,
síðar forsætisráðherra, Baldur Guð-
laugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri
fjármálaráðuneytisins – nú fyrir dómi
vegna meintra innherjasvika, Brynj-
ólfur Bjarnason, síðar forstjóri ýmissa
stórfyrirtækja, Kjartan Gunnarsson,
fyrrverandi varaformaður bankaráðs
Landsbankans, og Jón Steinar Gunn-
laugsson, skipaður hæstaréttardómari
af félögum sínum.
Hannes er fræðimaður sem boð-
ar frjálshyggju, þar sem hver mað-
ur kemst áfram á eigin verðleikum og
aðrir eiga ekki að þurfa að halda hon-
um uppi. En Hannesi er og hefur verið
haldið uppi af þjóðinni, eftir ákvörðun
þeirra sem hann mærir. Þrátt fyrir það
hefur hann í áratugi kennt nemendum
í ríkisháskólanum hvernig það sé órétt-
látt að einstaklingar þurfi að borga fyr-
ir vandamál annarra einstaklinga, eins
og öryrkja, foreldra og svo framvegis.
DV greindi frá því á dögunum að
Hannes hefði þegið um sex milljónir
króna frá Landsbanka Íslands árin 2007
og 2008. Seinna árið sagði hann þetta
um aðaleiganda bankans, sem hann
sagði hafa mikið „siðferðislegt áhrifa-
vald“: „Hann er góðgjarn og skynsam-
ur, og menn hlusta á hann. Hann er
öðrum fyrirmynd ...“ Á sama tíma réðst
Hannes að æru þeirra sem hægt var
að tengja við Baug, ef þeir gagnrýndu
Sjálfstæðisflokkinn og Davíð. Tenging
Sjálfstæðisflokksins og Landsbankans
er líklega öllum ljós. Þar nægir að nefna
að stjórnmálamenn handvöldu þá sem
fengu að kaupa bankann, varaformað-
ur bankaráðs var framkvæmdastjóri
flokksins og flokkurinn tók við 25 millj-
ónum frá bankanum á laun árið 2006.
En greiðslurnar til Hannesar voru fyrir
„kynningarátak vegna skattalækkana“.
Hannes hefur fengið fleiri
greiðslur fyrir framlag sitt til íslensks
samfélags, sem hefur fyrst og fremst
falist í blindum áróðri fyrir flokk-
inn og leiðtoga hans, Davíð Odds-
son, en einnig í öðrum verkefnum
eins og undarlegri heimildarmynd
um Halldór Laxness. Fram kemur í
mánudagsblaði DV að Hannes fékk
10 milljóna króna styrk frá fjármála-
ráðuneyti Sjálfstæðisflokksins árið
2007 til að fjármagna kynninguna á
skattalækkunum Sjálfstæðisflokks-
ins. Liður í því var ráðstefna um „Ís-
lenska efnahagsundrið“. Undrið
hrundi svo árið eftir. Eftir það varð
aukin meðvitund um spillingu í ís-
lensku samfélagi. Oflof Hannesar, og
fjárveitingar hinna lofuðu til hans,
verða að skoðast í því ljósi.
Hannes mærði flokkinn og bank-
ana, sem endurguldu honum lofið og
sendu okkur reikninginn. Við höfum
verið neydd til að halda Hannesi uppi
með skattfé okkar. Hannes er hold-
gervingur þess sem hann fyrirlítur
sjálfur.
Leiðari
Er pressa á Tíma
nornarinnar?
„Tími nornarinnar
er kominn og hann
hefur betur,“ segir
Páll Magnússon,
útvarpsstjóri RÚV,
en Ríkissjónvarpið
hóf sýningar á
nýjum leiknum
spennuþætti, Tíma
nornarinnar, um helgina. Þátturinn
er sýndur rétt á undan sjónvarps-
þættinum Pressu á Stöð 2 en báðir
þættirnir fjalla um blaðamenn.
