Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Qupperneq 25
Sport | 25Mánudagur 28. mars 2011
Það mikilvægasta sem
þú setur á þig í dag
Nýtt Daywear SPF 15
Nú með enn öflugri andoxunarefnablöndu
Andoxunarefni.
Góð fyrir líkamann og góð fyrir andlitið.
Þessi nýja efnablanda okkar, Super
Anti-Oxidant Complex, er svo öflug að engin
andoxunarefni sem við höfum rannsakað
komast nálægt henni í virkni. Auk þess veitir
hún vernd gegn öllum helstu tegundum
sindurefna sem áreita húðina og gera ásýnd
hennar eldri. Þannig dregur greinilega úr fyrstu
ummerkjum öldrunar. 96% kvenna (sem þátt
tóku í rannsókn okkar?) sögðu að áferð
húðarinnar hefði strax orðið sléttari, ferskari og
heilbrigðari.
STEFÁN LOGI TRYGGÐI
FYRSTA STIGIÐ
Íslenska landsliðið í knattspyrnu er
komið á blað í H-riðli undankeppni
EM 2012 eftir að hafa gert marka-
laust jafntefli við Kýpur um helgina.
Stigið geta Íslendinga þakkað mark-
verðinum Stefáni Loga Magnússyni
sem varði meðal annars vítaspyrnu
frá heimamönnum í fyrri hálfleik.
Leikurinn var vægast sagt kaflaskipt-
ur hjá íslenska liðinu. Fyrri hálfleik-
urinn var algjör hörmung þar sem
menn komu vart sendingu á milli
manna og varnarleikurinn var á tæp-
asta vaði. Í seinni hálfleik átti Ísland
fínan hálftímakafla þar sem mikill
kraftur og vilji var í liðinu. Sending-
ar skánuðu og fékk liðið mörg ákjós-
anleg tækfæri til að skapa hættu við
mark Kýpur. Á síðasta þriðjungnum
gekk þó allt á afturfótunum og kom-
ust okkar menn aldrei nálægt því að
skapa alvöruhættu við mark Kýp-
verja.
Ljúft að verja vítið
„Við vorum ekki nægilega góð-
ir í fyrri hálfleik, alla vega miðað
við það sem við ætluðum okkur,“
segir hetja íslenska liðsins, Stef-
án Logi Magnússon, í samtali við
DV. „Kýpverjar eru góðir á bolta og
við ætluðum að vera þolinmóðir.
Síðan ætluðum við að vinna bolt-
ann, nýta svæðin á vængjunum
og keyra hratt á þá. Þar vantaði oft
heyrslumuninn því sendingar voru
að klikka og það sem þessir flottu
strákar geta gert þarna frammi var
ekki að nýtast. Við eigum það þá
bara inni,“ segir Stefán sem varði
vítaspyrnu heimamanna glæsilega
í fyrri hálfleik.
„Ég svona bæði las hann og
giskaði. Svona er þetta stundum.
Það var virkilega ljúft að ná að
verja vítið og sérstaklega á þessum
tímapunkti. Þeir voru að pressa
okkur og við hefðum mátt mæta
þeim aðeins ofar. Leikurinn hefði
líka eflaust breyst töluvert ef þeir
hefðu skorað. Þeir hefðu kannski
bakkað og farið að spila leiðin-
legri bolta. En að sama skapi hefði
það kannski tvíeflt okkur. Það var
alla vega gaman að verja vítið og
ná jafntefli því það hefði ekki ver-
ið gaman að fara heim með tap á
bakinu,“ segir Stefán Logi.
Svekktir með stigið
Stefán var nokkuð ánægður með
stigið þegar leikurinn er skoð-
aður í heild sinni. „Fyrsta stigið
er alla vega komið í hús og von-
andi getum við byggt ofan á það.
Mér fannst baráttan í liðinu fín í
leiknum og allir voru að leggja sig
fram. Það höfðu allir þann metnað
að vinna leikinn sem mér fannst
ánægjulegt. Inn vildi þó boltinn
ekki. Við vissulega sköpuðum okk-
ur held ég engin færi. Það er nógu
erfitt að vinna fótboltaleiki þegar
maður skapar sér bara tvö eða þrjú
færi. En þegar maður skapar sér
engin færi er það varla hægt,“ seg-
ir Stefán sem segir liðið hafa verið
svekkt með stigið eftir leik.
