Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2011, Side 29
Fólk | 29Mánudagur 28. mars 2011
Vill fara
fyrir dóm
L
indsay Lohan vill ekki semja utan dómstóla
vegna þjófnaðar hennar í skartgripabúð í Los
Angeles. Þetta staðfestir saksóknari í borginni
við bandaríska tímaritið People. Lögmaður
leikkonunnar, Shawn Chapman Holley, tilkynnti
dómaranum í málinu að leikkonan knáa vildi ekki
samþykkja tilboð saksóknara um að játa sig seka og
fá þriggja ára skilorðsbundinn fangelsisdóm. Lohan,
24 ára, er sökuð um þjófnað á hálsmeni að verðmæti
2.500 dala, eða rúmlega 286 þúsund króna, í janúar
síðastliðnum.
Vitnaleiðslur verða í málinu 22. apríl næst
komandi en Lohan hefur staðfastlega neitað
sök í málinu þrátt fyrir að myndbandsupptaka úr
öryggismyndavél úr skartgripaversluninni sé meðal
gagna sem lögð hafa verið fyrir dóminn. Ef dómari
úrskurðar Lohan seka á hún yfir höfði sér þriggja
ára óskilorðsbundna fangelsisvist. Dómurinn gæti
þá þyngst ef dómarinn kemst að þeirri niðurstöðu
að með þjófnaðnum hafi hún brotið gegn skilorði
vegna ölvunarakstursdóms sem hún hefur áður
hlotið.
Málið er ekki það fyrsta sem kemur upp er snýr
að meintum þjófnaði Lohan. Hún var árið 2007
sökuð um að stela skóm og fylgihlutum að verðmæti
10.000 dala, eða rúmrar milljónar króna, frá fyrrver
andi vinkonu sinni. Árið 2008 tók hún „óvart“ með
sér 11.000 dala – eða 1,2 milljóna króna – minka
pels af næturklúbb í New York sem hún var svo síðar
mynduð í eigandanum til mikillar gremju.
Lindsay Lohan vill fara alla leið:
J
ustin Bieber hrekkti vinkonu sína, Wil
low Smith, á sviði á miðjum tónleikum í
síðustu viku. Ryan Seacrest setti mynd
band af hrekknum á internetið. Á meðan
Smith söng lagið Whip My Hair á tón
leikum sem Bieber og hún héldu saman fóru
Scooter Braun og Ryan Good, umboðsmaður
og aðstoðarmaður Biebers, inn á sviðið með
hárkollur og dönsuðu. Stuttu síðar mætti svo
Bieber sjálfur á sviðið og dansaði af fullum
krafti við lagið.
Bróðir Smith, Jaden, mætti líka á sviðið og
byrjaði að sveifla hárinu, eins og texti lagsins
snýst um, á meðan systir hans vissi ekki hvaðan
á sig stóð veðrið. „Þeir náðu mér en þetta er
ekki búið,“ sagði söngkonan eftir að hún kom
af sviðinu. Eftir sýninguna setti hún svo skilboð
inn á Twitter síðuna sína þar sem hún gaf til
kynna að hún myndi hefna sín.
Hljóp
óvænt
inn á
sviðið
Justin Bieber hrekkir vinkonu sína:
Stríðnispúki Justin
Bieber kann svo sannarlega að
skemmta sjálfum sér og öðrum.
Segist vera
saklaus
Lindsay Lohan
er tilbúin að
fara alla leið
fyrir dóm-
stólum.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Reese gengin
í það heilaga
R
eese Witherspoon er búin að gifta sig. Óskarsverðlaunaleikkonan
giftist unnusta sínum Jim Toth á laugardagskvöld. Þetta staðfestir fjöl
miðlafulltrúi leikkonunnar við bandaríska tímaritið People. Parið
trúlofaðist í desember síðastliðnum en athöfnin fór fram á búgarði
Witherspoon í Ojai í Kaliforníu.
Meðal þeirra sem viðstaddir voru athöfnina voru börn Witherspoon – sem
hún á með Ryan Phillippe, sínum fyrrverandi – Ava, 11 ára, og Deacon, 7 ára,
Renée Zellweger, Sean Penn og Scarlett Johansson, Tobey Maguire, Robert
Downey Jr. og eiginkona hans, Susan, og Alyssa Milano.
Reese Witherspoon gifti sig um helgina:
Persónuleg athöfn
Athöfnin fór fram á búgarði
Reese í Kaliforníu.