Spurningin
Bókstaflega
Jón Trausti Reynisson ritstjóri skrifar
Bjarni í uppnámi
n Stefanía Óskarsdóttir stjórnmála-
fræðingur og Agnes Bragadóttir voru
sammála í Silfrinu á sunnudag um
að Bjarni Benediktsson hefði lagt
sjálfan sig að
veði með því að
taka afstöðu með
Icesave-samn-
ingnum. Stefanía
benti á að það
hefði einmitt
verið sérvalinn
samninganefnd-
armaður hans,
Lárus Blöndal, sem sagði þjóðinni
að þetta væri skásti samningurinn
sem hægt væri að fá. Hin trú-
verðuga Agnes gaf svo fyrir hönd
náhirðarinnar skýra yfirlýsingu um
hver yrðu örlög Bjarna með því að
segjast viss um að samningurinn
félli. Formaðurinn virðist sjálfur
svo sleginn yfir stöðugum árásum
ritstjóra Morgunblaðsins að hann
leggur ekki í að taka slaginn með
samningnum sem hann stóð að
með ríkisstjórninni. Stuðnings-
menn Bjarna eru því orðnir uggandi
yfir viðbragðsleysi hans, og telja víst
að náhirðin ætli að slá tvær flugur
í einu höggi og fella bæði Icesave
og formann Sjálfstæðisflokksins 9.
apríl.
Atli á taugum
n Þingmaðurinn Atli Gíslason ramb-
ar þesa dagana á barmi afsagnar.
Atli þykir vera viðkvæmur í lund og
hermt er að hann þoli illa mótlæti.
Menn vitna til þess að eftir blóðug
átök í þinginu um stefnu Geirs Haarde
fyrir landsdóm hafi Atli, sem stýrði
þingmannanefndinni, skyndilega
stokkið í frí. Sagt er að hann hafi þá
ætlað að hætta alveg þingmennsku
en Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra hafi fengið hann ofan af því.
Nú segja menn að brostið bakland
Atla í kjördæminu þýði jafnframt að
taugar hans gefi sig og hann muni
hætta.
Gimsteinn Engeyinga
n Kvittur er uppi um að sligandi
skuldir BNT verði til þess að fyrir-
tækið verði fljótlega tekið úr hönd-
um Engeyjarættarinnar og það fari
undir forræði helstu viðskipta-
banka sinna. Verði af þessu fellur
helsta fjölskylduhnoss Bjarna Bene-
diktssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins, í hendur óvinanna. Þetta
mun einnig hafa þær afleiðingar
að óvissa verður uppi um framhald
á starfi Hermanns Guðmundssonar
forstjóra og Kristjáns Arasonar, fyrr-
verandi Kaupþingsstjóra og ofur-
skuldara, sem starfar náið með
honum.
Hermann vill meira
n Orðrómur er uppi um að Hermann
Guðmundsson, forstjóri N1, ætli sér
ekki að lenda á flæðiskeri þegar Eng-
eyingarnir, bakhjarlar hans, missa
olíufélagið. Talað er um að hann sé
þegar farinn að leita fjárfesta til að
halda félaginu. Þar hafi hann hugsað
sér að vera í lykilhlutverki. Hermann
er reyndar með ágætt orðspor sem
frjór og virkur viðskiptamaður. Margt
þykir hafa gengið upp hjá honum
þótt jólabókasala N1 hafi fengið
slæman endi.
Sandkorn
TRyGGVAGöTu 11, 101 ReykjAVík
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
S
varthöfði hefur tekið eftir
ákveðinni tilhneigingu í ís-
lenskri samfélagsumræðu sem
honum finnst nokkuð var-
hugaverð. Þetta er sú tilhneiging hags-
munaaðila í samfélaginu, sérstaklega
stjórnmálamanna og skósveina þeirra,
að segja að málflutningur eða skoð-
anir andstæðinga þeirra séu einmitt
eitt af einkennum þess hugarfars sem
leiddi til hrunsins. Með slíkum mál-
flutningi hlýtur viðkomandi alltaf að
gera stöðu sína betri en ella þar sem
hann er málsvari skoðana sem eru
andstæðar þeim sem leiddu til hruns-
ins.