„Í byrjun held ég að menn
hafi verið svekktir að landa ekki
þremur stigum. En svona eftir á
að hyggja verður að horfa til þess
að þetta er erfiður útivöllur, langt
ferðalag og svo má ekki gleyma að
Kýpverjar hafa nú alveg náð flott-
um úrslitum á sínum heimavelli.
En samt, svona beint eftir leikinn
voru menn ekki sáttir með stig-
ið sem ég tel jákvætt. Menn vildu
meira.“
Vill halda stöðunni
Stefán Logi hefur varið mark Lille-
ström undanfarin tvö ár í norsku
úrvalsdeildinni en samt sem áður
ekki notið náðar fyrir augum Ólafs
Jóhannessonar. Vegna meiðsla
Gunnleifs Gunnleifssonar fékk
Stefán Logi tækifærið á Kýpur í sín-
um fyrsta mótsleik en hann hafði
áður spilað fjóra æfingaleiki. Stef-
án segir samstarf hans og Gunn-
leifs gott en samkeppni sé þó til
staðar.
„Samvinna mín og samskipti við
Gulla eru góð. Ég ber mikla virð-
ingu fyrir Gulla, bæði sem mann-
eskju og markverði. Ég held það
hafi nú verið ég sem manna fyrstur
sagði að hann ætti að fá tækifærið
hér fyrir nokkrum árum. Svo má nú
ekki gleyma að það eru fleiri en ég
og hann sem koma til greina. Sam-
band okkar er gott. Við viljum bara
bæta og þróa hvor annan. Gulli er
fimm árum eldri en ég þannig að
ég get lært mikið af honum, ekki
síður sem persónu. Auðvitað vil ég
samt spila og Gulli líka og ég stefni
að því að halda mér í markinu,“
segir Stefán Logi Magnússon.
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
n Fyrsta stig Íslands í undankeppni
EM innbyrt á Kýpur n Stefán Logi
Magnússon varði víti í sínum fyrsta
mótsleik n Fá marktækifæri sköpuð
Bjargaði því sem bjargað varð Stefán Logi hélt hreinu og varði víti í fyrri hálfleik.MYND AME
„Fyrsta stigið er alla
vega komið í hús
og vonandi getum við
byggt ofan á það.
A-riðill
Þýskaland - Kasakstan 4-0
1-0 Miroslav Klose (3.), 2-0 Thomas Muller (25.),
3-0 Thomas Muller (43.), 4-0 Miroslav Klose (88.).
Austurríki - Belgía -2
0-1 Axel Witsel (6.), 0-2 Axel Witsel (50.).
B-riðill
Armenía - Rússland 0-0
Andorra - Slóvakía 0-0
Írland - Makedónía 2-1
1-0 Aiden McGeady (2.), 2-0 Robbie Keane (22.),
2-1 Ivan Trickovski (45.).
C-riðill
Serbía - Norður-Írland 2-1
0-1 Gareth McAuley (40.), 1-1 Marko Pantelic (65.),
2-1 Zoran Tosic (74.).
Slóvenía - Ítalía 0-1
0-1 Thiago Motta (73.).
D-riðill
Bosnía-Hersegóvína - Rúmenía 2-1
Albanía - Hvíta-Rússland 1-0
Lúxemborg - Frakkland 0-2
0-1 Philippe Mexes (28.), 0-2 Yoann Gourcuff (72.).
E-riðill
Ungverjaland - Holland 0-4
0-1 Rafael Van der Vaart (8.), 0-5 Ibrahim Afellay
(45.), 0-3 Dirk Kuyt (53.), 0-4 Robin van Persie
(62.).
F-riðill
Georgía - Króatía 1-0
Ísrael - Lettland 2-1
Malta - Grikkland 0-1
G-riðill
Wales - England 0-2
0-1 Frank Lampard (7. víti), 2-0 Darren Bent (14.).
Búlgaría - Sviss 0-0
H-riðill
Kýpur - Ísland 0-0
Noregur - Danmörk 1-1
0-1 Dennis Rommedahl (28.), 1-1 Erik Huseklepp
(81.).
I-riðill
Spánn - Tékkland 2-1
0-1 Jaroslav Plasil (29.), 1-1 David Villa (69.),
2-1 David Villa (73. víti).
Úrslit