N
ú síðast rökstuddu Atli Gísla-
son og Lilja Mósesdóttur þá
ákvörðun sína að segja sig
úr þingflokki Vinstri grænna
meðal annars með því að þau ætluðu
sér ekki að vera hluti af stjórnmála-
flokki þar sem foringjaræði í stjórn-
málum – eitt af þeim atriðum sem
leiddu til hrunsins samkvæmt þeim
– væri ráðandi. Orðrétt orðuðu þau
þessa gagnrýni sína svo í yfirlýsingu:
„Foringjaræðið sem Rannsóknar-
skýrsla Alþingis gagnrýndi ræður för
sem fyrr og mál í reynd afgreidd af
þröngum hópi.“ Atli og Lilja eru því
saklaus og siðhrein sem börn af því
þau neita að vera hluti af hugarfari
hrunsins sem einkennir Vinstri græna.
S
varthöfði er mikill aðdáandi
Rannsóknarskýrslu Alþingis
og er ekki heldur fylgjandi for-
ingjaræði í stjórnmálum. En
hann sér samt að hægt er að teygja og
toga lærdóma hrunsins þannig að þeir
henti málfutningi hvers og eins hverju
sinni, meira að segja að hengja það á
Vinstri græna að flokkurinn sé spilltur
af einkennum hrunsins. Ekki þarf að
spyrja að leikslokum þegar slíkum rök-
brellum er beitt því allir vita að hrunið
og hugarfarið sem leiddi til þess var
slæmt. Svarthöfði hræðist þessa rök-
brellu því hún getur vissulega lent í
tröllahöndum.
S
varthöfði hefur nefnilega tekið
eftir þessari tilhneigingu hjá
Davíð Oddssyni og fylgismönn-
um hans. Hún er auðvitað mun
merkilegri í meðförum Davíðs, Hann-
esar Hólmsteins og meðreiðarsveina
þeirra heldur en Atla og Lilju þar sem
þeir eru í reynd arkitektar þess samfé-
lags sem hrundi haustið 2008. Hannes
sjálfur er auðvitað höfundur þess slag-
orðs og grafskriftar hrunsins að Íslend-
ingar séu fólk sem „græði á daginn og
grilli á kvöldin“. Þegar góðærið stóð
sem hæst var Hannes helsta dansfífl
þess og vísaði þá endalaust í þá skoð-
un að Davíð hefði búið til þetta samfé-
lag velsældar með nýfrjálshyggjuna og
markaðsvæðinguna að vopni.
e
ftir að allt hrundi árið 2008
er hins vegar komið annað
hljóð í strokkinn og Davíð og
Hannes eru orðnir að mönn-
unum sem vöruðu við hruninu og
reyndu að sporna við því með því að
hefta útþenslu og vöxt útrásarvíkinga
eins og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Að eigin sögn eru þeir mennirnir sem
sáu hrunið fyrir, vöruðu við því og
hafa allt önnur viðhorf en einkenna
hugarfar hrunsins. Þeir ætla sér ekki
að borga skuldir óreiðumannanna og
hrunverjanna sem þeir seldu Lands-
bankann til þó svo að þessir menn
hafi verið helstu samherjar og banda-
menn þeirra á meðan allt lék í lyndi.
Davíð og Hannes eiga engan þátt í
hruninu og eru gagnrýnir á hugarfar
hrunsins.
S
varthöfði telur að ef svo fer sem
horfir að svo margir og svo ólíkir
hagsmunaaðilar í samfélaginu
– jafnvel stríðandi öfl með and-
stæðar skoðanir – haldi áfram að not-
ast við tilvísanir um að hugsanir þeirra
og skoðanir séu ekki hluti af hugarfari
hrunsins líkt og meiningar andstæð-
inga þeirra þá verði þessi vísun í lær-
dóma hrunsins merkingarlaus. Rök-
brellan um hugarfar hrunsins verður
að rökvillunni um hugarfar hrunsins,
reductio ad hrunus. Líkt og rökvillan
um Hitler, reductio ad Hitlerum – sem
gengur út á að stilla andstæðingi sín-
um í rökræðu upp sem skoðanabróður
Adolfs Hitler – verða tilvísanir í hugar-
far og lærdóma hrunsins merkingar-
lausar því þær munu lykta af rökvillu.
Lærdómar hrunsins verða gengis-
felldir ef allir hossa sér á því að þeir og
þeirra skoðanir hafi ekki með einum
eða neinum hætti tengst hruninu eða
hugarfari þess, jafnvel þó staðreynd-
irnar segi allt annað, líkt í tilfelli Vinstri
grænna og Davíðs og Hannesar.
Svarthöfði
Reductio ad hRunus